Fréttablaðið - 25.03.2009, Síða 54
25. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR
STÆRSTA BOND MYND ALLRA
TÍMA KOMIN Á DVD OG BLU-RAY
9. HVERVINNUR!
ELDRI BOND MYNDIR Á TILBOÐI!
VINNINGAR ERU QUANTUM OF
SOLACE Á Á DVD, TÖLVULEIKIR,
DVD MYNDIR, PEPSI OG
MARGT FLEIRA.
SENDU SMS EST BOND
Á NÚME IÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
199 kr/skeytið. Vinningar afhendir í ELKO Lindum.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
VINNINGAR ERU QUANTUM OF SOLACE Á Á DVD, TÖLVULEIKIR,
DVD MYNDIR, PEPSI OG MARGT FLEIRA.
SJÁÐU
MYND
INA!
SPILA
ÐU LEI
KINN!
folk@frettabladid.is
Pétur Jóhann, Jón Gnarr, Páll Óskar og Jóhanna Guð-
rún verða á meðal þeirra sem koma fram í skemmti-
þætti Stöðvar 2 á laugardagskvöld þar sem safnað
verður fyrir Hjartaheill. Markmiðið er að safna fyrir
nýrri hjartaþræðingavél sem kostar yfir 300 milljón-
ir króna. Þema útsendingarinnar verður ástin, róm-
an tíkin og allt það sem talist getur hjartfólgið.
Sigurjón Kjartansson var fenginn til að semja grín-
atriði fyrir þáttinn og lauk verkefninu á einni helgi.
„Mér var það bæði ljúft og skylt að taka þátt. Þetta
eru mínir helstu vinir og snillingar í gegnum árin sem
þarna koma fram,“ segir Sigurjón og á þar við Pétur
Jóhann, Jón Gnarr, Kjartan Guðjónsson og Brynhildi
Guðjónsdóttur. „Þetta er einn „skets“ í tveimur hlut-
um sem tengist hjartanu og snýst um sjúkdómagrein-
ingu. Þetta er mjög athyglisvert en ég held að þess-
ir „sketsar“ tali nú fyrir sig sjálfir.“ Leikstjóri var
Sævar Guðmundsson sem leikstýrði einnig Rétti þar
sem Sigurjón var einmitt handritshöfundur.
Sigurjón samdi síðast grínatriði fyrir áramóta-
skaupið og hefur því engu gleymt. „Þegar við
gerðum áramótaskaupið var gott að geta gengið í
„sketsareynsluna“. Það er alltaf gott að hafa þenn-
an bakgrunn.“
Þátturinn á laugardag verður í tvær og hálfa
klukkustund. Þar kemur einnig fram Ilmur Kristj-
ánsdóttir sem ætlar að ræða við fólk á förnum vegi
um ástina og rómantíkina. - fb
Samdi hjartnæmt grínatriði
Ólöf Jara Skagfjörð og
Bjartur Guðmundsson
fara með aðalhlutverkin í
Grease sem sett verður upp
í Loftkastalanum í sumar.
„Ég var eiginlega búin að sætta
mig við að fá aldrei að leika Sandy
því ég er dökkhærð. Sem var sorg-
legt því ég hef oft horft á Grease
og langað til að leika hana og
syngja þessi lög. En þegar ég var
beðin um að koma í prufu hugsaði
ég með mér: Ég skal fá hlutverkið
þótt dökkhærð sé,“ segir Ólöf Jara
Skagfjörð.
Þriðja íslenska Grease-parið
leit dagsins ljós í gær þegar skrif-
að var undir samninga í Loftkast-
alanum. Ólöf Jara og Bjartur Guð-
mundsson taka að sér hin frægu
og eftirsóttu hlutverk Danny og
Sandy í söngleiknum Grease sem
til stendur að setja upp nú í vor og
sýna í allt sumar. „Við höfum pruf-
að marga og þetta er niðurstaðan,“
segir Bjarni Haukur, leikhússtjóri
í Lofkastalanum.
Söngleikurinn hefur verið sett-
ur tvisvar upp á Íslandi áður
en Selma Björnsdóttir leikstýr-
ir og tónlistarstjóri er Þorvaldur
Bjarni. „Ólöf Jara er dóttir þeirra
hjóna Guðrúnar Gunnarsdótt-
ur og Valgeirs Skagfjörð. Svaka-
lega mikil framtíð í henni. Hún er
með þetta í blóðinu,“ segir Bjarni
Haukur spurður hvað hafi ráðið
þessu vali. Ótrúlegur fjöldi hefur
mætt í Loftkastalann að undan-
förnu í áheyrnarprufur. Ólöf Jara
og Bjartur feta í fótspor Selmu
sjálfrar og Rúnars Freys sem fóru
fyrst með þessi hlutverk í íslensku
leikhúsi og síðar voru það Birgitta
Haukdal og Jónsi. „Þau hafa allt í
þetta sem þarf og gott betur eins
og íslenskir leikhúsgestir munu
komast að.“ Leikhússtjórinn held-
ur áfram þar sem frá var horfið
við að lýsa ágæti nýjasta Grease-
parsins. „Þetta eru frábærir leik-
arar sem passa í hlutverkin. Hún
er ekki leiklistarmenntuð en er úr
Verzló þar sem hún hefur verið
að syngja mikið. Er stjarna þaðan
eins og Selma. Og er nú að leika
í Kardemommubænum þannig að
Selma veit hvað hún getur og kann.
Bjartur er að útskrifast úr Leik-
listarskólanum og er þetta fyrsta
hlutverk hans eftir útskrift. Fram-
tíðin er björt hjá honum hann er
hörkuleikari. Svo er gaman að
segja frá því að hún er dökkhærð
en hann ljóshærður. Það er nýtt,“
segir Bjarni Haukur og vísar til
þess að upphaflega Grease-parið
var auðvitað þau Olivia Newton-
John og John Travolta í myndinni
frægu frá árinu 1978.
Bjartur segir þetta verkefni
leggjast vel í sig og sér fyrir sér
skemmtilega vinnu. „Nei, ég verð
að viðurkenna að ekki sá ég fyrir
að þetta yrði mitt fyrsta verkefni
eftir skóla. Í raun og veru átti ég
ekki von á að þessi söngleikur yrði
settur upp á þessum tíma. En það
er alltaf tími fyrir góða skemmtun.
Eitthvað sem eykur gleði í samfé-
laginu. jakob@frettabladid.is
Ljóshærður Danny Zuko og
dökkhærð Sandy Olsson
„Ég græddi fullt af nýju
efni fyrir uppistandið
mitt og get ekki beðið eftir
að fara aftur á ferðina.“
ROBIN WILLIAMS
Nýkominn úr hjartaaðgerð.
„Það voru nokkur erfið
hasaratriði. Á hverjum
degi leið mér eins og ég
væri að klífa Everest.“
SETH ROGEN
Kvartar undan þunna loftinu í
Nýju-Mexíkó við tökur á The
Green Hornet.
„Ég er önnum
kafin. Ég á frábæra
vini og yndislega
fjölskyldu. Allir
mínir draum-
ar eru að
rætast.“
NICOLE RICHIE
Setur á stofn
fatalínu
fyrir barns-
hafandi
konur.
SIGURJÓN KJARTANSSON
Sigurjón Kjartansson samdi
grínatriði í tilefni söfnunar fyrir
nýrri hjartaþræðingavél.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
NÝJA GREASE-PARIÐ Í ÖLLU SÍNU VELDI Þetta er fyrsta hlutverk Bjarts eftir leiklistar-
námið en Ólöf Jara er stjarna úr Verzló, líkt og leikstjórinn Selma. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI