Fréttablaðið - 27.03.2009, Síða 21
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Jóhannes Steinn Jóhannesson er
matreiðslumaður á veitingastaðnum
Vox. Hann ber titilinn matreiðslu-
maður ársins 2008 og býður les-
endum uppskrift að bleikju forrétti
sem hann setti saman fyrir Vox á
dögunum.
„Þessi réttur er agalega góður
með bleikju frá Klaustri og svo nota
ég smá humar og skyr en við erum
bara í nýnorrænni matreiðslu hér á
Voxinu,“ útskýrir Jóhannes og segir
vatnið ekki sótt yfir lækinn. „Við
notum eingöngu hráefni frá Norður-
löndunum og eins mikið íslenskt og
við getum.“ Jóhann segist reynd-
ar ekki fara sjálfur að veiða fisk-
inn en matreiðslumennirnir á veit-
ingastaðnum séu þó að skipuleggja
sveppatínsluferð í sumar og tíni
blóðberg og jurtir í matreiðsluna
sjálfir þegar þeir geta.
„Við erum alla daga í því að
gera tilraunir með íslenskt hrá-
efni, innan skynsamlegra marka
þó,“ bætir hann við hlæjandi. „Við
höfum ekki verið að steikja íslenska
snigla enn þá.“
Inntur eftir uppáhaldsmatnum
sínum segist Jóhannes borða hvað
sem er. „Best er að fara í mat til
mömmu og fá venjulegan heimilis-
mat. Ég elda alltaf heima hjá mér og
tek uppvaskið í leiðinni, enda þjálf-
aður í þessu og jú, ég býð mömmu
líka í mat öðru hvoru.“
heida@frettabladid.is
Íslensk bleikja og skyr
Íslenskt hráefni er í hávegum haft hjá matreiðslumanni ársins 2008 því Jóhannes Steinn Jóhannesson
gerir tilraunir með það á hverjum degi. Hann gefur lesendum uppskrift að forrétti með íslenskri bleikju.
Jóhannes Steinn matreiðslumaður töfrar fram ljúffengan bleikjuforrétt sem hann segir einstaklega góðan. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Bleikjurúlla
1 flak taðreykt bleikja frá
Skútustöðum
1 flak lítil Klausturs-
bleikja
100 g hreint skyr
Salt
Pipar
Roðflettið reykta
bleikju, beinhreinsið
og frystið. Skerið
því næst í langar
þynnur og leggið á
bökunarpappír. Roð-
flettið og beinhreinsið
Klaustursbleikjuna
og skerið niður mjög
smátt. Blandið saman
við skyr og smakkið
til með salti og
pipar. Setjið blöndu
í sprautupoka og
sprautið jafnri línu á
reyktu bleikjuþynnuna
og vefjið þétt upp í
plastfilmu. Frystið og
skerið í jafna bita eftir
vild.
Grafin bleikja
1 flak fersk Klausturs-
bleikja
100 g Svartigaldur frá
Sverri Guðjónssyni te-
meistara
40 g salt
60 g sykur
Roðflettið og bein- og
fituhreinsið bleikjuna.
Blandið tei, salti og
sykri saman og sáldrið
yfir bleikju. Látið
standa yfir nótt. Skolið
og skerið í þunnar
sneiðar þegar á að
bera fram.
Humar
4 stk. stórir humarhalar,
pillaðir
Saxað dill
Salt
Pipar
Eldið humarhala í
örlítilli olíu í ofni við
160 °C í um fjórar
mínútur. Kryddið með
salti, pipar og dilli.
Skyrkrem
100 g hreint skyr
3 stilkar ferskt fáfnisgras
Salt
Saxið fáfnisgras örfínt
og blandið saman við
skyrið. Hrærið rösklega
saman og smakkið til
með smá salti.
Agúrkur
½ stk. íslensk agúrka
Salt
Dill
Hrásykur
Repjuolía frá Bornholm
Saxið gúrkur fínt niður.
Setjið dill, hrásykur og
olíu út á og blandið
vel saman. Smakkið til
með örlitlu salti.
BLEIKJA, REYKT OG GRAFIN
með humri, agúrkum, skyri og Svartagaldri FYRIR 4
KONSÚM kallast nýjasta páskaeggið úr ranni Nóa Siríus. Eggið sem
verður aðeins fáanlegt í einni stærð er búið til úr suðusúkkulaðinu gamla
og er ekki síst ætlað fullorðnum sælkerum. Undirstaðan í fyllingu páska-
eggsins er konfektmolar, rúsínur og karamellur.
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Heimasíða www.perlan.is
H
ri
n
g
b
ro
t
Næg ókeypis
bílastæði
við Perluna
Ódýrt og gott!
Súpubar 620 kr.
Salatbar 990 kr.
Súpa og salatbar á aðeins 1.430 kr.
~ NÝBAKAÐ BRAUÐ FYLGIR MEÐ SÚPU- OG SALATBAR. ~
Í kaffiteríunni Perlunnar er hægt að fá alls kyns góðgæti
á frábæru verði: Crépes, samlokur, pizzur og smurt
brauð. Eins er hægt að fá heimatilbúinn ítalskan ís, alls
kyns ísrétti, kökur og tertur.
Vegna mikillar eftirspurnar hefur
Allt í steik verið framlengt til 19. apríl!