Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 10
 25. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR „Veita persónulega ráðgjöf.“ Kona, 39 ára. Í dag, miðvikudag, sitja ráðgjafar okkar lengur við símann. Ráðgjafar Eignastýringar, Almenna lífeyrissjóðsins og Fjármögnunar svara spurningum ásamt ráðgjöfum Íslandsbanka. Hringdu í okkur á milli kl. 17 og 21 í síma 440 4000. Getum við aðstoðað? Á islandsbanki.is getur þú einnig pantað fjármála- viðtal þar sem við bjóðum þér að setjast niður með okkur og fara ítarlega yfir stöðuna. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 0 9 -0 3 4 0 Frá því í nóvember höfum við kallað eftir skoðunum viðskiptavina í útibúum og á heimasíðu okkar um það hvernig þeir vilji að nýr banki starfi. Við notum þessar ábendingar til að móta nýjan banka. MEXÍKÓ Bandarísk stjórnvöld hyggj- ast auka eftirlit við landamæri Mexíkó. Dagblaðið The Washing- ton Post greindi í gær frá sívax- andi áhyggjum stjórnvalda yfir eiturlyfjastríðinu í Mexíkó en það hefur í auknum mæli teygt anga sína norður yfir landamærin. Í Bandaríkjunum eru mannrán nú hvergi tíðari en í Phoenix í Ariz- ona, sem er skammt frá landmær- um Mexíkó, og er það tengt við átök mexíkóskra eiturlyfjahringa. Hillary Clinton, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, mun funda með Felipe Calderón, forseta Mex- íkó, á næstu dögum. Munu þau ræða hvernig þjóðirnar geti unnið saman að því að binda enda á átök- in og sérstaklega ólöglegt vopnas- mygl frá Bandaríkjunum til Mex- íkó. Talið er að um 95 prósent þeirra vopna sem eiturlyfjabar- ónarnir noti séu keypt eða stolin í Bandaríkjunum. The Washington Post greinir frá því að þess sé ekki langt að bíða að Bandaríkjaforseti sendi hersveitir suður að landamærum Mexíkó. Bandarísk stjórnvöld hafa hins vegar verið treg til að gera það. Mexíkósk stjórnvöld birtu í gær lista með nöfnum þrjátíu glæpa- manna sem eftirlýstir eru vegna eiturlyfjastríðsins í landinu. Tveggja milljóna dollara verðlaun eru í boði fyrir upplýsingar sem leiða til handtöku þeirra þrettán sem eru efstir á listanum. Frá því að Felipe Calderón tók við forsetaembætti í Mexíkó í desem- ber árið 2006 hafa yfir níu þúsund manns látist í átökum tengdum baráttunni gegn eiturlyfjabarón- unum. Efstur á lista mexíkóskra yfir- valda er Joaquín Guzman Loera, höfuðpaur Sinaloa-eiturlyfjahrings- ins. Hann komst fyrir skömmu í 701. sætið á lista Forbes-tímaritsins yfir ríkustu menn veraldar. Auður hans er talinn nema um einum millj- arði dollara. Guzman Loera er líka hundeltur af bandaísku fíkniefna- lögreglunni (DEA) sem heitir fimm milljóna dollara verðlaunum fyrir upplýsingar sem geta leitt til hand- töku hans. Guzman Loera hefur verið á flótta síðan hann strauk úr fangelsi í Mexíkó árið 2001. Mexíkósk stjórnvöld hafa sent um 45 þúsund hermenn til þeirra svæða þar sem eiturlyfjahringirnir eru hvað sterkastir. Flestir eru við landamæri Bandaríkjanna. trausti@frettabladid.is Bandaríkjaher líklega á leið í eiturlyfjastríð Bandarísk stjórnvöld hafa vaxandi áhyggjur af eitur- lyfjastríðinu í Mexíkó. Hillary Clinton fundar með forseta Mexíkó á næstu dögum. Milljónir dollara eru í verðlaun fyrir upplýsingar um eiturlyfjabaróna. VIÐ LANDAMÆRIN Mexíkóskur hermaður stendur vörð við landamæri Bandaríkjanna skammt frá Tijuana. FRÉTTABLAÐIÐ/AP EFTIRLÝSTIR Ricardo Najera, talsmaður mexíkóska dómsmálaráðuneytisins, stendur fyrir framan veggspjald með myndum af eftirlýstum glæpamönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FRAKKLAND, AP Franska ríkis- stjórnin hefur ákveðið að bjóða bætur þeim þúsundum manna sem hlutu heilsutjón af völdum kjarn- orkutilrauna Frakka í Alsír og í Kyrrahafi á tímabilinu 1966-1996. Allt að 150.000 manns, bæði her- menn og óbreyttir borgarar, voru á vettvangi er tilraunasprengingarn- ar voru framkvæmdar. Þær voru alls 210 talsins. Franski varnarmálaráðherrann Herve Morin sagði í gær að það væri tími til kominn fyrir Frakka að „semja frið við sjálfa sig“ og við- urkenna hliðarverkanir tilrauna- sprenginganna. - aa Kjarnorkutilraunir Frakka á árunum 1966-1996: Bjóða bætur eftir kjarnorkutilraun HLIÐARVERKANIR Frá einni af tilrauna- sprengingum Frakka árið 1971 á Muru- roa-skerjum í Suður-Kyrrahafi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.