Morgunblaðið - 28.02.2006, Síða 17

Morgunblaðið - 28.02.2006, Síða 17
Sauðárkrókur | Tíundi bekkur Árskóla á Sauðárkróki hefur að undanförnu sýnt leikverkið Dýrin í Hálsaskógi í félags- heimilinu Bifröst á Sauðár- króki. Undirtektir hafa verið svo góðar, að sögn Óskars Björnssonar skólastjóra, að uppselt hefur verið á allar níu sýningarnar. Þetta er árshátíðarsýning og eru krakkarnir búnir að vera að undirbúa og æfa verkið frá því í haust. Tæplega 60 nemendur eru í 10. bekk og koma allir að einhverjum hluta sýningarinnar og er mikil vinna lögð í alla um- gjörð, leikmynd og búninga. Þetta er hluti af námi þeirra í skólanum og jafnframt þáttur í fjáröflun fyrir ferð þeirra til Köge í Danmörku og Kristjans- stad í Svíþjóð í vor, en þessir bæir eru vinabæir Sauðárkróks og hafa slík nemendasamskipti verið hluti af hefðbundnu skóla- starfi í Árskóla í mörg ár. Mikill metnaður hefur verið lagður í leiklist í Árskóla. Allir nemendur skólans koma fram a.m.k. einu sinni á hverju skóla- ári. Tíundu bekkingar setja síð- an heilt leikverk á svið og starfsfólk Árskóla aðstoðar við uppsetninguna. Leikstjóri þess- arar sýningar er leiklistar- og myndmenntakennari skólans, Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson, sem hefur unnið að mörgum sýningum í Þjóðleikhúsinu og hefur jafnframt leikstýrt ófáum sýningum á Sauðárkróki. Allir nemendur 10. bekkjar vinna við leiksýninguna Ljósmynd/Árskóli Dýrin Um sextíu nemendur Árskóla taka þátt í sýningu á Dýrunum í Hálsaskógi. Árshátíð Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs- dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmunds- dóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi- @mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Hreyfing virðist komin á framboðsmál vegna sveitarstjórnarkosninganna næsta vor. Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Bolungarvík hefur ákveðið að fram fari skoðanakönnun um uppstillingu á lista fé- lagsins fyrir næstu kosningar. Elías Jón- atansson, forseti bæjarstjórnar, er sá eini af þeim fjórum bæjarfulltrúum sem listinn fékk kjörna í síðustu kosningum sem sæk- ist eftir endurkjöri. Þá hefur Anna G. Edv- ardsdóttir, fyrrverandi skólastjóri og nú- verandi starfsmaður á Náttúrustofu Vestfjarða, gefið kost á sér í fyrsta sæti D- listans og að hennar sögn stefnir hún að því að setjast í stól bæjarstjóra náist til þess fylgi. Við síðustu kosningar voru tveir listar í kjöri, D-listi sjálfstæðismanna og K-listi bæjarmálafélags Bolungarvíkur en að því standa einstaklingar og félög á vinstri væng stjórnmálanna. Niðurstaða kosninganna þá var sú að listarnir stóðu hnífjafnir og þurfti að grípa til þess að varpa hlutkesti sem færði D-listanum fjórða manninn og þar með meirihluta í bæjarstjórninni. Af framboðsmálum bæjarmálafélagsins er lítið að frétta en gera má ráð fyrir því að þar á bæ fari menn að huga að framboðsmálum einnig.    Ný og glæsileg vefsíða fyrir Bolungar- víkurkaupstað var formlega opnuð í upp- hafi síðasta bæjarstjórnarfundar. Umsjón með smíði vefjarins hafði Þórður Vagns- son, markaðs- og upplýsingafulltrúi Bol- ungarvíkurkaupstaðar, og mun hann sjá um daglega umsjón hans. Stefnt er að því að vefurinn verði í senn ferskur og skemmtilegur en umfram allt öflugt upp- lýsinga- og markaðstæki fyrir bæjar- félagið. Miklar vonir eru bundnar við það að fólk notfæri sér þessa gátt til að kynna sér mannlífið í Bolungarvík.    Markaðs- og kynningarmál er Bolvík- ingum ofarlega í huga um þessar mundir enda margt hér að bjóða sem líklegt er að koma þurfi á framfæri. Einn liður í því að leggjast frekar á árar í þeim efnum var að endurreisa Ferðamálafélag Bolungarvíkur sem gert var í síðustu viku. Blásið var til fundar og ný stjórn kjörin og er nýr for- maður félagsins Haukur Vagnsson. Næstu verkefni félagsins er m.a að setja saman vinnuhóp til að undirbúa þátttöku í sýning- unni Perlan Vestfirðir sem fram fer í Reykjavík 5. til 7. maí nk. Úr bæjarlífinu BOLUNGARVÍK EFTIR GUNNAR HALLSSON FRÉTTARITARA var oftast boðið upp á rjómabollur með súkku- laði en heldur eru börnin Grímsey | Hér í nyrstu byggð er bolludagurinn frábrugðinn bolludögum annars staðar á landinu. Það hefur verið til siðs í marga áratugi að skóla- börnin öll sem eitt rífa sig upp úr heitum rúm- unum um miðja nótt til að fara á bæina og „bolla“. Ástæðan fyrir því að svo snemma er lagt af stað er sú, að börnin vilja ná í sjómenn- ina áður en þeir sigla út. En oft er fótaferð þeirra þetta á milli klukkan 4 og 6 á morgana. Húsin eru skilin eftir opin og börnin læðast hægt og hljótt al- veg inn að gafli. Að „flengingum“ loknum eru launin sælgæti í ýms- um myndum. Hér áður snemma á ferðinni til að hafa lyst á slíkum kræs- ingum. Morgunblaðið/Helga Mattína Guðrún Dagný, 6. bekk, Ingólfur Bjarni, 3. bekk, og Adam Helgi, 4. bekk, baka bollur í heimilisfræðitíma. Öðruvísi bolludagur Á villibráðarkvöldi íMývatnssveit sendiJóhannes Sig- mundsson frá Syðra- Langholti vísu á næsta borð til starfsmanna Bað- lónsins, m.a. Friðriks Steingrímssonar: Er í kringum Frikka fjör, fagrar konur, lundin ör. Hefur jafnan handtök snör hyggist einhver fækka spjör. Friðrik svaraði: Öfund Jóa ýtir við, áður þekkti líkan sið. Ellin fáum gerir grið, grái hefur sjaldan frið. Og Jóhannes: Mývatnssveitar meyjarkinn mér við blasir nú um sinn. Finn ég gráa fiðringinn fara nett um kroppinn minn. Loks Friðrik: Þó að mývetnsk meyjarkinn magni gráa fiðringinn. Bágt á ellibelgurinn bregðist holdin ekki stinn. Af villibráð pebl@mbl.is STJÓRN Samtaka um betri byggð hefur ítrekað þá ósk sína við Dag B. Eggertsson borgarfulltrúa að hann svari spurningum sem fram koma á minnisblaði sem sam- tökin sendu 20. desember í fyrra. Í minn- isblaðinu komu fram spurningar um hag- ræna úttekt og um störf stýrihóps um alþjóðlega samkeppni um Vatnsmýrar- svæðið. Þess var krafist í minnisblaðinu að borgarstjórn Reykjavíkur sliti þegar sam- starfi sínu við samgönguráðherra um framtíð flugstarfsemi í Vatnsmýri. Telja samtökin að flugstarfsemi eigi sér enga framtíð þar, enda sé fórnarkostnaður vegna hennar a.m.k. einn milljarður króna á mánuði. Hefur stjórn samtakanna nú ítrekað þá ósk sína að fá svör við spurningum sínum eins fljótt og auðið er. Ítreka beiðni um svör frá Degi Stykkishólmur | Bæjarráð og bæjar- stjórn Stykkishólmsbæjar hafa fagnað gjafatilboði Haraldar Sigurðssonar pró- fessors. Hann hefur ákveðið að færa Ís- lendingum að gjöf safn sitt varðandi eld- gos og eldvirkni og hefur nefnt Stykkishólm sérstaklega í því efni. Minnisblöð varðandi gjöf Haraldar voru nýlega lögð fyrir bæjarstjórn og bæjar- ráð. Samþykkt var bókun þar sem tilboð- inu er fagnað og bæjaryfirvöld lýsa sig reiðubúin að leggja Eldfjallasafni Íslands til viðeigandi lóð. Haraldur er prófessor í eldfjallafræði og haffræði við Háskólann í Rhode Island í Bandaríkjunum. Safnið sem hann vill gefa hefur meðal annars að geyma fræði- bækur, greinar og myndbönd auk fjöl- margra listaverka. Ríkisstjórnin hefur samþykkt að kosta heimflutning á safn- gripunum. Bjóða lóð fyrir Eldfjallasafn Íslands ♦♦♦ Barcelona er einstök perla sem íslendingar hafa tekið ástfóstri við. Heimsferðir bjóða þér nú tækifæri til að njóta vorsins í þessari einstöku borg á frábærum kjörum. Fjölbreytt gisting í boði í hjarta Barcelona. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Barcelona 23. mars frá kr. 39.990 Helgarferð Munið Mastercard- ferðaávísunina Frá kr. 39.990 Helgarferð M.v. 2 í herbergi í 3 nætur á Hotel NH Condor með morgunverði, 23. mars. Netverð á mann. Grenivík | Deiliskipulag fyrir frístunda- byggð ofan Grenivíkur er nú á lokastigi og verður það auglýst innan fárra daga. Á skipulaginu eru 19 lóðir á svæði sem nefnt verður Sunnuhlíð. Nú þegar eru 9 lóðir fráteknar en ekki fer fram formleg út- hlutun fyrr en afgreiðslu á deiliskipulaginu er lokið. Frístundabyggð ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.