Morgunblaðið - 22.02.2006, Síða 16

Morgunblaðið - 22.02.2006, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Málstofa samgönguráðuneytisins, Samtaka ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofu og Öryrkjabandalagsins um FERÐAÞJÓNUSTU FYRIR ALLA Ársal Radisson SAS Hótel Sögu við Hagatorg 24. febrúar 2006 frá klukkan 13 til 17 Málstofan er haldin í samvinnu við Nordiska Handikappolitiska Rådet, sem er ein af stofnunum Norðurlandaráðs 12:30 Húsið opnað. 13:00 Elías Gíslason, forstöðumaður upplýsinga- og þróunarsviðs Ferðamálastofu, setur málstofuna. 13:05 Magnús Oddsson, ferðamálastjóri, flytur ávarp. 13:15 Dr. Peter Neumann, hagfræðingur frá Þýskalandi, fjallar um ferðaþjónustu fyrir alla frá hagfræðilegu sjónarmiði – Dæmi frá Þýskalandi (Economic Impacts of Accessible Tourism for All – The Case of Germany). 13:45 Fyrirspurnir til dr. Peters Neumann. 13:55 Ingemar Oderstedt, ráðgjafi hjá Nordiska Handikappolitiska Rådet – ferðaþjónusta fyrir alla frá sjónarhóli Nordiska Handikappolitiska Rådet – Nordisk overview. 14:10 Unnur Svavarsdóttir, stjórnandi hjá Íslandsferðum – er ferðaþjónustan í stakk búin til að taka á móti fötluðum ferðamönnum? 14:25 Guðrún Fjelsted, hestaleigunni að Ölvaldsstöðum – reiðkennsla og hestaleiga fyrir fatlaða. 14:40 Berglind Viktorsdóttir, gæðastjóri Ferðaþjónustu bænda – um aðgengi að ferðaþjónustubæjum. 14:55 Hressing. 15:10 Ásdís Jenna Ástráðsdóttir, háskólanemi – Fatlaður á ferðalagi. 15:20 Þórunn Edda Bjarnadóttir, umhverfisskipulagsfræðingur frá Landbúnaðarháskóla Íslands – úttekt á aðgengi svæða. 15:30 Guðmundur Magnússon, formaður ferlinefndar Öryrkjabandalagsins – Fastur í fegurðinni. 15:40 Jón Hjalti Sigurðsson, tómstundaleiðbeinandi – Aðgengi án aðstoðar. 15:50 Hressing. 16:05 Niðurstöður – Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, dregur saman niðurstöður og þann lærdóm sem hafa má af því sem fram fór. ANDERS Fogh Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur, hafnaði í gær kröfu stjórnarandstöðunnar um að fram færi óháð rannsókn á fram- göngu stjórnarinnar í deilunni um skopmyndirnar af Múhameð spá- manni. Stjórnarandstaðan kvaðst vilja að rannsóknin hæfist eftir að mótmæl- um gegn skopmyndunum linnti í löndum múslíma. Stjórnarandstæð- ingar hafa meðal annars gagnrýnt forsætisráðherrann fyrir að synja beiðni um fund með sendiherrum ell- efu múslímalanda sem höfðu varað við því að skopmyndirnar, sem birtust fyrst í danska dagblaðinu Jyllands-Posten í september, gætu leitt til götumótmæla. Þá hefur Fogh Rasmussen verið gagnrýndur fyrir að bregðast ekki við viðvörun Egypta um að mótmælin gætu stig- magnast. Forsætisráðherrann varði fram- göngu stjórnar- innar og sakaði stjórnarandstöð- una um að reyna að hagnýta sér málið í pólitískum tilgangi. Hann hafnaði óháðri rannsókn á mál- inu og sagði að ef stjórnarandstað- an vildi draga stjórnina til ábyrgðar gæti hún gert það „fyrir opnum tjöldum“ á þinginu þar sem hún gæti fengið svör við spurningum sínum. „Því að þetta mál er pólitískt og snýst um grundvallarspurningar,“ hafði Jyllands-Posten eftir Fogh Rasmussen. „Þegar við buðum ekki sendiherrunum fund en sendum þess í stað skriflegt svar var það pólitísk ákvörðun. Tjáningarfrelsið er mikil- vægasti frelsisrétturinn í Danmörku og það á ekki að ræða hann við er- lenda sendiherra.“ Forsætisráðherrann áréttaði að stjórnin bæri ekki ábyrgð á efni sem birt væri í óháðu dagblaði. „Í Dan- mörku eru það dómstólarnir sem úr- skurða í slíkum málum og ekki stjórnin.“ Allt gert til að vernda teiknara Danskir fjölmiðlar skýrðu frá því í gær að danska utanríkisráðuneytið hefði í fyrstu ráðlagt Fogh Rasmus- sen að samþykkja fund með sendi- herrum múslímalandanna ellefu. Forsætisráðherrann neitaði þessu í gær og vísaði einnig á bug ásökun- inni um að stjórnin hefði virt við- vörun Egypta að vettugi, að sögn Politiken. Fogh Rasmussen sagði einnig á vikulegum blaðamannafundi sínum í Kaupmannahöfn í gær að dönsk yf- irvöld hefðu gert „allar nauðsynleg- ar ráðstafanir“ til að vernda þá sem teiknuðu skopmyndirnar umdeildu af Múhameð spámanni. Þeim hefur verið hótað lífláti og róttækir klerk- ar hafa lagt fé til höfuðs þeim. Fogh hafnar rannsókn á skopmyndamálinu Anders Fogh Rasmussen Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is YOWERI Museveni, forseti Úganda, heilsar hér stuðningsmönnum sínum á síðasta kosn- ingafundinum fyrir forsetakosningar sem fram fara í landinu á morgun. Museveni hefur verið við völd í nær 20 ár og stuðningsmenn hans á þinginu breyttu stjórnarskránni til að gera hon- um kleift að gefa kost á sér til endurkjörs. Eru þetta fyrstu fjölflokkakosningarnar í landinu í 26 ár. Á kosningafundinum í gær hrópuðu stuðn- ingsmenn forsetans kosningavígorð hans: „Enga breytingu!“ Í ræðu sinni kenndi Mus- eveni stjórnarandstöðunni og útlendingum um helstu vandamál landsins, meðal annars um raf- magnsskort. Hann sagði að þingmenn stjórn- arandstöðunnar og „erlendar slettirekur“ hefðu hindrað byggingu nýrra orkuvera. Þetta myndi þó breytast vegna þess að breytt stjórn- arskrá veitti forsetanum aukin völd.AP Fyrstu fjöl- flokkakosningar Úganda í 26 ár ÞAÐ gerist ekki á hverjum degi að höfundur afþreyingabóka fái klukku- tíma áheyrn hjá Bandaríkjaforseta, George W. Bush. Samkvæmt nýrri bók eftir Fred Barnes, yfirritstjóra The Weekly Standard, „Rebel in Chief: Inside the Bold and Controversial Presidency of George W. Bush“, átti afþreyingarhöf- undurinn Michael Crichton þess þó kost á liðnu ári. Samkvæmt Barnes ræddi Crichton við Bush um nýlega bók sína „State of Fear,“ þar sem færð eru rök fyrir því að ógnin af loftslagsbreytingum sé grundvölluð á ósannaðri kenningu og því stórlega ofmetin. „Heimsóknin var ekki gerð opinber af ótta við að misbjóða umhverfisverndarsinnum enn frekar,“ sagði Barnes í samtali við The New York Times. Frank O’Donnell, forseti umhverfisstofnunarinnar Clean Air Watch, sagði í samtali við sama blað að „þetta sýndi að forsetinn hefði meiri áhuga á skáld- skap en vísindum“, ásamt því sem hann fullyrti að stjórn Bush hefði ekki sett nein takmörk á losun gróðurhúsalofttegunda. „Hefur meiri áhuga á skáldskap en vísindum“ George W. Bush Michael Crichton London. AP. | Hrafnarnir í Lundúna- turni, Tower of London, hafa verið teknir í hús til að vernda þá fyrir fuglaflensunni. Kannski eins gott því að þjóðsagan segir að ef turninn verði hrafnalaus þá muni hann hrynja og konungsríkið í Bretlandi líða undir lok. „Þetta er fyrst og fremst var- úðarráðstöfun,“ segir Derrick Coyle, hrafnameistari í Lundúna- turni. „Ég var búinn að segja að ef fuglaflensa bærist til Þýskalands þá myndi ég taka þá í hús.“ Hrafnarnir eru sex: Branwen, Huginn, Muninn, Gwyllum, Þór og Baldrekur en það var Karl II. kon- ungur sem skipaði svo fyrir um á sautjándu öld að alltaf skyldu sex hrafnar vera í turninum. Lundúna-turn hefur gegnt ýmiss konar hlutverki, þar voru geymd vopn, en turninn hefur líka verið notaður sem dýragarður og auðvit- að sem fangelsi. Er stundum sagt að Anna Boleyn sem hálshöggvin var í turninum 1536 fyrir landráð gegn bónda sínum, Hinriki VIII., ráfi enn um í turninum með höfuðið undir arminum. Nú hefur Tower of Lond- on hins vegar um langa hríð fyrst og fremst verið ferðamannastaður. Hrafnarnir í turninum eru látnir vera lausir á daginn og fljúga þeir þá um; á kvöldin sofa þeir hins veg- ar í búrum sínum. Hrafnameist- arinn í turninum sér um að stytta flugfjaðrir þeirra til að fyrirbyggja að þeir stingi af úr turninum en það gerist hins vegar endrum og eins að hrafn sleppur og í dagbókum Lund- únaturns frá árinu 1981 segir t.a.m. um hrafninn Grog að hann hafi síð- ast sést fyrir framan krá í austurbæ Lundúna. Derrick Coyle hefur verið hrafnameistari í 22 ár og segist þekkja fuglana sex, sem nú byggja turninn, vel. Hann segir fara vel um þá á nýja staðnum; öðrum hluta kastalans. Og hann kveðst sann- færður um að ekkert muni ama að hröfnunum, þeir muni eiga heimili í Lundúnaturni í langa hríð enn. Hinn aldagamli spádómur muni ekki rætast. „Ég er hrafnameist- arinn,“ segir hann. „Ég verð að trúa þjóðsögunni.“ AP Derrick Coyle hrafnameistari fyrir framan tóm búr hrafnanna sex. Hrafnarnir fluttir í hús Sagan segir að ef Lundúnaturn verði hrafnalaus líði konungdæmið undir lok

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.