Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 23
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 Dóra Magnúsdóttir, markaðsstjóri ferðamála hjá Höfuðborgarstofu, fór í ævintýralega siglingu með Norrænu í fyrrasumar ásamt eig- inmanni og fjórum börnum. Fjöl- skyldan lagði í hann frá Seyðis- firði, sigldi til Færeyja og þaðan til Noregs. Í Noregi fór hún í land, keyrði yfir til Svíþjóðar og Dan- merkur þaðan sem hún sigldi aftur heim. „Þótt flug sé góðra gjalda vert þá er hægt að ferðast frá eyjunni okkar með öðrum hætti. Sjóleið- in er vanmetin og er það eflaust vegna þess að það er tímafrekt að fara hana. Hún hefur þó ýmsa kosti enda vilja margir meina að það sé ekki áfangastaðurinn sem skiptir máli heldur ferðalagið sjálft,“ segir Dóra. Eina skipið sem nú tengir íslenskan almenning við umheim- inn er Norræna sem er gerð út frá Færeyjum. Dóra gerði sér ekki sérstaklega háar hugmyndir um skipið í fyrstu þrátt fyrir að hafa skoðað af því myndir og heyrt sögur af því hversu vel útbúið það væri. Hún varð þó ekki fyrir von- brigðum. „Hugmyndir mínar lituðust óneitanlega svolítið af Smyrli gamla sem ég ferðaðist með ung að árum á ódýrasta farrými. Nú var hins vegar stigið um borð í nýtt og glæsilegt skip og gengið til notalegrar káetu öfugt við ferða- lagið með Smyrli þegar ég hírðist í svefnpoka mínum á neðstu hæð skipsins ásamt fleiri blönkum ferðalöngum. Dóra segir sérstaka stemningu hafa myndast um borð. „Nýtt afmarkað samfélag farþega og áhafnar verður til um leið og skip- ið lætur úr höfn. Um borð eru frí- höfn, veitingastaðir, líkamsræktar- aðstaða og sundlaug, en hún vakti mikla lukku yngri kynslóðarinnar enda reyndist klikkað fjör að taka sprett í góðum veltingi. Á kvöldin er svo boðið upp á lifandi tónlist, skemmtiatriði og töfrabrögð með tilheyrandi fjöri.“ Dóra segir gaman að sjá veröld- ina úr lofti en einstakt að sjá haf og lönd af skipsfjöl. „Að sjá hlíð- ar Seyðisfjarðar smám saman minnka og hverfa, sigla fram hjá Hjaltlandseyjum í ljósaskiptun- um og sjá jafnvel stöku hval á reki er óviðjafnanlegt. Eins að koma auga á Færeyjar við sjóndeildar- hringinn, norðurhluta Jótlands, Skotlands eða vesturhluta Noregs birtast og stækka og verða svo að landföstum veruleika. vera@frettabladid.is Naut lífsins í Norrænu Sjóleiðin frá Íslandi til Skandínavíu er að sögn Dóru Magnúsdóttur óviðjafnanleg. Hún er vissulega tíma- frekari en flug en hefur marga kosti og gerir ferðalagið á áfangastað mun innihaldsríkara. Dóra segir gaman að sjá veröldina úr lofti en einstakt að sjá haf og lönd af skipsfjöl. MYND/ÚR EINKASAFNI MYNDASÝNING frá ævintýralegri ferð Sæmundar Þórs Sigurðssonar, göngufararstjóra ÍT ferða, á Aconcagua í Argentínu verður haldin í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal á laugardaginn klukkan 11.00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.