Fréttablaðið - 25.03.2009, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar Proppé
Í dag er miðvikudagurinn 25.
mars, 84. dagur ársins.
7.10 13.34 19.59
6.53 13.18 19.45 H E I L S U R Ú M
EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS AF SVEFNSÓFUM
Án efa einn stærsti og glæsilegasti svefnsófasýningarsalur landsins.
Tilboð á svefnsófum af öllum stærðum og gerðum. Margir l
COMODO
Svefnsófi
Áður 398.950 kr.
NÚ 279.263 kr.
TILBOÐ!20-30%
AFSLÁTTUR!
T160
Svefnsófi
Áður 209.800 kr.
NÚ 167.840 kr.
TILBOÐ!
CLOVE
Svefnsófi
Áður 93.800 kr.
NÚ 75.040 kr.
TILBOÐ!
OZI
gestarúm
Áður 64.900 kr.
NÚ 51.920 kr.
TILBOÐ!
SOPHIA
SvefnsófiÁður 75.800 kr.
NÚ 59.882 kr.
TILBOÐ!
COUPLE
Svefnsófi
Áður 98.800 k
r.
NÚ 79.040 kr.
TILBOÐ!
1
2 3
Rekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16
Í gær voru sex ár upp á dag síðan Íslendingar stóðu að innrás í
Írak ásamt fleiri þjóðum. Vissu-
lega var stuðningur Íslendinga
meiri í orði en á borði enda her-
mönnum ekki fyrir að fara hér á
landi, þrátt fyrir óskir margra um
annað. En við stóðum engu síður
fyrir innrásinni undir forystu
George W. Bush. Davíð Oddsson og
Halldór Ásgrímsson héldu að með
blóði Íraka gætu þeir keypt áfram-
haldandi veru erlends herliðs hér á
landi. Svo var ekki.
Á MÁNUDAGINN eru önnur
tímamót. Þá eru sextíu ár síðan
Alþingi Íslendinga samþykkti að
gerast aðili að Atlantshafsbanda-
laginu. Þjóðin klofnaði í tvær fylk-
ingar, en í skjóli táragasskýja og
kylfuhögga var samþykkt að hið
nýstofnaða lýðveldi skyldi ganga í
hernaðarbandalag. Þar höfum við
verið síðan.
MENN geta haft hver sína skoð-
un á Atlantshafsbandalaginu, en
það er óumdeilt að það er hern-
aðarbandalag. Íslendingar, her-
laus þjóðin, eru í liði með þjóðum
sem eyða milljörðum í byssur og
sprengjur. Þeir sem studdu veru
okkar í bandalaginu og viðdvöl
hers hér á landi vitnuðu gjarnan til
þess að Ísland yrði að leggja sitt af
mörkum í samfélagi siðaðra þjóða.
Ekki dugaði að spila frítt með, við
þyrftum að velja okkur stað með
góða liðinu og leggja okkar af
mörkum.
FÆRA mætti hins vegar fyrir
því rök að ýmislegt hefði breyst
á síðustu 60 árum og þessi svart-
hvíta heimsmynd ætti ekki lengur
við. Bandaríkjamenn mátu það í
það minnsta þannig að ekki væri
lengur þörf fyrir að vera með her
hér á landi. Íslendingar töldu sig
hins vegar vita betur og sömdu við
aðrar þjóðir um að koma með loft-
heri sína hingað til lands. Á síðasta
ári eyddu Íslendingar um 1,4 millj-
örðum króna í varnarmál, þar með
talið aðild að Atlantshafsbandalag-
inu.
ARONSKA var það nefnt þegar
menn hugsuðu um varnir landsins
í krónum og aurum og vildu græða
sem mest á veru hers hér og þótti
ekki par fínt. Það er líka einfalt
að hefja sig yfir slíka hugsun og
í stóru samhengi hlutanna er 1,4
milljarðar kannski ekki mikið.
EINHVER myndi segja að Íslend-
ingar hefðu færi á að boða nýja
hugsun í nýjum heimi. Gætu horf-
ið frá 60 ára gamalli hernaðar-
hyggju og boðað frið og samvinnu
þjóða í millum. Þá væri til ein-
hvers unnið.
Boðskapurinn