Fréttablaðið - 25.03.2009, Síða 18
MARKAÐURINN 25. MARS 2009 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
TÆKIFÆRI Í NÆSTA NÁGRENNI
Viðskiptasendinefndir
til Færeyja, og Spánar og Portúgal
PI
PA
R
PI
PA
RR
PI
PA
R
PI
PA
R
IP
A
PI
PA
PI
PA
PI
PA
PI
PAIPPI
PIPPPPPPPPPPPP
SÍÍSÍÍÍÍSÍSÍ
•
SÍÍÍÍÍ
•
S
•
SS
•
S
•
S
•
S•
S
A
•
9
A
•
9
A
•
9
A
•
9
A
•
9•
9
A
•
9
A
•
99•
9
AAAA
29292
04
9222
04
9
04
99
04
9
04
9490404044040404000
Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • www.utflutningsrad.is
Útflutningsráð fer fyrir viðskiptasendinefnd til Færeyja
dagana 27.-29. maí.
Íslenskum fyrirtækjum bjóðast tækifæri til samstarfs á hinum
ýmsu sviðum, bæði í framleiðslu og þjónustu. Viðskiptafundir
eru skipulagðir fyrir íslensku þátttakendurna.
Viðskiptasendinefnd til Spánar og Portúgal
Útflutningsráð kannar áhuga fyrirtækja á sendinefnd til
Spánar og Portúgal í haust.
Markmið ferðarinnar er kynning á markaðstækifærum
ásamt fyrirtækjafundum. Tækifæri á þessum markaði eru m.a.
í þjónustugreinum ýmiss konar, fiskveiðum og fiskvinnslu
og tækniþekkingu á sviði orkulausna.
Áhugasamir hafi samband sem fyrst við Elsu Einarsdóttur,
elsa@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000.
Háskólinn í Reykjavík, SAS Institute og PricewaterhouseCoopers hf. bjóða þér
að sitja málþing föstudaginn 27. mars, kl. 8:00 – 12:00.
STJÓRNUNARREIKNINGSSKIL:
ERU ÞAU Í LAMASESSI
HJÁ ÍSLENSKUM FYRIRTÆKJUM?
Kynntar verða glænýjar niðurstöður rannsókna á stjórnunarreikningsskilum á Íslandi.
Þetta er í fyrsta sinn sem slík rannsókn er gerð á Íslandi og því mikill fengur fyrir
endurskoðendur, stjórnendur fyrirtækja og aðra áhugasama að sitja þingið.
8:00 – 8:30 Léttur morgunverður
8:30 – 9:15 Stjórnunarreikningsskil í íslenskum fyrirtækjum:
Staða og þróun
Dr. Páll Ríkharðsson dósent við Háskólann í Reykjavík
og viðskiptaráðgjafi hjá SAS Institute
9:15 – 10:00 Icelandic Management Accounting in an International
Perspective
Dr. Carsten Rohde prófessor í reikningshaldi við
Copenhagen Business School
10:00 – 10:30 Kaffihlé
10:30 – 11:15 Mikilvægi innra eftirlits fyrir stjórnendareikningsskil
Ólafur Kristinsson endurskoðandi hjá PricewaterhouseCoopers hf. og
Jón Óskar Hallgrímsson hagfræðingur hjá PricewaterhouseCoopers hf.
11:15 – 12:00 Stjórnendaupplýsingar og ársreikningar:
Er grundvallarmunur þarna á?
Stefán Svavarsson endurskoðandi og dósent í hlutastarfi við
Háskólann í Reykjavík
Fundarstjóri er Guðfinna S. Bjarnadóttir
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn
Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík, Ofanleiti 2, stofa 101
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á skraning@ru.is
Össur Kristinsson, stofnandi
stoðtækjafyrirtækisins Össurar,
hefur selt um tvær milljónir bréfa
í fyrirtækinu úr safni sínu síðan
hann steig úr stjórn fyrirtækis-
ins í febrúar.
Stofnandinn átti fjórðungshlut í
Össuri árið 2004 en hefur minnk-
að hann jafnt og þétt síðan þá og
fer nú með 8,4 prósenta hlut í
nafni eignarhaldsfélagsins Mall-
ard Holding. Fyrir viku var greint
frá því að breskur einkaframtaks-
sjóður hafi gert öðrum hluthöfum
tilboð í hluti þeirra og stefndi að
yfirtöku á félaginu.
IFS Greining segir í nýrri
greiningu kauptækifæri í bréf-
um Össurar og verðmetur þau á
1,2 dali á hlut. Það jafngildir um
136 krónum, sem er 40 prósent-
um yfir verði þeirra í gær. Þetta
er engu síður talsvert undir fyrra
markaðsgengi Össurar en vorið
2007 stóð það í tæpum 130 krón-
um á hlut. Á sama tíma stóð gengi
Bandaríkjadals í um sextíu krón-
um sem jafngildir rúmum tveim-
ur dölum á hlut. Í dag nemur verð-
ið um 0,9 dölum á hlut. - jab
Stofnandi Össurar hf.
minnkar við hlut sinn
„Ég ákvað fyrir tíu árum að
hætta í stjórninni eftir fjörutíu
ára starf,“ segir Össur Krist-
insson, stoðtækjafræðingur og
stofnandi stoðtækjafyrirtækis-
ins Össurar.
Össur segir ástæðuna fyrir
sölu á hlutum sínum þá að hann
reki tvö fyrirtæki sem þurfi á
fjármagni að halda.
Annað þeirra er O.K. Prost-
hetics, sem framleiðir gervilimi
með ódýrari og fljótvirkari hætti
en áður hefur tekist. Gervifæt-
urnir eru hannaðir fyrir íbúa
fátækra ríkja sem misst hafi
fætur af ýmsum orsökum, ekki
síst vegna stríðsátaka. Stefnt er
að því að kenna íbúum landanna
að framleiða gervilimina sjálft.
Fyrirtækið er ekki rekið í ágóða-
skyni. Össur segir erfitt að finna
fjárfesta að verkefninu og verði
hann því að nýta eigin fjármuni
í það.
Fyrirtækið hefur meðal ann-
ars farið til Mósambík í Afríku
og á átakasvæði í Pakistan. Nú
hefur Félag Palestínuvina styrkt
O.K. Prosthetics með kaupum á
25 til 30 gervilimum.
„Við förum til Gasasvæðisins
í Palestínu á föstudag og verð-
um í viku,“ segir Össur.
ÖSSUR
KRISTINS SON
Gefur fátækum
gervifætur
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
„Áherslan er nú á samþættingu rekstrarins og end-
urskipulagningu undir einu heiti eftir mjög hraðan
uppvöxt og útrás síðustu ára,“ segir Theo Hoen, nýr
forstjóri Marel Food Systems. Hann hefur starfað
við hlið Harðar Arnarsson frá því Marel Food Syst-
ems sameinaðist Stork Food Systems í fyrravor, en
þar var Theo Hoen forstjóri áður. Tilkynnt var um
starfslok Harðar um helgina. Þá tók Sigsteinn Grét-
arsson, sem áður var framkvæmdastjóri starfsemi
Marel hf. hér á landi, sæti í framkvæmdastjórn fé-
lagsins við hlið Hoens og Eriks Kaman fjármála-
stjóra.
Breytingarnar ollu nokkru umróti meðal starfs-
fólks Marel Food Systems hér, en nýir yfirmenn fé-
lagsins kynntu þær á fjölmennum fundi á mánudag.
„Spurningarnar sem helst brunnu á fólki sneru að
því hvort flytja ætti félagið úr landi og hvort störf
þess væru trygg,“ segir Hoen, sem vísar á bug öllum
vangaveltum um flutning fyrirtækisins. Þekkingin
sé hér til staðar og eðli starfseminnar ekki þannig
að hún verði auðveldlega flutt. „Svo hefur starfsem-
in líka gengið mjög vel hér og undarlegt að fara að
hrófla við því. Frekar væri að við mundum auka við
okkur,“ segir hann, en segist um leið skilja áhyggj-
ur fólks af þessu. „En þetta sýnum við best í verki
næsta hálfa árið.“
Theo Hoen og Sigsteinn Grétarsson segja ljóst að
félagið sé í yfirburðastöðu í heiminum með heildar-
lausnir í vinnslu matvæla sem ekkert annað félag fái
keppt við. Vissulega sé samkeppni þó hörð innan ein-
stakra framleiðsluþátta, svo sem hvað varði einstak-
ar skurðar- eða pökkunarvélar. Ekki sé hins vegar
von á neinum kollsteypum í starfseminni og áhersl-
an á vöruþróun tengdri vinnslu á fuglakjöti, fiski
og öðru kjöti. „Núna ríður á að koma fram sem eitt
fyrirtæki, bæði inn á við og út á við. Það er stærsta
áskorunin sem við Sigsteinn stöndum nú frammi
fyrir,“ segir Hoen. Hluthafar segir hann að standi
sterkir að baki stefnu félagsins og hafi burði til að
styðja við hana, þótt ekkert launungarmál sé að
stjórnin vildi gjarnan aukna erlenda fjárfestingu
í félagið. „Stærsti hluti fjármögnunarinnar er hins
vegar hér á landi og engin vandkvæði fyrirséð þar,“
segir hann og telur ekki að gjaldeyrishöft Seðlabank-
ans séu til trafala.
Hoen verður með aðsetur í Boxmeer í Hollandi
þar sem yfir 800 manns starfa, en Sigsteinn verður
starfandi hér, þar sem um 350 manns starfa hjá fyr-
irtækinu. Höfuðstöðvar Marel Food Systems verða
áfram hér á landi.
THEO HOEN OG SIGSTEINN GRÉTARSSON Marel er ekki á
förum og gjaldeyrishöft ekki til vandræða samkvæmt því sem nýir
yfirmenn Marel Food Systems segja. MARKAÐURINN/GVA
Segja Marel ekki
á leið úr landinu
Ný framkvæmdastjórn Marel Food System stýrir samþætt-
ingu og innri uppbyggingu eftir mikinn ytri vöxt síðustu ára.
Nýr forstjóri segir fyrirtækið ekki á förum frá landinu.