Morgunblaðið - 22.02.2006, Síða 21

Morgunblaðið - 22.02.2006, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 21 MENNING JOHANNES Brahms verður í forgrunni á tón- leikum þeirra Ásdísar Valdimarsdóttur víólu- leikara, Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur píanóleikara og Michaels Sterling sellóleikara, sem haldnir verða í Salnum í Kópavogi í kvöld. Á efnisskránni eru sónata í f-moll op. 120 nr. 1, sónata í Es-dúr op. 120 nr. 2 og tríó í a-moll op. 114. Leika þær Ásdís og Steinunn Birna saman í fyrri tveimur verkunum, en í hinu síðasta slæst Michael, eiginmaður Ásdísar, í hópinn. „Það má kannski segja að þessi tónlist, són- öturnar tvær og tríóið, séu í hópi þroskuðustu kammertónsmíða Brahms,“ segir Ásdís í sam- tali við Morgunblaðið, en veltir fyrir sér orðinu þroskaður í þessu samhengi. „Þetta eru meðal síðustu tónsmíða hans, og ég myndi segja að þær væru með þeim dýpstu og innilegustu. Ég hef spilað mjög mikið af allri hans kammer- tónlist; bæði kvartettana og strengjasextettana svo dæmi séu nefnd.“ Öll verkin samin fyrir klarinett Um tilurð verkanna þriggja á efnisskránni segir Ásdís að Brahms hafi að mestu verið hættur að semja þegar hann kynntist klarin- ettuleikara, Richard Mühlfeld, hvers hljóð- færaleik hann hreifst svo af að hann samdi fyr- ir hann fjögur verk; sónöturnar tvær sem leiknar verða á tónleikunum, tríó með selló og píanói sem einnig verður flutt, og klarinettu- kvintett. „Brahms var hrifinn af víólunni, gaf henni mikið að gera í allri sinni kammertónlist, sem sést til dæmis á því að í sumum kvart- ettunum hefur víólan nærri jafnstóra parta og fyrsta fiðlan. Honum þótti klarinetturöddin í sónötunum og í tríóinu einnig geta hentað fyrir víólu og gerði því slíkar útgáfur af þeim sjálf- ur,“ segir hún. „Hann var reyndar ekki hæst- ánægður með víóluútgáfurnar sínar af són- ötunum, sérstaklega ekki þegar kemur að því að færa klarinetturöddina upp eða niður um áttund. Því gera flestir víóluleikarar sína eigin útgáfu; ganga út frá víóluútgáfu Brahms sjálfs og færa ýmist upp eða niður um áttund þar sem þeim þykja eiga við. Og þar sem Brahms var ekki nógu ánægður með eigin víóluútgáfu hefði hann vonandi ekkert á móti því að maður fari upp eða niður um áttund, eftir því hvernig hentar manni,“ segir Ásdís og hlær. Hún hefur leikið þessi verk þó nokkrum sinnum áður, og segir til dæmis að sig hafi sár- langað til að læra f-moll sónötuna skömmu eftir að hún hætti á fiðlu og gerðist víólunemandi, þá 16 ára gömul. „Reyndar sagði þáverandi kenn- arinn minn, Steve King, að ég væri ekki alveg nógu þroskuð til að spila þetta verk. Þannig að ég stalst í spilatíma til Helgu Þórarins með f-moll sónötuna, sem ég hafði heyrt spila hana svo fallega, af því að mig langaði svo til að læra hana – þó að það hafi örugglega verið rétt hjá Steve að ég væri ekki nógu þroskuð til að spila hana,“ segir Ásdís hlæjandi. En ertu ekki orðin nógu þroskuð núna? „Ég ætla að vona það! Þetta eru verk sem lifa og vaxa með manni, og núna er ég búin að vera að spila þau öðru hvoru í 25 ár.“ Brahms var hins vegar hrifinn af víóluút- setningunni af klarinettutríóinu, sem leikið verður í kvöld, að sögn Ásdísar. Yfirskrift verksins er „Tríó fyrir píanó, klarinettu eða víólu og selló“, og því fylgja með í nótunum fjórir partar – píanópartur, sellópartur, klarin- ettupartur og víólupartur, þó einungis annar af hinum tveimur síðastnefndu sé að sjálfsögðu leikinn í einu. „Sónöturnar voru hins vegar ekki gefnar út í einni bók sem verandi fyrir annað hvort klarinettu og víólu,“ segir hún. Utrecht String Quartet Ásdís lauk námi frá Juilliard-tónlistarhá- skólanum í New York, en starfsvettvangur hennar hefur síðan verið í Evrópu. Hún hefur verið mjög virk í tónlistarlífinu þar, bæði sem einleikari og þátttakandi í kammermúsík, og unnið með mörgum heimsþekktum listamönn- um. Michael maður hennar gegnir stöðu 1. sellista Hollensku útvarpsfílharmóníunnar í Amsterdam. Að sögn Ásdísar er það alltaf meira stress- andi að koma fram á Íslandi en erlendis, jafnvel þó að áheyrendur séu þar miklu fleiri. „Þó þeir séu færri hér heima er þetta allt fólk sem mað- ur þekkir frá gamalli tíð. Ég veit að ég er ekki ein um þessa upplifun að fá meiri sviðsskrekk á heimavelli en þar sem enginn þekkir mann. Það er allt öðruvísi að spila fyrir fólk sem hefur fylgst með manni frá blautu barnsbeini en fyrir sal fullan af ókunnugum, og miklu innilegra einhvern veginn að spila hér. Þetta er því alls ekki bara neikvætt stress, því það gefur manni svo mikið að vita að fólki þykir vænt um mann sama hvað á gengur. Það er svo hlý tilfinning og góð,“ segir Ásdís. Það er ýmislegt á döfinni hjá Ásdísi um þess- ar mundir, bæði í tónlistarlífinu og fjölskyldu- lífinu. Hún hefur nýverið gengið til liðs við kvartett í Utrecht í Hollandi, sem ber heitið Utrecht String Quartet. Þá eru hún og maður hennar að fara að ættleiða barn frá Kína, en fyrir eiga þau fimm ára dóttur sem þau ætt- leiddu frá London, og þar fyrir utan eru þau að gera upp gamalt vöruhús í Amsterdam þar sem þau búa. „Ég lék hér áður með Chilingerian- kvartettinum, en þessi nýi er líka mjög góður. Hann ferðast minna og spilar meira á heima- slóðum,“ segir Ásdís. Og er þar af leiðandi fjöl- skylduvænni, kannski? „Nákvæmlega – það skiptir miklu máli um þessar mundir.“ Tónlist | Ásdís Valdimarsdóttir, Steinunn Birna Ragnarsdóttir og Michael Stirling með Brahms-tónleika í Salnum Að lifa og vaxa með Brahms Steinunn Birna Ragnarsdóttir og Ásdís Valdimarsdóttir á æfingu í Víðistaðakirkju. Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is Tónleikarnir hefjast í Salnum í kvöld kl. 20. ÁKVEÐIÐ hefur verið að fella niður að- gangseyri að Listasafni Íslands frá og með næsta föstudegi. Er þetta gert í sam- ráði við menntamálaráðuneytið og með stuðningi Samsonar eignarhaldsfélags, sem undirritaði þriggja ára samstarfs- samning við safnið í gær. Fulltrúar hinna þriggja aðila; Listasafns Íslands, mennta- málaráðuneytisins og Samsonar kynntu þessa tilhögun á blaðamannafundi í safn- inu í gær. Tilraunarinnar virði Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sagðist fagna sam- starfssamningnum milli Listasafnsins og Samsonar, og sagði að niðurfelling að- gangeyrisins væri spennandi til- raunaverkefni. „Mitt markmið sem menntamálaráðherra og ráðherra menn- ingar og lista er að fjölga gestum í söfnum landsins. Okkur hefur tekist gríðarlega vel til í Þjóðminjasafninu, því þó þar sé tekinn aðgangseyrir er safnið nýtt og spennandi, ýmis ný tækni í boði og fólk að sjá munina aftur eftir öll þessi ár. Það er hins vegar greinilegt að við þurfum að taka öðruvísi á málum hér, og þess vegna er þetta vel tilraunarinnar virði. Ég efast ekki um að hún á eftir að skila sér,“ sagði hún og sagðist vilja sjá fleira skólafólk, ferðamenn og fólk í sunnudagsbíltúr, á safninu. „Ég held að þetta fyrirkomulag muni nýtast alls staðar í samfélaginu, að sem flestir geti notið þeirrar listar sem hér er boðið upp á.“ Í ræðu á blaðamannafundinum sagði Þorgerður Katrín að þó þetta fyr- irkomulag yrði tekið upp í Listasafni Ís- lands, væri ekki víst að svo yrði gert í öðr- um söfnum. „Það þarf ekki að gilda það sama um til dæmis Listasafnið og Þjóð- minjasafnið. Það getur vel verið að ef við byggjum meira við Listasafnið eða eitt- hvað annað nýtt kemur hér, þá verði æskilegt að taka upp aðgangseyri á ný. Ég held að við verðum að skoða aðstæður á hverjum stað hverju sinni; markmiðið er að sem flestir njóti listanna. Það hefur að hafa styrkinn þannig, að mögulegt væri að opna safnið og hafa ókeypis í það. Það hefur tekið okkur tvö fyrirtæki að melta þetta og nú er það komið. Við erum mjög spenntir fyrir þessari tilraun og stoltir af að taka þátt í henni.“ Breið samfélagsleg skírskotun Ólafur Kvaran sagðist afar glaður yfir báðum ákvörðununum sem kynntar voru á fundinum; annars vegar að fella niður aðgangseyri og hins vegar samstarfs- samningnum við Samson yfirleitt. „Það má segja að við séum að feta norræna slóð; það er búið að gera þessa tilraun um niðurfellingu aðgangseyris á öðrum Norðurlöndum undanfarin þrjú ár. Það hefur gefist ákaflega vel,“ sagði hann og sagði það meðal annars hafa birst í því að nýir hópar hefðu sótt söfnin heim. „Þetta breikkar hina samfélagslegu skírskotun, sem er mjög spennandi fyrir okkur, og er lykilatriði í þjónustuhlutverki safnsins. Meginhugmyndin er sú að auðvelda að- gengi að safninu.“ Hann sagðist alltaf hafa átt gott sam- starf við Björgólf Guðmundsson. „Hans áhugi og velvilji gagnvart safninu er mjög mikilvægur.“ sýnt sig að við höfum ekki þurft að spá í það í Þjóðminjasafninu – aðgangseyrir þar er engin hindrun, en það kann að vera að hann sé það hér. Þess vegna þarf að skoða hvert einstakt tilfelli,“ sagði hún. En á að fara að byggja við Listasafn Ís- lands? „Það er alltaf til skoðunar – það eru metnaðarfullar hugmyndir uppi fyrir Listasafnið og ég held að það sé alveg ljóst að til lengri tíma litið þarf að gera það. En það er ekki á skammtímaáætl- uninni, eins og staðan er núna. Brýnast núna er að auka aðsóknina.“ 45 milljónir á þremur árum Björgólfur Guðmundsson fer nú fyrir þriðja samstarfssamningnum við Lista- safn Íslands, en Samson eignarhaldsfélag mun styrkja Listasafnið um 45 milljónir króna á hinu þriggja ára samnings- tímabili. „Ég er mjög ánægður með þenn- an samning,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið. „Ég hef komið nálægt samstarfssamningum við Listasafn Ís- lands í nokkur ár; fyrst í þrjú ár með Pharmaco, síðan í þrjú ár með Actavis og nú með þessum þriggja ára samningi. Frá fyrsta degi hefur Ólafur Kvaran verið að ræða við okkur um hvort ekki væri hægt Söfn | Enginn aðgangseyrir að Listasafni Íslands frá og með næsta föstudegi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Björgólfur Guðmundsson, Knútur Bruun, Ólafur Kvaran og Birgir Már Ragnarsson við undirritun samningsins í Listasafni Íslands. Nýtist alls staðar í samfélaginu Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is STÓRSVEIT Reykjavíkur heldur tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld kl. 20. Að þessu sinni stýrir Banda- ríkjamaðurinn Bob Mintzer sveitinni og kemur einnig fram sem einleikari á tenórsaxófón. Öll tónlistin sem flutt verður er eftir Mintzer; nýlegar tónsmíðar af síð- ustu geisladiskum hans. Bob Mintzer er ein skærasta stjarna stórsveitaheims- ins í dag og er koma hans hingað stærsta verkefni sem Stórsveit Reykjavíkur hefur ráðist í upp á eigin spýtur. Mintzer hefur leitt eigin Stórsveit í New York í á þriðja áratug og gefið út 12 geisladiska með henni. Hann hefur einnig verið meðlimur í hinni þekktu „fusion“ hljómsveit Yellow Jackets undanfarin 15 ár og leikið með henni um allan heim. Mintzer lék á árum áð- ur með stórsveit Buddy Rich um langt árabil, auk þess að útsetja og semja fyrir hann og ýmsa aðra, s.s. Thad Jones, Mel Lewis, Art Blakey, Jaco Pastorius, Tito Puente, Eddie Palmieri o.fl. Bob Mintzer hefur hlotið Grammy verðlaun og verið tilnefndur 14 sinnum. Útsetningar og tónsmíðar Mintzers eru leiknar af stórsveitum um allan heim og gefnar út af Kendor útgáfunni. Þess má geta að Stór- sveit Reykjavíkur hlaut íslensku tónlistarverðlaunin nú nýverið sem djassflytjandi ársins 2005. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum heim- ill meðan húsrúm leyfir. Stórsveit Reykjavíkur. Bob Mintzer með Stórsveitinni í kvöld

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.