Morgunblaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Í FEBRÚAR Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð. Afgreiðslugjöld á flugvöllum. Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna og minibus, 9 manna, og rútur með/án bílstjóra. Höfum bíla með dráttarkrók og smárútur, allt að 14 manna. Smárútur fyrir hjólastóla. Sumarhús Útvegum sumarhús í Danmörku af öllum stærðum - frá 2ja manna og upp í 30 manna hallir. Valið beint af heimasíðu minni. - Þið takið húsið frá í 3 daga án greiðslu og við staðfestum síðan og sendum samning og greiðsluseðla. Einnig má greiða með greiðslukorti. LALANDIA Útvegum sumarhús í Lalandia, einhverju skemmtilegasta orlofshverfi Danmerkur. Lágmarksleiga 2 dagar. Húsbílar, hjólhýsi fyrir VM 2006 Höfum nokkra húsbíla fyrir VM 2006 í Þýskalandi til afgreiðslu frá Kaupmanna- höfn og Flensborg. Getum útvegað hjólhýsi og bíla með dráttarkrók. Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu; www.fylkir.is Fylkir.is ferðaskrifstofa sími 456 3745 Eina ferðaskrifstofan á Vestfjörðum sem ekki nýtur styrkja frá opinberum aðilum Bílaleigubílar Sumarhús í Danmörku Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga Bílar frá dkr. 1.975 vikan Riverrafting.is Ferðaþjónustan Bakkaflöt Skagafirði Skólahópar! Vinnuhópar! Gisting - Veitingar Fljótasiglingar - Klettaklifur Ratleikir - Hestaleiga Hestasýningar Gönguferðir Hafið samband, við gerum tilboð bakkaflot@islandia.is sími 453 8245 Vorið 2006 E ftir að hafa skrifað und- ir yfirlýsingu um að við værum heil á geði, vissum að blautir steinar gætu verið hál- ir og að við færum ekki í mál við skipuleggjendur hjá Arizona River Runners ef slys yrði var mætt á Harthrown Suites-mótelið í Las Vegas. Leiðangursmenn voru 28 tals- ins, allt frá þrettán ára aldri og upp í 72 ára, þar af þrír fararstjórar og fyr- ir lá 280 mílna löng ferð frá upphafi til enda gljúfranna,“ segir Vigfús Pálsson, en með honum í för var eig- inkonan Klara V. Þórhallsdóttir, son- ur þeirra Baldvin, 21 árs, og dóttirin Bryndís, 18 ára. Eldsnemma að morgni var lagt í’ann frá mótelinu og ekið í fimm tíma til upptaka Marble Canyon og þar hófst siglingin. Fjarri siðmenningunni „Allir voru svolítið órólegir í upp- hafi því við vissum að okkar biðu stórar flúðir, en Brian aðalfararstjóri fullvissaði okkur um að aldrei hefði neinn fallið útbyrðis þau 24 ár sem hann hefði siglt um fljótið. Við kom- um okkur fyrir í bátunum, en áður hafði okkur verið úthlutað vatns- heldum númeruðum pokum fyrir fatnað og aðrar nauðsynjar. Í upphafi var áin lygn og gljúfurveggirnir hækkuðu og hækkuðu, en eftir því sem á leið urðu flúðirnar stærri og stærri. Smám saman óx kjarkurinn og við vöndumst flúðunum furðu fljótt þótt við værum víðs fjarri sið- menningunni. Hvorki var til að dreifa sjónvarpi né gsm-símum, en blaut áttum við eftir að vera næstum allan tímann á ánni. Hitinn, sem var 35–40 gráður yfir hádaginn, náði þó að þurrka okkur á milli flúða. Á leiðinni var farið á land í stuttar gönguferðir. Afar vinsælt var að sulla í volgum lækjum og bregða sér í sápulausa sturtu undir fossum. Allir hjálpuðust að við að tæma bátana þegar komið var í næturstað. Eldhúsi var snarað upp og WC stað- sett. Fararstjórar undirbjuggu kvöldverð, sem ávallt var mjög lyst- ugur, á meðan aðrir tjölduðu og nálg- uðust sínar dýnur og svefnpoka. Upp úr kl. átta á kvöldin var orðið dimmt og lögðust menn þá til hvílu því vakn- að var um kl. 5.30 á morgnana við rjúkandi kaffiilm og vel útilátinn morgunverð,“ segir Vigfús. Hellir rúmar 5.000 manns Grand Canyon eru um fjögurra milljóna ára gljúfur, en rista niður í 1.800 milljóna ára gömul berglög. „Brian fræddi okkur ítarlega um jarðsögu gljúfranna, plöntu- og dýra- líf. Áin var frekar köld í upphafi, en hitnar um eina gráðu á hverjar 40 mílur svo að um miðbik ferðar voru allir farnir að sulla í gulbrúnni ánni eins og ekkert væri. Á öðrum degi kom hópurinn að risastórum helli þar sem rúmast a.m.k. fimm þúsund manns með góðu móti. Farið var í land og skoðaðir steingervingar af skordýrum í björg- unum. Á þriðja degi var farið í fornar indíánabyggðir, sem voru afar sér- stakar að sjá og fræðast um. Gengið var upp að hellum í 150 metra hæð yfir gljúfurbotninum þar sem indíán- ar höfðu geymt matvæli yfir vetr- artímann í öruggu skjóli fyrir stór- flóðum fljótsins. Í lok dags komum við að Phantom Ranch, lítilli byggð þjóðgarðsvarða í gljúfrinu. Þangað er einnig hægt að komast á múl- ösnum frá South Rim á einum löngum degi.“ Dýralíf og gosmenjar „Á fjórða degi komum við að klettamyndunum þar sem saltútfell- ingar koma fram rétt fyrir ofan vatnsborð árinnar. Þarna er helgur staður indíána og er öllum, að indíán- unum undanskildum, meinaður að- gangur að svæðinu. Dýralíf er þó nokkurt, en mesta at- hygli vöktu dádýr, sem voru fremur gæf og greinilega vön mannaferðum. Íkornar og eðlur eru algeng og einn- ig sást til snáka og sporðdreka. Við vorum vöruð við að trufla dýrin og alls ekki að fæða þau. Fuglalíf var ekki fjölreytt, en bláhegrar og krák- ur sáust og dúfu sáum við einu sinni. Alls staðar voru rauðir maurar, sem gátu tekið upp á því að bíta svo af hlutust óþægilegar bólgur. Á fimmta degi komum við á svæði þar sem voru mikil ummerki um eld- gos. Ekki hefur gosið þarna síðustu tvö hundruð þúsund árin, en fljótið er búið að ryðja burtu hrauninu, sem fyllti gljúfrin á stóru svæði. Á einum stað sigldum við í kringum hraun- drang, sem sagt er að sé gígtappi líkt og tröllin í Vesturdal sunnan Ásbyrg- is. Afar sérstakt var að sjá gamal- kunnugt bólstraberg allt í kring, en gosmenjarnar reyndust ný upplifun fyrir samferðafólkið,“ segir Vigfús. Á Íslandi þykir það ekki tiltökumál að drekka vatn úr tærum lækjum. Í ferðinni var þess gætt að allt neyslu- vatn væri drykkjarhæft. Lausnin fólst í því að á nokkrum stöðum í gljúfrunum var að finna tiltölulega hreint vatn, sem sett var á nokkra 20 lítra brúsa og það síðan soðið ræki- lega. Enginn féll útbyrðis Á sjöunda degi var komið að einum frægasta hluta gljúfranna, Lawa Falls, tíu metra háum og eitt hundr- uð metra löngum flúðum. „Nú var gaman. Báturinn tók góðar dýfur og við blasti vatnsveggur, sem steyptist yfir okkur og enginn féll útbyrðis. Á síðasta degi ferðarinnar vorum við komin í neðsta hluta gljúfranna. Siglt var á lygnri ánni á móti hrað- báti, sem flytja átti okkur síðustu 40– 50 mílurnar. Þarna vorum við komin í sömu hæð og Lake Meadow, sem er risastórt uppistöðulón fyrir Hoover Dam-stífluna við Las Vegas. Þegar Hoover Dam var reist var yfirborð Lake Meadows hækkað um 50 metra sem hafði þau áhrif að stærstu og hættulegustu flúðirnar fóru undir vatn. Það leiddi til þess að gljúfrin eru færari fyrir ferðamenn, hvort sem þeir fara í skipulögðum ferðum eða á eigin vegum.“  BANDARÍKIN | Gljúfrin miklu Grand Canyon eru 1.500 metra djúp Fjölbreyttar flúðir og fagrir fossar Colorado River í Grand Canyon. Vinsælt var að fara í sápulaust bað undir fossum á leiðinni. Ferðalangarnir fræknu. Hjónin Vigfús Pálsson og Klara V. Þórhallsdóttir ásamt syninum Baldvini og dótturinni Bryndísi. Fjögurra manna íslensk fjölskylda fór í átta daga æv- intýrasiglingu niður Colorado River í gljúfrunum miklu Grand Canyon, sem er þjóðgarður í Bandaríkj- unum. Jóhanna Ingvarsdóttir heyrði ferðasöguna. join@mbl.is www.raftarizona.com Kveðjutónleikar B.B. King Bændaferðir bjóða upp á helg- arferð 31. mars–2. apríl á kveðju- tónleika B.B. King sem mun koma fram ásamt Gary Moore. Moore mun leika fyrrihluta tónleikanna og King seinni. Flogið verður til Lond- on á föstudegi, gist eina nótt og hald- ið til Birmingham daginn eftir til að fara á tónleikana. Flogið heim á sunnudagskvöldi. Verð á mann í tví- býli er 59.000 kr. Miði á tónleikana er innifalinn. Fararstjóri verður Ás- geir Lárus Ágústsson. Vorferð til La Manga Vikuna 1.–8. apríl bjóða ÍT-ferðir upp á sólarferð til La Manga á Calida-ströndinni sem er um 100 km suður af Alicante. Flogið er til Alic- ante og gist á fjögurra stjörnu hót- eli, Sol Galua. Verð á þessari ferð er 64.000 á mann miðað við tvo í her- bergi með hálfu fæði. www.baendaferdir.is www.itferdir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.