Morgunblaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 17
ERLENT
ÞRÝSTINGUR á Thaksin Shinaw-
atra, forsætisráðherra Taílands,
um að segja af sér embætti jókst í
gær, þegar nokkrir nánir sam-
starfsmenn hans lýstu yfir van-
trausti á hann. Koma yfirlýsing-
arnar í kjölfar mikillar óánægju-
öldu með störf Shinawatra, en
áætlað er að um 50 þúsund manns
hafi tekið þátt í mótmælum gegn
honum fyrr í mánuðinum.
„Ég vil hvetja Thaksin til að
færa fórn með því að segja af sér í
þágu þjóðarinnar,“ sagði Chaml-
ong Srimuang, fyrrverandi sam-
starfsmaður hans og pólitískur
lærifaðir. Vinai Sompong, flokks-
bróðir Shinawatra á taílenska
þinginu, tók í sama streng og sagði
að forsætisráðherrann hefði fyr-
irgert rétti sínum til valda þegar
hann seldi síma-
risann Shin
Corp. „til út-
lendinga undir
vafasömum
kringumstæð-
um“.
Er Sompong
að vísa til þess
að Shinawatra
hefur undanfar-
inn mánuð legið
undir ámæli síðan hann seldi hlut
sinn og fjölskyldu sinnar í símaris-
anum Shin Corp. til fjárfestinga-
fyrirtækis frá Singapúr fyrir um
122 milljarða íslenskra króna.
Snýst óánægjan einkum um að
Shinawatra greiddi ekki skatt af
sölunni og að fyrirtækið sé nú
komið í hendur erlendra aðila.
Sompob Manarungsan, stjórn-
málafræðingur við Chulalongkorn
háskóla í Taílandi, sagði að and-
stæðingum Shinawatra hefði tekist
að einangra hann pólitískt og að
„hann yrði að leysa upp þingið ell-
egar hætta“, annars myndi pólitísk
spenna í landinu magnast og leiða
til ofbeldis.
Spá fjölmennum
mótmælum
Búist er við að fyrirhuguð mót-
mæli á sunnudag verði þau fjöl-
mennustu hingað til, m.a. vegna
þess að fyrrgreindur Chamlong
hyggst taka þátt, en hann tengist
hópi Santi Asoke búddista, sem
hefur þúsundir meðlima. Hefur
stuðningur búddista mikla tákn-
ræna þýðingu, enda er konungur
Taílands, Bhumibol Adulyadej,
helsti fulltrúi búddista í landinu og
nánast í guðatölu á meðal þegna
sinna. Þá hyggjast 42 verkalýðs-
félög taka þátt og krefjast afsagn-
ar forsætisráðherrans.
Munu fyrirhugaðar aðgerðir á
sunnudag ganga þvert á bann
Shinawatra við mótmælum af
sömu stærðargráðu og haldin voru
í höfuðborginni Bangkok fyrr í
mánuðinum. Koma fyrirhugaðar
aðgerðir í kjölfar þess að stjórn-
lagadómstóll landsins synjaði sl.
föstudag beiðni 27 þingmanna um
að íhuga rannsókn á ákærum á
hendur forsætisráðherranum. En
Abhisit Vejjajiva, leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar, sagði að nýleg
tillaga Shinawatra um að sameig-
inlegur þingfundur beggja þing-
deilda sé tilraun til að koma í veg
fyrir að þingið heimili rannsókn á
störfum stjórnarinnar.
Shinawatra í
erfiðri stöðu
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Thaksin
Shinawatra
Bangkok. AFP. | Bandaríski
kvikmyndaleikstjórinn Oliver
Stone kvaðst í gær ekki vera
viss um að Bandaríkjamenn
væru undir það búnir að sjá
væntanlega kvikmynd hans
um hryðjuverkin í Bandaríkj-
unum 11. september 2001.
Hann lagði á hinn bóginn
áherslu á að myndin snerist
um örlög fólks en hvorki
stjórnmál né samsæriskenn-
ingar.
Myndin nefnist „World
Trade Center“ og gert er ráð
fyrir því að hún verði sýnd síð-
ar á árinu þegar fimm ár verða
liðin frá hryðjuverkunum. Hún
fjallar um sólarhring í lífi
tveggja manna sem lokuðust
inni í öðrum turna World
Trade Center, fjölskyldna
þeirra og björgunarmanna.
„Hún er um björgun og fjöl-
skyldurnar sem tengjast
henni. Þetta er í rauninni
tæknileg tilraun til að lýsa því
sem gerðist í byggingunni á
raunsæjan hátt,“ sagði Stone
þegar hann svaraði spurn-
ingum á kvikmyndahátíð í
Bangkok.
Bandarískir fjölmiðlar hafa
skýrt frá því að nokkrir menn,
sem tengjast gerð mynd-
arinnar, hafi áhyggjur af því
að Oliver Stone ætli að koma
pólitískum skoðunum sínum á
framfæri í myndinni. Hann
hefur gagnrýnt viðbrögð
George W. Bush Bandaríkja-
forseta við hryðjuverkunum
og á kvikmyndahátíðinni í
Bangkok lýsti hann stjórn
Bush sem „martröð“.
Stone neitaði því að myndin
snerist um stjórnmál eða sam-
særiskenningar líkt og um-
deild mynd hans um morðið á
John F. Kennedy árið 1963.
Með aðalhlutverkið í myndinni
fer Nicolas Cage, en hann leik-
ur lögreglumann sem lokaðist
inni ásamt starfsfélaga sínum í
öðrum turnanna sem hrundu í
New York 11. september.
„Þeir voru í miðju eyðilegging-
arinnar. Þeir komust lífs af.
Myndin er um björgun þeirra
og um börnin þeirra heima.“
Myndin
um ellefta
september
ekki pólitísk
Reuters
Oliver Stone (t.h.) með Nicolas
Cage, sem leikur aðalhlut-
verkið í mynd hans um hryðju-
verkin 11. september.