Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 32
25. MARS 2009 MIÐVIKUDAGUR6 ● fréttablaðið ● formúla 1
Fjölmargar breytingar hafa verið gerð-
ar á útbúnaði keppnisbíla frá því í fyrra.
Það er gert til að minnka þróunarvinnu
og rekstrarkostnað. Einnig til að auka
jafnræði á milli liða.
ENDURNÝTING Á HREYFIORKU
Ökumenn eiga möguleika á að nýta sér
sérstakt orkumögnunarkerfi sem er kall-
að KERS. Kerfið endurnýtir hreyfiorku
sem myndast þegar ökumaður bremsar en
hún færi annars forgörðum. Orkan er varð-
veitt með sérstökum búnaði og getur öku-
maðurinn notfært sér orkuna með því að
þrýsta á hnapp í stýrinu. Við það fær hann
um 80 hestöfl aukalega, í að jafnaði tæpar
6,5 sekúndur á hring, í viðbót við rúmlega
700 hestöfl sem eru í vélarsalnum.
VÉLARNAR
Snúningshraði véla hefur verið minnkaður
úr 19.000 í 18.000 snúninga á mínútu. Hver
ökumaður fær átta vélar yfir tímabilið og
fjórar til æfinga. Ef ökumaður hefur notað
allar átta vélarnar og notar þá níundu, þá er
hann færður aftur um tíu sæti á ráslínu eða
er ræstur aftastur ef vélaskiptin fara fram
eftir tímatökuna í viðkomandi keppni.
YFIRBYGGINGIN
Yfirbygging bílanna er gjörbreytt. Loftaflið
hefur verið takmarkað til muna og líta bíl-
arnir allt öðruvísi út en í fyrra. Engir væng-
ir, blöðkur eða hliðarplötur eru til staðar.
Afturvængurinn hefur verið hækkaður en
gerður mjórri og framvængirnir stækkaðir.
Þetta er gert til að gera framúrakstur auð-
veldari með því að gera bílinn stöðugri við
eftirför annars bíls.
DEKKIN
Ökumenn velja um tvær útgáfur þurrdekkja,
það er hörð og mjúk og þurfa að notast við
báðar útgáfur í hverri keppni. Verður notast
við slétt dekk, án raufa í fyrsta sinn síðan
1997. Græn rönd mun einkenna mjúku dekk-
in frá þeim hörðu. Regndekkin eru í tveim-
ur útfærslum. Bridgestone sér öllum liðum
fyrir dekkjum og mætir með tvö þúsund og
tvö hundruð dekk á hvert mót. - bþh, rg
Breytingar á útbúnaði bílanna
YFIRLIT YFIR
BREYTINGAR
Ljóst er að 2009-bíllinn sem er vinstra megin á myndinni er mun einfaldari en 2008-bíllinn. Allar óþarfa vindskeiðar
hafa verið fjarlægðar og nýi bíllinn er í raun talsvert klunnalegri útlits.
● Yfirbygging er gjörbreytt.
Framvængir eru breiðari og
afturvængur mjórri.
● Bíll og ökumaður verða að
vera 605 kíló að lágmarki.
● Sama vél og 2008 og þær eru
2,4 lítra.
● Hver ökumaður fær átta vélar
á keppnistímabilinu.
● Ökumenn verða að nota sama
gírkassa í fjórum mótum í röð.
● Bílar verða búnir sléttum kapp-
akstursdekkjum, án raufa.
● Ökumenn geta breytt afstöðu
vængja á ferð í tvígang í hverj-
um hring um sex gráður.
Akralind 4 • 201 Kópavogur • Sími 544 4656 • Fax 544 4657 •
Husqvarna Construction Products
STEINSAGIR, kJARNABORVÉLAR, GOLF OG VEGSAGIR
DM 230
K750
K2500
K3600K3600
FS 400
Steinsagablöð og kjarnaborar