Morgunblaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 49
KIRKJUSTARF
prestar Fríkirkjunnar hafa leitt
helgihaldið og hljómsveit kirkj-
unnar séð og hressilega tónlist. Að
lokinni messu verður kaffi og spjall
í safnaðarheimilinu.
Aðalfundur safnaðar
fríkirkjunnar Kefas
AÐALFUNDUR safnaðar fríkirkj-
unnar Kefas verður haldinn þriðju-
daginn 28. febrúar kl. 20: Eins og
venjulega er þetta mjög áríðandi
fundur og mikilvægt að safn-
aðarmeðlimir mæti.
Stjórnin.
Djassmessa í
Óháða söfnuðinum
Á SUNNUDAGINN 26. febrúar kl.
14 verður djassmessa í Óháða söfn-
uðinum. Sigurður Flosason saxó-
fónleikari og Gunnar Gunnarsson
hljómborðsleikari sjá um tónlist-
arflutninginn að þessu sinni.
Barnastarf er á sama tíma og
jazzmessan er. Maul er síðan eftir
messuna, þar sem menn geta sezt
niður og malað saman. Allir vel-
komnir.
Ensk messa
í Hallgrímskirkju
Á SUNNUDAG, 26. febrúar nk., kl.
14 verður haldin ensk messa í Hall-
grímskirkju. Prestur verður sr. Ása
Björk Ólafsdóttir. Organisti verður
Douglas A. Brotchie. Guðrún Finn-
bjarnardóttir mun leiða almennan
safnaðarsöng. Fimmta árið í röð er
boðið upp á enska messu í Hall-
grímskirkju síðasta sunnudag
hvers mánaðar. Messukaffi.
Service in English
SERVICE in English at the Church
of Hallgrímur (Hallgrímskirkja)
26h of February, at 2 pm. Holy
Communion. The Sunday next be-
fore Lent. Celebrant and Preacher:
The Revd Ása Björk Ólafsdóttir.
Organist: Douglas A. Brotchie.
Leading singer: Guðrún Finnbjarn-
ardóttir. Refreshments after the
Service.
Helgihald
í Kolaportinu
HELGIHALD verður í Kolaportinu
26. febrúar kl. 14 í „KaffiPort“. Frá
kl. 13.30 syngur og spilar Þorvald-
ur Halldórsson ýmis þekkt lög bæði
eigin og annarra. Hann annast
einnig tónlistina í helgihaldinu. Sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson prédikar
og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leið-
ir samveruna. Að venju er boðið
upp á að koma með fyrirbænaefni
og mun Ragnheiður Sverrisdóttir
djákni biðja með og fyrir fólki.
Í gegnum tíðina hefur skapast
andrúmsloft tilbeiðslu í þessu helgi-
haldi. Þó margt sé um að vera í
Kolaportinu eru ávallt margir þátt-
takendur sem gjarnan fá sér kaffi-
sopa, syngja, biðja og hlusta.
Að sjálfsögðu eru allir velkomn-
ir.
Afmælishátíð
KSS og KSF
Í TILEFNI þess að nú í ár fagna
tvær grasrótarhreyfingar innan
Þjóðkirkjunnar, KSS (Kristileg
skólasamtök), 60 ára afmæli og
KSF (Kristilegt stúdentafélag), 70
ára afmæli, hefur verið ákveðið að
halda veglegan afmælisfund laug-
ardagskvöldið 25. febrúar. Fund-
urinn fer fram á hefðbundnum
fundartíma félaganna kl. 20.30 á
Holtavegi 28. Fundurinn, sem verð-
ur fjölsóttur, mun verða með hátíð-
legu sniði og skarta mörgum af
söngperlum félaganna. Jafnframt
Alþjóðlegur bænadag-
ur kvenna 2006
ALÞJÓÐLEGUR bænadagur
kvenna hefur verið árviss við-
burður innan kristinna safnaða á
Íslandi í á fimmta áratug. Hann er
jafnan haldinn fyrsta föstudag í
mars, eins og í 180 löndum öðrum
víðsvegar í heiminum. Tilgangur
bænadagsins er að koma saman til
að biðja fyrir konum í mismunandi
löndum og fræðast um aðstæður
þeirra, svo bænin sé byggð á þekk-
ingu.
Að þessu sinni kemur efni Al-
þjóðlegs bænadags kvenna frá Suð-
ur-Afríku. Yfirskriftin er: „Tákn
tímanna“. Eins og við gerum á
hverju ári munum við einnig nú
tendra lampa okkar til að fræðast,
að þessu sinni um sögu S-Afríku,
menningu, trúarlegar hefðir, fé-
lagsleg og stjórnarfarsleg vanda-
mál og leggja fram land og þjóð í
bæn.
Um allt Ísland munu konur og
karlar koma saman til að biðja fyrir
mikilvægum málefnum S-Afríku
hinn 3. mars 2006. Í Reykjavík
verður bænadagurinn haldinn há-
tíðlegur með samkomu í Kristni-
boðssalnum, Háleitisbraut 58–60,
Reykjavík og eru það systur okkar í
Kristniboðsfélagi kvenna sem eru
gestgjafar að þessu sinni. Í Lands-
nefnd Alþjóðlegs bænadags kvenna
á Íslandi eru fulltrúar 11 kristi-
legra félaga og kirkjudeilda: Að-
ventista, Fríkirkjunnar í Reykjavík,
Fríkirkjunnar Vegarins, Hjálpræð-
ishersins, Hvítasunnukirkjunnar,
Íslensku Kristskirkjunnar, Kaþ-
ólsku kirkjunnar, KFUM/K,
Kristniboðsfélags kvenna, Óháða
safnaðarins og Þjóðkirkjunnar.
Bænadagssamkoman hefst kl. 20 og
verður dagskrá fjölbreytt að vanda.
Væntum við þátttöku fólks frá Afr-
íku sérstaklega og eru bæði karlar
og konur velkomin.
Dagskrá kvöldsins, kynning á
landi og barnaefni hefur verið sett
inn á www.kirkjan.is/annall/
baenadagur.
Fyrir hönd Landsnefndarinnar,
Bára Friðriksdóttir.
Prófastur Borgfirðinga
vísiterar Akranes
PRÓFASTUR Borgfirðinga, sr.
Þorbjörn Hlynur Árnason, vísiterar
Akranessöfnuð á morgun, sunnu-
dag. Hann prédikar í guðsþjón-
ustum á Dvalarheimilinu Höfða kl.
12.45 og í Akraneskirkju kl. 14.
Kirkjukór Akraness syngur. Org-
anisti er Friðrik Vignir Stefánsson.
Kirkjukaffi verður í safnaðarheim-
ilinu Vinaminni eftir guðsþjónustu.
Síðan mun prófastur funda með
sóknarpresti og sóknarnefnd Akra-
neskirkju. Akurnesingar eru hvatt-
ir til þess að fjölmenna í áðurnefnd-
ar guðsþjónustur.
Sóknarprestur.
Æðruleysismessa í Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði
ÆÐRULEYSISMESSA verður í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði annað
kvöld, sunnudagkvöldið 26. febr-
úar, kl. 20. Að venju er það hljóm-
sveit Fríkirkjunnar, Fríkirkjuband-
ið, sem leiðir létta og fallega tónlist.
Þá verða sporin 12 lesin og hug-
leidd og fluttur verður vitnisburður
út frá sporunum 12.
Æðruleysismessur hafa nú verið
haldnar mánaðarlega í eitt og hálft
ár í Fríkirkjunni í Hafnarfirði og
hafa jafnan verið vel sóttar. Það er
hópur áhugafólks um æðruleys-
ismessur sem stendur á bak við
þetta helgihald og er hér því alfarið
um grasrótarstarf að ræða en
verður fundurinn í fullum takti við
KSS/KSF-fundi dagsins í dag.
Þannig er það ósk afmælisnefnd-
arinnar að kynslóðirnar geti mæst
og átt góða og uppbyggilega stund
saman.
Meðal dagskráratriða má nefna:
Upphafsorð frá Sverri Axelssyni,
einum stofnanda KSS, hugleiðingu
frá sr. Írisi Kristjánsdóttur, for-
manni Kristilegu skólahreyfing-
arinnar, þrautakeppni milli kyn-
slóðanna, þar sem fjögur lið keppa,
eitt skipað KSS/KSF-ingum dags-
ins í dag, annað með fulltrúum 30–
45 ára, hið þriðja 45–60 ára og loks
lið skipað fulltrúum 60 ára og eldri.
Einnig verður boðið uppá ljós-
myndasýningu með myndum úr
starfi félaganna gegnum árin, en
auk þess munu gamlar skólamóts-
dagskrár liggja frammi ásamt
gömlum félagsblöðum. Eftir fund-
inn verður boðið upp á léttar veit-
ingar ásamt því að hægt verður að
kaupa miða í afmælishappdrætti fé-
laganna. Gamlir og nýir fé-
lagsmenn hjartanlega velkomnir
Afmælisnefndin.
Fyrirlestur um helgi-
myndlist í Landakoti
AUÐUR Ólafsdóttir, listfræðingur
og dósent við Háskóla Íslands, flyt-
ur erindi í safnaðarheimili kaþ-
ólskra á Hávallagötu 16 mánudag-
inn 27. febrúar kl. 20:
María mey og ímynd hennar í
myndlist – Hin mörgu andlit Maríu:
móðir, mey, himnadrottning.
Þökkum Auði kærlega fyrir fús-
leika sinn að gefa vinnu sína til að
fræða okkur. Annar fyrirlestra
hennar mun augljóslega vekja
sömu athygli og fyrra erindið þar
sem hún notar ríkulegt myndefni til
að gefa okkur innsýn í sögu og þró-
un helgimyndlistarinnar.
Skátamessa
í Grafarvogskirkju
NÆSTKOMANDI sunnudag 26.
mars kl. 14 verður hin árlega skáta-
guðsþjónusta í Grafarvogskirkju.
Skátafélagið Hamar annast guðs-
þjónustuna. Hugvekju flytur Guð-
mundur Pálsson skátaforingi.
Skátakórinn syngur undir stjórn
Sigurðar Viktors Úlfarssonar. Org-
anisti: Hörður Bragason. Séra Vig-
fús Þór Árnason þjónar fyrir altari.
Í messunni verða ylfingar og skátar
vígðir inn í skátahreyfinguna. Allir
velkomnir.
Grafarvogskirkja.
Eldri borgarar
í Grafarvogskirkju
ÞRIÐJUDAGINN 28. febrúar kl. 12
munu eldri borgarar hittast eins og
venjulega, en að þessu sinni munu
þeir snæða saltkjöt og baunir í til-
efni dagsins sem er sprengidagur.
Árni Björnsson þjóðháttafræðingur
mun koma í heimsókn og fræða
okkur um dagana sem í hönd fara á
föstunni. Að venju verður handa-
vinnan á sínum stað einnig verður
spilað og spjallað. Allir velkomnir.
Grafarvogskirkja.
Húsdýragarður
og prestsvígsla
ÞAÐ verður stór dagur hjá Laug-
arnessöfnuði sunnudaginn 26. febr-
úar. Í tilefni Vetrarhátíðar mun
sunnudagskólinn verða haldinn í
Húsdýragarðinum um leið og al-
menn messa fer fram í kirkjunni.
Kl. 13.30 munu unglingarnir í Adr-
enalíni gegn rasisma taka þátt í
dagskrá á heimsdegi barna sem
fram fer í Laugalækjarskóla í til-
efni Vetrarhátíðar. Stjórn sunnu-
dagaskólans er einkum á höndum
Hildar Eirar Bolladóttur, sem og
umsjón Adrenalínstarfsins, en kl.
16 þennan sama dag mun hún
ganga upp að altari Dómkirkjunnar
í Reykjavík og taka prestsvígslu. Er
söfnuðurinn hvattur til að fjöl-
menna líka við vígslu síns nýja
prests.
Samkynhneigðir og
kirkjan – hver er
ágreiningurinn?
Á FRÆÐSLUMORGNI í Hallgríms-
kirkju á morgun, sunnudag, kl. 10,
mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir
flytja erindi sem hún nefnir: Sam-
kynhneigðir og kirkjan. Hver er
ágreiningurinn? Í erindi sínu mun
sr. Irma Sjöfn kappkosta að gera
hlutlæga grein fyrir ólíkum sjón-
armiðum hvað varðar aðkomu
kirkjunnar við stofnun sambúðar
samkynhneigðra. Ekki er um um-
ræðufund að ræða heldur er hann
hugsaður sem upplýsing um ólík
viðhorf í viðkvæmu og mikilsverðu
máli til að auðvelda fólki að taka af-
stöðu með upplýstum hætti. Kl. 11
hefst síðan messa þar sem séra
Halldór Reynisson verkefnisstjóri á
biskupsstofu mun prédika og þjóna
fyrir altari ásamt séra Sigurði Páls-
syni. Í messunni syngur Ester Jök-
ulsdóttir messósópran aríur úr
H-moll messu Bachs. Organisti er
Hörður Áskelsson. Barnastarf hefst
á sama tíma í umsjá Magneu Sverr-
isdóttur djákna. Kl. 17 hefjast síðan
tónleikarnir Trompeteria.
„Kamilla og þjófurinn“
í Breiðholtskirkju
Á MORGUN, sunnudaginn 26. febr-
úar, verður fjölskylduguðsþjónusta
í Breiðholtskirkju kl. 11. Að þessu
sinni fáum við Stoppleikhópinn í
heimsókn og mun hann flytja leik-
ritið „Kamilla og þjófurinn“ eftir
Kari Vinje. Kamilla er átta stúlka
sem býr í litlu rauðu húsi sem heitir
Sólarstofa. Besti vinur Kamillu er
Sebastían en hann er innbrots-
þjófur en ákveður einn dag að
hætta að stela með hjálp Kamillu.
Leikritið veitir börnum nýja sýn á
gildi þess að fylgja Jesú og feta
hinn góða veg í lífinu. Þessi boð-
skapur á erindi við hverja fjöl-
skyldu og með sýningu verksins í
fjölskylduguðsþjónustu gefst for-
eldrum gott tækifæri til þess að
koma með börnum sínum til kirkju
og eiga þar skemmtilega og upp-
byggilega stund. Allir eru velkomn-
ir í barnastarf Breiðholtskirkju alla
sunnudaga kl. 11.
Trúarlíf íslenskra land-
nema í Vesturheimi
SR. BRAGI Friðriksson ræðir um
trúarlíf Vestur-Íslendinga á sam-
veru eldri borgara í Neskirkju,
miðvikudaginn 1. mars kl. 15. Bragi
þjónaði mörgum íslenskum söfn-
uðum í Manitoba í Kanada. Eftir að
hann lauk störfum sem prestur í
Garðabæ og prófastur Kjalnesinga
skrifaði hann meistararitgerð um
þetta áhugaverða efni. Allir vel-
komnir.
Hjóna- og
sambúðarmessur
FJÖLSKYLDAN er mikilvægasta
stofnun samfélagsins sem byggist á
sambúð eða hjónabandi foreldr-
anna. Mikilvægustu undirstöðurnar
eru ástin, trúfestin og virðingin.
Allar þessar þrjár stoðir þarf að
rækta. Það er því mikilvægt að
kirkjan komi með tilboð um þjón-
ustu sem hjálpar hjóna- og sambúð-
arfólki að rækta þessar stoðir. Á
þessari vorönn stendur til að halda
kvöldmessur í Bessastaða- og
Garðakirkju sem kallast „hjóna- og
sambúðarmessur“, en þetta er sam-
starfsverkefni beggja sókna. Þar
verður kastljósinu beint að hjóna-
bandinu eða sambúðinni með
fræðslu, gleði, tónlist og bæn.
Margir snjallir fyrirlesarar miðla
fróðleik og gott tónlistarfólk mun
leiða lofgjörðina. Sunnudags-
kvöldið 26. febrúar kl. 20 verður
fyrsta messan í Garðakirkju. Prest-
arnir Jóna Hrönn Bolladóttir og
Friðrik J. Hjartar leiða stundina en
hjónin sr. Vigfús Bjarni Albertsson
og Valdís Ösp Ívarsdóttir fjöl-
skylduráðgjafi fjalla um mikilvægi
samtalsins. Ómar Guðjónsson gít-
arleikari og Anna Sigríður Helga-
dóttir söngkona stýra tónlistinni.
Það eru allir velkomnir, aldur og
kynhneigð er ekki fyrirstaða. Sjá
nánar á www.gardasokn.is.
Tómasarmessa
í Breiðholtskirkju
ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar
Tómasarmessur efnir til fimmtu
messunnar á þessum vetri í Breið-
holtskirkju í Mjódd sunnudags-
kvöldið 26. febrúar, kl. 20. Tóm-
asarmessan hefur unnið sér fastan
sess í kirkjulífi borgarinnar, en slík
messa hefur verið haldin í Breið-
holtskirkju í Mjódd síðasta sunnu-
dag í mánuði, frá hausti til vors, síð-
ustu átta árin. Framkvæmdaaðilar
að þessu messuhaldi eru Breið-
holtskirkja, Kristilega skóla-
hreyfingin, Félag guðfræðinema og
hópur presta og djákna. Tóm-
asarmessan einkennist af fjöl-
breytilegum söng og tónlist, mikil
áhersla er lögð á fyrirbænaþjón-
ustu og sömuleiðis á virka þátttöku
leikmanna. Stór hópur fólks tekur
jafnan þátt í undirbúningi og fram-
kvæmd Tómasarmessunnar, bæði
leikmenn, djáknar og prestar.
Hljómsveit afburða
tónlistarnemenda
leikur við messu
í Langholtskirkju
25 ungmenni frá Tónlistarskól-
anum í Bærum í Suður-Noregi eru
á ferð hér á landi og leika m.a. við
messu í Langholtskirkju sunnudag-
inn 26. mars kl. 11. Hér er á ferð
hópur afburðanemenda, og eru
þessi ungmenni þegar orðin virk í
tónlistarlífi í Suður-Noregi. Barna-
starfið byrjar í kirkjunni eins og
gjarnan og fær yngsta kynslóðin
einnig að hlýða á þetta unga lista-
fólk.
Guðsþjónusta
í Fríkirkjunni
í Reykjavík
GUÐSÞJÓNUSTA kl. 14. Börn
verða borin til skírnar í stundinni.
Þrjár ungar stúlkur, sem unnu
hverfakeppni Samfés, þær Þórdís
Björk Þorfinnsdóttir, Sara Margrét
Ragnarsdóttir og Ágústa Ebba
Hjartardóttir, munu flytja okkur
frumsamið efni; þær syngja ásamt
því að spila á fiðlu og píanó. Tón-
listin verður, sem löngum fyrr, í
höndum Önnu Sigríðar og Carls
Möller. Hjörtur Magni Jóhannsson
leiðir stundina.
Gleym mér ei
EINELTI er staðreynd í okkar sam-
félagi og það er mikilvægt að vinna
gegn því, vegna þess að ofbeldi
brýtur niður sjálfsmynd fólks. Á
vegum Garðasóknar er sjálfshjálp-
arhópur ungs fólks á aldrinum 14–
20 ára sem hefur það að markmiði
að vinna gegn einelti og rjúfa fé-
lagslega einangrun unglinga.
Það eru samverur alla föstudaga
í Vídalínskirkju í Garðabænum kl.
16. Umsjón með starfinu hefur sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir. Hægt er að
leita upplýsinga á netfangið: jona-
hronn@gardasokn.is
Halldór Ásgrímsson
les úr Passíusálmunum
í Grafarvogskirkju
HALLDÓR Ásgrímsson, forsætis-
ráðherra mun lesa fyrsta Pass-
íusálminn á helgistund í Graf-
arvogskirkju 1. mars nk., á
öskudag, kl. 18:00. En þá hefst röð
helgistunda sem verða alla virka
daga föstunnar í fimmtán mínútur í
senn, frá kl. 18:00-18:15. Ráðherrar
og alþingismenn lesa úr Passíu-
sálmunum.
Þessar stundir eru samtals 31. Sú
síðasta verður miðvikudaginn 12.
apríl nk. Þá mun Geir H. Haarde,
utanríkisráðherra, lesa síðasta
sálminn.
Fríkirkjan Kefas.