Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2009 9formúla 1 ● fréttablaðið ● Vistarverur Hamiltons fjarri heimahögum Hamilton er á ferðalagi mikinn hluta ársins og því nauðsynlegt að öll aðstaða sé góð í kring- um hann og aðra liðsmenn á mótstað. Lewis Hamilton býr í Sviss og flutti þangað til að forðast atgang gulu pressunnar í Bretlandi. „Það er nauðsynlegt að hafa góða aðstöðu á mótstað. Þannig hefur maður há- marksorku þegar kemur að kapp- akstrinum,“ segir Hamilton. Hann er yfirleitt eltur á röndum af fjöl- miðlamönnum og því lítill friður til að athafna sig. „Ég hef engan tíma til að skoða þau lönd sem ég keppi í, því miður. Hver mínúta er skipulögð, frá því að ég lendi á flugvellinum. Ég gisti á bestu hótelum sem völ er á, en gler- hýsi McLaren er minn griðastaður um mótshelgar,“ segir Hamilton. McLaren-menn segja að höllin hafi fært liðinu yfir 500 milljónir dala í viðskiptum, þar sem marg- ir viðskiptasamningar hafi verið gerðir innan veggja hennar. Höll- in er tilkomumikil. Á neðri hæð- inni er veitingasalur með þrem- ur 63 tommu sjónvarpskjáum svo gestir geti fylgst með atburðum á brautinni. Þá er fimm stjörnu eldhús, að- staða fyrir fréttamenn og ljósmynd- ara og sérstakt fundarherbergi. Hamilton og Kovalainen eiga sín herbergi sem eru algjörlega hljóð- einangruð. Hamilton tekur með sér tónlist og DVD-diska til að slaka á, en nuddari er einnig til taks þegar ökumenn McLaren óska þess. Þá má ekki gleyma því að öflug- ar leikjatölvur eru í herbergjum beggja ökumanna. Þeir geta meira að segja verið hvor í sínu herberg- inu og keppt hvor við annan í tölvu- leik ef því er að skipta. Á efri hæðunum eru fjögur fund- arherbergi fyrir markaðsmenn og tæknimenn McLaren. Þangað er gestum liðsins boðið þegar keppnin er í gangi og tveir barir eru til stað- ar. Þráðlaust net er í glerhöllinni og flatskjáir á hverju strái, svo eng- inn missi af neinu. Þá eru nokkr- ir snertiskjáir þar sem gestir geta skoðað bíla liðsins og aðrar upplýs- ingar um Formúlu 1. Það tekur tíma að koma höll McLaren fyrir og þarf sjö flutn- ingabíla til að koma herlegheitun- um á sinn stað. Á eftir þeim trukk- um koma þrír aðrir með húsgögnin. Önnur keppnislið gerðu fyrst grín að umstangi McLaren, en höllin hefur skilað vænum bunka af seðl- um í gullkistu liðsins. - gr keppnisaðilum til hamingju með árangurinn. Enginn er fullkominn og Ham- ilton kann að viðurkenna mistök eins og hann gerði þegar hann ók óvart aftan á Raikkonen á rauðu ljósi á viðgerðarsvæðinu í kanad- íska kappakstrinum í Montreal í fyrra og bað hann afsökunar. Einn- ig viðurkenndi hann ökumannsmis- tök sem hann gerði á Fuji-braut- inni í Japan og bætti við: „Á morg- un kemur nýr dagur.“ Hamilton er mikill fjölskyldu- maður og Anthony faðir hans fylg- ir honum eftir um allan heim og er honum greinilega mikil stoð og stytta. Hann tileinkaði fjölskyld- unni sigurinn á Silverstone í Bret- landi í fyrra. Hamilton er einnig mjög trúaður eins og kom berlega í ljós þegar hann bað Guð um rign- ingu á Spa í Belgíu í fyrra og fékk þá ósk uppfyllta. Það skilaði honum fyrsta sætinu sem síðar var reynd- ar dæmt af honum. ENDURTÓK EKKI MISTÖK FRÁ 2007 Hamilton kann að fagna árangri og hver sigur er eins og hans fyrsti. Hann er mikill keppnismaður og markmið hans hefur alltaf verið að aka til sigurs. Hamilton viður- kenndi undir lok keppnistímabils- ins í fyrra að það gæti hafa haft áhrif að hann missti af heims- meistaratitlinum árið 2007. Hann ætlaði ekki að láta það endurtaka sig. Því var markmiðið í Brasilíu að sækja nógu mörg stig til að verða heimsmeistari en fyrir síðasta mótið hafði hann sjö stiga forskot á Felipe Massa. Hann hafði það sem þurfti, sálfræðilega yfir- burði, og náði að landa heimsmeist- aratitlinum eins og fyrr greinir með eins stigs mun. - hgm sá fyrsti Lewis Hamilton og söngkona Pussycat Dolls, Nicole Schwarzinger, hafa verið óaðskiljanleg frá fyrstu kynnum. Bæði lifa annasömu lífi, hún sem söngkona og hann sem kappakstursökumaður. NORDICPHOTOS/GETTY HANN ER FYRSTA FLOKKS ÖKUMAÐUR, mjög sterkur og aðeins 16 ára. Ég er viss um að hann kemst í Formúlu 1-kappaksturinn með þessu framhaldi. Það er einstakt að sjá krakka á hans aldri úti á brautinni. Hann hefur greinilega rétta hugar- farið sem þarf í kappakstur.“ Michael Schumacher, um Hamilton árið 2001 McLaren reisir sannkallaða glerhöll á þeim mótssvæðum sem liðið kemur á. Í henni er allt til alls. N O RD IC PH O TO S/ G ET TY
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.