Fréttablaðið - 25.03.2009, Síða 6
6 25. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
M
SA
4
53
50
0
3/
09
á 1 lítra
Kókómjólk
Gott
á brúsann!
FUNHEITT TILBOÐ
allur vetrarf
atnaður
með allt að
LAGERSALA
AFSLÁTT.
70%
SUÐUR-AFRÍKA, AP Skipuleggjendur
fjölþjóðlegrar friðarráðstefnu, sem
fara átti fram í Jóhannesarborg í
Suður-Afríku í lok vikunnar, segja
að ákveðið hafi verið að fresta ráð-
stefnunni um óákveðinn tíma eftir
að suður-afrísk stjórnvöld meinuðu
Dalai Lama þátttöku.
Suður-Afríkustjórn neitaði að
gefa út vegabréfsáritun til hins
útlæga andlega leiðtoga Tíbeta,
og gaf sem skýringu tengslin við
Kína. Thabo Masebe, talsmað-
ur Kgalema Motlanthe forseta,
sagði Dalai Lama ekki vera vel-
kominn til Suður-Afríku fyrr en
eftir heimsmeistaramótið í knatt-
spyrnu, sem fram fer í landinu
árið 2010. Kæmi Dalai Lama til
S-Afríku fyrir þann tíma myndi
að sögn Masebe athygli fjölmiðla
snúa að honum og Tíbetdeilunni,
ekki þeim framförum sem náðst
hefðu í Suður-Afríku.
Þessi ákvörðun stjórnarinnar
sætir harðri gagnrýni í Suður-Afr-
íku. Desmond Tutu biskup, frið-
arverðlaunahafi Nóbels, og fleiri
þekktir einstaklingar hættu við
þátttöku í hinni áformuðu friðar-
ráðstefnu í mótmælaskyni. - aa
Friðarráðstefnu í Suður-Afríku frestað eftir að Dalai Lama var meinuð þátttaka:
Segjast óttast áhrif á HM2010
BREYTTIR TÍMAR Friðarverðlaunahafarnir
Desmond Tutu biskup og Dalai Lama á
góðri stund í Suður-Afríku árið 1996.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Sex hnökkum var
stolið úr hesthúsi í Víðidal í fyrri-
nótt. Þá var tilkynnt um þjófnað
á tveimur hnökkum til viðbótar
til lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu í gær.
Þjófurinn eða þjófarnir sem
fóru inn í hesthúsið í Víðidalnum
tóku nýjustu hnakkana en skildu
hins vegar eftir öll önnur reið-
tygi, þar á meðal fimm eða sex
eldri rykfallna hnakka.
Ómar Smári Ármannsson, yfir-
maður fjármunabrotadeildar lög-
reglunnar, beinir þeim tilmælum
til fólks að vera vel á verði gagn-
vart grunsamlegum mannaferð-
um í hesthúsabyggðum. - jss
Átta hnökkum stolið:
Hnakkaþjófur
aftur á ferð
SAMFÉLAGSMÁL Eining ríkir meðal
foreldra um að börn í tíunda bekk
grunnskóla eigi ekki að drekka
áfengi eða neyta annarra vímu-
efna. Áfengis neyslan tekur hins
vegar stökk á fyrsta ári í fram-
haldsskóla. Í framhaldsskóla virð-
ist margir foreldrar líta svo á að
krakkarnir séu orðnir fullorðnir og
slaki því á kröfum. Áfengisdrykkja
er sögð vera stór hluti af skemmt-
anamenning-
unni í fram-
haldsskólum.
Helmingur
framhaldsskóla-
nema á aldrin-
um 18 til 19 ára
hefur fengið for-
eldra sína til að
kaupa fyrir sig
áfengi. Álfgeir
Logi Kristjáns-
son, lektor við
Háskólann í Reykjavík, segir að
enn sé mikið tekist á um hverj-
ar eigi að vera áherslurnar í for-
varnastarfi í framhaldsskólum, en
starfið hafi verið fremur ómark-
visst.
„Eins og staðan er í dag er
engin stefna og engin eining um
hvernig eigi að vinna með þetta,“
segir hann og bendir á hið skrítna
aldurs bil frá því krakkarnir byrja
í framhaldsskóla 16 ára þar til þau
verða sjálfráða 18 ára og svo aftur
þar til þau mega kaupa áfengi 20
ára. „Þetta er mjög furðulegt og
óskiljanlegt. Það veit enginn hvað
þetta þýðir, hvort krakkar á þess-
um aldri megi drekka áfengi eða
ekki.“
Gríðarleg aukning er á áfengis-
neyslu milli tíunda bekkjarins
og framhaldsskóla. Margir þætt-
ir hafa áhrif en „tölurnar sýna
að heilmargir nemendur segja að
mamma og pabbi hafi keypt fyrir
sig eða boðið sér áfengi. Þetta
gefur vísbendingar um að for-
eldrar séu enn mjög ósamstiga og
óvissir um hvað þeir mega gera.
Margir telja að leyfilegt sé fyrir
krakka sem eru 16 til 19 ára að
drekka áfengi,“ segir hann.
Álfgeir segir forvarnirnar byrja
inni á heimilunum og bendir á að
foreldrar eigi „erfitt uppdráttar“
einir og sér. „Aflið í hópi unglinga
kemur úr jafningjahópnum og
þegar unglingar ákveða eitthvað er
mjög erfitt fyrir staka foreldra að
vera með fingurinn á lofti,“ segir
hann og bendir á að foreldrar séu
samstiga í því að unglingar í efstu
bekkjum grunnskóla eigi ekki að
neyta vímuefna. Þegar komið er í
framhaldsskóla vanti hins vegar á
samstöðu. Álfgeir Logi kallar eftir
því að hún verði mynduð. „For-
eldrar og forvarnaaðilar þurfa að
mynda sér heillega skoðun á því
hvort þeir vilji hafa áfengis neyslu
í skemmtanamenningu framhalds-
skólanema og við hvaða aldur eigi
að miða forvarnastarfið,“ segir
hann. ghs@frettabladid.is
Foreldrarnir kaupa
áfengi fyrir börn sín
Helmingur 18 til 19 ára framhaldsskólanema segir að foreldrar þeirra hafi
keypt fyrir sig áfengi. Lektor hvetur foreldra nemanna til að hugsa málið betur.
ÁLFGEIR LOGI
KRISTJÁNSSON
FRÁ BUSAVÍGSLU Í REYKAVÍK Áfengisdrykkja tvöfaldast þegar unglingarnir byrja
í framhaldsskóla. Lektor segir foreldra ringlaða í afstöðu sinni til áfengisdrykkju
framhaldsskólanema. Krakkarnir verði sjálfráða 18 ára en megi ekki kaupa áfengi fyrr
en við tvítugsaldur. Í framhaldsskólunum er áfengisdrykkja stór hluti af skemmtana-
menningunni. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
VINNUMARKAÐUR Verkalýðshreyf-
ingin verður með aukaársfund ASÍ
í dag vegna alþingiskosninganna og
ástandsins í þjóðfélaginu. Á fund-
inum verður fjallað um sýn ASÍ á
endurreisn íslensks efnahags- og
atvinnulífs. Áherslan er á ESB-aðild
og upptöku evru.
Á fundinum verður lögð fram
greinargerð atvinnumálanefndar
ASÍ. Þar kemur fram að full ástæða
sé til að hefja aðildarviðræður við
ESB og láta reyna á aðild með
samningaviðræðum. ASÍ telur að
evra tryggi stöðugleika í efnahags-
legu umhverfi sjávarútvegsins, toll-
ar falli niður og hagstæðara verði
að vinna fisk meira fyrir útflutn-
ing. Sjómenn vilji fyrst og fremst
tryggja yfirráð yfir efnahagslög-
sögunni, óskorað fullveldi lands-
ins í samningum um deilistofna og
afdráttarlausa heimild þjóðarinnar
til að stunda hvalveiðar.
Skiptar skoðanir eru meðal
verkafólks á því hvort landbúnað-
ur leggist niður með inngöngu í
ESB, segir í greinargerð ASÍ. Hvað
byggðamálin varði eru áhyggjur af
því að erfitt geti orðið að spyrna
gegn atvinnuleysi á landsbyggðinni
ef evran verði tekin upp.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir að með fundinum vilji ASÍ
reyna að stuðla að umræðu um
ESB fyrir kosningarnar, eina leið-
in út úr höftun-
um sé ESB og
evran. Hann vill
að þannig verði
erlendir fjárfest-
ar róaðir niður.
„V i ð h öf u m
áhyggjur af því
að þetta brýna
mál sé enn einu
sinni að lenda út
á hliðarspori í
pólitískri stöðu dagsins og ekki sé
hægt að móta samningsmarkmið,
fara í viðræðurnar og gefa þjóðinni
færi á að tjá hug sinn heldur ætli
menn að slá þessu á frétt um fjölda
ára,“ segir hann. - ghs
Verkalýðshreyfingin verður með aukaársfund í dag vegna kosninganna:
Vill þrýsta á ESB-umræðu
GYLFI
ARNBJÖRNSSON
KJÖRKASSINN
Á að lögleiða kannabisefni?
Já 66,4
Nei 33,6
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ættu fyrrum seðlabankastjórar
að birta gögn sín um hrunið?
Segðu þína skoðun á Vísi.is