Morgunblaðið - 25.02.2006, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 25.02.2006, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÚR VERINU VERÐVÍSITALA sjávarafurða hækkaði um 2,1% í janúar frá mán- uðinum á undan og er nú í sögulegu hámarki mæld í erlendri mynt. Þetta kemur fram í tölum sem Hag- stofan birti í gær. Í íslenskum krón- um lækkaði verðið hins vegar um 0,1% milli mánaða vegna styrkingar krónunnar. Á síðasta ári lækkaði afurðaverð í íslenskum krónum um 2,5% miðað við árið 2004, en hækkaði hins vegar um tæp 9% mælt í erlendri mynt. Sjávarútvegsfyrirtækin hafa því ekki notið þeirrar hækkunar sem hefur verið á mörkuðum erlendis þar sem styrking krónunnar hefur étið upp hækkunina og gott betur. Greiningardeild Íslandsbanka gerir því hins vegar skóna í Morg- unkorni í gær að hagur sjávar- útvegsfyrirtækjanna muni vænkast verulega í byrjun næsta árs ef spá bankans um gengi krónunnar gangi eftir. En bankinn spáir því að á fyrsta fjórðungi næsta árs verði gengisvísitalan um 120 stig að með- altali, en það jafngildir 9% veikingu frá núverandi stigi. Sjófrystur botnfiskur 22,9% verðmeiri en í janúar 2005 Sjófrystar botnfiskafurðir mæld- ar í erlendri mynt hækkuðu um 0,4% í janúar miðað við desember 2005, en eru 22,9% verðmeiri en í janúar 2005 og 9,1% hærri nú en meðaltal síðasta árs. Verð á landfrystum botnfisk- afurðum hækkaði um 1% milli mán- aða og er 7,1% hærra en í janúar í fyrra og 4,4% hærra en meðaltal síð- asta árs. Saltfiskafurðir hækkuðu um 0,3% í verði milli mánaða í erlendri mynt. Þær hafa hins vegar lækkað um 5,5% miðað við janúar 2005, en voru 2,1% hærri en meðalverð síðasta árs. Verð á skreið hækkaði um 3,4% milli mánaða og var 7% hærra en í janúar 2005. Þá hækkað verð á mjöli um 1,1% milli mánaða og er 14,4% hærra en í janúar á síðasta ári. Verð á sjávarafurðum í sögulegu hámarki            !    "  " #    $ % &  '  (           )   $$*   HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráðherra sagði í viðtali við Financial Times í gær að gengisfall krónunnar væri jákvæð þróun og nú myndi íslenski markaðurinn ná jafnvægi. Hann telur íslensku bankana sterka og kemur umfang þeirra og ann- arra íslenskra fyrirtækja í Bretlandi hon- um nokkuð á óvart. Þriggja daga heimsókn Halldórs Ás- grímssonar til London lauk í gær. Fyrr um daginn heimsótti forsætisráðherrann útibú Íslandsbanka og Landsbanka í borginni og vígði hann nýjar skrifstofur Icelandair, en þær eru staðsettar við Fitzroy-torg, skammt frá Oxford stræti. Halldór segist ekki geta neitað því að um- fang starfsemi íslensku fyrirtækjanna í London hafi komið sér nokkuð á óvart. „Í þessari ferð hef ég gert mér miklu betur grein fyrir því hversu mikilvæg þessi starfsemi er. Hún skiptir Ísland mjög miklu máli. Það kemur mér líka á óvart að allt fólkið sem ég hef hitt er ákaf- lega meðvitað um það að hér er um ís- lensk fyrirtæki að ræða. Ég hef verið að spyrja fólk til dæmis frá öllum skandinav- ísku löndunum hversu mikla trú það hafi á íslensku efnahagslífi og því sem er að ger- ast hjá okkur, og allir hafa svarað mér á þann veg að þeir hafi mikla sannfæringu fyrir því að Íslendingar séu að gera góða hluti. Þessi útrás hefur vissulega komið mörgum á óvart,“ segir Halldór. Fréttaritstjóri Financial Times ræddi við Halldór Fyrsti viðkomustaður forsætisráð- herrans og hans föruneytis í gær var útibú Íslandsbanka í fjármálahverfinu City. Steinunn Kristín Þórðardóttir, fram- kvæmdastjóri útibúsins, kynnti starfsem- ina og heilsuðu Halldór og kona hans, Sig- urjóna Sigurðardóttir, upp á starfsfólk útibúsins, en þar starfa tuttugu manns. Í lok árs er áætlað að starfsmenn verði orðnir um eða yfir þrjátíu. Að útibúskynningu lokinni var snæddur morgunverður og var starfsemi Íslands- banka í heiminum kynnt. Eftir það var rætt meðal annars um útrásina almennt og spáð í hvort og þá hvenær og hvernig hún mundi teygja anga sína til Bandaríkj- anna. Umræðurnar fóru fram á ensku og á þær hlustaði Frederick Studemann- Schulenburg, en hann starfar hjá hinu virta blaði Financial Times, og gegnir þar stöðu fréttaritstjóra fyrir alla Evrópu. Að loknum umræðum tók hann viðtal við Halldór og Steinunni. „Hann var mikið að spyrja um íslenska efnahagslífið almennt og þá sérstaklega gengisbreytingu á íslensku krónunni. Hann vildi vita hvort ég teldi ekki að það væri alltof mikill hiti í efnahagslífinu á Ís- landi,“ segir Halldór. „Ég sagði honum að það hefði verið mikill vöxtur á Íslandi undanfarin ár og það væri ljóst að þegar vöxtur væri fjögur til fimm prósent ár eft- ir ár þá fylgdi því ákveðin spenna. Það væri hins vegar ekki spenna sem við hefð- um áhyggjur af, gengi krónunnar hefði veikst og ég er þeirrar skoðunar að það sé gott að það gerðist með þessum hætti, því ég tel að krónan hafi verið óþarflega sterk. Núna þegar þetta hefur gerst fer ákveðin spenna, þannig að ég sagði hon- um að þetta hefði verið eitthvað sem við hefðum átt von á og því fyrr sem það gerðist því betra. Nú mun markaðurinn ná jafnvægi,“ segir Halldór. Morgunblaðið spurði Halldór hvort hann teldi að lækkunin yrði varanleg. „Já, eins og staðan er í dag þá tel ég að þetta sé varanlega lækkun. Við vitum það að í framtíðinni mun krónan lækka eitt- hvað meira en ég á ekki von á því að það gerist í einhverjum stökkum og ég tel að íslenska efnahagslífið sé mjög sterkt og bankarnir hafi mjög trausta stöðu.“ Næst á dagskrá var heimsókn í útibú Landsbankans en það er ekki langt frá útibúi Íslandsbanka í austurhluta borg- arinnar. Lárus Welding útibússtjóri tók á móti Halldóri og föruneyti og kynnti starfsemi bankans og dótturfélaga ásamt þeim Sigurjóni Árnasyni, bankastjóra Landsbankans, og Björgólfi Guðmunds- syni, formanni bankaráðs Landsbankans. Meðal annars var rætt um mun á við- skiptareglum landa, og þá sérstaklega Ís- lands og Bretlands, mismun á vöxtum í löndunum tveimur og spáð í fjármálaeft- irlit. Í útibúi bankans starfa rúmlega fimm- tíu manns og á sömu hæð er Teather & Greenwood, dótturfélag bankans, en þar starfa um hundrað og tuttugu manns. Að meðtöldum Heritable Bank, sem einnig er dótturfélag bankans, eru starfsmenn Landsbankans í London í kringum tvö hundruð og þrjátíu. Þegar kynningarferð um sjálft útibúið lauk var haldið yfir til verðbréfamiðlunarinnar Teather & Greenwood. Þar tók stjórnarformaður hennar, Lord Baker, á móti Halldóri en hann er fyrrum innanríkisráðherra Bret- lands og þingmaður Íhaldsflokksins. Eftir langt spjall og ítarlega kynningu á verð- bréfamiðluninni frá nokkrum starfs- mönnum var snæddur hádegisverður. Að honum loknum opnaði Halldór form- lega nýjar skrifstofur Icelandair, en á móti forsætisráðherranum tóku Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, og Stephen Brown, svæðisstjóri félagsins í Bretlandi. Alls starfa nú um tuttugu og fimm manns hjá Icelandair í Bretlandi, en félagið hefur flogið áætlunarflug til og frá Bretlandi í sextíu og eitt ár samfellt. Nýja skrifstofu- húsnæðið hefur því hlutverki að gegna að kynna Ísland og Icelandair og selja Bret- um ferðir til Íslands. Að lokinni vígsluat- höfninni heilsaði forsætisráðherra upp á starfsfólk og kynntist starfsemi félagsins betur. Halldór sagði að lokum í samtali við Morgunblaðið að hann væri mjög ánægð- ur með ferðina og að dagskrá mið- vikudagsins hefði staðið upp úr. „Dag- urinn var afskaplega eftirminnilegur. Hann hófst með mjög góðum fundi með Tony Blair og svo horfði ég á fótboltaleik- inn á milli Barcelona og Chelsea. Það var mjög gaman. Ég hafði mjög gaman af því að tala við Eið Smára. Mér er það betur ljóst en nokkru sinni fyrr hversu góðan fulltrúa við Íslendingar eigum í honum. Hann er glæsilegur fulltrúi okkar ungu kynslóðar.“ Halldór Ásgrímsson sagði í viðtali við Financial Times í gær að gengisfall krónunnar væri jákvæð þróun „Umfangið kemur nokkuð á óvart“ Halldór Ásgrímsson opnaði formlega nýjar skrifstofur Icelandair. Með honum eru Jón Karl Ólafsson (t.h.), forstjóri Icelandair, Sigurjóna Sigurðardóttir og Stephen Brown, svæðisstjóri félagsins. Sigurjóna og Halldór heimsóttu útibú Landsbankans og ræddu við Lárus Welding útibússtjóra, Björgólfur Guðmundsson, formann bankaráðs, og Sigurjón Árnason, bankastjóra Landsbankans. Ljósmynd/Jón Gunnar Ólafsson Forsætisráðherrahjónin heimsóttu útibú Íslandsbanka. Þar tók á móti þeim Steinunn Kristín Þórð- ardóttir, framkvæmdastjóri útibúsins. Lengst til vinstri er Bolli Þór Bollason ráðuneytisstjóri. Eftir Jón Gunnar Ólafsson í London jongunnar.olafsson@gmail.com
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.