Morgunblaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 55. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Stórkostlegur
leikur í Capote
Viðtal við afbragðsleikarann Philip
Seymour Hoffmann Menning
Lesbók, Börn og Íþróttir
Lesbók | Rem Koolhaas í Reykjavík Zadie Smith og fegurðin
Gaman með hvössum broddi Börn | Notaður pappír Þrautir
Íþróttir | Bjarni Þór með Everton? Bikarúrslitin í handboltanum
VINNUMÁLASTOFNUN hefur á
síðustu fimm mánuðum hafnað um
350 umsóknum um atvinnuleyfi. Nær
allar umsóknir eru frá fólki frá lönd-
um utan Evrópska efnahagssvæðis-
ins. Vinnumálastofnun lætur umsókn-
ir frá ríkisborgurum á EES njóta
forgangs og hafnar nær öllum um-
sóknum frá fólki sem býr utan þess.
Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir,
lögfræðingur í félagsmálaráðu-
neytinu, sagði að EES-samningurinn
fæli í sér frjálst flæði vinnuafls milli
landa. Í samningi um stækkun Evr-
ópusambandsins, sem gerður var
þegar ný ríki í A-Evrópu gengu í sam-
bandið, væri kveðið sérstaklega á um
forgang þessara ríkja að evrópskum
vinnumarkaði.
Stækkun ESB tók gildi 2004 en í
haust ákváðu dómsmálaráðherra og
félagsmálaráðherra að herða á for-
gangsreglunni og nú er umsóknum
einstaklinga sem koma frá ríkjum ut-
an EES nær öllum hafnað. Hanna
Sigríður sagði að ákvörðun um þessar
hertu reglur væri tekin í ljósi reynsl-
unnar og einnig þess að nú væri stutt í
að taka þyrfti ákvörðun um hvort
framlengja ætti fyrirvara sem settur
var um atvinnuréttindi ríkisborgara
frá nýju ríkjunum í ESB. Í dag hafa
borgarar frá nýju ríkjunum ekki ná-
kvæmlega sömu réttindi og aðrir íbú-
ar ESB.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu-
málastofnunar, sagði að 70 milljónir
manna væru án vinnu á Evrópska
efnahagssvæðinu. Íslensk fyrirtæki
ættu því að eiga auðvelt með að fá
starfsfólk af þessu svæði.
Ríkisborgarar utan EES eiga orðið mjög erfitt með að fá atvinnuleyfi á Íslandi
Um 350 umsóknum verið
hafnað á skömmum tíma
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
Ríkisborgarar | 10
París. AFP. | Frakkar bjuggu sig undir
hið versta í gær en þá var staðfest, að
komin er upp fuglaflensa á stóru kalk-
únabúi í Austur-Frakklandi. Það
verður þó ekki ljóst fyrr en í dag
hvort um er að ræða það afbrigðið,
sem er hættulegt mönnum.
Dominique Bussereau, landbúnað-
arráðherra Frakklands, sagði, að
fuglaflensuveiran, H5, hefði fundist á
búi með 12.000 kalkúnum og væri nú
verið að kanna hvort um væri að ræða
afbrigðið H5N1. Sagði Bussereau það
áhyggjuefni, að býlið væri innan ör-
yggissvæðis, sem sett hefði verið upp
eftir að fyrsta villta og sýkta öndin
fannst fyrir 12 dögum.
Reynist hættulega afbrigðið vera á
ferðinni mun það hafa miklar afleið-
ingar fyrir þær varúðar- og varnar-
ráðstafanir, sem þegar hafa verið
ákveðnar í Frakklandi og öðrum Evr-
ópusambandsríkjum, og ekki síst
vegna þess, að kalkúnarnir eru alltaf
hafðir inni. Láta menn sér helst detta
í hug, að drit úr villtum fugli hafi með
einhverjum hætti komist inn í húsin.
Óttast hrun
í sölu fuglakjöts
Önnur alvarleg afleiðing H5N1-
smits er, að sala á fuglakjöti hrynji en
hún hefur nú þegar minnkað um 30%.
Alifuglaræktin í Frakklandi veltir ár-
lega 475 milljörðum íslenskra króna
og við hana starfa 65.000 manns. Er
alifuglarækt einn helsti atvinnuveg-
urinn í sumum héruðum.
Í þessum mánuði hefur fugla-
flensuveiran fundist í 13 nýjum lönd-
um og búast sérfræðingar Sameinuðu
þjóðanna við því, að hún eigi eftir að
finnast miklu víðar.
Fuglaflensa greind á
frönsku alifuglabúi
AP
Franskir dýralæknar kryfja svan, sem fannst dauður í N-Frakklandi. Nú er
óttast, að það komi ekki í veg fyrir fuglaflensusmit að hafa alifugla í húsi.
Skýrist í dag hvort
um er að ræða
hættulega afbrigðið
London. AP. | Breskir lögreglumenn,
sem vinna að rannsókn mesta pen-
ingaráns í Bretlandi, fundu í gær
hluta ránsfengsins í hvítum sendi-
bíl. Hafði hann verið skilinn eftir
við hótel ekki fjarri ránsstaðnum.
Lögreglan sagði aðeins, að um
„verulegt fé“ hefði verið að ræða en
talið er, að ræningjarnir hafi náð
allt að því 50 millj. punda, 5,8 millj-
örðum ísl. kr., í einni öryggis-
miðstöð Securitas í bænum Ton-
bridge í Kent á miðvikudag.
Nú eru í haldi lögreglunnar þrjár
manneskjur, karl og kona, sem
voru handtekin í fyrradag, og kona,
sem var handtekin í gær. Var það
gert er hún reyndi að leggja fé inn
á bankareikning en það var með
einhverjum hætti merkt Tonbridge.
Þegar ræningjarnir, sem voru
dulbúnir sem lögreglumenn, létu til
skarar skríða á miðvikudag,
neyddu þeir framkvæmdastjóra ör-
yggisþjónustunnar til að aðstoða
sig og hótuðu ella að vinna konu
hans og syni mein. Á sama tíma
fóru tveir menn úr hópnum inn á
heimili fjölskyldunnar og höfðu
mæðginin í gíslingu um stund.
Teikning af einum ræningjanna, í
lögreglubúningi og án.
Hafa fundið „verulegt fé“
Riyadh. AFP. | Stjórn-
völd í Sádi-Arabíu
sögðu í gær, að hrundið
hefði verið árás á
stærstu olíuhreinsunar-
stöð í landinu. Hafði
fréttin þau áhrif, að
olíuverð hækkaði all-
mikið.
Haft er eftir heimild-
um, að tveir öryggis-
verðir og að minnsta
kosti tveir árásarmenn
hafi fallið en þeir reyndu að aka
tveimur bílum hlöðnum sprengiefni
að Abqaiq-olíuhreinsunarstöðinni.
Eru liðsmenn al-Qaeda grunaðir um
tilræðið og er þetta þá í fyrsta sinn,
sem þeir leggja til atlögu við olíu-
hreinsunarstöð í Sádi-Arabíu síðan
þeir fóru að láta þar að sér kveða.
Hefði árásin tekist, hefði hún getað
helmingað útflutning Sádi-Arabíu
upp undir eitt ár og þá með miklum
afleiðingum fyrir olíuverðið. Hún
tókst ekki en samt sem áður hækkaði
verðið um 2,37 dollara og fór í 62,91
dollara fatið.
Al-Qaeda eða önnur samtök hafa
ekki lýst árásinni á hendur sér en
Ayman al-Zawahiri, næstráðandi í al-
Qaeda, hvatti liðsmenn samtakanna í
haust til að ráðast á olíumannvirki.
Hrundu árás
á olíustöð
AP
Lögreglubílar við hlið olíuhreinsunarstöðvarinnar.
HALLDÓR Ásgrímsson forsætis-
ráðherra telur lækkun gengis ís-
lensku krónunnar vera varanlega og
kveðst vita að í framtíðinni muni
krónan lækka meira, þótt það muni
ekki gerast í stökkum. Þetta sagði
hann í samtali við Morgunblaðið í
gær í Lundúnum.
Í gær svaraði Halldór spurningum
blaðsins Financial Times um íslensk
efnahagsmál. Þar sagðist hann telja
að krónan hefði verið óþarflega
sterk. „Núna þegar þetta hefur gerst
[veiking krónunnar] fer ákveðin
spenna, þannig að ég sagði honum
[fréttastjóra FT] að þetta hefði verið
eitthvað sem við hefðum átt von á og
því fyrr sem það gerðist því betra.
Nú mun markaðurinn ná jafnvægi,“
sagði Halldór við Morgunblaðið. | 14
Varanleg
gengislækk-
un krónu
Halldór Ásgrímsson
MIKILL þrýstingur er á Vinnumálastofnun að samþykkja atvinnuleyfi frá
ættingjum fólks sem starfar hér á landi og býr utan EES. Vinnumála-
stofnun samþykkir umsóknir frá mökum, foreldrum og börnum, en um-
sóknum frá systkinum eða fjarskyldari ættingjum er hafnað. Kærum frá
fólki sem fengið hefur neitun frá Vinnumálastofnun hefur fjölgað gífur-
lega að undanförnu. Á síðustu fimm mánuðum hafa ráðuneytinu hins vegar
borist 55 kærur. Allt eru þetta kærur vegna fólks sem býr utan EES.
Kærum fjölgar mikið