Fréttablaðið - 25.03.2009, Side 2
2 25. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR
ÞJÓÐKIRKJAN Séra Gunnar Björns-
son, sóknarprestur á Selfossi, krefst
bæði skaðabóta og miskabóta frá
Biskupsstofu vegna tímabundinnar
lausnar hans frá störfum í septemb-
er síðastliðnum. Biskup leysti hann
frá störfum þegar hann sætti ákæru
um kynferðislega áreitni gegn sókn-
arbörnum sínum. Hæstiréttur hefur
nú sýknað Gunnar.
Guðjón Ólafur Jónsson, lögmað-
ur Gunnars, fundar með fulltrúum
Biskupsstofu í
dag vegna máls-
ins. Hann von-
ast til þess að
hægt verði að
semja um málið
og segir niður-
stöðu Hæstarétt-
ar sýna að ekki
hafi verið nægj-
anlegur grund-
völlur fyrir því
að leysa Gunnar
frá störfum. Guðjón segir að annars
vegar verði farið fram á skaðabæt-
ur, þar sem séra Gunnar hafi orðið
af ýmsum sérverkefnum á borð við
giftingar og útfarir, og hins vegar
miskabætur vegna þess álitshnekk-
is sem lausnin olli honum. Hann vill
ekki nefna neinar upphæðir í þessu
samhengi.
Þegar málið kom upp í maí í fyrra
tók Gunnar sér hálfs árs námsleyfi
en þegar því lauk vék biskup honum
frá störfum í hálft ár til viðbótar á
hálfum launum. Gunnar mótmælti
því og taldi að skilyrðum til að veita
honum lausn væri ekki fullnægt.
Nefnd sem fer yfir öll slík mál skil-
aði áliti í desember og komst að því
að rétt hafi verið af biskup að leysa
Gunnar frá störfum. Hann hafði þá
þegar verið sýknaður í héraði.
Eftir að Hæstiréttur sýknaði
Gunnar á föstudag sendi biskup
honum bréf og boðaði hann aftur til
starfa 1. maí. Jafnframt var Gunn-
ari tilkynnt að hann fengi greidd
full laun, auk vaxta, fyrir allan
leyfistímann.
Ragnhildur Benediktsdóttir,
skrifstofustjóri á Biskupsstofu,
mun funda með Guðjóni Ólafi í dag
ásamt framkvæmdastjóra kirkju-
ráðs. Hún vill ekki taka afstöðu til
kröfu Gunnars fyrirfram, en bend-
ir þó á niðurstöðu nefndarinnar sem
mat ákvörðun biskups rétta á sínum
tíma. stigur@frettabladid.is
Karl Ágúst, hver ykkar ætlar
að bregða sér í hlutverk feitu
konunnar sem syngur?
„Við erum allir svo spengilegir að ég
hugsa að við verðum að fá gesta-
leikara í það hlutverk.“
Tökur standa yfir á síðasta Spaugstofu-
þætti vetrarins, sem gæti einnig orðið
allra síðasti þátturinn. Karl Ágúst Úlfsson
er einn af forsprökkum Spaugstofunnar.
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
Ferðabox
Pacific 100139 x 90 x 39 cm370 L43.900.-
Vill að biskup borgi
fyrir álitshnekkinn
Séra Gunnar Björnsson krefur Biskupsstofu um skaða- og miskabætur vegna
lausnar hans frá störfum. Rétt hjá biskupi að leysa frá störfum prest sem sætir
ákæru um kynferðisbrot, sagði sérstök matsnefnd í desember síðastliðnum.
SÉRA GUNNAR
BJÖRNSSON
SELFOSSKIRKJA Óvissa ríkir innan Selfosskirkju um hvernig taka skuli á málinu.
Farið hafði verið fram á að starfandi prestur fengi að ljúka fermingum en ekki er
víst að svo verði.
Þeir aðilar innan Selfosskirkju sem Fréttablaðið ræddi við í gær vildu lítið tjá
sig um væntanlega endurkomu séra Gunnars til starfa í kirkjunni.
Eysteinn Ó. Jónasson, formaður sóknarnefndarinnar, segir það hafa komið
fólki á óvart að hann myndi snúa aftur til starfa 1. maí, enda hafi sérstaklega
verið óskað eftir því að sá sem nú gegnir starfinu, séra Óskar Hafsteinn Ósk-
arsson, fengi að ljúka fermingum, en tvisvar er fermt eftir 1. maí. Eysteinn
segir að tíminn einn muni leiða í ljós hvernig sóknarbörn taka séra Gunnari,
þrátt fyrir sýknuna, og hvort hann mun ávinna sér traust þeirra á ný.
„Það er ljóst að þetta mun skapa vandræði innan kirkjunnar,“ segir Herdís
Styrkársdóttir, æskulýðsfulltrúi Selfosskirkju. Hún segir að starfsfólk hafi ekki
fundað sérstaklega um hvernig taka skuli á málinu en slíkur fundur hljóti að
vera á döfinni.
SKAPAR VANDRÆÐI INNAN KIRKJUNNAR
TÉKKLAND, AP Þriggja flokka sam-
steypustjórnin, sem verið hefur
við stjórnvölinn í Tékklandi síðan
í september 2006, er fallin. Hún
tapaði vantrauststillögu sem
atkvæði voru
greidd um á
þinginu í Prag
í gær.
101 þing-
maður af 200,
sem sæti eiga í
þinginu, studdi
vantraustsyf-
irlýsinguna.
Ríkisstjórnin,
undir forystu Mireks Topolaneks,
verður nú að víkja. Málið setur
stjórnmál í Evrópusambandinu
í nokkurt uppnám, enda gegna
Tékkar nú formennskunni í sam-
bandinu. Von er á Barack Obama
Bandaríkjaforseta í heimsókn til
Prag í næstu viku til að funda þar
með ESB-leiðtogum. - aa
Vantrauststillaga á þingi:
Tékklands-
stjórn fallin
MIREK TOPOLANEK
EFNAHAGSMÁL Framkvæmdastjórn
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS)
samþykkti í gær allsherjarupp-
færslu á lánareglum sjóðsins.
„Þessar umbætur endurspegla
verulega breytingu á því hvernig
sjóðurinn getur aðstoðað aðild-
arríki sín, sem er ekki vanþörf á
nú á tímum alþjóðlegrar kreppu,“
er haft eftir Dominique Strauss-
Kahn, forstjóra AGS, í tilkynn-
ingu frá sjóðnum. „Meiri sveigj-
anleiki í lánafyrirgreiðslu ásamt
einfaldari skilyrðum mun hjálpa
okkur að bregðast með skil-
virkum hætti við hinum ýmsu
þörfum aðildarríkjanna. Þetta
mun aftur á móti hjálpa þeim að
standa kreppuna betur af sér og
snúa aftur á braut sjálfbærs hag-
vaxtar,“ sagði hann. - aa
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn:
Sveigjanlegri
lánareglur
STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðardótt-
ir forsætisráðherra botnar lítt í
orðum og athöfnum forsvarsmanna
Seðlabankans á síðasta ári og telur
að bankinn og Fjármálaeftirlitið
(FME) hefðu átt að smíða aðgerða-
áætlun fyrir stjórnvöld.
Eftir að hafa í febrúar skrifað og
kynnt þremur ráðherrum minnis-
blað um bágt ástand bankanna og
slæmar horfur á erlendum láns-
fjármarkaði lækkaði Seðlabank-
inn bindiskyldu í mars og lýsti
fjármálakerfinu í meginatrið-
um traustu í maí. Lækkun bindi-
skyldunnar náði til erlendra úti-
búa íslenskra banka og liðkaði til
dæmis fyrir útþenslu Icesave. Í
minnisblaðinu segir meðal annars
af áhyggjum Moody´s af Icesave.
„Mér finnst að eftirlitsstofn-
anirnar hafi ekki staðið sig sem
skyldi,“ sagði Jóhanna á fundi með
blaðamönnum í gær. Hún vildi ekki
svara hvort eðlilegt hafi verið af
Geir H. Haarde forsætisráðherra
og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur utanríkisráðherra að kynna
ágæti íslensku bankanna á fund-
um í Kaupmannahöfn og New York,
nokkrum vikum eftir að þau heyrðu
af minnisblaði Seðlabankans. „Þau
tóku ákvarðanir um að gera þetta
með þessum hætti,“ sagði Jóhanna
sem telur að Seðlabankinn og FME
hefðu átt að leggja fram áætlun um
aðgerðir stjórnvalda til að bregðast
við þeim viðvörunum sem fram
komu í minnisblaðinu. - bþs
Forsætisráðherra undrast aðgerðir í kjölfar minnisblaðs um ástand bankanna:
Stjórnvöld vantaði aðgerðaáætlun
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR forsætis-
ráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin hefur
ákveðið að fjölga starfsmönnum
embættis sérstaks saksóknara.
Verða þeir tuttugu í stað níu, eins
og fyrri áform gerðu ráð fyrir.
Þá mun embættið njóta liðsinn-
is fjögurra til fimm erlendra sér-
fræðinga undir handleiðslu Evu
Joly, sérfræðings á sviði alþjóð-
legrar fjármálaspillingar.
Ragna Árnadóttir dómsmála-
ráðherra upplýsti á fundi í gær að
fyrir lægi að kostnaður við emb-
ættið ykist við þetta úr rúmum
sjötíu milljónum króna í um 170
milljónir. Ótalinn væri þá kostn-
aðaraukinn vegna erlendu starfs-
mannanna. - bþs
Embætti sérstaks saksóknara:
Starfsmönnum
fjölgað í tuttugu
ALÞINGI Guðbjartur Hannesson,
forseti Alþingis, segir stefnt að
þingslitum ein-
hvern tíma í
næstu viku.
Þingið starf-
ar með hefð-
bundnum hætti
í dag en óvíst
var í gær hvort
þingfundur
verði á morg-
un. Þá hefjast
landsfundir
Samfylkingarinnar og Sjálfstæð-
isflokks. Vegna þeirra verður
ekki þingað á föstudag en þráður-
inn tekinn upp á ný eftir helgi.
„Við reynum að klára eins hratt
og hægt er en án þess þó að það
bitni á málefnunum,“ segir Guð-
bjartur. - bþs
Forseti Alþingis:
Þingi verði slit-
ið í næstu viku
GUÐBJARTUR
HANNESSON
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Hvols-
velli fann um miðnætti í fyrra-
kvöld kannabisverksmiðju í iðn-
aðarhúsnæði í Þykkvabæ. Þar
voru um 500 plöntur í ræktun,
bæði fullvaxnar en einnig svo-
kallaðir græðlingar sem eru
plöntur skemur á veg komnar.
„Það má segja að þetta hafi
litið út fyrir að vera mjög fag-
mannleg ræktun,“ segir Sveinn
K. Rúnarsson, yfirlögregluþjónn
á Hvolsvelli. Hann segir að hús-
næðið hafi verið undir smásjánni
hjá lögreglunni á Hvolsvelli og
rannsóknardeildinni á Selfossi
um nokkurt skeið. Málið er nú
í rannsókn en Sveinn telur að
þarna séu aðkomumenn að verki
sem talið hafi að þeir fengju
frekar frið frá yfirvaldinu við
þessa svörtu iðju væru þeir í
fjarlægð frá höfuðborginni. - jse
Lögreglan á Hvolsvelli:
Kannabisrækt-
un í Þykkvabæ
EFNAHAGSMÁL Davíð Oddsson, þáverandi formaður
bankastjórnar Seðlabankans, sat fundina sem urðu
að efni í ferðaskýrslu um bágborna stöðu íslensku
bankanna í Lundúnum í febrúar í fyrra.
Þetta segir Ingimundur Friðriksson, þáverandi
bankastjóri. Davíð til liðsinnis var sérfræðingur úr
bankanum, og ræddu þeir við fulltrúa matsfyrir-
tækja og erlendra viðskiptabanka. Aðrir úr banka-
stjórn voru ekki með.
Arnór Sighvatsson aðstoðarbankastjóri sagði í
blaðinu í gær að honum væri ekki kunnugt um hverj-
ir hefðu setið fundinn. Arnór sagði einnig að hann
vildi ekki svara fyrir gjörðir þáverandi bankastjórn-
ar, er hann var spurður hví bankinn hefði afnumið
bindiskyldu á erlend útibú íslenskra banka, stuttu
eftir að skýrslan var rituð. Bindiskylda þýðir að
hluti innlána banka er lögð inn á reikning hjá Seðla-
bankanum og dregur úr getu banka til útlána. Spurð-
ur um þetta vísar Ingimundur í fréttatilkynningu
um ákvörðunina, þar sem segir að tilgangurinn hafi
verið að samræma reglur bankans erlendum reglum.
Ingimundur vill heldur ekki svara fyrir annað sem
kemur skýrslunni við, svo sem hvers vegna bankinn
lagðist ekki gegn útrás Landsbankans til Hollands
með Icesave. Moody‘s matsfyrirtækið lýsti á fund-
inum sérstökum áhyggjum af þeim reikningum, en
fulltrúi Seðlabankans reyndi að eyða efasemdunum.
Boðið var upp á reikningana þremur mánuðum síðar.
- kóþ
Fyrrum seðlabankastjóri vill ekki ræða um ferðaskýrslu formanns bankastjórnar:
Davíð var sá eini úr bankastjórn
sem sat fundina í Lundúnum
FYRRUM BANKASTJÓRN SEÐLABANKANS Ingimundur segist
ekki hafa verið á fundinum og hann vill ekki ræða um ferða-
skýrsluna, né viðbrögð bankans við henni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SPURNING DAGSINS