Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 50
18 25. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR timamot@frettabladid.is Okkar ástkæri, Jón Óskar Guðmundsson Hrafntóftum 2, Rang., áður Langholtsvegi 44, verður jarðsunginn laugardaginn 28. mars kl 13.00 frá Oddakirkju á Rangárvöllum. Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hins látna láti Minningarsjóð Ólafs Björnssonar á Hellu njóta þess. Sigurbjörg Ingvarsdóttir Ragnheiður Jónsdóttir Hafsteinn Ingvarsson Þórunn Jónsdóttir Steinn Þór Karlsson Elísabet Vilborg Jónsdóttir Steinar Þór Jónasson Pálína Jónsdóttir Björgúlfur Þorvarðsson Margrét Fjeldsted Jóna Borg Jónsdóttir Ludvig Guðmundsson og fjölskyldur þeirra. Elsku hjartans móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðný Guðmundsdóttir frá Svanhól Vestamannaeyjum, síðast til heimilis að Ljósheimum Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands sunnudaginn 22. mars. Útför hennar verður auglýst síðar. Þórdís Bjarney Jóhannsdóttir Helgi Hermannsson Hrafnhildur Jóhannsdóttir Ólafur Bachmann Sigurður Hilmir Jóhannsson Guðbjörg Guðjónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra eiginkona, móðir, stjúp- móðir, amma, systir, vinur og lífsins ljós, Helga Erlendsdóttir, Árnanesi, Nesjum Hornafirði, lést að kveldi 23. mars á Landspítalanum við Hringbraut. Fyrir hönd fjölskyldu og vina, Ásmundur Gíslason Ragna Eiríksdóttir Erlendur Eiríksson Elskulegur bróðir okkar og frændi, Þorvaldur Pétursson, Stórholti 4, Akureyri, lést þann 15. mars sl. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd aðstandenda, María Pétursdóttir Guðmundur Pétursson Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Auðun Hlíðar Einarsson, Neshaga 14, Reykjavík, lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund fimmtu- daginn 19. mars. Útför hans verður frá Neskirkju fimmtudaginn 26. mars kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að styrkja Dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund. Karen Tómasdóttir Halla Auðunardóttir Hannes Auðunarson Heiða Björk Marinósdóttir Katrín Auðunardóttir Björn Oddsson og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Ingi Sævar Oddsson Asparási 1, Garðabæ, lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut, fimmtudaginn 19. mars sl. Útför hans verður frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 27. mars kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á söfnunarátak Hjartaheilla. Þuríður Antonsdóttir Hrafnhildur Ingadóttir Barði Ágústsson Oddur Ingason Gunnar Ingason Svanhildur Kristinsdóttir Ómar Ingason Aníta Berglind Einarsdóttir og barnabörn. ELTON JOHN ER 62 ÁRA „Ég er hrifinn af Britney Spears, mér finnst hún sæt. Mér finnst hún skemmtileg og ég er hrifinn af plötunum hennar. Ég er ekki snobbað- ur á tónlist, skilurðu.“ Elton John er einn ástsælasti tónlistarmaður síðustu ára- tuga og hefur selt um 200 milljónir platna. Á ferli sínum hefur hann átt yfir 50 smelli á topp-40 vinsældalistum. MERKISATBURÐIR: 1807 Breska þingið bannar þrælaverslun. 1821 Grikkir lýsa yfir sjálfstæði eftir uppreisn gegn Tyrkj- um. 1838 Póstskip sem lenti í hrakn- ingum við Dyrhólaey og hraktist til Noregs kemur til landsins eftir fjögurra mánaða bið eftir byr. 1901 Fyrsta tvígengisdísilvélin sýnd í Manchester. 1957 Rómarsáttmálinn sam- þykktur með þátttöku Belgíu, Hollands, Lúxem- borgar, Frakklands, Ítalíu og Vestur-Þýskalands. 1975 Vatnsfjörður í Barða- strandarsýslu friðlýstur. 1992 Sjötíu ára gömul lög um bann við löndun úr er- lendum fiskiskipum á Ís- landi afnumin. Sýningar á farsanum Stundum og stundum ekki eftir Arnold og Bach, hafa staðið yfir hjá Leikfélagi Hörg- dæla í mars. Annað kvöld mun inn- koma sýningarinnar renna óskert til Krabbameinsfélags Akureyrar og ná- grennis en sýningin er tileinkuð minn- ingu Hólmfríðar Helgadóttur. „Hólmfríður starfaði mikið fyrir Leikfélag Hörgdæla og þegar hún greindist með krabbamein fyrir nokkr- um árum hélt hún áfram að styðja við leikfélagið,“ útskýrir Tryggvi Gunn- arsson, varaformaður Leikfélags Hörg- dæla og kynningarfulltrúi. „Hólmfríð- ur mætti á allar sýningar hjá okkur og var okkur stoð og stytta þar til hún lést í desember síðastliðnum. Hugmyndin kom svo upp í febrúar fyrir frumsýn- ingu að heiðra minningu hennar með því að styrkja Krabbameinsfélagið sér- staklega.“ Tryggvi reiknar með að leikfélag- ið muni afhenda Krabbameinsfélag- inu eitthvað í kringum 250.000 krón- ur eftir sýninguna annað kvöld en hús- fyllir hefur verið á hverja sýningu á fætur annarri síðan frumsýnt var 5. mars. Það muni koma Krabbameins- félaginu vel en margir skjólstæðingar þess þurfa að leggja land undir fót til að leita sér lækninga. „Ég held að það sé ekki oft sem áhuga- leikhús gera svona lagað og þetta kætti Krabbameinsfélag Akureyrar gríðar- lega mikið þegar við bárum hugmynd- ina undir þau. Félagið sér fyrir sér að nota peningana til að styrkja sjúklinga sem þurfa að leita til Reykjavíkur í með- ferð, til dæmis með gistingu.“ Æfingar hjá leikfélaginu hófust í jan- úar en um 30 manns koma að sýning- unni. Starfið innan leikfélagsins er öfl- ugt en leikfélagið sýndi fyrst árið 1928 og hefur sett upp sýningar að meðal- tali annað hvert ár síðan þá. Tryggvi segir æfingar hafa gengið vel og við- tökurnar sem verkið hafi fengið fram að þessu frábærar. „Fólk segist hlæja stanslaust í 90 mín- útur af þeim 110 mínútum sem sýning- in stendur yfir,“ segir Tryggvi. „Leik- ritið var fyrst sýnt í Iðnó árið 1940 en var bannað því það þótti særa blygðun- arkennd Íslendinga. Fólk verður bara að koma og meta sjálft hvort við séum orðin eitthvað sérstaklega siðlaus hér í Hörgárdalnum,“ bætir hann við hlæj- andi en hann fer sjálfur með hlutverk í sýningunni. „Mitt hlutverk dansar ein- mitt á mörkum siðferðis. Ég starfa sem sölumaður í Húsasmiðjunni og undan- farið hafa konur tekið sveig fram hjá mér eftir að hafa séð mig á sviðinu.“ Að öllu gamni slepptu segir Tryggvi inntak leikritsins eiga vel við í dag en það var skrifað í kringum 1935. Sagan gerist á skrifstofu siðferðismálaráð- herra og fjallar um hvernig hver klór- ar öðrum á bakinu til að fá sínu fram- gengt. Sýnt er á Melum í Hörgárdal og er miðasala í símum 862 6821 og 695 7185 milli klukkan 17 til 19 virka daga og milli klukkan 13 til 17 um helgar. heida@frettabladid.is LEIKFÉLAG HÖRGDÆLA: STYRKIR KRABBAMEINSFÉLAG AKUREYRAR Leikið í minningu Hólmfríðar SÆRÐI BLYGÐUNARKENND Í leikritinu bregður fyrir konum í sundbolum en það féll ekki í kramið í Iðnó árið 1940 og leikritið var bannað. Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir, Halla Halldórsdóttir, Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir, Sunna Dögg Róbertsdóttir og Helga Jónsdóttir í hlutverkum sínum. MYND/LEIKFÉLAG HÖRGDÆLA Opinn kynningarfundur verður í kvöld klukkan 20.30 í Safnaðarheimili Seltjarn- arneskirkju, á starfi Alþjóð- legrar ættleiðingar. Starfsemi félagsins verður kynnt en félagið var stofnað í lok árs 2008 og er því ætlað að hafa milligöngu um ætt- leiðingar erlendis frá til Ís- lands. Unnið er að löggild- ingu félagsins og að því að ná samningum um ættleið- ingar við tvö lönd, Kenía og Pólland. Starfsemi félagsins er unnin í sjálfboðavinnu og renna tekjur félagsins til þess að koma á milliríkjasamning- um um ættleiðingar. Nánari upplýsingar á http:// intadopt.worepress.com. Alþjóðleg ættleiðing Birna Ósk Einarsdóttir, formaður Alþjóðlegrar ættleiðingar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hnefaleikarinn Mike Tyson var handtekinn í júlí árið 1991 fyrir nauðgun. Hann var sakfelldur í febrúar og hlaut sex ára dóm og hófst afplánun strax eftir réttarhöld- in. Tyson sat inni í þrjú ár og snerist til íslam áður en honum var sleppt þennan dag árið 1995. Fyrstu tvo bardagana eftir að hann losnaði úr fangelsi vann hann auðveldlega, á móti Peter McNeeley annars vegar og Buster Mathis hins vegar. Tyson giftist leikkonunni Robin Givens árið 1988 en Givens fór fram á skilnað ári síðar. Ástæða skilnaðarins var hversu Tyson var laus höndin. Árið 1997 giftist hann Monicu Turner og eignuðust þau tvö börn. Það hjónaband endaði einnig með skilnaði árið 2003 vegna framhjáhalds Tysons en hann á að minnsta kosti tvö börn að auki með öðrum konum. Árið 2005 kom Tyson heimin- um á óvart þegar hann tilkynnti að hann væri hættur að boxa eftir viðburðaríkan feril og oft og tíðum skrautlegan. Tyson sagð- ist ekki hafa hugrekkið né hjart- að í íþróttinni lengur. Hann hefur síðan verið handtekinn með eit- urlyf í fórum sínum og viður- kennt að eiga við fíkn að stríða. Árið 2007 fór saksóknari fram á árs fangelsi yfir Tyson vegna eitur- lyfjamisferlis en Tyson var dæmd- ur til 24 tíma fangelsis auk sam- félagsþjónustu með því skilyrði að hann leitaði sér hjálpar. ÞETTA GERÐIST: 25. MARS 1995 Mike Tyson losnar úr fangelsi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.