Morgunblaðið - 22.02.2006, Síða 11

Morgunblaðið - 22.02.2006, Síða 11
Settur ríkissaksóknari spurði Jón Gerald sérstaklega út í þetta, enda hefði komið í ljós við rannsókn lög- reglu á tölvu hans að þennan tölvu- póst væri ekki að finna þar, ólíkt hinum tölvupóstunum sem virðast hafa komið frá Kristínu. Jón Gerald sagðist ekki kunna skýringar á því af hverju tölvupósturinn væri ekki í tölvu hans, en þverneitaði því að hafa falsað póstinn. „Þetta er tölvu- póstur sem hún sendi mér,“ sagði hann. Kristín Edwald, verjandi Krist- ínar Jóhannesdóttur, spurði Jón Gerald út í reikninga frá Nordica, og gerði sérstaklega athugasemd við að dagsetningum á einum af reikningunum beri ekki saman. Hún benti á að með einum reikningnum hefði fylgt forsíða af símbréfi sem dagsett væri í apríl 2000, en reikn- ingurinn sem fylgdi með væri dag- settur í maí 2000. Jón Gerald sagði þetta eiga sér eðlilegar skýringar. Hann hefði sent reikninginn með faxi til kaupanda bílsins í apríl. Þegar greiðsla hefði borist í maí hefði hann gengið end- anlega frá reikningnum og skipt út eintakinu sem var faxað fyrir ein- takið sem gert var eftir að reikning- urinn var greiddur. Sama reiknings- númer hefði verið á báðum reikningum, og þetta væri nokkuð sem gert væri ráð fyrir í því bók- haldskerfi sem hann notaði. Spurð- ur hvers vegna ekki hefði fundist upprunalega útgáfan sem hann fax- aði sagði hann að trúlega hefði því eintaki verið hent. Það skipti ekki máli þar sem endanlegur reikningur væri til staðar. Þráspurður um samskiptin við ríkislögreglustjóra Einar Þór Sverrisson, verjandi Jóhannesar, spurði ýtarlega út í samskipti Jóns Geralds við starfs- menn ríkislögreglustjóra. Jón Ger- ald sagði þau samskipti hafa hafist árið 2002, og það hefði verið lög- maður sinn, Jón Steinar Gunnlaugs- son, sem opnaði fyrir þau samskipti með símtali. Hann sagðist svo að- spurður hafa verið í sambandi við starfsmenn embættisins í tengslum við skýrslugjöf sína, og nokkrum sinnum síðan til að fá upplýsingar um framgang málsins. Einar spurði Jón Gerald sérstak- lega hvort hann hefði fengið símtal frá Sveini Ingibergi Magnússyni, starfsmanni efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, kvöldið áður. Því játaði Jón Gerald, en sagði sím- talið eingöngu hafa verið til að láta hann vita hvenær hann ætti að mæta í héraðsdóm, og til að vara hann við að skýrslutakan gæti dreg- ist á langinn. Einar spurði Jón Gerald einnig hvort hann hefði haft milligöngu um að útvega skyldmenni starfsmanns ríkislögreglustjóra gistingu á Miami í Bandaríkjunum. Því neitaði Jón Gerald alfarið, og sagðist ekki geta skilið hvað verjandinn hefði verið að tala um. Einar vildi einnig spyrja Jón Ger- ald hvort hann hefði verið í ein- hverjum samskiptum við Jón Stein- ar Gunnlaugsson, sem var lögmaður Jóns Geralds, eftir að Jón Steinar tók við embætti hæstaréttardóm- ara. Áður en vitnið fékk tækifæri til að svara greip Pétur Guðgeirsson, dómsformaður, fram í og bað verj- anda um að halda sig við þetta mál. Einar dró því spurninguna til baka. Ræddi við bílasala um að útvega lögreglu gögn Verjendur spurðu Jón Gerald einnig um samskipti hans við Ivan G. Motta, eiganda og forstjóra Zona Franca Automotores. Þá kom í ljós að Jón Gerald ræddi við hann um að Motta útvegaði gögn úr fyrirtæki sínu fyrir ríkislögreglustjóra. Eftir það hefði Motta verið stefnt fyrir rétt hér á landi, og hann samþykkt að koma. Þá hefði hann hitt Motta til að ræða um ferðalagið hingað til lands, enda hefðu þeir verið sam- ferða til landsins og gisti á sama hóteli, sem ríkislögreglustjóri hefði útvegað. í héraðsdómi í gær MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 11 BAUGSMÁLIÐ BANDARÍSKUR bílasali, Ivan Gabriel Motta, bar vitni fyrir Hér- aðsdómi Reykjavíkur við aðal- meðferð í Baugsmálinu í gær, en Motta er eigandi og forstjóri Zona Franca Automotores, sem seldi þrjá af þeim fjórum bílum sem ákært er vegna í málinu. Motta sagði samband sitt við Jón Gerald Sullenberger vera á þeim nótum að Jón Gerald væri viðskiptavinur sinn, sem hefði keypt 6–7 bíla af sér í gegnum tíðina. Hann sagði fyrirtæki sitt sér- hæfa sig í að selja bíla til útflutn- ings frá Bandaríkjunum, og sér- hæfði það sig enn fremur í að útvega sérstaka bíla með hraði þegar þess væri óskað. Hann sagði að hann hefði selt Nordica, fyrirtæki Jóns Geralds, bíla og skráð þá á nöfn vænt- anlegra kaupenda á Íslandi, eins og eðlilegt væri í viðskiptum af þessu tagi. Hann staðfesti að þeir reikningar sem Jón Gerald hefur sagt vera vegna bílakaupa fyrir ákærðu í málinu séu vegna bíla sem hann seldi Nordica. Gat ekki haldið bílnum fyrir Nordica nægilega lengi Hann staðfesti einnig þann framburð Jóns Geralds að rugl- ingur með framleiðslunúmer BMW-bifreiðar, sem Kristín Jó- hannesdóttir keypti, hefði komið til vegna þess að bíllinn sem hún vildi fá hefði verið vinsæll á þeim tíma, og hann hefði einfaldlega ekki getað haldið bílnum fyrir Nordica nægilega lengi. Því hefði annar alveg eins bíll verið útveg- aður. Motta staðfesti einnig að hann hefði boðið Jóni Gerald að senda bílana til New York í flug eða skip fyrir 1.400 Bandaríkjadali, en því hefði Jón Gerald hafnað og flutt bílana sjálfur. Því hefðu end- anlegir reikningar verið lægri sem því næmi. Kristín Edwald, verjandi Krist- ínar Jóhannesdóttur, spurði Motta ýtarlega út í samskipti sín við rík- islögreglustjóra. Hann sagði að Jón Gerald hefði verið í sambandi við sig og spurt hvort hann væri tilbúinn til að leggja fram gögn um sinn þátt í málinu. Því hefði hann játað, og í framhaldinu hefði honum borist stefna frá íslenskum yfirvöldum. Hann hefði samþykkt að koma hingað til lands með gögn, og að bera vitni í málinu, en óskað eftir því að ferðast með Jóni Gerald hingað til lands. Aðspurður neitaði hann að hafa farið yfir gögnin með Jóni Ger- ald, hann hefði þó komið með til ríkislögreglustjóra á sunnudag þegar hann lagði gögnin fram. Þá fyrst hefði Jón Gerald séð þessi gögn. Einar Þór Sverrisson, verjandi Jóhannesar Jónssonar, spurði Motta hvort lögreglan hefði áður óskað eftir gögnum frá honum eða Zona Franca, en því neitaði Motta. Hann sagðist fyrst hafa heyrt af rannsókninni nýlega þeg- ar Jón Gerald setti sig í samband við hann. Einar spurði Motta einnig út í skráningu bifreiða, og ferlið við kaup á þeim, sér í lagi á bifreið sem Zona Franca keypti frá Kanada til Bandaríkjanna, og var síðar flutt til Íslands. Meðal annars bar hann undir Motta skráningu úr kanadísku bifreiðaskránni, sem sýnir að um- ræddur bíll sé enn skráður í Kan- ada. Motta sagðist ekki kunna skýringar á því, hugsanlega hefði engin breyting verið gerð þar á í kerfinu þar sem bíllinn hefði ver- ið seldur úr landi. Bíllinn var ekki skráningarhæfur í Kanada Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, spurði Motta ýtarlega út í skráningu bílsins í Kanada, en í skjali ætl- uðu kanadískum yfirvöldum sem útbúin voru vegna útflutnings bílsins, sem Jón Gerald sagði Samskip hafa útbúið, kemur fram að bíllinn hafi ekki verið óhæfur (á ensku „unfit“) til að hljóta skráningu í Kanada. Motta sagðist ekki vita hvað það ætti að fyrirstilla, bíllinn hefði ekki verið á nokkurn hátt gallaður, enda nýr. Þegar hann var beðinn um að segja hvað hann teldi líklegt að orðið „unfit“ stæði fyrir sagði hann það líklega vera að bílinn mætti ekki skrá í Kan- ada þar sem hann hefði verið ætl- aður til útflutnings. Hann sagðist þó ekki hafa neina sérþekkingu á kanadískum eyðublöðum. Einnig spurði Gestur hvort átt væri við kanadíska eða banda- ríska dollara á eyðublaðinu, en það sagðist Motta ekki geta sagt til um, trúlega þó Bandaríkjadali miðað við upphæðina. Bandarískur bílasali kallaður fyrir héraðsdóm Morgunblaðið/Júlíus Ivan G. Motta ræðir við Svein Ingiberg Magnússon, starfsmann efnahags- brotadeildar ríkislögreglustjóra, á göngum héraðsdóms í gær. HREINN Loftsson, stjórnarfor- maður Baugs, sagðist fyrir héraðs- dómi í gær hafa viljað vera alger- lega öruggur um að ekkert orkaði tvímælis í bókhaldi Baugs, og fyr- irskipað úttekt á fyrirtækinu, eftir fund sem hann átti með Davíð Oddssyni, þáverandi forsætisráð- herra, í London 26. janúar 2002. „Ég vildi að það væri enginn vafi að menn gætu staðist hverja þá skoðun sem komið gæti til,“ sagði Hreinn. Aðeins eftir að end- urskoðendur KPMG endurskoð- enda voru búnir að gera slíka út- tekt og skiluðu harðorðri skýrslu varð Hreini ljóst hver staðan var á viðskiptareikningum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Kristínar Jóhann- esdóttur og fyrirtækjum þeim tengdum, Fjárfari og Gaumi. Hreinn var spurður af verj- endum hvort Baugur hefði lánað Jóni Ásgeiri, Kristínu, Fjárfari eða Gaumi fé, eða hvort um hefði verið að ræða neikvæða stöðu á viðskiptum þessara aðila við Baug. Hann sagði að sumt af því sem endað hafi á viðskiptareikningi hefði farið fyrir stjórn Baugs en annað ekki. Hann sagði að sér væri ókunnugt um að um hefði verið að ræða nokkur eiginleg lán á fé gegn skuldaviðurkenningu. Hreinn sagði að hann tæki hins vegar ekki afstöðu til þess hvort um hefði verið að ræða lán eða viðskiptaskuldir í umræddum til- vikum. Hann hefði einfaldlega viljað að þessi skuld yrði greidd upp því hann vildi hafa „hreint borð“ og engar úti- standandi kröfur. Eftir umræður á Alþingi hinn 22. jan- úar 2002, þar sem staða Baugs á mat- vörumarkaði var gagnrýnd harkalega, sagðist Hreinn hafa óskað eftir fundi með Davíð Oddssyni, þá- verandi forsætisráð- herra. Þann fund hefði hann fengið 26. janúar, og hefði tilgangurinn helst verið að segja sig úr einkavæðingarnefnd, sem hann átti sæti í á þeim tíma. Taldi Jón Ásgeir hafa gert upp skuld sína Á fundinum með Davíð sagðist Hreinn hafa heyrt alvarlegar ásakanir í garð Baugs, og því hefði hann talið fulla þörf á úttekt á fyr- irtækinu. Mikil harka hefði verið í umhverfinu á þeim tíma, og hann óttast að lögregla gerði húsleit, eins og gert var hjá olíufélögun- um. Fyrir honum hefði vakað að ekkert gæti mögulega orkað tví- mælis, kæmi til slíkrar rann- sóknar. Hreinn sagði að á stjórnarfundi hinn 14. febrúar 2002 hefði Stefán Hilm- arsson, endurskoð- andi KPMG, bent á atriði sem betur mættu fara, en hann hefði einnig sagt að ekkert stórvægilegt væri að hjá fyrir- tækinu. Hinn 28. febrúar 2002, við lok ársuppgjörs Baugs, hefði hann talið að Jón Ásgeir hefði ver- ið búinn að gera upp skuld sína við fyr- irtækið, en komið hefði í ljós síðar að svo hefði ekki verið. Á stjórnarfundi 23. maí 2002 sagði svo Hreinn að Jón Ásgeir hefði sagt stjórninni að Gaumur skuldaði Baugi ekki neitt, né ætti Gaumur eitthvað inni hjá Baugi. Ekki hefði verið kannað af stjórn- inni hvort það hefði verið rétt. Hreinn sagðist aðspurður kann- ast við umræðu um að gera ætti upp skuldina með sölu eigna, en verð á hlutabréfum væri alltaf háð mati. Hann hefði kosið að hafa ekkert matsmál tengt uppgjörinu, heldur vildi að skuldin yrði gerð upp með hefðbundnum hætti til að „menn væru ekki að gefa á sér skotfæri“. Spurður hvort hann kannaðist við að gefinn hefði verið út víxill þann 20. maí 2002 til að greiða upp skuldina við Baug sagðist Hreinn ekki vita hvort svo hefði verið. Sigurður Tómas Magn- ússon, settur ríkissaksóknari í málinu, sagði það undarlegt að víxillinn hefði ekki komið til tals í stjórn Baugs á fundi 23. maí, þremur dögum eftir að hann var gefinn út, sér í lagi þegar umræða hefði verið um skuldina sem greidd hefði verið með víxlinum á umræddum fundi. Vildi tryggja rekstrarfé Baugs Jóhanna Waagfjörð, fyrrverandi fjármálastjóri Baugs, bar einnig vitni fyrir héraðsdómi í gær. Hún var m.a. spurð um það hver hefði gefið fyrirmæli um hvernig ætti að flokka viðskiptakröfur Baugs á Jón Ásgeir, Kristínu, Gaum og Fjárfar. Hún sagði það misjafnt, það hefði verið ýmist forstjórinn – Jón Ásgeir, aðstoðarforstjórinn – Tryggvi Jónsson, eða fram- kvæmdastjórar fyrirtækisins. Hún sagðist hafa gert athuga- semdir við stöðuna á viðskipta- reikningum Jóns Ásgeirs, Krist- ínar, Fjárfars og Gaums og óskað eftir því að þeir yrðu greiddir upp. Í framhaldinu hefði verið unnið í því að lækka skuldirnar. Þetta hefði hún gert til þess að tryggja nægilegt fé til reksturs Baugs á þessum tíma. Vildi að bókhaldið gæti staðist nána skoðun Hreinn Loftsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.