Morgunblaðið - 22.02.2006, Page 18

Morgunblaðið - 22.02.2006, Page 18
Sandgerði | Nokkuð af olíu lak í Sandgerðishöfn fyrir hádegið í gær. Starfsmenn hafnarinnar unnu að því síðdegis að hreinsa upp olíuna. Óhappið varð þegar verið var að dæla olíu á togarann Sóleyju Sigurjóns. Megn olíulykt var á hafnarsvæðinu en menn urðu ekki varir við að fuglar fengju á sig olíu. „Nei, þetta var ekki mikið en það er alltaf leiðinlegt að sjá svona sóðaskap,“ sagði Björn Arason hafnarstjóri í gær. Olían var svokölluð flotaolía sem brotnar hægt niður í náttúrunni og lyktar illa. Starfsmenn hafn- arinnar náðu að girða mikið af olíunni í einu horni hafnarinnar. Þeir settu þar út púða og pylsur sem draga olíuna í sig. Björn segir að olían náist smám saman upp með þeim hætti. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson „Leiðinlegt að sjá svona sóðaskap“ Mengun Hreinsun Árni Sigurpálsson, starfsmaður Sandgerðishafnar, setur út hreinsipúða. Höfuðborgin | Akureyri | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs- dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmunds- dóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi- @mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Gönguleiðakort | „Hafdís Roysdóttir í Svínafelli hóf störf í þjóðgarðinum í Skafta- felli um áramótin. Hafdís sér aðallega um fræðslumál þjóðgarðsins og er núna að vinna að gerð bæklinga fyrir Ingólfshöfða og einnig erum við að vinna í gönguleiða- korti fyrir Öræfasveit,“ segir Ragnar Frank, þjóðgarðsvörður í Skaftafelli, á vefnum hornafjordur.is. „Gönguleiðakortið nær yfir Öræfasveit og austur að Jökulsárlóni og núna erum við að fá athugasemdir og upplýsingar um ör- nefni sem við munum svo bera undir land- eigendur og fá samþykki þeirra. Helga David, starfsmaður þjóðgarðsins með að- stöðu í Nýheimum, er að vinna að samskon- ar korti fyrir Lónið og Rannveig Ein- arsdóttir er langt komin með að kortleggja gönguleiðir á Mýrum. Þegar eru komin út gönguleiðakort fyrir Nes og Suðursveit og gangi allt samkvæmt áætlun verða þau kort sem eru í vinnslu tilbúin fyrir sumarið og þar með komin gönguleiðakort fyrir alla sýsluna,“ segir Ragnar Frank.    Byggt upp á Bölta | Landbúnaðarráðu- neytið hefur úthlutað styrk til uppbygg- ingar á gamla hesthúsinu í Bölta í Skafta- fellsþjóðgarði. Búið er að hreinsa hesthústóftina, hlaða veggi hennar og und- irbúa fyrir lokaáfanga verksins, segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður á Sam- félagsvef Hornafjarðar á hornafjordur.is. Byrjað verður á verkinu 25. júní í sumar. Að verkinu koma meðal annars nokkrir sjálfboðaliðar frá Englandi. Þá hefur Ari Jóhannsson, sem er sérfræðingur í hleðslu úr torfi og grjóti, verið ráðinn til verksins en hann hlóð upp veggina sem komnir eru í tóftinni.    vann keppnina með glæsi- brag og söng gamla Queenlagið „The Show Must Go On“. Sædís Sif Harðardóttir varð í öðru sæti og Katrín Huld Káradóttir í því þriðja. Söngkeppni Nem-endafélagsMenntaskólans á Egilsstöðum var haldin um liðna helgi. Sigurveig Stefánsdóttir, 16 ára stúlka frá Hofi í Fellum, Mikil stemning var á keppninni, sem verður æ umfangsmeiri og glæsi- legri með hverju árinu. Í vor keppir Sigurveig svo væntanlega í Söngkeppni framhaldsskólanna. Ljósmynd/GG Sigurvegari Sigurveig Stefánsdóttir tekur við 1. verðlaunum í söngkeppni ME. Vann keppnina með Queen Hólmfríður Bjart-marsdóttir,Sandi í Aðaldal, fylgdist með úrslitum í forkeppni Evróvisjón: Uppdiktaður næturgali áhorf hlaut á skjá og atkvæði hjá þorra landsins barna. Nýju fötin keisarans, þau mændu mállaus á og múnderingin, hún er orðin stjarna. Friðrik Steingrímsson þurfti að fá sér nýjar tennur vegna vinnuslyss og hafði læknirinn áhyggjur af andagiftinni. Friðrik orti: Ekki er nóg að brosa breitt ef berja þarf á grönnunum ef ég get svo ekki neitt ort með nýju tönnunum. Helgi Kristjánsson horfði á fréttir NFS og orti: Samfylkingarsjónvarpið segir allt á leið til fjandans. En alltaf stækkar íhaldið alltaf fær það stuðning landans. Af næturgala pebl@mbl.is TÆKIFÆRI íslenskra fyrirtækja og sveitarfélaga í alþjóðlegu samstarfi er yf- irskrift ráðstefnu sem haldin verður á Grand hóteli dagana 23. og 24. febrúar næstkomandi. Utanríkisráðuneytið og Samband ís- lenskra sveitarfélaga standa fyrir ráð- stefnunni í samstarfi við Reykjavíkurborg og Euro Info skrifstofuna. Dagskráin hefst klukkan 11.30 fyrri daginn en 8.15 síðari daginn. Fjallað verður um þau tækifæri sem fyr- irtæki og sveitarfélög hafa til þátttöku í al- þjóðlegum verkefnum. Fyrri daginn verð- ur áherslan á tækifæri sveitarfélaga en seinni daginn verður sjónum beint að sam- starfi atvinnulífs og sveitarfélaga og mögu- leikum til þátttöku í verkefnum sem styrkt eru af Þróunarsjóði EFTA. Tækifæri sveitarfélaga í alþjóðlegu samstarfi Skagafjörður | Fjallað verður um Austurdal í Skagafirði í máli og myndum og víða komið við, á sam- komu sem haldin verður í félags- heimilinu Árgarði í kvöld klukkan 20.30. Þá mun Óskar Pétursson frá Álftagerði taka lagið við undirleik Stefáns R. Gíslasonar og Sigurður Hansen í Kringlumýri flytur frum- ort ljóð. Kjartan Bollason, umhverfisfræð- ingur og verkefnastjóri við ferða- máladeild Hólaskóla, ræðir um úti- vist í Austurdal, möguleika í nútíð og framtíð. Sigurður Friðriksson frá Ferðaþjónustunni á Bakkaflöt segir frá stöðunni í flúðasiglingum og deilir framtíðarsýn. Ólafur Arnalds, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, talar sem ferðalangur í Austurdal. Ingimar Ingimarsson og Gísli Rúnar Konráðsson segja frá Austurdal í máli og myndum. Dofri Hermannsson, meistaranemi í hag- vísindum við Viðskiptaháskólann á Bifröst, flytur erindi sem hann nefn- ir: Að virkja eða ekki að virkja – þar er efinn. Loks segir fulltrúi frá Æv- intýraferðum frá uppbyggingu náms fyrir leiðsögumenn í flúðasigl- ingum í samvinnu við ferðamála- deild Hólaskóla. Austurdalur í máli og myndum ♦♦♦ Nýr vefur Bolungarvíkur | Nýr vefur Bolungarvíkurkaupstaðar var tekinn í notk- un fyrir skömmu, á fundi bæjarstjórnar, undir léninu www.bolungarvik.is. Þórður Vagnsson, markaðs- og kynning- arfulltrúi Bolungarvíkurkaupstaðar, kynnti vefinn og möguleika hans og Einar Pét- ursson bæjarstjóri opnaði hann formlega. Fram kemur í fréttatilkynningu að stefnt hefur verið að því að vefurinn yrði í senn ferskur og skemmtilegur, auk þess sem hann yrði á endanum öflugt upplýsinga- og markaðstæki bæjarfélagsins. Vefurinn mun þróast áfram á næstunni og markmiðið er að hann verði sambland af frétta-, stjórn- sýslu-, ferðaþjónustu-, mannlífs- og menn- ingarvef. Grundarfjörður | Unnið er að stofnun hlutafélags um byggingu og rekstur frysti- geymsla, svokallaðs frystihótels, í Grund- arfirði. Gengur verkefnið undir vinnuheit- inu Snæfrost. Stofnfundur félagsins var haldinn í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði síðastlið- inn laugardag og fram kemur á vef Grund- arfjarðarbæjar að framhaldsaðalfundur er fyrirhugaður eftir tvær vikur. Starfsemi frystigeymslunnar verður með þeim hætti að hún tekur við frystum afurðum til geymslu, gegn gjaldi, um lengri eða skemmri tíma, fyrir þá sem þess óska, t.d. beitu, frystum sjávarafurðum hverskonar og jafnvel frystum landbúnað- arafurðum. Ætlun undirbúningsnefndar er að geymslan rísi á nýrri landfyllingu við stóru bryggju, en væntanlegar byggingar- lóðir á því svæði verða innan skamms aug- lýstar lausar til umsóknar. Undirbúningsstjórn var skipuð á fund- inum en í henni sitja Þórður Magnússon, Kristján Guðmundsson og Gísli Ólafsson, frá Grundarfirði og Hafsteinn V. Ásgeirs- son framkvæmdastjóri Hafliða ehf. í Þor- lákshöfn. Unnið að stofnun frysti- hótels í Grundarfirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.