Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 25. mars 2009 3 Tilvonandi fermingarstúlkur sem vilja stytta sér stundir fram að stóra deginum geta dundað sér við að föndra eigið fermingarskart og skraut. Þær stúlkur sem vilja tryggja að þær skeri sig úr á ferming- ardaginn geta tekið sig til og búið til eigið hárskraut. Það styttir þeim auk þess stund- irnar fram að stóra deginum Í Föndurstofunni við Síðu- múla fást til dæmis hárspenn- ur, kambar, nælur, spangir, fjaðrir, blóm, perlur og ýmis annar efniviður í skapandi hárskrautsgerð. Í versluninni er auk þess úrval af vörum til skartgripagerðar. Þar fæst efni í hálsmen, armbönd og eyrnalokka sem gaman er að hafa í stíl við hárskrautið eða fötin. Sjá nánar á fondurstof- an.is - ve Skartið föndrað Spöng í líkingu við þessa er hæglega hægt að gera sjálfur. Í Föndurstofunni fæst ýmis efniviður til hárskrauts- og skartgripagerðar. Átakið Hættan er ljós stendur nú yfir, sjötta árið í röð, á vegum Félags íslenskra húðlækna, Geislavarna ríkisins, Krabbameinsfélags Íslands, Landlækn- isembættisins og Lýðheilsustöðvar. Með átakinu Hætt- an er ljós vilja félög- in benda foreldrum fermingarbarna á hættuna sem fylgir því að ungt fólk noti ljósabekki. Bent er á að unglingar og börn eru næmari en fullorðnir fyrir skaðlegum áhrifum frá geisl- um sólar og ljósabekkja. Eins og kemur fram á vef Lýð- heilsustöðvar hefur tíðni alvar- legra húðkrabbameina eins og sortuæxla aukist á síðustu árum, sérstak lega hjá ungum konum á aldrinum 15 til 34 ára. Að meðaltali greinast um 50 manns árlega með sortu- æxli í húð, um 55 með önnur húðæxli og um 225 manns með grunnfrumu- æxli í húð samkvæmt tölum frá krabbameinsskrá Krabbameins- félags Íslands. Nánari upplýsingar er að finna á www.lydheilsustod.is. - rat Hættan er ljós Börnum og unglingum stafar meiri hætta af skaðlegum geislum sólar og ljósabekkja en fullorðnum. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki LAURA ASHLEY Faxafeni 14 108 Reykjavík S:5516646 Opið virkadaga 10-18 og laugardaga 11-14 Fermingagjafir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.