Morgunblaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR AÐALMEÐFERÐ í máli fyrir- tækja tengdra Frjálsri fjölmiðlun hófst fyrir Héraðsdómi Reykjavík- ur í gær, og er búist við að rétt- arhöldin muni standa það sem eftir er vikunnar. Sakborningar í málinu eru alls tíu, en ákært er í samtals níu ákæruliðum. Í átta tilvikum vegna brots á lögum um skil á vörslusköttum, en í einu vegna um- boðssvika. Ákært er vegna brota í starfsemi alls átta fyrirtækja sem utan eitt tengjast á einn eða annan hátt Frjálsri fjölmiðlun ehf., sem tekið var til gjaldþrotaskipta í júlí 2002. Meint brot áttu sér stað á árabilinu 2000 til 2003, en félögin sjálf hafa öll verið lýst gjaldþrota. Ákært er vegna samtals rúmlega 119 milljóna króna. Þar af eru um 57,7 milljónir vegna brota á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, um 36,7 milljónir vegna brota á lög- um um virðisaukaskatt, og 24,8 milljónir vegna umboðssvika. Brot- in eru ýmist talin varða við almenn hegningarlög, lög um virðisauka- skatt og/eða lög um staðgreiðslu opinberra gjalda, og eru yfirleitt fleiri en einn ákærðir vegna hvers ætlaðs brots. Við upphaf aðalmeðferðarinnar í gær leiðrétti Jón H. Snorrason, saksóknari og yfirmaður efnahags- brotadeildar ríkislögreglustjóra, nokkrar upphæðir sem ákært er vegna, en við það lækkaði heildar- upphæðin um liðlega 10 milljónir króna. Fimm sakborninga í málinu gáfu í gær skýrslu fyrir dómi, ásamt tveimur vitnum. Svavar Ásbjörns- son, sem í ákæru er sagður hafa verið fyrrverandi fjármálastjóri Visir.is ehf., reið á vaðið, en hann er ásamt Eyjólfi Sveinssyni ákærð- ur fyrir umboðssvik. Svavar neitar sök. Talið er að Svavar hafi millifært samtals liðlega 24,8 milljónir króna í 24 færslum af reikningi Visir.is á reikninga annarra fyrirtækja á tímabilinu frá 29. apríl til 27. maí 2002, sem yfirdró reikninginn um ríflega 23,9 milljónir króna. Engin yfirdráttarheimild var fyrir hendi á reikningnum, sem var í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis (SPRON). Jón H. Snorrason saksóknari spurði Svavar um starf sitt hjá Vis- ir.is, en fyrirtækið rak samnefndan vef, og var nátengt Fréttablaðinu ehf., sem á þeim tíma gaf út Fréttablaðið. Hann sagðist hafa starfað sem rekstrarstjóri Visir.is frá júlí 2001 til áramóta 2001–2002, og hafi starf hans heyrt undir Eyj- ólf Sveinsson. Eftir að hann hætti hjá Visir.is fluttist starf hans til Fréttablaðs- ins, þar sem hann gegndi svipuðu starfi, og sagði Svavar að þar hefði Eyjólfur líka verið sinn yfirmaður. Auk þess hefði Gunnar Smári Eg- ilsson, þáverandi ritstjóri Frétta- blaðsins, „haft puttana í öllu sem gerðist“, svo sem auglýsingasölu, innheimtu og ritstjórn. Í raun hefði fjármálastjórn skipst á milli sín, Eyjólfs og Gunnars Smára. Svavar sagði að yfirdrátturinn á umræddum reikningi hefði komið þannig til að eftir að Visir.is var seldur til Femin ehf. hefði hann átt von á greiðslum að upphæð samtals 60 milljónir króna. Hann hefði vitað að fyrst væri von á 12 milljónum króna og síðar 18 milljónum króna, en afgangurinn kæmi síðar. Prófaði að millifæra Þegar 12 milljónirnar voru komnar á reikninginn voru þær millifærðar að beiðni Eyjólfs, en svo var beðið eftir síðari greiðsl- unni. Sagðist þá Svavar hafa prófað að millifæra 500 þúsund krónur af reikningnum, þrátt fyrir að í heimabanka virtist sem greiðslan væri ekki komin. Millifærslan gekk eftir, og þótti Svavari því líklegast að greiðslan hefði verið innt af hendi fyrr þann sama dag, en hún kæmi ekki í ljós í heimabankanum fyrr en morguninn eftir. Svavar sagði það sína reynslu af bankaviðskiptum að ef yfirdráttar- heimild væri ekki fyrir hendi væri einfaldlega ekki hægt að yfirdraga reikninga. Vitnaði hann þar m.a. til reynslu sinnar af störfum fyrir banka í 14 ár. Þegar í ljós kom morguninn eftir að greiðslan hafði ekki borist taldi hann að eigendur Visir.is hefðu fengið yfirdráttar- heimild á reikninginn. Það hefði Eyjólfur staðfest óbeint. Fjárhagsstaðan á þessum tíma var slæm, og spurði saksóknari Svavar hvort ekki hefði fylgt því hætta að yfirdraga reikninginn. Hann sagði svo ekki hafa verið, enda hefði hann skilið það svo sem það fé sem fengist vegna sölu Vis- ir.is yrði notað til að greiða niður yfirdráttinn. Visir.is skuldaði Fréttablaðinu 30 milljónir króna Á þessum tíma segir Svavar að Visir.is hafi skuldað Fréttablaðinu um 30 milljónir króna, það hafi hann fengið staðfest hjá Gunnari Smára. Þá skuld taldi Svavar að hefði einnig átt að greiða með sölu- andvirðinu. Spurður um einstaka færslur, sem utan ein voru allar á reikninga Fréttablaðsins ehf., sagði Svavar að þær hefðu farið til dag- legs rekstrar blaðsins, t.d. til að greiða fyrir pappír. Svavar sagði, aðspurður af verj- anda sínum, að ekki hefði verið hægt að sjá í heimabanka SPRON hvort yfirdráttarheimild hefði verið fyrir hendi, og á þeim tíma hefði ekki heldur verið hægt að sjá það í heimabönkum Búnaðarbankans og Íslandsbanka. Engin yfirlit hefðu borist sem sýndu yfirdráttinn. Hann lýsti einnig samskiptum sínum við starfsmenn SPRON, sem hringdu þegar þeim varð yfirdrátt- urinn ljós og sögðu málið komið á borð lögfræðings bankans. Svavar sagði starfsmann bankans hafa borið að yfirdrátturinn hefði verið mögulegur vegna villu hjá Reikni- stofu bankanna, en á sínum 14 ára ferli sem bankastarfsmaður hefði hann aldrei heyrt af slíkri villu. Spurður um þá ákvörðun að nota söluverð Visir.is til að greiða yf- irdráttinn sagði Svavar að það hefði verið rætt á fundi sínum með Gunnari Smára og Eyjólfi. Verj- andi Eyjólfs, Halldór Jónsson, spurði þá hvers vegna Svavar hefði breytt framburði sínum frá því hann gaf skýrslu hjá lögreglu, þar hefði hann borið að enginn hefði gefið fyrirmæli um millifærslurnar. Sagði Svavar að hann hefði á þeim tíma ekki munað hvort hann hefði fengið bein fyrirmæli eða ekki. Spurði verjandi Eyjólfs því út í ein- staka færslur sem gerðar voru, og hvort Svavar hefði haft samráð við Eyjólf í hverju tilviki. „Ég hafði samráð við Eyjólf um allar greiðslur,“ sagði Svavar, en dró að- eins í land þegar verjandi spurði á ný, og sagðist hafa rætt við Eyjólf á hverjum degi. Eyjólfur raunverulegur framkvæmdastjóri? Svavar var ekki ákærður fyrir annað en umboðssvikin, en hann var einnig yfirheyrður fyrir héraðs- dómi í gær sem vitni vegna tveggja ákæruliða. Þar var hann m.a. spurður nánar út í starf Eyjólfs hjá Visir.is, en hann er í öðrum ákæru- liðum ákærður sem stjórnarfor- maður og daglegur stjórnandi Vis- ir.is. Svavar sagðist hafa þurft að leita til hans með allar fjármálaákvarð- anir, en lagði ekki mat á það hvort hann hefði verið hinn raunverulegi framkvæmdastjóri Visir.is. Á þess- um tíma gegndi Sigurður Ragn- arsson stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækisins, en hann tók við af Þorvaldi Jakobsen síðla árs 2001. Ragnar Hall, verjandi Sveins R. Eyjólfssonar, spurði Svavar um skýrslu sem hann gaf hjá lögreglu þar sem hann sagðist hafa starfað sem fjármálastjóri Visir.is, en hann hefði fyrir dómi sagst hafa starfað sem rekstrarstjóri félagsins. Svav- ar sagðist hafa komið að fjármála- stjórn, en starfið hefði þróast meira í átt að gjaldkerastarfi. Hann sagði að aldrei hefði verið ákveðið að standa ekki skil á vörslusköttum, meiningin hefði allt- af verið að greiða þá. Spurður hvort þetta væri ekki í mótsögn við framburð hans hjá lögreglu, þar sem hann sagði Eyjólf og Gunnar Smára hafa tekið ákvörðun um að greiða ekki skattana, sagði Svavar að hann hefði átt við að Gunnar Smári og Eyjólfur hefðu tekið allar ákvarðanir um fjármál félagsins. Vandamálið hefði verið að fé hafi skort til að greiða reikningana, enda fjárhagsstaðan á þessum tíma afar erfið þar sem illa hefði gengið að innheimta útistandandi skuldir. Eyjólfur Sveinsson, fyrrverandi stjórnarformaður Visir.is, var ann- ar sakborninga til að gefa skýrslu fyrir dómi í gær. Hann er ákærður í sjö af níu ákæruliðum í málinu og neitar alfarið sök. Var hann m.a. ákærður ásamt Svavari Ásbjörns- syni fyrir umboðssvik, auk þess sem hann var ákærður fyrir brot á lögum um virðisaukaskatt vegna fimm fyrirtækja og brot á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda vegna sex fyrirtækja. Saksóknari spurði Eyjólf fyrst um meint umboðssvik, og þá fyrst um hverjir hefðu haldið um stjórn- artaumana á Visir.is á árunum 2001 til 2002. Eyjólfur sagði að Sigurður Ragnarsson, einn ákærðu, hefði verið ráðinn undir lok árs 2001. Í ljós hefði hins vegar komið að hann hefði þurft á meiri stuðningi að halda en forveri hans í starfi, og því hefði Eyjólfur komið meira að rekstri Visir.is eftir að Sigurður tók við. Eyjólfur sagðist ekki hafa vitað af yfirdrættinum á reikningi Vis- ir.is hjá SPRON þegar hann hefði átt sér stað. Hann sagði fjárhags- stöðuna á þeim tíma hafa verið erf- iða, og það hefði verið rætt tals- vert. Hann hefði hins vegar ekki fylgst með þessum reikningi í SPRON, sem hann sagði hafa verið nokkurs konar jaðarreikning, enda aðalreikningurinn hjá Búnaðar- bankanum. Gaf ekki fyrirmæli um að draga af reikningi Eyjólfur tók fram að hann hefði aldrei gefið Svavari fyrirmæli um að draga af þessum tiltekna reikn- ingi, né hefði hann vitað af því að hann hefði verið yfirdreginn. „Ég gaf honum aldrei fyrirmæli um að draga af þessum gíróreikningi Vis- ir.is, eða koma honum í neikvæða stöðu,“ sagði Eyjólfur. Hann sagðist hins vegar oft hafa rætt fjármál félagsins við Svavar, t.d. þegar Eyjólfur hefði lánað fé- laginu af eigin fé. Svavar átti að sjá um að inn- heimta stórar skuldir félagsins, og sagði Eyjólfur að það hefði ekki Ákært vegna samtals rúmlega 119 milljóna kr. Aðalmeðferð hófst í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli vegna félaga tengdra Frjálsri fjölmiðlun Morgunblaðið/Árni Sæberg Vegna mikils fjölda sakborninga og verjenda þurfti að bæta við borðum í aðalsal Héraðsdóms Reykjavíkur í gær, en alls þurfti að koma tíu verjendum fyrir í salnum. Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.