Morgunblaðið - 25.02.2006, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 27
MINNSTAÐUR Evrópurútur
Úrvals Útsýnar 2006
Sérstaða Evrópurútanna felst í litlu stressi og hefur m.a. þess vegna fallið í góð-
an jarðveg hjá fólki, sem vill njóta, án þess að koma dauðþreytt heim til baka,
sannkallað frí. Fallegir og merkilegir staðir heimsóttir, góður matur borðaður,
gist á góðum hótelum og fræðandi tilsögn fararstjóra hefur engan svikið undan-
farin ár.
Skoðið myndasafn: www.uu.is/serferdir/evropurutur
E1. Antalya Tyrklandi 12.-22. apríl uppselt
E2. Antalya Tyrklandi 22. apríl–1. maí örfá sæti laus
Ævintýralúxusferð 5* hótel, allt innifalið, frábærar skoðunarferðir.
Fararstjóri Friðrik G. Friðriksson. Aðeins kr. 109.900.
E3. Spánn og Portúgal 23.–30. maí nokkur sæti laus
4* hótel á Spáni með sérlega góðum kvöldmat og kvöldskemmtunum.
Þægilegar skoðunarferðir með Friðriki G. Friðrikssyni. Aðeins kr. 79.500.
E4. Spánn og Portúgal 30. maí–6. júní nokkur sæti laus
Sama verð og sama dagskrá og Evrópurúta 3.
E5. Menningarborgir Norður-Ítalíu 12.–26. júní
nokkur sæti laus
Pósléttan, Milanó, Bologna, Modena, Parma, Feneyjar, Veróna, Padova,
Vicenza, Flórens, Pisa, Lucca og Sienna öðlast nýtt líf með tilsögn Paolo
Turchi og góðu skapi Grétars Hanssonar bílstjóra. Innifalið m.a. 11
kvöldmáltíðir. Kr. 139.500.
E6. Ítalía 19. júní–3. júlí nokkur sæti laus
Friðrik G. Friðriksson sýnir ferðafélögum Róm, Vatikanið, Pompei, Capri,
Flórens, Pisa og Feneyjar. Kr. 149.500.
Lágmúla 4, s. 585 4000
Akureyri, s. 460 0600
Vestmannaeyjum, s. 481 1450 www.urvalutsyn.is
Friðrik G. Friðriksson
fararstjóri
Paolo Turchi
fararstjóri
Grétar Hansson
bílstjóri
LANDIÐ
Skagafjörður | Á öðrum degi í góu
var verið að rúlla hálmi á túninu í
Sólheimum í Blönduhlíð. Þetta er
ekkert einsdæmi því bændur í
framanverðum Skagafirði hafa frá
því um áramót verið að hirða hálm-
inn af kornökrunum sem ekki náð-
ist af í haust vegna bleytu og ótíðar.
Tíð hefur verið ágæt undanfarið
og snjólaust. Það hafa komið sunn-
an blástrar af og til og þá hefur
hálmurinn náð að þorna. Hann er
notaður sem undirburður fyrir
hross og geldneyti en þarf að vera
vel þurr svo hann komi að fullum
notum. Þegar fréttaritari hafði tal
af Halldóri Einarssyni, bónda á
Úlfsstöðum, þar sem hann var að
rúlla sagði hann að á hans búi hefði
enginn hálmur náðst í haust og
raunar hefði orðið smávegis af
korni eftir. Þetta væri hinsvegar af-
brigðilegt ástand því hálmurinn
hefði náðst að haustinu undanfarin
ár en veðráttan hefði verið með
þessum eindæmum á síðast ári.
Hann sagði að tíðin undanfarið
hefði verið sérlega hagstæð fyrir
bændur og bætt að hluta til upp af-
ar rysjótta haustveðráttu.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Rúllað Halldór Einarsson grípur í haustverkin á góu.
Rúllað á öðrum degi góu
Hólfaprófkjör
hjá Í-lista í dag
Ísafjörður | Fjórir bjóða sig fram
fyrir hvern þeirra þriggja flokka
sem standa að sameiginlegu próf-
kjöri undir merkjum Í-listans í Ísa-
fjarðarbæ. Prófkjörið fer fram í dag.
Prófkjörið er svokallað hólfapróf-
kjör. Fyrir Samfylkingu eru í fram-
boði Arna Lára Jónsdóttir, Kolbrún
Sverrisdóttir, Sigurður Pétursson
og Björn Davíðsson. Fyrir Vinstri-
hreyfinguna – grænt framboð eru
Haraldur Tryggvason, Stefán
Björgvin Guðmundsson, Lilja Raf-
ney Magnúsdóttir og Jóna Bene-
diktsdóttir á listanum. Og fyrir
Frjálslynda flokkinn og óháða eru
það Rannveig Þorvaldsdóttir, Ást-
hildur Cecil Þórðardóttir, Magnús
Reynir Guðmundsson og Kristján
Andri Guðjónsson í prófkjörinu.
Prófkjörsfagnaður verður í
Hæstakaupstaðarhúsinu í kvöld.
Ekki er búist við niðurstöðu fyrr en
eftir klukkan 20, að því er fram
kemur á vef Bæjarins besta.
Kjaramál eldri borgara | Félög
eldri borgara í Suðvestur-kjördæmi
boða til sameiginlegs opins fundar
um kjaramál eldri borgara í dag,
laugardag, milli klukkan 14 og 17.
Fundurinn verður haldinn í Félags-
heimilinu Hraunseli, Flatahrauni 3,
Hafnarfirði.
Til fundarins er boðið alþing-
ismönnum kjördæmisins til að gera
grein fyrir afstöðu sinni til málefna
aldraðra og taka þátt í pallborðs-
umræðum. Þar gefst fund-
armönnum kostur á að spyrja og
gera athugasemdir.
Glænýr Saab
* Við trúum þessu ekki heldur.