Morgunblaðið - 22.02.2006, Side 48
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
EF TILLÖGUR um styttingu framhaldsskól-
ans ganga eftir hefur kennsla í íslensku verið
skert um rúm 30% á innan við 10 árum í íslensk-
um framhaldsskólum, að því er fram kemur í
áskorun sem samþykkt var á fjölmennu mál-
þingi Samtaka móðurmálskennara, Félags ís-
lenskra fræða og Íslenska málfræðifélagsins í
Þjóðarbókhlöðunni í gær.
Samkvæmt drögum að nýrri námsskrá verð-
ur grunnur í íslenskunámi á bóknámsbrautum
framhaldsskóla tólf einingar en er fimmtán ein-
ingar í dag. Fyrir gildistöku nýrrar námsskrár
1999 var grunnurinn hins vegar átján einingar.
Í áskoruninni, sem samþykkt var með lófataki í
lok þingsins, er skorað á ráðherra að falla frá
áformum um styttingu.
„Það er mat fundarmanna að með styttingu
framhaldsskólans muni umfang þessarar
kennslugreinar minnka og augljóst að staða ís-
lenskunnar sem grunngreinar í skólakerfinu
veikist,“ segir m.a. í áskoruninni.
Framsögumenn á málþinginu voru í meg-
inatriðum sammála um að drög að nýrri náms-
skrá framhaldsskólanna fælu í sér skerðingu á
íslenskukennslu, enda hefði einingafjöldi hing-
að til verið nátengdur tímafjölda. Samkvæmt
drögunum væri kennslu þjappað saman og
kennarar hefðu minni tíma til yfirferðar í nám-
inu. Það kæmi niður á færni nemenda, áhuga
þeirra á móðurmálinu og frekara námi í grein-
inni á háskólastigi.
Sigurður Konráðsson, prófessor við Kenn-
araháskóla Íslands, sagði í erindi sínu að móð-
urmálskennsla í íslenskum grunnskólum væri
nú þegar mun minni en í bæði Danmörku og
Svíþjóð. „Það er ekkert vit í því að skerða nám í
móðurmáli um 20% í framhaldsskóla þegar
grunnskólanemar hafa fengið of litla kennslu í
móðurmáli sínu,“ sagði Sigurður.
Málþing móðurmálskennara um áform menntamálaráðherra
Morgunblaðið/Eggert
Íslenskukennarar fjölmenntu á málþingið, sem var haldið í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðunnar í gær.
Stytting náms felur í sér skerðingu
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands,
Kofi Annan, aðalritara Sameinuðu þjóð-
anna, og Bill Clinton, fyrrverandi forseta
Bandaríkjanna, hefur verið boðið að sækja
alþjóðlega ráðstefnu karla um jafnrétt-
ismál sem fyrirhugað er að halda hér á
landi í september á hausti komanda.
Ráðstefnan er haldin í framhaldi af ann-
arri ráðstefnu karla um jafnréttismál í
Salnum í Kópavogi fyrir nokkrum mán-
uðum, en í ályktun þeirrar ráðstefnu var
skorað á karlmenn heimsins að koma til
Íslands og funda með íslenskum karl-
mönnum um jafnréttismál.
Undirbúningur ráðstefnunnar, sem
meðal annars er haldin að tilstuðlan fé-
lagsmálaráðuneytisins, er nokkuð á veg
kominn samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins. Meðal annars hefur ofangreind-
um leiðtogum verið boðið að sækja ráð-
stefnuna heim, en ekki liggur fyrir enn
hvort þeir hafa tök á að þekkjast boðið.
Clinton, Annan
og Blair boðið á
ráðstefnu hér
ÓKEYPIS aðgangur verður að Lista-
safni Íslands frá og með næsta föstu-
degi. Þetta er gert í samráði við
menntamálaráðuneytið og með stuðningi
Samsonar eign-
arhaldsfélags,
sem undirritaði
þriggja ára
samstarfssamn-
ing við safnið í
gær sem hljóð-
ar upp á 45
milljónir
króna.
Niðurfelling
aðgangseyris
hefur gefist af-
ar vel í ná-
grannalönd-
unum, að sögn Ólafs Kvaran,
forstöðumanns Listasafns Íslands. Meg-
inmarkmiðið sé að auðvelda aðgengi að
safninu.
„Ég held að þetta fyrirkomulag muni
nýtast alls staðar í samfélaginu,“ sagði
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra á blaðamannafundi
sem boðað var til um málið í gær. | 21
Ókeypis verður í
Listasafn Íslands
BÓNUS var með 8,2% lægra verð á mat-
vörukörfunni í verðkönnun sem Morgun-
blaðið gerði í gær í Bónus á Smáratorgi og
Krónunni í Jafnaseli. Nokkur verðmunur
var á sumum vörutegundum, t.d. voru
kanilsnúðarnir á 31% lægra verði í Bónus
og bæði grísakótilettur og kjúklingavængir
20% ódýrari í Bónus. Þá voru hafrakoddar
11,8% dýrari í Bónus en í Krónunni.
Athygli vekur þó að af 38 vöruliðum er
einnar krónu verðmunur í 27 tilvikum. | 22
Krónu munaði
í 27 tilvikum af 38
/ " *
1&%22(
1&'',
0. . MARKMIÐ frumvarps um breyt-
ingar á lagaákvæðum um fjármála-
eftirlit, sem Valgerður Sverrisdóttir
viðskiptaráðherra lagði fram á Al-
þingi í gær, er að styrkja enn frekar
úrræði eftirlitsins og eyða óvissu
um túlkun nokkurra ákvæða.
Í athugasemdum frumvarpsins
segir m.a. að með því sé tekinn af
allur vafi um að Fjármálaeftirlitið
geti beitt þvingunarúrræðum lag-
anna, m.a. um dagsektir gagnvart
einstaklingum eða lögaðilum. Dag-
sektirnar geta numið frá tíu þúsund
krónum til einnar milljónar króna á
dag. Í athugasemdum segir að
nauðsynlegt sé að Fjármálaeftirlitið
hafi tiltæk úrræði til að afla þeirra
upplýsinga sem lagt er á eigendur
eignarhluta að veita lögum sam-
kvæmt.
Úrræði Fjármálaeftirlits styrkt
HREINN Loftsson, stjórnarfor-
maður Baugs, sagði þegar hann
bar vitni fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær í aðalmeðferð
Baugsmálsins að hann gæti ekki
tekið til þess afstöðu hvort skuld
stjórnenda Baugs við fyrirtækið á
árinu 2002 hefði verið viðskipta-
skuld eða lán. Í gær var fram
haldið aðalmeðferð í málinu, sem
hófst á mánudag.
Verjendur ákærðu spurðu
Hrein hvort Baugur hefði lánað
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Krist-
ínu Jóhannesdóttur, eða fyrir-
tækjum þeirra, Fjárfari og Gaumi,
fé, eða hvort hann liti svo á að um
hefði verið að ræða neikvæða
stöðu á viðskiptareikningi þeirra
hjá Baugi.
Hreinn sagðist ekki geta tekið
afstöðu til þeirrar spurningar, en í
kjölfar fundar síns með Davíð
Oddssyni, þáverandi forsætisráð-
herra, 26. janúar 2002 í London,
hefði hann viljað að þessi skuld
yrði greidd upp.
Í kjölfar fundar Hreins og Dav-
íðs bað hann endurskoðunarfyrir-
tækið KPMG að gera útttekt á
rekstri Baugs til þess að tryggja
að þar væri ekkert sem gæti orkað
tvímælis, kæmi til þess að lögregla
gerði húsleit í fyrirtækinu.
Taldi Jón Ásgeir vera búinn
að gera upp skuldina
Hreinn bar fyrir héraðsdómi í
gær að Stefán Hilmarsson endur-
skoðandi frá KPMG hefði bent á
atriði sem betur mættu fara, bréf-
lega og á stjórnarfundi 14. febrúar
2002. Við lok ársuppgjörs þann 28.
febrúar hefði Hreinn talið að Jón
Ásgeir hefði verið búinn að gera
upp skuld sína við fyrirtækið, en
síðar hefði komið í ljós að svo var
ekki. Hreinn sagði að á stjórnar-
fundi þann 23. maí 2002 hefði Jón
Ásgeir sagt stjórninni að Gaumur
væri ekki í neinni skuld við Baug.
Um var að ræða hálfan milljarð
króna, að sögn Stefáns Hilmars-
sonar, en það kom fram við
skýrslutöku af honum við aðal-
meðferðina á mánudag.
Jóhanna Waagfjörð, fyrrver-
andi fjármálastjóri Baugs, bar
einnig vitni fyrir héraðsdómi í
gær. Hún var m.a. spurð um það
hver hefði gefið fyrirmæli um
hvernig ætti að flokka viðskipta-
kröfur Baugs á Jón Ásgeir, Krist-
ínu, Gaum og Fjárfar. Hún sagði
það misjafnt, það hefði verið ýmist
forstjórinn – Jón Ásgeir, aðstoð-
arforstjórinn – Tryggvi Jónsson,
eða framkvæmdastjórar fyrirtæk-
isins.
Hún sagðist hafa gert athuga-
semdir við stöðuna á viðskipta-
reikningum Jóns Ásgeirs, Krist-
ínar, Fjárfars og Gaums og óskað
eftir því að þeir yrðu greiddir upp.
Í framhaldinu hefði verið unnið í
því að lækka skuldirnar. Þetta
hefði hún gert til þess að tryggja
nægilegt fé til reksturs Baugs á
þessum tíma.
Engin afstaða til við-
skiptaskuldar eða láns
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
„Ég vissi …“ | 10
Stjórnarformaður Baugs í vitnaleiðslu fyrir héraðsdómi
HORFUR eru á að það tak-
mark náist hinn 1. sept-
ember n.k. að lyfjaverð í
heildsölu á Íslandi verði
jafnt meðalheildsöluverði í
Noregi, Danmörku og Sví-
þjóð og í
árslok 2006
verði smá-
söluverð
lyfja hér
áþekkt því
sem gerist
á Evrópska
efnahags-
svæðinu,
einkum í
Danmörku og Finnlandi.
Þetta kemur fram í
skriflegu svari Jóns Krist-
jánssonar á Alþingi. Þar
kemur þó fram að sú verð-
lækkun sem orðið hafi á
undanförnum misserum
hafi ekki skilað sér í sama
mæli til neytenda og til
ríkisins, m.a. vegna þess
að lyfsalar hafa brugðist
við verðlækkunum með
því að draga úr afslætti
sem þeir gáfu sjúklingum
áður. Þá hafi sést vísbend-
ingar um að dregið hafi
verulega úr samkeppni
milli apóteka eftir því sem
eignarhald þeirra hefur
færst á færri hendur.
Ásta Möller, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, lagði
fyrirspurnina fyrir ráð-
herra.
Útlit fyrir
að markmið
um lyfja-
verð náist
Jón Kristjánsson
BILUN í háspennustreng frá aðveitustöð
við Elliðaár laust fyrir miðnætti í gær-
kvöldi olli því að aðveitustöð við Álfhóls-
veg (A6) datt út að hluta. Við það varð
Kópavogur rafmagnslaus að stærstum
hluta í 24 mínútur.
Gert verður við strenginn í dag.
Rafmagnslaust
í Kópavogi