Morgunblaðið - 28.02.2006, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 15
ERLENT
LEITIN að tilgangi lífsins varð til þess að
Ástralinn Joseph Thomas, sem flestir
þekkja nú sem „Jíhad Jack“, hélt til Afgan-
istans snemma árs 2001 í því skyni að finna
samfélag þar sem lifað væri eftir boðorðum
guðs. Thomas undi sér vel undir hinum
bókstafstrúuðu talibönum, sem réðu Afgan-
istan á þessum tíma, og skráði sig til her-
þjónustu en það var einmitt í æfingabúð-
unum í al-Farooq sem hann hitti Osama bin
Laden.
Mikið var fjallað um sögu Thomas í ástr-
ölskum fjölmiðlum í gær, en hann var á
sunnudag fundinn sekur um það fyrir rétti
að hafa þegið 3.500 dollara, um 240.000 ísl.
kr., og flugmiða að gjöf frá al-Qaeda-
hryðjuverkasamtökunum. Thomas var hins
vegar sýknaður af ákærum um að hafa ætl-
að að veita al-Qaeda aðstoð í Ástralíu.
Viðtal við Thomas birtist í ástralska sjón-
varpinu í gær og jafnframt var ítarlegt við-
tal við hann í blaðinu The Age. Í viðtöl-
unum kom fram að Thomas, sem er 32 ára,
hefði verið býsna ráðvillt ungmenni. Hann
stundaði ballett sem unglingur, reyndi fyrir
sér sem liðsmaður pönk-sveitar og ók
leigubíl. Hann fæddist inn í ensku bisk-
upakirkjuna, en hann er af fimmtu kynslóð
innflytjenda í Ástralíu, en
var ekki ánægður þar,
átti erfitt með að una því
að tilheyra trúfélagi sem
stofnað hafði verið af
konungi, Hinrik VIII.,
sem þjáðist af kyn-
sjúkdómi.
Thomas las sér til um
andatrú og búddisma áð-
ur en hann gerðist músl-
ími. Hann lét breyta nafni sínu í Jíhad
(heilagt stríð) og hélt til Afganistan í mars
2001. Hann sagðist í viðtali við ABC-
sjónvarpsstöðina hafa heilsað Osama bin
Laden í al-Farooq-herbúðunum, bin Laden
hafi reynst „afar kurteis og lítillátur og
feiminn. Hann kunni ekki við að vera
kysstur of oft … honum var sama þó að
maður faðmaði hann að sér en kossa kunni
hann ekki við“.
Þetta var skömmu fyrir hryðjuverkaárás-
irnar á Bandaríkin 11. september 2001.
Þegar talibanastjórnin hrundi um haustið
eftir innrás Bandaríkjamanna flúði Thomas
land og eyddi næstu þrettán mánuðunum í
Pakistan. Þá var hann handtekinn og yf-
irheyrður af bandarísku leyniþjónustunni
(CIA), en síðan sleppt. Einn undirmanna
bins Ladens, Khaled bin Attash, afhenti
honum þá 3.500 dollara og sagði við hann:
„Osama vill hvítan strák.“
Bað bin Attash Thomas um að fara heim
til Ástralíu og bíða fyrirmæla um árás þar.
En Thomas segist aldrei hafa ætlað sér að
hlíta slíkum fyrirmælum, hann hafi einfald-
lega hirt peningana og flugmiðann því að
hann hafi verið farinn að sakna fjölskyldu
sinnar. Aldrei hafi flogið að honum að
valda saklausu fólki skaða eða fremja
hryðjuverk í Ástralíu.
Thomas á yfir höfði sér 25 ára fangels-
isdóm en hæstiréttur Ástralíu mun fella úr-
skurð um refsingu á allra næstu dögum.
„Osama vill hvítan strák“
„Jíhad Jack“ þáði 3.500 dollara af al-Qaeda og
var beðinn að fremja hryðjuverk í Ástralíu
Joseph Thomas
Washington. AP. | Hafnarþjónustufyr-
irtækið Dubai Ports World (DPW)
hefur samþykkt 45 daga endurskoðun
á hugsanlegum áhrifum yfirtöku þess
á starfsemi breska fyrirtækisins P&O
í sex stórum bandarískum höfnum á
þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Er talið
að með því að samþykkja endurskoð-
unina sé DPW, sem er ríkisfyrirtæki í
Sameinuðu arabísku furstadæmun-
um, að reyna að forðast frekari átök
við bandaríska þingið vegna samn-
ings þess um kaup á P&O, fyrir sem
svarar um 450 milljörðum króna.
En fjölmargir þingmenn innan
raða bæði demókrata og repúblikana
hafa lýst því yfir að samningurinn sé
hugsanleg ógn við þjóðaröryggi
landsins, með því að auka líkurnar á
hryðjuverkum.
Telja stjórnmálaskýrendur að rík-
isstjórn George W. Bush, forseta
Bandaríkjanna, sé með endurskoðun-
inni að reyna að lægja þær öldur sem
hafa skapast á bandaríska þinginu
vegna málsins. Þykir afar óvenjulegt
að fram fari jafn umfangsmikil rann-
sókn á kaupum erlends aðila á fyr-
irtæki með starfsemi í Bandaríkjun-
um, en þarlendar leyniþjónustur
ályktuðu eftir 30 daga rannsókn á
DPW að salan væri ekki ógn við ör-
yggi landsins. Hafa talsmenn DPW
bent á að P&O sé breskt fyrirtæki og
að málið sýni því að fjárfestum sé mis-
munað eftir þjóðerni.
Hyggjast yfirmenn DPW fara í mál
við bandaríska ríkið komist fyrirhug-
uð rannsókn að annarri niðurstöðu.
Demókratinn Charles Schumer er
á öndverðum meiði og hefur leitt hóp
öldungadeildarþingmanna sem
hyggjast leggja fram lagasetningu er
ætlað er að breyta núverandi lögum,
þannig að DPW þurfi samþykki
bandaríska þingsins fyrir heimild til
að stunda viðskipti í landinu.
Reynt að stöðva samninginn
með dómsúrskurði
En Bush forseti hefur sagt að hann
muni beita neitunarvaldi sínu fari svo
að þingið reyni að koma í veg fyrir að
samningurinn verði að veruleika. Þá
hafa hafnaryfirvöld vestanhafs einnig
gripið í taumana.
Samkvæmt frétt BBC lagði hafn-
arþjónustufyrirtækið Eller & Co í
Miami sl. föstudag fram beiðni í yf-
irrétti í Bandaríkjunum um að samn-
ingar vegna sölunnar á P&O verði
ógildir.
Samkvæmt sömu heimild hafa op-
inberir starfsmenn í New Jersey
einnig farið lagaleiðina til að reyna að
stöðva samninginn, ásamt því sem
hafnaryfirvöld í New York eru að
reyna að ógilda 30 ára starfsleyfi
P&O á þeim grundvelli að yfirmönn-
um þess hafi láðst að sækja um leyfi
fyrir sölunni.
Hafna-
samningur
endur-
skoðaður
Dubai Ports láta
liggja að lögsókn
Þinn eigin fyrirtækjafulltrúi
Greiðsluþjónusta – frí fyrsta árið
Frítt greiðslukort fyrsta árið
Sérstakur sparnaðarreikningur, þrepaskiptur,
óbundinn með hærri innlánsvöxtum
SPH innkaupakort þér að kostnaðarlausu
Afsláttur á lántökugjaldi
Sérstök bílalán á betri kjörum
Vildarþjónusta fyrirtækja
Vildarþjónusta fyrirtækja
Í meira en 100 ár höfum við aðstoðað fyrirtæki við fjármálin. Við leggjum áherslu á langtímasamband
og sérhæfðar lausnir sem taka mið af sérstökum aðstæðum og starfsumhverfi viðskiptavina okkar.
Leyfðu okkur að aðstoða þig og nýttu tímann í annað.
SPH – fyrir þig og fyrirtækið!
AR
G
U
S
06
-0
05
2
Alltaf að vinna?