Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 62
30 25. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 BESTI BITINN Í BÆNUM VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 82,3 milljarðar króna. 2 300 þúsund krónur. 3 Eitt-eitt. LÁRÉTT 2. fangi, 6. ólæti, 8. hall- andi, 9. bein, 11. í röð, 12. hólf, 14. hroki, 16. tímaeining, 17. hlóðir, 18. skammst., 20. frá, 21. sundfæri. LÓÐRÉTT 1. leikur, 3. klaki, 4. hjara, 5. loka, 7. aðdragandi, 10. fjór, 13. viðmót, 15. ræningi, 16. keraldi, 19. einnig. LAUSN LÁRÉTT: 2. gísl, 6. at, 8. ská, 9. rif, 11. rs, 12. klefi, 14. dramb, 16. ár, 17. stó, 18. möo, 20. af, 21. uggi. LÓÐRÉTT: 1. hark, 3. ís, 4. skrimta, 5. lás, 7. tildrög, 10. fer, 13. fas, 15. bófi, 16. ámu, 19. og. „Það er Maður lifandi í Borgar- túni. Mér líður alltaf eins og ég hafi gert mér eitthvað gott þeg- ar ég fæ mér hádegismat þar.“ Kristján B. Jónasson bókaútgefandi. „Jú, ég get ekki neitað því. Mér finnst þetta vera skrítin ákvörðun því þetta er ekki dýrt efni hefði ég haldið,“ segir Ævar Örn Jósepsson rithöfundur. Sigrún Stefánsdóttir, dagskrár- stjóri útvarpssviðs Ríkisútvarps- ins, hefur tekið þá ákvörðun að slá af spurningakeppni fjölmiðl- anna sem verið hefur veigamikill líður í páskadagskrá Rásar 2 og notið mikilla vinsælda. „Já, þetta hefur verið fastur liður hjá mörg- um að hlusta á þetta, ekki síst í bílum og sumarbústöðum,“ segir Ævar Örn en fólk er gjarnan á far- aldsfæti um þetta leyti árs. Ævar Örn hefur verið umsjónarmaður keppninnar undanfarin fimm ár. Aðspurður vill hann ekki gefa upp hversu mikla verktakagreiðslu hann hefur verið að þiggja, segir hana hvorki háa né lága en eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er um þrjú hundruð þúsund krón- ur að ræða. Og væntanlega leggst þá einhver fastakostnaður við dagskrárgerðina. Ævar hefur því samkvæmt þessu verið að þiggja um þúsund krónur per spurningu. Spurningakeppni fjöl- miðlanna er um tuttugu ára en það mun hafa verið Þjóðviljinn sem bar sigur úr býtum í fyrstu keppninni sem var árið 1989. Samkvæmt heimild- um Fréttablaðsins er þetta liður í niðurskurði stofn- unarinnar. Síðast sigraði fréttastofa Ríkisútvarpsins eftir mikla eyðimerkurgöngu. Þegar sú kenning er viðruð við Ævar Örn hvort menn hafi beðið eftir því og lagt þá keppnina niður til að halda bikarnum í Efstaleitinu, hlær spurn- ingahöfundurinn en telur svo ekki vera. - jbg Spurningakeppni slegin af ÆVAR ÖRN Hefur haldið utan um keppnina sem hefur verið svo ríkur partur af páskadagskrá Rásar 2. Veljum íslenskt 25% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM FISKI Í DAG ýsufl ök, lúðusneiðar laxafl ök, fi skréttir hörpuskel, humar, rauðmagi og margt fl eira. HUGSUM UM HEILSUNA OG BORÐUM FISK. „Ég legg í hann á morgun með feitt umslag frá útlendingaeftirlitinu. Guð má vita hvað gerist,“ segir Darri Ing- ólfsson leikari. Hann hefur feng- ið atvinnuleyfi í Bandaríkjunum og hyggst setjast að í Los Angeles, höf- uðborg skemmtanaiðnaðarins. Darra þekkja flestir úr hlutverki morðingj- ans í sjónvarpsþáttunum Mannaveið- um sem sýndir voru í fyrra. Hann hefur hins vegar lítið dvalist á Íslandi síðustu ár. „Planið var alltaf að fara til Bandaríkjanna. Svo ákvað ég að fara í leiklistarnám í London og allt í einu liðu átta ár. Síðustu tvö árin hef ég hins vegar verið að grúska í þessu græna korts-dóti. Þetta hefur verið ótrúleg pappírsvinna,“ segir Darri. Darri segir að hann renni alger- lega blint í sjóinn með atvinnu í Los Angeles. „Þetta verður bara hark. Ég á nokkra kunningja þarna úti og ég vona að einhver þeirra geti komið mér í samband við umboðsmann. Annars gerist ekki neitt,“ segir leikarinn sem segist vel átta sig á því að erfitt verði að koma sér á framfæri. „Ég heyrði að það væru 800 þúsund leikarar í LA … en fólk vinnur í lottói á hverjum degi,“ segir hann og hlær. - hdm Íslenskur leikari flytur til Los Angeles REYNIR FYRIR SÉR Í BORG ENGLANNA Darri Ingólfsson flytur til Los Angeles á morg- un þar sem hann ætlar að reyna að koma sér á framfæri sem leikari. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Landsfundarfulltrúar Vinstri grænna veltu því mjög fyrir sér hvort meist- arakokkurinn Siggi Hall væri geng- inn til liðs við flokkinn. En Siggi var eins og grár köttur á Hótel Nordica og var kammó við kommúnistana – enda hefur hann ekkert á móti þeim. En ekki var það svo að Siggi væri landsfundarfulltrúi heldur var hann að snúast í tengslum við Food and Fun. Fréttablaðið missté sig í gær þegar sagt var af tilþrifamiklum og fúl skeggjuðum Friðriki Weiss- happel, veitingahúsamógúl í Kaupmannahöfn, sem vakti óskipta athygli veg- farenda í miðborginni þar sem hann sprangaði um með barnavagn á undan sér. Sagt var að Friðrik væri hér Árna Snævar innan handar vegna afmælisveislu en afmælisbarnið var annar Árni og er sá Sævarsson. Eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á þessu, ekki síst Árni Snævarr en yfir hann rigndi í gær óbótaskömmum frá fólki sem taldi furðu sæta að hafa ekki fengið boðsmiða í veisluna. Óljósar fréttir berast frá framleiðslu- fyrirtækinu Saga Film. Starfsmenn þar á bæ leita nú logandi ljósi að tvífara grínistans Péturs Jóhanns Sigfússonar fyrir væntanlegan sjónvarpsþátt. Engar upplýsingar fást um hvað nákvæmlega er að ræða en þeir sem telja sig líkan Pétri ættu að setja sig í samband við fyrirtækið. Það skyldi þó aldrei vera að tveir einstaklingar með þetta sérstaka útlit nái að verða frægir á Íslandi. - jbg, hdm FRÉTTIR AF FÓLKI Nafnið Tinatin Japaridze kemur sennilega flestum Íslendingum spánskt fyrir sjónir. En það tengist landi og þjóð með nokkrum sérstök- um hætti. Því þessi georgíska popp- stjarna sem alin er upp í Moskvu en býr nú í New York er einn þriggja höfunda að framlagi Íslands til Eur- ovision, Is it True? sem Jóhanna Guðrún flytur. Og Íslendingar hafa þarna náð töluverðu forskoti á önnur lönd með ögn skárri rúss- neskri tengingu en Rússalánið víðfræga. „Við reyndum að halda þessu leyndu enda vildum við að fólkið kynni að meta lagið en væri ekki að spá í einhverja pólitík. Það gekk eftir og ég get ekki beðið eftir að hitta Jóhönnu, Óskar og Chris í Moskvu,“ segir Tinatin í samtali við Fréttablaðið í gær. Is it True? var upphaflega hugs- að á plötu Tinatin sem hún vann með Óskari Páli og lagahöfundin- um Christopher Neil í London fyrir nokkrum árum. Lagasmíðarnar gengu hins vegar það vel að lagið rataði ofan í skúffu þar sem það hálfpartinn gleymdist. „Síðan hafði Óskar samband við mig fyrir hálfu ári og spurði hvort það væri mér að sársaukalausu að senda lagið inn í Eurovision,“ útskýrir Tinatin sem fór í kjölfarið að fylgjast grannt með keppninni hérna heima í gegn- um fartölvu sína í New York. „Óskar var alveg handviss um að það kæm- ist í gegnum sextánlaga-úrslitin en svo gæti brugðið til beggja vona á úrslitakvöldinu.“ Tinatin hélt því niðri í sér andanum þegar hún horfði á úrslitakvöldið og reyndi að skilja hvað væri í gangi. „Ég skil auðvitað ekki stakt orð í íslensku og vissi því ekkert hvernig þetta fór fram. Fyrst hélt ég að við hefðum lent í öðru sæti og fannst það alveg frábært. Ég meira að segja vakti mömmu mína í Moskvu og sagði henni frá því. En svo varð náttúr- lega allt brjálað þegar ég komst að því að við hefðum unnið og hvorki ég, Christopher né Óskar Páll vorum viðstödd,“ segir Tinatin. Söngkonan er nú að vinna að því að þýða texta lagsins yfir á rússnesku ásamt landa sínum sem búsettur er í New York. Og hún hlakkar mikið til að koma til Moskvu og fá tækifæri til að taka þátt í Eurovision-ævintýri Íslend- inga og hitta fjölskyldu sína sem þar er búsett. Tinatin hefur jafn- framt mikla trú á Jóhönnu Guð- rúnu. „Þegar maður er listamað- ur er maður mjög vandfýsinn á aðra listamenn. En að svona falleg stúlka geti sungið jafn vel er nátt- úrlega bara draumur.“ Og Tinatin telur að Íslendingar hafi alla burði til að heilla að minnsta kosti Rússa upp úr skónum ef ekki aðrar þjóð- ir. „Samband Íslands og Rússlands er mjög sérstakt og ég held að þetta eigi eftir að ganga mjög vel.“ freyrgigja@frettabladid.is TINATIN JAPARIDZE: LYKILLINN AÐ HJARTA RÚSSNESKA BJARNARINS Leynihöfundur að íslenska Eurovisionlaginu Is it True? KOMIN MEÐ FORSKOT Jóhanna Guðrún er óneitanlega komin með forskot á önnur lönd með þessari rússnesku tengingu. Hún er ögn skárri en Rússa- lánið víðfræga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÞÝÐIR TEXTANN YFIR Á RÚSSNESKU Tinatin vinnur nú hörðum höndum að því að þýða texta íslenska Eurovision-lagsins yfir á rússnesku og telur að það gæti heillað Rússa upp úr skónum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.