Morgunblaðið - 28.02.2006, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
AUSTURLAND
Aukin fjárveiting | Á fundi sam-
starfsnefndar um sameiningu
Austurbyggðar, Fáskrúðsfjarðar-
hrepps, Fjarðabyggðar og Mjóa-
fjarðarhrepps og Árna Magnús-
sonar félagsmálaráðherra fyrir
skemmstu var greint frá því að jöfn-
unarsjóður sveitarfélaga hefði sam-
þykkt auknar fjárveitingar til hins
nýja sveitarfélags. Ákveðið var í
haust að sameina sveitarfélögin og
gengur það í gildi í vor. Mun jöfn-
unarsjóður veita 41 milljón króna til
stjórnsýslu og endurskipulagningar
þjónustu í nýja sveitarfélaginu, auk
5,6 milljóna króna framlags vegna
undirbúnings og framkvæmdar
sameiningarkosninganna sl. haust.
Íþróttahöll rís | Byrjað er að reisa
stálvirki Fjarðabyggðarhallarinnar
á Reyðarfirði, nýs íþróttahúss sem
Fjarðabyggð
byggir í sam-
vinnu við Alcoa.
Verkið er á áætl-
un og stefnt er á
vígslu hallarinnar
við lúðrablástur í
vor. Búnings-
klefum í kjallara
núverandi
íþróttahúss verð-
ur fjölgað og byggður tengigangur á
milli íþróttahúss og hallarinnar.
Sveinbjörn Sigurðsson ehf. er aðal-
verktaki við höllina.
Reyðarfjörður | Járnsmiðjan Ham-
ar á Eskifirði valsar nú yfir 90.000
fermetra af þakklæðningu fyrir nýtt
álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði.
Björn S. Lárusson, samskipta-
stjóri hjá Bechtel, segir klæðningu
álversins einn stærsta verkhlutann
við Fjarðaálsverkefnið og það sem
mun vera mest áberandi á álvers-
svæðinu við lok framkvæmda. Því
þurfi klæðningin að líta vel út og
standast það veðurfar sem Ísland
býður upp á, úr sterku og ending-
argóðu áli.
Þakklæðningin kemur á álvers-
svæðið í rúllum sem eru svo fluttar á
verkstæði á Eskifirði. Hamar valsar
síðan álið á þakklæðninguna í sam-
starfi við framleiðandann, Alumasc,
en það eru samtals yfir 90.000 fer-
metrar af klæðningu. Fyrsta verk-
stæðið var tekið í notkun í júní 2005
og mun þakklæðning verða völsuð á
Eskifirði fram á haust. Að jafnaði
vinna 6–8 manns við völsunina. Álið
er fest þannig á þakið að engin göt
eru gerð á álið heldur eru plöturnar
læstar saman á samskeytunum. Nú
hefur verið lokið við að festa 25% af
þakklæðningunni á kerskálana.
Klárar í flutning Þakeiningar tilbúnar utan á nýtt álver í Reyðarfirði.
90 þúsund fermetrar
valsaðir á Eskifirði
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Hráefnið Kevan Latham, yfirmaður Alumasc á Íslandi.
Neskaupstaður | Árleg karnivalganga nemenda í Verk-
menntaskóla Austurlands var sl. fimmtudag en þá komu
allar deildir skólans saman og fóru í göngu í þéttbýlis-
kjörnum Fjarðabyggðar, um Eskifjörð, Reyðarfjörð og
Neskaupstað. Nemendur og kennarar eru jafnan fag-
urlega skreyttir hinum ýmsum litum og þemað breyti-
legt eftir deildum. Ýmis slagorð eru rituð á spjöld sem
nemendur ganga með þar sem hinar ýmsu deildir takast
á. T.d. mátti sjá slagorð eins og: „félagsfræði er fáfræði“
og „náttúrufræði er fyrir einmana frímerkjasafnara“.
Náttúrufræði fyrir einmana
frímerkjasafnara
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Sími 462 3505.
Opið virka daga 10-18,
laugardaga kl. 10-16.
NÝTT
stuttkápur, stakir jakkar,
pils, bolir og toppar
„ÞETTA er grábölvað ástand, við vitum það en
erum í nokkurri klemmu með þetta,“ segir Birgir
Guðmundsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á
Norður- og Austurlandi. Nú fyrir skömmu var
öxulþungi bifreiða um Eyjafjarðarbraut eystri
takmarkaður við 7 tonn. Það þýðir að þunga-
flutningar hafa lagst af um veginn, verktakar
sem eru með stór verkefni í Naustahverfi komast
þar af leiðandi ekki eftir efni í námur sem eru í
Eyjafjarðarsveit, við Hól, Þverá og Skálpagerði.
Samningar sem þeir hafa gert eru því í uppnámi.
„Við vitum að ástandið er hrikalegt, það er
ástæðan fyrir því að við þurfum að grípa til
þessa,“ segir Birgir, en ástand vegarins hefur
farið síversnandi undanfarna daga. „Þetta hefur
farið snarversnandi, vegurinn er allur þver-
sprunginn sem þýðir að hann hefði allur farið í
tætlur hefðum við leyft þessa þungaflutninga
áfram.“ Birgir segir að líka þurfi að hugsa um
aðra umferð um þennan veg, en um er að ræða
kafla frá Leifsstöðum og inn á námunum við
Þverá. Vegurinn væri gamall, lagður fyrir löngu
og hann þyldi einfaldlega ekki þessa umferð.
Birgir segir að fyrirhugað sé að fræsa veginn
allan upp næsta sumar og styrkja hann. Lítið
væri hægt að gera einmitt núna, „meðan hann
hangir í og við núllið og allt er rennandi blautt
undir er ekki þorandi að hleypa þungaumferð á
veginn. Hann myndi eyðileggjast gersamlega.“
Hins vegar ef þornaði og bleytan færi úr eða þá
að frysi alveg yrði ef til vill hægt að laga veginn
til bráðabirgða. Einn galli til viðbótar væri sá að
olíurnar, asfaltið sem notað er til að binda efnið
saman með virkaði ekki ef hiti er undir 5 gráð-
um, þá yrði ekki almennileg viðloðun í efninu.
„Meginmarkmiðið er að styrkja veginn í sumar
og það er búið að taka frá peninga í það verk-
efni,“ segir Birgir.
Vegurinn verður
styrktur í sumar
Laganemar | Laganemarnir fimm í liði Háskól-
ans á Akureyri, sem eru á leið í úrslit alþjóðlegu
Jessup málflutningskeppninnar, flytja styttar út-
gáfur af erindum sínum sem þau hafa undirbúið
fyrir málflutningskeppnina í Washington. Erindin
verða flutt í stofu L201 kl. 12 í dag, þriðjudag.
ÞAÐ urðu fagnaðarfundir á Ak-
ureyrarflugvelli síðdegis í gær
þegar skíðakonan Dagný Linda
Kristjánsdóttir kom í heimabæ
sinn eftir að hafa tekið þátt í vetr-
arólympíuleikunum í Torino á
Ítalíu.
Kata systir, Katrín Kristjáns-
dóttir, varð fyrst til að hlaupa upp
um háls stóru systur og síðan
kom röðin að móðurömmunni,
Guðbjörgu Önnu Árnadóttur, en
kærastinn, Valur Ásmundsson,
beið hógvær þar til röðin kom að
honum. „Við sögðum honum að
hann mætti vera með henni í
kvöld,“ sagði Tómas Ingi Jóns-
son, formaður Skíðafélags Ak-
ureyrar, en félagsmenn fjöl-
menntu á völlinn til að taka á móti
Dagnýju Lindu. Árangur hennar
á leikunum þykir einkar góður, en
hún hefur lítið getað æft í vetur
vegna meiðsla í hné.
Afreks- og styrktarsjóður Ak-
ureyrarbæjar hefur styrkt skíða-
konuna undanfarin tvö ár, greiðir
henni 50 þúsund krónur á mán-
uði.
Samþykkt var í gær að fram-
lengja gildandi samning, en sá
sem fyrir var gilti þar til nú að
loknum Ólympíuleikum. „Við vilj-
um gjarnan sýna henni þann
sóma sem hún á skilið,“ sagði
Kristinn Svanbergsson, deild-
arstjóri íþrótta- og tóm-
stundadeildar Akureyrarbæjar.
„Við vildum verða fyrri til, bjóða
henni framhald á þessum samn-
ingi, en hann er opinn þannig að
hann gildir ekki til ákveðins tíma,
heldur fer eftir hennar áætlunum
og þeim stórmótum sem hún taka
þátt í á næstunni.“
Kristinn kvaðst afar stoltur af
Dagnýju Lindu, árangur hennar
á leikunum hefði verið stórkost-
legur, „hún sýndi framúrskarandi
árangur, við erum mjög ánægð
með hana. Þetta er frábært“.
Aðrir ólympíufarar komu einn-
ig til Akureyrar í gær, skíða-
mennirnir Kristján Uni Ósk-
arsson, Björgvin Björgvinsson og
Sindri Már Pálsson.
Afreks- og styrktarsjóður framlengir samning við Dagnýju Lindu Kristjánsdóttur
Hún sýndi framúrskarandi árangur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Katrín, systir Dagnýjar Lindu, hljóp fyrst allra á móti stóru systur og faðmaði hana að sér í flugstöðinni.
Velkomin heim! Unnusti Dagnýjar Lindu, Valur Ás-
mundsson, var ánægður með að fá hana heim.
Stoltir foreldrar. Kristján Vilhelmsson og Kol-
brún Ingólfsdóttir með Dagnýju Lindu í gær.