Morgunblaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Þorlákshöfn | Bæjarstjórn og for-
svarsmenn Kaupáss boðuðu til
borgarafundar um málefni smá-
söluverslunar í Þorlákshöfn fyrr í
vikunni. Mjög mikill áhugi var á
fundarefninu enda hafði heyrst að
til stæði að loka Krónuversluninni
á staðnum og opna þess í stað
Kjarvalsverslun.
Í framsögu Ólafs Áka Ragn-
arssonar bæjarstjóra kom fram að
fyrir tveim árum þegar Krónu-
verslun var opnuð hefði það að
hluta verið að áeggjan bæjaryf-
irvalda og væri þeim því málið
skylt og það væri kappsmál að lág-
vöruverðsverslun héldist á staðn-
um.
Í framsögu Sigurðar Arnar Sig-
urðssonar forstjóra Kaupáss kom
fram að til að Krónuverslun skilaði
hagnaði í Þorlákshöfn yrði verslun
að aukast allt að 20 til 30%. Hann
sagði að ýmislegt hefði betur mátt
fara í rekstri verslunarinnar, að-
föng hefðu ekki verið í lagi og
margt mætti bæta og það yrði
gert. Hann sagði að tilraun yrði
gerð í tvo mánuði og ef velta ykist
nægjanlega yrði Krónuverslun
rekin áfram á staðnum, en ef það
gerðist ekki yrði opnuð Kjarvals-
verslun.
Miklar umræður urðu á fund-
inum og hugur í heimamönnum að
versla nú í heimabyggð svo fremi
búðin verði löguð og ekki skorti
vörur.
Þorlákshafnarbúar vilja halda lágvöruverðsverslun í bænum
Breytt um
verslun ef
velta eykst
ekki
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Fjölmenni Margir sóttu borgarafund um málefni smásöluverslunar í Þor-
lákshöfn og sýndu með því hversu mikill áhugi er á málefninu.
Eftir Jón H. Sigurmundsson
Selfoss | „Það er virkilega gaman að elda og fást við mat. Það
fylgir því mikil sköpun að að búa eitthvað til og svo er gott að
hugsa á meðan maður er að elda, sérstaklega þegar maður eldar
heima, það fylgir því einhver sérstök ró að fást við matinn og
hlusta á góða tónlist á meðan. Svo er matseldin þannig að það er
alltaf hægt að prófa eitthvað nýtt. Ég reyni að halda mér í formi í
eldamennskunni og hafa augun opin fyrir nýjungum, bæði fyrir
heimilið og veitingastaðinn,“ segir Guðmundur Annas Árnason,
matreiðslumaður og framkvæmdastjóri Þriggja bolla ehf. á Sel-
fossi, sem rekur kaffihúsið og bistró-veitingastaðinn Kaffi-Krús.
„Þetta er kaffihús í bistró-stíl þar sem við bjóðum upp á léttan
og fjölbreyttan mat þar sem við erum alltaf með rétti dagsins
sem eru mismunandi frá degi til dags. Svo vorum við að fá nýja
kaffivél enda mikið lagt upp úr því að vera með gott kaffi og
handleika það og bjórinn á réttan hátt svo gæðin skili sér til gest-
anna,“ segir Guðmundur sem kemur frá 101 Reykjavík.
Hann lærði í Perlunni og hefur unnið á ýmsum veitingastöðum.
Hann vann hjá Rauða húsinu á Eyrarbakka og segir að ákvörð-
unin um „Kaffi Krús“ hafi verið tekin yfir kaffibolla með rekstr-
araðilum Rauða hússins enda hafi þeir allir haft sameiginlegan
áhuga á að koma að skemmtilegum veitingarekstri á Selfossi.
„Það má segja að ég hafi verið með þetta í maganum í þrjú ár en
konan mín, Hildur Sumarliðadóttir, sem rekur hárgreiðslustofu
hér í bænum, er frá Selfossi og mér fannst alveg tilvalið að koma
einhverju af stað sem maður var vanur í 101 Reykjavík. Hérna
var góður rekstur og nafnið var þekkt svo það gat ekki verið
betra. Svo hafa verið gerðar breytingar á húsnæðinu svona til að
fella það betur að því sem við erum með. Þó að þetta sé mikil
vinna hefur mig alltaf langað að vera með eigin rekstur og það er
ágætt að hafa gengið með þetta í nokkurn tíma.“
Þegar húsið var opnað var vakin athygli á forverum Guð-
mundar í veitingarekstri í húsinu. Fyrst var það Anna Árnadóttir
sem kom Kaffi Krús á fót. Síðan tók Guðbjörg Anna Árnadóttir
við og rak staðinn þar til Guðmundur kom. Föðurnafnið er sam-
nefnari þeirra og líka nafnið Anna. Húsið er gamalt íbúðarhús
sem bar nafnið Núpur og er þekkt meðal Selfossbúa.
Lifandi tónlist í sumar
Guðmundur er tónlistarmaður og var í hljómsveitunum Stolið
og annarri sem hét SOMA og átti einn mesta smellinn eitt árið
sem hét Grandi-Vogar. „Ég syng og spila á gítar og píanó og hef
mjög gaman af því að semja og vinna tónlist. Það er gott að geta
nærst á tónlistinni því maður skilur hana ekki við sig þótt mikið
sé að gera. Eitt af því sem maður fékk við að flytja frá miðborg
Reykjavíkur er að hér fékk ég einbýlishús og bílskúr þar sem ég
er með stúdíó. Svo keyptum við okkur þekkt gamalt hús hér í
bænum sem Guðmundur skósmiður átti en hann var þekkt per-
sóna á Selfossi. Við höfum bæði áhuga á gömlum húsum og það er
nóg að gera þessa dagana við að endurnýja húsið. Svo eigum við
þriggja ára son og ég á líka annan 10 ára,“ segir Guðmundur þeg-
ar hann segir frá áhugamálum sínum og fjölskyldunni.
Hann tekur undir það að viðskiptin lifni með hækkandi sól,
jafnt og þétt, enda er mikið að gera þegar líður á vikuna. „Og í
sumar eru margir möguleikar á að nýta pallinn hér fyrir utan til
þess að skapa góða stemmningu í miðbænum enda er húsið vel
staðsett við aðalgötuna og hér fer um fjöldi fólks, bæði íbúar á
Selfossi og svo ferðamenn sem eiga leið hér um hlöðin,“ segir
Guðmundur Annas Árnason, veitingamaður í Kaffi Krús.
„Gott að
hugsa meðan
maður eldar“
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Kaffihúsaeigandi Guðmundur Annas Árnason veit-
ingamaður fyrir framan stað sinn, Kaffi Krús á Selfossi.
Eftir Sigurð Jónsson
Hveragerði | Samningar á milli
byggingafyrirtækisins Eyktar og
Hveragerðisbæjar voru undirritaðir
á bæjarskrifstofunum í Hveragerði
fyrr í vikunni. Samningarnir hafa
sem kunnugt verið umdeildir í bæj-
arfélaginu en nú hefur verið gengið
frá þeim.
Í samningnum er stefnt að bygg-
ingu 8–900 íbúða hverfis austan
Varmár á næstu 12 árum þar sem
ríflega 2.000 einstaklingar munu
búa. Gangi uppbyggingaráformin
eftir munu þau kalla á nýjan grunn-
skóla og 6 deilda leikskóla í Hvera-
gerði. Strax verður hafist handa við
athuganir á landsvæði því sem um
ræðir og í kjölfar þeirra hefst vinna
við deiliskipulag, segir í fréttatil-
kynningu frá Hveragerðisbæ. Gert
er ráð fyrir að gatnagerð á svæðinu
hefjist á næsta ári.
Gengið frá samningum
um sölu lands til Eyktar
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 12:00–16:00
Öruggasti bíllinn í sínum flokki ár eftir ár og sérstaklega hannaður fyrir skandinavískar aðstæður.
2.290.000*