Fréttablaðið - 25.03.2009, Page 46
MARKAÐURINN 25. MARS 2009 MIÐVIKUDAGUR6
S K O Ð U N
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
ÚT GÁFU FÉ LAG: 365 miðlar ehf. RIT STJÓRI: Óli Kr. Ármannsson, olikr@markadurinn.is RITSTJÓRN: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, jonab@markadurinn.is AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón
Laufdal RIT STJÓRN OG AUGLÝSING AR: Skaftahlíð 24, 105 Reykja vík AÐ AL SÍMI: 512 5000 SÍMBRÉF: 512 5301 NETFÖNG: rit stjorn@markadurinn.is og aug lys ing ar@markadur-
inn.is VEFFANG: visir.is UM BROT: 365 miðlar ehf. PRENT VINNSLA: Ísa fold arprent smiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift ókeyp is með
Fréttablaðinu Markaðurinn áskil ur sér rétt til að birta allt efni blaðs ins í staf rænu formi og í gagna bönk um án end ur gjalds.
Íslensk fyrirtæki hafa ekki farið
varhluta af aukinni óvissu í starfs-
umhverfi sínu. Samdráttur í sölu,
minnkandi framlegð og versnandi
lausafjárstaða skapa aðstæður
sem reynir á hæfni og getu stjórn-
enda til að taka skjótar og mark-
vissar ákvarðanir. Til að fyrir-
tæki geti brugðist hratt við þurfa
þau greiðan aðgang að upplýsing-
um um rekstur sinn. Framsetning
þeirra verður að vera með þeim
hætti að notendur þeirra geti
nýtt þær til að öðlast góða yfir-
sýn yfir málin og tekið upplýstar
ákvarðanir. Markviss notkun upp-
lýsinga getur hjálpað stjórnend-
um að koma auga á hvar hagræða
megi í rekstrinum og greina sókn-
arfæri til að auka sölu. Þá getur
rétt greining upplýsinga aðstoð-
að stjórnendur við að auka hreint
veltufé úr rekstri með tilteknum
aðgerðum.
Stjórnendur verja nú stórum
hluta tíma síns í að leita leiða til
að skera niður rekstrarkostnað
og finna hagkvæmari leiðir til að
reka fyrirtæki. Gjarnan er byrjað
á sýnilegum þáttum. Fjárfesting-
um er slegið á frest og dregið er
úr ýmsum kostnaði, eins og þeim
sem snýr að skrifstofu og stjórn-
un. Dugi það ekki til er einnig
oft dregið úr launakostnaði með
fækkun starfsfólks. Þótt ofan-
greindar aðgerðir geti skilað ár-
angri þá eiga þessar hagræðing-
arleiðir það sammerkt að verið er
að ráðast á sýnilegan hluta kostn-
aðar og framtíðarútgjalda, þ.e.
auðveldustu viðfangsefnin.
Í fyrirtækjarekstri liggur oft
töluverður dulinn kostnaður í
brothættum vinnuferlum, skorti á
yfirsýn og ónógu aðgengi að upp-
lýsingum. Ofangreindir þættir
geta svo leitt til þess að slæmar
ákvarðanir eru teknar sem leiða
af sér kostnað og óhagræði. Það á
jafnt við í fyrirtækjarekstri og í
öðrum viðfangsefnum: það sem er
erfitt að fást við er oft látið liggja
milli hluta.
Rétt notkun upplýsingatækni
gegnir hér stóru hlutverki og þá
einkum viðskipta- og greindar-
lausnir (e. Business Intelligence
Systems). En getur ávinningur
af nýtingu viðskipta- og greind-
arlausna verið mikill á óvissutím-
um? Hér verður stuttlega vikið að
því hvernig stuðla megi að raun-
verulegum árangri í rekstri og
leita markvisst svara við áleitn-
um spurningum með beitingu
slíkra tóla.
Til að aðlaga rekstur fyrirtækja
að breytingum í starfsumhverfi er
oft þörf á að endurskoða ferla og
innviði. Aðgengi að góðum upplýs-
ingum geta aðstoðað við að greina
hvar gera megi betur. Sem dæmi
þá geta öflugir mælikvarðar um
skilvirkni birgðastjórnunar, ald-
ursgreiningu birgða og kostnað
við birgðahald gefið skýrar vís-
bendingar um hvort kostnaður
sé að safnast upp í birgðahaldi
og hvort draga megi úr fjárbind-
ingu vegna lagers með söluhvetj-
andi aðgerðum og/eða breyttum
áherslum í innkaupum og fram-
leiðslu. Ítarlegar söluupplýsing-
ar þar sem greina má framlegð
á vörum og viðskiptavinum geta
gefið nákvæmar upplýsingar um
hvaða vörur seljast mest, fram-
legð þeirra og hverjir kaupa. Jafn-
framt má greina göt í vöruvali
viðskiptavina og sjá þar með sölu-
tækifæri sem ellegar væri erfitt
að greina beint í upplýsingakerf-
um fyrirtækja. Með markvissri
beitingu viðskipta- og greindar-
lausa má leita svara við spurning-
um á borð við:
• Hvaða vörur hreyfast mest/
minnst?
• Hver er aldurssamsetning
birgða (m.v. síðustu innkaup/síð-
ustu hreyfingu)?
• Hver er arðsemi fjármagns
bundið í birgðum?
• Hver er vörusalan og vörufram-
legð á vöruflokki/vöru?
• Hvaða afslátt erum við að veita
og til hverra?
• Hvernig er kostnaður að þró-
ast?
• Hver er arðsemi af rekstrinum??
Af eigin fé?
• Hver er biðtími útistand-
andi krafna? Hver er veltuhraði
birgða?
• Hver er skuldsetning fyrirtæk-
isins, miðað við eignir? Miðað við
skuldir og eigið fé?
Rekstur flestra stærri fyrirtækja
er með þannig flækjustig að ein-
stakir stjórnendur eiga erfitt með
að hafa yfirsýn yfir alla þætti
hans. Með aðstoð öflugra við-
skipta- og greindarlausna verður
það gerlegra.
Tæknin er orðin þannig að
flestar viðskiptalausnir hafa not-
endavænt viðmót þannig að not-
endur geta á stuttum tíma náð
leikni í notkun þeirra. Með því
að útbúa sniðmát fyrir staðlað-
ar skýrslur verður upplýsinga-
vinnsla innan fyrirtækja á allan
hátt skilvirkari. Stutt notenda-
námskeið dugar til að gera not-
endur sjálfbjarga.
Mörg fyrirtæki á Íslandi hafa
þegar fjárfest í búnaði sem þarf
til að setja upp öflugt greindar-
lausnaumhverfi. Þorri íslenskra
fyrirtækja hefur þegar keypt Mic-
rosoft-búnað sem samanstendur
af viðskiptakerfi (m.a. Micros-
oft Dynamics AX eða NAV, SQL
grunni, Sharepoint vefgátt og
ýmsum notendakerfum (Word,
Excel, o.fl.). Þeirri fjárfestingu
fylgja flest tilskilin leyfi sem til
þarf til að nota Microsoft BI lausn-
ir. Sú margvíða greining sem s.k.
OLAP teningar Microsoft bjóða
upp á gerir notendum kleift að fá
innsýn í gögn á hraðan, skilvirkan
og gagnvirkan hátt. Á grundvelli
teninganna má útbúa skýrslur og
mælaborðssýnir sem draga enn
betur fram kjarnaatriðin í rekstri
fyrirtækja.
HAMAST Í TÖLVUNNI Greinarhöfundur veltir upp möguleikum á sviði upplýsingatækninnar til að koma á umbótum í rekstri og kostn-
aðargreiningu í fyrirtækjum. Sjaldan hafi þörfin verið jafnmikil og nú. MARKAÐURINN/VALLI
Sparnaðarleiðir og sóknarfæri
Art Schalk
framkvæmdastjóri
hjá Annata.
O R Ð Í B E L G
Vísitala neysluverðs er mælikvarði á
verðbreytingar neysluvara og í dag-
legu tali nefnd verðbólguvísitalan,
enda mælir hún verðbólgu eða -
hjöðnun eftir atvikum. Hagstofan
annast mælingu á vísitölunni og
birtir niðurstöðurnar mánað-
arlega. Síðast var verðbólgu-
mæling birt í gær og hafði
lækkað nokkuð milli mánaða.
Tólf mánaða verðbólga er nú
15,2 prósent.
Hagstofan kannar verð á um 800
vöru- og þjónustuliðum og innan hvers
liðar er kannað verð í mismunandi verslunum og
á mismunandi vörumerkjum. Í fróðleiks-
molum greiningardeildar Kaupþings
kemur fram að mánaðarlegar verð-
skráningar eru því um 14 þúsund
talsins. „Val á vöru- og þjónustu-
liðum, verslunum og vörumerkj-
um byggir á neyslukönnunum sem
framkvæmdar eru reglulega meðal
almennings. Meðal mikilvægra liða
í vísitölunni eru húsnæði, bifreiðar,
matvara, rafmagn og hiti.Hver vöru- og
þjónustutegund fær vægi í hlutfalli við
hve stór hluti hún er af neyslu þjóðarinnar.“
O R Ð S K Ý R I N G I N
Vísitala neysluverðs
Ljóst má vera að ef koma á landinu upp úr kreppuhjólförunum þarf
að koma til erlent fjármagn. Það fæst ekki í því magni sem þarf í um-
hverfi gjaldeyrishafta og/eða gjaldeyrisóróa. Þá verður að teljast ólík-
legt að forsvarsmenn erlendra stórbanka sem hér hafa tapað ógrynni
fjár verði áfjáðir í að fjármagna hér uppbyggingu ef ekki er fyllstu
sanngirni gætt í samskiptum við þá.
Markaðurinn hefur undir höndum
samskipti fulltrúa kröfuhafa SPRON
frá því fyrir helgi þegar í það stefndi að
SPRON og sparisjóðabankinn yrðu tekn-
ir yfir. Ljóst er að mikillar reiði gætir í
þeirra hópi þar sem ekki hafi verið full-
reynt með samninga um niðurfellingu
skulda og breytt lánakjör sem þeir telja
að aukið hefðu líkur á betri heimtum á
kröfum þeirra. Þrátt fyrir að kröfuhaf-
arnir hafi lýst yfir vilja til að ljúka samn-
ingum innan ásættanlegs tíma var ráð-
ist í yfirtökuna. Forsvarsmenn þessara
sömu banka ákveða lánakjör til hverra
þeirra íslensku fyrirtækja sem til þeirra
kynnu að leita þegar fram líða stundir.
Þá má gera ráð fyrir því að fram-
ferði ríkisins í garð erlendra kröfuhafa
bankanna hafi áhrif þegar upprunalönd
þessara sömu kröfuhafa taka afstöðu til
þess hvort lána eigi ríkinu til uppbygg-
ingarstarfs hér og þá á hvaða kjörum.
Óhemjumikilvægt er að vel takist til í þessum samskiptum.
Þá er ekki síður mikilvægt að fyrir liggi í hvaða efnahagsumhverfi
við ætlum að standa að uppbyggingunni. Verður það með krónu og
gjaldþrota stjórn peningamála, eða í umhverfi einhliða upptöku ann-
ars gjaldmiðils sem seint mun teljast traustvekjandi, enda uppspretta
viðvarandi gjaldeyrishafta án lánveitanda til þrautavara sem stutt geti
við stærri fjármálafyrirtæki. Besti kosturinn er augljós, en hann er
að lýsa þegar yfir þeirri fyrirætlan að sækja um aðild að Evrópusam-
bandinu og taka í kjölfarið upp evru. Liggi sú leið ljós fyrir hefur það
strax áhrif á þau vaxtakjör sem ríkinu standa til boða. Þarna getur
munað milljörðum, ef ekki tugmilljörðum á ári.
Þetta eru þau mál sem mikilvægast er að taka á núna um leið og
lokið er við efnahagsreikninga bankanna svo þeir fái stutt við atvinnu-
lífið í landinu. Þannig verður betur tekist á við vaxandi atvinnuleysi
en með þeim áherslum sem manni sýnast nú að hluta ráðandi í land-
stjórninni, að koma á margvíslegri lagasetningu sem menn ímynda
sér að komið hefði að gagni fyrir fjórum árum þegar vöxtur bank-
anna var hvað mestur og athafnamenn fóru mikinn í fjármagnsflutn-
ingi milli landa.
Þannig getur verið góðra gjalda vert að breyta lögum um tekjuskatt
og staðgreiðslu opinberra gjalda til að styrkja skattframkvæmd og
hamla gegn undanskoti skatta. Aukin skattheimta á fólk og fyrirtæki
í umhverfi dagsins er hins vegar dálítið eins og að heimta að sjúkling-
arnir á lungnadeildinni sjái þar um þrifin líka með súrefniskútinn í eft-
irdragi. Rannsóknir hafa enda sýnt að skattahækkanir á krepputímum
draga fremur úr skatttekjum en auka. Þá er rétt að hafa í huga að sú
yfirlýsing ein að hér verði stefnt að Evrópusambandsaðild kemur lík-
lega til með að spara ríkinu meira fé í vaxtagreiðslum en aflað verði
með góðu móti með skattahækkunum. Á tímum sem þessum er rétt að
beina kröftunum í hluti sem skipta í alvörunni máli.
Afstaðan til Evrópusambandsins og samstarfs við aðrar
þjóðir virðist flækjast fyrir hluta landsmanna.
Taka þarf á því
sem máli skiptir
Óli Kristján Ármannsson
Besti kosturinn er
augljós, en hann er
að lýsa þegar yfir
þeirri fyrirætlan að
sækja um aðild að
Evrópusambandinu
og taka í kjölfarið
upp evru. Liggi sú
leið ljós fyrir hefur
það strax áhrif á þau
vaxtakjör sem ríkinu
standa til boða.
Auglýsingasími
– Mest lesið