Morgunblaðið - 25.02.2006, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 25.02.2006, Qupperneq 46
46 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Reynir Böðvars-son fæddist í Steinsbæ á Eyrar- bakka 29. desember 1925. Hann varð bráðkvaddur 19. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Böðvar Friðriksson, f. 7. mars 1878, d. 31. maí 1966, og Jónína Guðmunds- dóttir, f. 18. júlí 1878, d. 13. október 1940, Einarshöfn á Eyrarbakka. Reynir átti níu systkini. Þrjú þeirra dóu á unga aldri, þau sem upp komust eru: Guðmundur Böðvarsson, f. 28. október 1905, d.12. ágúst 1980; Friðsemd Böðvarsdóttir, f. 5. mars 1907, d. 18. febrúar 1988; Óskar Böðvarsson, f. 20. júlí 1911, d. 27. apríl 1992, öll látin, en eftirlifandi eru; Guðbjörg Lilja Böðvarsdóttir, f. 9. apríl 1914; Ragnar Böðvarsson, f. 6. janúar 1920; og Guðlaug Böðvars- dóttir, f. 9. desem- ber 1922. Reynir var ókvæntur og barn- laus. Útför Reynis verður gerð frá Eyrarbakkakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Það var vor í lofti í góubyrjun, glettni og bjartsýni ríktu í takt við tíð- arfarið og fjölskyldan bjó sig undir góðan sunnudag á Eyrarbakka. Þá stöðvaðist snögglega lífsganga Reyn- is vinar okkar og mildur morgunninn litast af sorg og trega. Reyni kynntumst við er við urðum nágrannar við Eyrargötuna og vinátt- an byrjaði er hann og Pjakkur urðu óaðskiljanlegir göngufélagar og vinir. Vináttan var þeim báðum mikils virði, enda byrjuðu þeir hvern dag fagnandi hvor öðrum, annar með brosi og vina- tali, hinn með rófudilli og blíðlegu hjali. Síðan gengu þeir af stað í sína daglegu gönguför, nánast í hvaða veðri sem var. Þegar komið var til baka úr göngu- ferðinni, lá leiðin ætíð í sjoppu okkar Eyrbekkinga sem Reynir af kerskni kallaði Stórval og mjólkurpottur keyptur ferfættum vini til drykkjar. Reynir fylgdist vel með að Pjakkur hefði það gott. Fyrir utan mjólkurmat þá gaukaði hann að honum beini og kjötbitum ef svoleiðis hafði verið „soðið í kjaftinn“ á Breiðabóli. Og ef veður voru vond þá tók hann Pjakk inn til sín og bjó honum þar skjól þar til við komum heim. Og fleiru bjó hann skjól. Við hús sitt kom hann upp myndarlegum trjágarði, einmitt með alúð og iðjusemi sem launaði honum með þroskamiklum plöntum. Og frekar en að gefast upp fyrir út- rænu og sjóroki þá byggði hann bara utan um viðkvæmustu trén að hausti og sleppti þeim svo út að vori. Þannig gæti margur lært sem gefst upp við andbyr, að iðja og alúð í bland við út- sjónarsemi getur mörgu breytt til betri vegar. Og ekki var hann Reynir kveif, heldur hraustmenni sem gekk hér teinréttur um þorpið röskum skrefum, helmingi yngri mönnum fyr- irmynd um líkamlegt atgervi. Hann var heldur ekkert að pukrast með skoðanir sínar eða hvíslandi þeim upp í vindinn, heldur lét menn heyra það vel völdum orðum og glotti þá gjarn- an við tönn og spýtti til áheyrsluauka. Hann var semsé skemmtilegur karl og hraustur sem við áttum alls ekki von á að að myndi breyta gönguleið- um sínum nærri því strax, þó að árin hefðu nýlega fyllt áttunda tuginn. En almættið ræður okkar gönguför og hefur nú kallað Reyni á eilífðar- vegi. Við óskum honum góðrar ferðar og þökkum honum samfylgdina og göngurnar allar hérna megin. Ein- hvern daginn hefja þeir félagarnir svo gönguna á ný og slökkva svo þorstann á eftir með ískaldri nýmjólk. Með kveðju frá Pjakki, Bjarki, Margrét Lovísa og Helga, Stíghúsi, Eyrarbakka. Reynsi minn, alveg var það eftir þér að fara að deyja á konudaginn. Og ekki búinn að gefa mér blómin. Þegar ég flutti hingað á Bakkann leist mér ekki meira en svo á þennan „geðvonskukarl“ í næsta húsi. Sá ætl- aði að vera fúll við mig. Hann mátti reyna það. Hann kæmist ekki upp með það. Ég fór að bjóða honum í kaffi. Í marga daga svaraði hann „nei, takk, nýbúinn“. Þetta ætlaði ekki að ganga vel. Ég tók að tala sama mál og hann og sagði dag einn: ,,Hættu þess- ari vitleysu, karlremba, og komdu í kaffi, ég á gott með kaffinu.“ Þá brosti sá gamli í kampinn og kom. Björninn við hliðina á mér var unninn. Þarna hófst vinátta okkar. Reynsi tók upp á því að rækta tré og við Már keyptum fyrstu hundrað og áttatíu plönturnar í skjólgarð fyrir hann. Hann hugsaði vel um trén sín. Þeim Má kom saman um það að hann væri í svo nánu sambandi við þennan í neðra, jarðvegurinn heitur og því sprytti vel. Þeir létu hvor annan hafa það óþvegið en voru alltaf bestu vinir. Reynsi hlúði vel að viðkvæmum plöntum og undirbjó þær fyrir vet- urinn. Segir það okkur heilmikið um hann. Reynsi var alltaf með okkur á jól- um og áramótum og naut sín vel. Þegar Már kom austur fór hann fljótlega út á hlað og hóf upp raust sína: ,,Hvað er með þennan karlskarf, sefur þetta allan daginn?“ Það leið ekki á löngu þar til Reynsi birtist bölvandi og ragnandi. ,,Þarftu að láta eins og þú sért kolvitlaus, mannfýla, þó þú látir sjá þig annað slagið?“ Þegar ég tilkynnti Má andlát Reynsa sagði hann það skrýtið hvern- ig hann hefði síðast kvatt sig. Hann sagði: ,,Vertu blessaður, vinur, og Guð veri með þér.“ Allir sem umgeng- ust Reynsa, sáu að hann bar ekki Guðsmanninn utan á sér. En enginn veit hvað í annars huga býr. Við Reynsi urðum mjög góðir vinir. Reynsi minn, þú veist að þegar þú hittir Pétur, þennan með lyklana, mátt þú alls ekki bölva. Ég mun sakna ljóssins sem þú kveiktir í ganginum og sagðir vera fyrir mig. Kæri vinur, við Már þökkum þér samfylgdina á Bakkanum. Við söknum þín, hvíl í friði. Sonja. REYNIR BÖÐVARSSON ✝ Ástríður Ingi-björg Sigurðar- dóttir fæddist á Eyrarbakka 22. júlí 1910. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á Sel- fossi 16. febrúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Sigríður Ólafsdótt- ir, f. 5. mars 1886, d. 12. ágúst 1986 og Sigurður Gísli Guð- mundsson banka- maður, f. 26. nóv- ember 1878, d. 22. maí 1976. Systkini Ástríðar eru Baldur, f. 20. janúar 1906, látinn, Guðmund- ur, f. 25. september 1907, látinn, Hlíf, f. 5. júlí 1912, látin, Ólafur, f. 1. febrúar 1915, látinn, Páll, f. 17. október 1916, Geirmundur, f. 22. september 1918, látinn, Garðar, f. 20. febrúar 1922, Ingibjörg, f. 12. Silja Sigríður Þorsteinsdóttir, börn þeirra eru Margrét, Steinunn og Þorfinnur Lúther. 2) Sigurður Gísli, f. 8. september 1941, hann á tvö börn. Dóttir hans og Ásdísar Skúladóttur er Móeiður Anna, f. 27. júlí 1970, sambýlismaður Mark Bell. Sonur Sigurðar Gísla og Hönnu Kjartansdóttur er Kjartan Davíð, f. 14. júlí 1986. Ástríður ólst upp með foreldr- um sínum og systkinum í Guð- mundarhúsi á Eyrabakka, gekk í barnaskólann á Bakkanum og síð- ar í Kvennaskólann í Reykjavík. Ástríður og Lúðvíg bjuggu í Reykjavík en 1946 fluttu þau á Selfoss og bjuggu þar síðan. Árið 1964 stofnuðu þau hjónin Skóbúð Selfoss og unnu þar saman, eftir andlát Lúðvígs 1972 rak Ástríður búðina til 1985. Ástríður og Lúðvíg bjuggu á Grænuvöllum 6 á Selfossi. Frá 1992 bjuggu þær Ástríður og Sól- rún systir hennar saman í Álft- arima 11. á Selfossi þar til Ástríð- ur flutti á Ljósheima í júní 2004 Útför Ástríðar verður gerð frá Selfosskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. ágúst 1924, og Sól- rún, f. 2. ágúst 1928. Ástríður giftist 12. október 1935 Lúðvíg Lúther Guðnasyni, f. 15. apríl 1907, d. 11. júní 1972. Foreldrar hans voru hjónin Margrét Þorláks- dóttir og Guðni Þor- láksson trésmíða- meistari í Hafnar- firði. Börn Ástríðar og Lúðvígs eru: 1) Margrét, f. 2. júní 1937, gift Þorfinni Valdimarsyni, f. 15. júlí 1935. Börn þeirra eru: a) Þór, f. 28. maí 1959, maki Hrefna Egilsdóttir, dætur þeirra eru Brynja Björk og Sigurlaug Eir. b) Ástríður Ingi- björg, f. 23. júlí 1960, maki Stein Sorknes, börn þeirra eru Inge- borg Björk og Þór. c) Lúðvíg Lúther, f. 12. febrúar 1964, maki Við systkinin á Grænó langar að kveðja ömmu Búllu með nokkrum orðum. Stóran hluta af ævi sinni átti hún heima í húsinu sem við eigum heima í núna þannig að henni þótti alltaf gam- an að koma í heimsókn til okkar og ekki var síðra þegar við heimsóttum hana og Rúnu frænku í Álftarimann. Þar var til mikið af skemmtilegu dóti sem okkur fannst skemmtilegt að skoða og máttum við leika okkur með það eins og við vildum og alltaf áttu þær eitthvað gott að gefa okkur. Okk- ur þótti hún bæði falleg og glæsileg, þó kynntumst við henni ekki fyrr en hún var komin á níræðis aldur. Allt vildi hún fyrir okkur gera sem hún mögulega gat, hún kenndi okkur vís- ur og sagði okkur sögur og var blíð og góð við alla þá sem hún umgekkst og einstaklega gestrisin. Tvö síðustu árin dvaldi langamma á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum og þá var orðið mjög stutt fyrir okkur að heimsækja hana þar sem hún var komin í gamla hverfið sitt aftur og fórum við systurnar þá margar ferðir til hennar og áttum þá með henni skemmtilegar stundir. Þó við séum ung gleymum við aldrei ömmu Búllu sem við vorum svo einstaklega heppin að kynnast á fyrstu árum ævi okkar. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Nú vitum við að þið afi Lúlli hafið hitt hvort annað aftur og ekkert getur aðskilið ykkur framar. Að endingu þökkum við langömmu fyrir allt það sem hún var okkur. Hvíldu í friði. Margrét, Steinunn og Þorfinnur. Þegar Ástríður Ingibjörg Sigurð- ardóttir fæddist ríkti Friðrik VIII. Danakonungur yfir Íslandi, konur höfðu ekki kosningarétt, voru ekki fjár síns ráðandi og höfðu ekki rétt til langskólagöngu. Aðalstarf Ástríðar var húsmóður- starfið en einnig stundaði hún versl- unarstörf í Skóbúð Selfoss í samvinnu við eiginmann sinn, Lúðvíg Guðnason kaupmann. Að honum látnum tók hún við rekstri skóbúðarinnar. Það var sérdeilis góð skóbúð enda þau hjón bæði afar smekkleg. Þau höfðu ríka tilfinningu fyrir takti tískunnar en einnig því besta og fallegasta í skó- gerð handan allra tískustrauma. Ástríður átti langa og farsæla ævi. Það þurfti ekki minnismiða á ísskáp- inn hennar til að minna hana á að hugsa jákvætt. Það þurfti heldur ekki að minna hana á að hlúa að þeim sem henni þótti vænt um. Ástríður ólst upp á miklu menning- arheimili og stundaði nám við Kvennaskólann í Reykjavík og hún kunni alla tíð öðrum framar að spinna sér fróðleiksvef úr reynslu daganna. Hún var víðsýn kona sem gerði sér ekki rellu út af smámunum. Ástríður hafði mjög gott lag á börn- um þannig að öll börn héldu að þau væru einstök börn þegar hún átti hlut að máli. Ástríður var af sínum nánustu köll- uð amma Búlla sem hún kannske var ekki alltaf sérlega hrifin af. Okkur sem þótti vænt um hana þótti þessi nafngift hins vegar falleg. Á jólunum sendi hún mér og minni fjölskyldu alla tíð nýbökuð hveitihorn sem voru mikið góðgæti með köldu norðlensku hangiketi á jóladags- morgni. Því varð töluvert uppnám hér um árið þegar þar kom að hún treysti sér ekki lengur til að baka hornin. Það gekk hreinlega ekki. Engin jól án hornanna hennar ömmu Búllu. Það var brugðist skjótt við, hringt austur, uppskriftin skráð í uppskriftabók heimilisins og byrjað að baka svo jólin gætu gengið í garð. Gleði jólanna fer vel saman við minninguna um Ástríði því hún var ávallt glöð og bjartsýn. Nægjusemi, mannkærleikur, höfð- ingsskapur og reisn samfara hógværð í hvívetna voru aðalsmerki hennar. Heimsóknir á Grænuvellina á Sel- fossi: Ástríður að elda sunnudagslær- ið og Lúðvíg í ruggustólnum að hlusta á rússneska kósakkakórinn. Það er kyrrð og hamingja yfir þeirri minn- ingu eins og svo ótal fleirum. Ástríður sagði eitt sinn skömmu eftir að Lúðvíg maður hennar dó að hún tryði því og vissi að hún mundi hitta hann aftur þegar hún kveddi þennan heim. Ég trúi því núna þegar ég horfi upp í bláan himininn að hún sé komin til hans sem elskaði hana og dáði eins og við gerðum öll. Ásdís Skúladóttir. ÁSTRÍÐUR I. SIGURÐARDÓTTIR Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN MAGNÚSDÓTTIR, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 22. febrúar. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 1. mars kl. 13.00. Kolbrún Vilbergsdóttir, Fanney Eva Vilbergsdóttir, Gísli Haraldsson, Þóra Vilbergsdóttir, Júlíus Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SÓLVEIG HJÁLMARSDÓTTIR, Þúfubarði 13, Hafnarfirði, lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 23. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Matthildur Kristensdóttir, Sæberg Guðlaugsson, Hilmar Kristensson, Sigrún Halldórsdóttir, Erlingur Kristensson, Gyða Úlfarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR JÓNSSON vélfræðingur, Dalbraut 20, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 23. febrúar sl. Jarðarförin auglýst síðar. Ingunn Erla Stefánsdóttir og fjölskylda. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS JÓNSSON, Flétturima 27, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 24. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Ágústa Magnúsdóttir, Kristján Sigfússon, Evert Sveinbjörn Magnússon, Hugrún Stefánsdóttir, Sigrún Magnúsdóttir, Hildur Kolbrún Magnúsdóttir, Berglind Agnes Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.