Morgunblaðið - 22.02.2006, Page 19

Morgunblaðið - 22.02.2006, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 19 MINNSTAÐUR LANDIÐ Borgarnes | Skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu um bygg- ingu reiðhallar í Borgarnesi. Það eru Hestamannafélagið Skuggi, Hestamannafélagið Faxi, Hrossa- ræktarsamband Vesturlands og bæjarstjórn Borgarbyggðar sem sameiginlega munu standa að upp- byggingu reiðhallarinnar á fé- lagssvæði Skugga við Vindás ofan Borgarness. Borgarbyggð mun leggja 30 milljónir til verkefnisins en sam- eiginlega munu félögin leggja til 10 milljónir með vinnu eða fjár- framlagi. Þess fjár sem upp á vantar munu aðilar sameiginlega afla til að koma húsinu í end- anlegt form. Stofnað verður hlutafélag í eigu fyrrnefndra að- ila sem eiga munu eiga hús- ið og verður sérstakur samn- ingur gerður á milli Borg- arbyggðar og hlutafélagsins um árlegt fram- lag til reksturs hússins. Áætlað er að fram- kvæmdir við bygginguna hefjist nú í vor og verði lokið eigi síðar en í árslok. Fram- kvæmdir að hefjast Kristján Gíslason er for- maður Skugga og segir hann að hugmyndina og aðdragand- ann að reiðhöll í Borgarnesi megi rekja til samþykktar á tillögu sem bor- in var fram á aðalfundi Skugga árið 2003 um að kanna möguleika á byggingu reiðhallar. Í kjölfarið var bréf sent til Borgarbyggðar sem tók vel í erindið og sama ár var skipaður vinnuhópur skipaður fulltrúum Skugga og Borg- arbyggðar um byggingu reiðhall- ar. Kristján segir að landbún- aðarráðuneytið hafi birt skýrslu um úttekt sína á þörf fyrir stuðn- ing við hestamennsku á lands- byggðinni í byrjun árs 2004. Þar kom fram að reiðhöll í Borgarfirði væri framarlega í forgangsröð en þó aðeins ef félögin sameinuðust um staðsetningu. Í kjölfarið var stjórnum Hestamannafélagsins Faxa og Hrossaræktarsambandi Vesturlands sent erindi og var samþykkt á fundum þeirra að standa að byggingu reiðhallar í Borgarnesi. ,,Nú munu aðilar samstarfsins skipa fulltrúa í stjórn hlutafélags sem byggir og á húsið. Fyrst þarf að semja um lokahönnun og þá er ekki eftir neinu að bíða að hefja jarðvegsframkvæmdir. Vona ég að það verði á allra næstu vikum,“ segir Kristján, ,,og vonir standa til að reiðhöllin verði risin í haust, fullbúin að utan en svo verði inn- anhússfrágangi hraðað eins og hægt er. Þá ætti að vera hægt að vígja hana t.d. í janúar eða febr- úar 2007, jafnvel fyrr ef vel geng- ur.“ Reiðhöllin staðsett í „gömlu kartöflugörðunum“ Að sögn Kristjáns gæti heild- arkostnaður numið á bilinu 65 til 80 milljónir kr. en fer eftir end- anlegri útfærslu hússins. 8. febr- úar sl. kom fram í fréttum að rík- isstjórnin hefur samþykkt að verja alls 270 milljónum kr. til þess að styrkja byggingu reiðhúsa um allt land. ,,Í þennan sjóð sækjum við að sjálfsögðu enda teljum við okk- ur uppfylla alla þá skilmála sem settir eru fyrir stuðningi.“ Til- lögur vinnuhóps- ins gerðu ráð fyrir 27 sinnum 60 metra höll og ganga út á að samið verði við Límtré-Vírnet um gerð og upp- setningu húss- ins. Til grund- vallar liggur verðkönnun sem hópurinn gerði hjá fyrirtækjum sem byggja og flytja inn reið- hallir. Ekki hef- ur verið gengið frá hönnun. Gólfið verður sandborið, það er sérframleitt efni sem er blanda af sandi, vikri og leir. ,,Væntanlega sér Límtré-Vírnet um framleiðslu og reisingu hússins á sökk- ul, en um þetta á þó eftir að semja. Þegar kemur að inn- réttingum og slíku taka hesta- menn við,“ segir Kristján. Reiðhöllin verður í „gömlu kart- öflugörðunum“ sem eru milli hringvallarins á félagssvæði Skugga og Hringvegar. ,,Þarna er hún í útjaðri svæðis hestamanna og er það kostur vegna annarrar notkunar,“ segir Kristján. ,,Eins er ekki um mjög marga staði aðra að ræða fyrir hús af þessari stærð því fremur þröngt er á svæðinu.“ Bylting fyrir hestamenn Fyrir á Skuggi félagsheimili sem áfram verður notað enda nýt- ist það prýðilega þegar verið er að keppa á hringvellinum, að sögn Kristjáns, sem og fyrir allt að 100 manna samkomur og fundi. ,,En reiðhöllin boðar algjöra byltingu fyrir hestamenn, bæði áhugamenn sem og atvinnumenn. Núna verður hægt að stunda hestamennskuna óháð veðri og vindum sem gerir alla þjálfun, bæði manna og hesta, mun skilvirkari. Hægt verður að halda úti reiðskóla allt árið um kring ef vill. Eins skapast mögu- leikar á því að bjóða upp á hesta- mennsku sem val t.d. í grunnskól- anum og í væntanlegum framhaldsskóla. Einnig geta t.d. frjálsíþróttamenn og knatt- spyrnumenn notað höllina til æf- inga. Svo má ekki gleyma því að hestasýningar hafa ávallt verið vinsælar og dregið að fjölda fólks. Eins má hugsa sér allskonar við- burði aðra í höllinni.“ Kristján segir aðstöðuna ennfremur breyta því að nú verða hestamenn ekki eins háðir veðri og vindi. ,,Eins hefur þetta stórbætta aðstöðu fyr- ir tamningamenn í för með sér og alger forsenda fyrir því að hægt verði bæta reiðmennsku t.d. með námskeiðum sem þá má halda allt árið. Þetta kemur til með að hafa sérstaklega góð áhrif á unglinga- starfið í félögunum.“ Kristján telur að framkvæmdin muni styrkja Borgarnes sem ferðamannabæ enn frekar. Þarna megi halda sýningar á sumrin þegar hestamenn eru ekki að nota höllina. Hann nefnir sem dæmi tívolí eða aðra afþreyingu fyrir börnin meðan foreldrarnir fara í golf handan vegarins en þar er golfvöllur Borgarness. Borgarbyggð og hestamannafélögin sameinast um byggingu reiðhallar ofan Borgarness Hægt að stunda hestamennsku óháð veðri Morgunblaðið/Guðrún Vala Samstaða Skrifað undir yfirlýsingu um byggingu reiðhallar, f.v. Gunnar Örn Guðmundsson frá Faxa, Bjarni Mar- inósson frá Hrossaræktarsambandi Vesturlands, Kristján Gíslason frá Skugga og Páll S. Brynjarsson bæjarstjóri. Á baki Kristján Gíslason, formaður Skugga, kominn á bak, hesturinn er Brjánn frá Blönduhlíð. Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur Skráning í síma 544 4500 og á www.ntv.is - NTV - Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogur GRUNNNÁM Í BÓKHALDI Helstu námsgreinar: Villt þú læra bókhald og tölvubókhald? 108 kennslustunda hagnýtt og hnitmiðað nám fyrir þá sem vilja læra bókhald frá grunni til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum. Námið hentar einnig einstaklingum með sjálfstæðan atvinnurekstur og þeim sem eru að hefja rekstur og vilja geta fært bókhaldið sjálfir. Virðisaukaskattur - reglur, skil og öll meðferð vsk. Tölvubókhald í Navision - rauhæf verkefni með fylgiskjölum Verslunarreikningur - það helsta sem notað er við skrifstofustörf Undirstaða bókhalds - mikið um verklegar æfingar Morgunnámskeið: Námið er 108 stundir og kostar 86.450.- stgr. eða með raðgreiðslum. Kennt alla virka daga kl. 8:30 til 12:30. Frá 29. mars til 5. maí. Kennt á mán.- og mið kl. 18:00 - 22:00 og á laugardögum kl. 13:00 til 17:00. Frá 6. mars til 24. apríl. Kvöldnámskeið: „Með auknum umsvifum fyrirtækis okkar fannst mér ég sitja eftir hálf bjargarlaus. Eftir námið treysti ég mér í öll störf á skrifstofunni og get tekið að mér fleiri og stærri verkefni. Nú er ekki spurning um hvort heldur hvað ég ætla að læra næst ...“ Ragnheiður Einarsdóttir - Útgerðafyrirtækinu Pétursey

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.