Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 34
 25. MARS 2009 MIÐVIKUDAGUR8 ● fréttablaðið ● formúla 1 Bretinn Lewis Hamilton er yngsti meistari sögunnar og ökumaður McLaren Mercedes. Hann hóf ferilinn átta ára gamall. Lewis Carl Davidson Hamilton er fæddur í Hertfordshire á Englandi hinn 7. janúar 1985. Hann er öku- maður McLaren og hefur lýst því yfir að hann vilji vera hjá liðinu allan sinn keppnisferil. Hamilton er yngsti F1-ökumaður sögunnar og varð heimsmeistari aðeins 23 ára gamall. Hann er skírður í höf- uðið á sprettahlauparanum heims- þekkta, Carl Lewis sem fjölskyld- an hafði dálæti á. Móðir Lewis, Carmen Larba- lestie (nú Lockhart), er bresk og af hvítum kynþætti. Faðir hans Anth- ony Hamilton er blökkumaður en foreldrar Anthony komu frá Gren- ada til Bretlands í kringum 1950. Carmen og Anthony skildu þegar Lewis var tveggja ára og ólst hann upp hjá móður sinni og tveimur hálfsystrum, Nicolu og Samönthu, til tólf ára aldurs. Þá flutti hann til föður síns og stjúpmóður, Lindu og hálfbróður síns Nicholas. BYRJAÐI AÐ KEPPA ÁTTA ÁRA Akstursíþróttaferill Lewis hófst þegar hann var 8 ára en hann vann sinn fyrsta sigur tíu ára í breska kart-kappakstrinum. Sagan segir að Lewis hafi árið 1995, þá tíu ára, óskað eftir eiginhandaráritun hjá Ron Dennis á Autosport-hátíðinni í Bretlandi og sagt við hann: „Ég mun aka fyrir þig einn daginn.“ Dennis skrifaði í bók sem Lewis hafði meðferðis: „Hringdu í mig eftir níu ár og við munum komast að niðurstöðu þá.“ Það er skemmst frá því að segja að Ron Dennis hringdi í Hamilt- on þremur árum síðar, árið 1998 þegar McLaren uppgötvaði hæfi- leika hans. Gerður var samning- ur við hann í gegnum stuðnings- klúbb Mercedes-Benz fyrir unga ökumenn. Samningurinn fól í sér möguleika á að aka fyrir McLar- en í F1 í framtíðinni. Eftir að hafa sigrað í bresku Renault-formúlunni, Formúlu 3- keppninni í Evrópu og orðið heims- meistari í GP2 árið 2006 fékk Lewis ökumannssæti hjá McLar- en í Formúlu 1 árið 2007. Hann er fyrsti blökkumaðurinn sem kepp- ir í Formúlu 1. Á fyrsta keppnisárinu náði Hamilton öðru sæti í meistaramót- inu og varð einungis einu stigi á eftir heimsmeistaranum Kimi Ra- ikkonen. Hamilton varð svo heims- meistari ári síðar þegar hann vann Felipe Massa með eins stigs mun eftir gríðarlega spennandi keppni í Brasilíu. JÁKVÆÐUR, BROSMILDUR OG HLÝR Lewis Hamilton hefur að mati greinarhöfundar einstaka per- sónutöfra. Hann er alltaf tilbúinn í sjónvarpsviðtöl þar sem hann gefur mikið af sér, er brosmild- ur og hlýr. Hann er jákvæður og þakklátur, gleymir aldrei að þakka öllu liðinu sínu bæði á mótsstað og heima fyrir góðan árangur og áhangendum fyrir stuðninginn. Það skilar sér í síauknum vinsæld- um. Hamilton er einnig auðmjúkur og ávallt tilbúinn til að óska sam- Hver sigur er eins og Nýja ökutæki Lewis Hamilton hefur valdið nokkrum vonbrigðum á æfingum en engu síður ætlar hann sér í toppslaginn í fyrsta mótinu. ● UPPÁHALDS TÓNLISTARFLYTJENDUR: The Roots, De La Soul, 2Pac, Biggie, Nas, Bob Marley, Sizzla, Sean Paul, Freddie McGregor, UB40, Chaka Demus & Piliers, Beenie Man, Sanchez, Warrior King. ● ÁHUGAMÁL: Tónlist, að spila á gítar, bækur, líkamsrækt, leikja- tölvur, hjólreiðar, skvass, tennis, kappakstur, kvikmyndaáhorf ,partí með góðum vinum, afslöppun með fjölskyldu og vinum. Strákarnir þrír: Lewis Hamilton, Anthony faðir hans og yngri bróðir hans, Nicholas. Hamilton hefur hugsað vel um bróður sinn sem hefur verið lamaður að hluta frá fæðingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.