Morgunblaðið - 28.02.2006, Síða 19

Morgunblaðið - 28.02.2006, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 19 MINNSTAÐUR Auglýsendur! Þið eigið stefnumót við áhugavert fólk - lesendur Tímarits Morgunblaðsins. Tímarit Morgunblaðsins er mest lesna tímaritið í áskrift á Íslandi. Því er dreift í 60 þúsund eintökum með sunnudagsblaði Morgunblaðsins til lesenda um land allt. Allar nánari upplýsingar veita Sigrún Sigurðardóttir í síma 569 1378 eða sigruns@mbl.is, og Bylgja Björk Sigþórsdóttir í síma 569 1142 eða bylgjabjork@mbl.is LANDIÐ SUÐURNES Keflavík | „Já, mér finnst þetta mikill heiður. Mér fannst ég varla tilbúinn í þetta en varð stoltur þegar Bjarni Páll Tryggvason fé- lagsforingi tilnefndi mig,“ segir Kristinn Guðmundsson sem var kosinn aðstoðarfélagsforingi á að- alfundi skátafélagsins Heiðabúa á Suðurnesjum. Kristinn tók við embættinu af móður inni, Hrafn- hildi Atladóttur, sem ekki gaf kost á sér áfram. Kristinn er jafnframt starfs- maður Heiðabúa í hlutastarfi. „Í starfinu hef ég sinnt félagsmál- unum sem eru mjög á könnu að- stoðarfélagsforingja. Ég hef því í raun verið að vinna hluta af þeim störfum sem fylgja embættinu,“ segir Kristinn. Starfið felst í því að sjá um að fundir gangi vel fyrir sig og almennt að félagið gangi, auðvitað í samvinnu við fé- lagsforingjann. Lærði margt nýtt Kristinn hefur verið skáti frá tólf ára aldri, eða í tæp tíu ár. Hann hefur farið mikið á skátamót erlendis og aflað sér menntunar og hefur náð æðstu foringjagráðu skátahreyfingarinnar sem nefnd er Gilwell. „Þótt ég hafi verið bú- inn að vera lengi í skátunum lærði ég margt nýtt í foringjaþjálf- uninni, til dæmis um hugmynd- irnar að baki skátastarfinu. Við fáum mikið af erfiðum krökkum til okkar, til dæmis krökkum með at- hyglisbrest, og þau blómstra hjá okkur. Það er vegna þess að þau fá verkefni við hæfi en eru ekki sett til hliðar eins og algengt er í íþróttunum. Í skátunum fá þau hlutverk með ábyrgð, fyllast stolti yfir því og sinna sínu. Þá geta fundirnir gengið. Þetta mætti gjarnan taka upp í skólunum,“ segir Kristinn. Auk starfsins með Heiðabúum hefur hann haft um- sjón með tilteknum námskeiðum á vegum Bandalags íslenskra skáta. Hann segist hafa fengið dýr- mæta reynslu í skátastarfinu og lært sjálfstæða hugsun og stjórn- un. Hann fór til dæmis á al- þjóðlegt skátamót í Chile, án for- eldranna, þegar hann var þrettán ára og hefur farið á mörg slík mót. „Það er fyrst og fremst skemmtilegt en um leið lærdóms- ríkt að fara á þessi mót. Maður kynnist mörgum og lærir heil- mikla sálfræði. Ef allir íbúar heimsins væru skátar væru vanda- málin færri. Okkur er til dæmis kennd virðing fyrir öðrum kyn- þáttum og trúarbrögðum,“ segir Kristinn. Um hundrað manns eru í Heiða- búum. Félagið er upprunalega stofnað í Keflavík en hefur nú deildir í Njarðvík, Garði og Sand- gerði. Kristinn segir að starfið sé öflugt en félagsmenn mættu vera fleiri. Um helgina voru vígðir þrjátíu ylfingar. Auk Kristins kom Ágúst Þór Guðmundsson nýr inn í varastjórn Heiðabúa á aðalfundinum og tók hann við af Bergþóru Ólöfu Björnsdóttur sem ekki gaf kost á sér til endurkjörs. Stjórnina skipa, auk Kristins, þau Bjarni Páll Tryggvason félagsforingi, Ásbjörn Jónsson gjaldkeri, Vilborg Norð- dahl ritari, Guðrún Häsler með- stjórnandi og Ragnhildur Ingólfs- dóttir meðstjórnandi. Kristinn Guðmundsson tók við af móður sinni sem aðstoðarfélagsforingi skátafélagsins Heiðabúa Ljósmynd/Bibbi Ylfingar Tæplega þrjátíu ylfingar voru vígðir í Keflavíkurkirkju. Krakkarnir blómstra í starfinu hjá okkur Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Foringi Kristinn Guðmundsson er aðstoðarfélagsforingi Heiðabúa. Bárðardalur | Um sextíu manns sóttu fund sem fjallaði um virkjun Skjálfandafljóts eða nátt- úruverndun sem SUNN, samtök um náttúruvernd á Norðurlandi, boðuðu til sl. sunnudag í skólahús- inu Kiðagili í Bárðardal. Í framsöguerindi Árna Hjart- arsonar jarðfræðings um jarðfræði og vatnafar á slóðum Skjálfanda- fljóts og Suðurár kom fram að ekk- ert af þremur þekktum hraun- flóðum sem runnið hafa um Bárðardal til sjávar munu hafa átt upptök sín í Trölladyngju og var það nýtt fyrir mörgum fund- argesta. Árni taldi að lindir þær, um 20 m3/sek sem mynda Suðurá og Svartá, væru „algjört fágæti“ á heimsmælikvarða. Sigurður Á. Þráinsson, deildarstjóri í umhverf- isráðuneytinu, kynnti áform stjórnvalda um þjóðgarð norðan Vatnajökuls og áhrif hans í Bárð- ardal. Margir spurðu um þá hug- mynd. Sigurður taldi aðspurður ekki vandkvæði á að útvíkka þjóð- garðinn þannig að hann næði vest- ur í Skjálfandafljót, ef vilji heima- manna stæði til þess. Ásvaldur Æ. Þormóðsson, odd- viti Þingeyjarsveitar, fór yfir stöðu virkjanamála í sveitarfélaginu. Í máli hans kom fram að Þingeyj- arsveit á 8/15 hluta Þeistareykja- lands. Í sveitarfélaginu eru 33 heimarafstöðvar og verið er að láta athuga virkjunarmöguleika í Svartá. Í Þingeyjarsveit er hafin dreifing á heitu vatni frá Reykjum norður Fnjóskadal, hugsanlega verður veitan sú lögð alla leið til Grenivíkur. Ásvaldur gat þess að Hrafnabjargavirkjun hf., en þar er Þingeyjarsveit aðili ásamt m.a. Orkuveitum Reykjavíkur og Húsa- víkur, hefur falast eftir rann- sóknaleyfi á Skjálfandafljóti, einn- ig hefur Landsvirkjun falast eftir slíku leyfi. Fram komu í máli sumra fyr- irspyrjenda áhyggjur af flutningi Suðurár í miðlunarlón hugs- anlegrar Hrafnabjargavirkjunar, að öðru leyti kom ekki fram á fund- inum afstaða heimamanna í Bárð- ardal til virkjunar í Skjálfanda- fljóti. Morgunblaðið/BFH Fundað Frá fundinum í Kiðagili í Bárðardal um Skjálfandafljót, Sig- urður Á. Þráinsson í ræðustóli. Um sextíu manns komu á fundinn. Telur lindir Suð- urár og Svartár „algert fágæti“ Eftir Birki Fanndal Haraldsson Húsavík | „Þetta er allt annað og betra,“ sagði Haukur Eiðsson þar sem hann var að landa og átti við nýjan og stærri löndunarkrana sem settur hefur verið upp við Húsavíkurhöfn. Haukur er skipstjóri á Karólínu ÞH sem er annar tveggja yfirbyggðu línusmábátanna sem bættust í hús- víska flotann á síðasta ári og var fyrirsjáanlegt að bæta þyrfti aðstöðuna vegna þeirra. Haukur segir þá á Karólínu hafa fiskað ágætlega að undanförnu og t.a.m. fengið upp í 9–10 tonn í róðri. „Við höfum m.a. verið að róa út undir Grímsey, lagt lín- una í Flugvélapyttinn svokallaða, suðaustur af eyj- unni,“ sagði Haukur en nafn sitt dregur pytturinn af því að þýsk njósnaflugvél hrapaði í hafið þarna á stríðs- árunum. Höfum lagt línuna í „Flug- vélapyttinn“ Morgunblaðið/Hafþór Bætt aðstaða Haukur Eiðsson við nýja kranann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.