Morgunblaðið - 28.02.2006, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
Það er mikið fagnaðarefni aðSiglingastofnun hefur núskilað raunhæfum tillögumum ferjuhöfn
á Bakkafjöru. Ég minn-
ist þess að það tók mig á
þriðja ár með fylgni að
fá Siglingastofn-
unarmenn til þess að
fallast á að það væri
raunhæft að skoða
möguleikana á að
byggja höfn gegnt Eyj-
um á Landeyjasandi, en
þá tóku þeir til óspilltra
málanna og Gísli
Viggósson, verkfræð-
ingur hjá Sigl-
ingastofnun, sagði að
þetta verkefni væri það metn-
aðarfyllsta sem Siglingastofnun hefði
fengist við. Síðan eru liðlega fjögur
ár.
Niðurstaðan verður
að byggjast á rökum
Um árabil hef ég haldið því fram að
það skipti öllu máli þegar næstu
stóru skref verða tekin í bættum
samgöngum milli lands og Eyja að
hafa raunhæfar kostnaðaráætlanir
og möguleika á þeim þremur val-
kostum sem við blasa, endurnýjun
Þorlákshafnar-Herjólfs, gerð jarð-
ganga milli lands og Eyja eða ferju-
höfn á Bakkafjöru á Landeyjasandi.
Tillögurnar um könnun og undirbún-
ing á gerð jarðganga milli lands og
Eyja og tillagan um ferjuhöfn á
Bakkafjöru eru frá undirrituðum
komnar inn á Alþingi og afgreiddar
þar jákvætt. Þess vegna er verið að
vinna í málunum nú. Til þess að geta
tekið eðlilega ákvörðun þarf að ljúka
ákveðnum grunnrannsóknum á
möguleikum jarðganga annars vegar
og ferjuhafnar hins vegar. Við vitum
um kostnað við endurnýjun Herjólfs
og allan rekstrar- og styrkjakostnað
hans. Siglingastofnun hefur lagt mik-
inn metnað í að leysa hugmyndina
um ferjuhöfn á Bakkafjöru og er að
ljúka við þriðju hönnunina sem sér-
fræðingar stofnunarinnar telja fram-
bærilegasta og framkvæmanlega
þótt nokkrar rannsóknir og mæl-
ingar eigi eftir að gera á líklega eins
árs tímabili. Það er heldur engin
spurning að vinna Siglingastofnunar í
þessu máli er í höndum einhvers fær-
asta hafnargerðarhönnuðar í heimi,
Gísla Viggóssonar
verkfræðings.
Vegagerðin hefur
dregið lappirnar
með ólíkindum
Annað er að segja
um vinnubrögð Vega-
gerðarinnar og sam-
gönguráðuneytisins
sem hafa dregið lapp-
irnar sí og æ í jarð-
gangamálinu. Til að
mynda hefur Vega-
gerðin aldrei sagt sitt
álit sjálf þótt þar á bæ
séu afburða sérfræðingar eins og t.d.
dr. Hreinn Haraldsson. Vegagerðin
hefur alltaf valið að vera í skjóli mis-
viturra „sérfræðinga“, helst erlendra,
eins og dæmin sanna. Vegagerðin
lýsti því yfir fyrir nokkrum árum að
það færi ekki á milli mála að það væri
hægt að gera jarðgöng milli lands og
Eyja og lagði þá fram framreiknaðar
tölur frá gerð Hvalfjarðarganga.
Slíkt er ekki góð viðmiðun vegna
snarbreyttrar tækni og þróunar í
gerð jarðganga, en samkvæmt þeim
framreikningi áttu göngin að kosta
23–24 milljarða króna. Þá létu Æg-
isdyr í Vestmannaeyjum Hag-
fræðistofnun Háskóla Íslands gera
úttekt á því hvað Eyjagöng mættu
kosta til að vera þjóðhagslega hag-
kvæm. Niðurstaðan var um 30 millj-
arðar króna og var þó ýmislegt já-
kvætt látið liggja óbætt hjá garði, svo
sem nærri sólarhrings stytting á sigl-
ingarleiðinni milli Íslands og meg-
inlands Evrópu, og m.a. auðveldari
leið rafstrengja og vatnsleiðsla til
Eyja. Þá kallaði Vegagerðin í sam-
krulli við samgönguráðherra eftir
áliti frá bresku ráðgjafarfyrirtæki
sem fékk íslenskt verktakafyrirtæki
til að skrifa undir með sér að göng
milli lands og Eyja myndu kosta 31
milljarð króna og það væri aðeins
hægt að vinna göngin frá fastaland-
inu vegna veðurs í Vestmannaeyjum,
takið eftir, vegna veðurs í Vest-
mannaeyjum.
16 milljarða kostnaðu
Þegar þarna var komið
ir að opinbera kerfið virti
sem tautaði og raulaði að
Eyjagöngin til „andskota
um við á stúfana nokkrir
og leituðum álits færustu
inga heima og heiman. E
hluta vegna vildu íslensk
ingarnir ekki opinbera í s
upplýsingar sínar þótt þe
mér að Eyjagöng þyrftu
kosta krónu meira en 20 m
Eftir skoðun sérfræðinga
um var endahnykkurinn
samstarfi við sérfræðing
skandinavíska verktakaf
NCC og norska sérfræði
irtækisins Multiconsult a
manna sem eru að vinna v
um heim, manna sem set
allar rannsóknir sem hafa
ar á Vestmannaeyjasvæð
mikla vinnu í ráðgjöfina o
sem þeir veittu okkur. Þe
sjálfsögðu ekki með nein
það er alveg ljóst að þeir
verið að leika sér og hafa
fullkomnum heiðarleika o
Þetta eru Svein Erik Kri
verkfræðingur og verkef
NCC, sem hefur til að my
að gerð tvennra jarðgang
eyjum undanfarin ár og S
lindhaug jarðverkfræðin
Multiconsult avd Noteby
göngin kosta 16 milljarða
+/- 20% með tilliti til ran
þyrfti að vinna, kjarnabo
ari hljóðbrotsmælingum
gerði sl. sumar. Kílómetr
eyjagöngunum kostar um
ísl. króna með öllu, en áæ
Eyjagöngunum hljóðaði
700 millj. kr. á km vegna
stæðna. 16 milljarða áætl
Valkostirnir Eyjagöng
Bakkaferjuhöfn eða ný
Þorlákshafnar-Herjólfu
Eftir Árna Johnsen ’Það þýðir ekki abyggja á spádóm
metnaðarlausra „
manna“. Hér eru
munir Suðurland
húfi og landsins í
Árni Johnsen
Í HÓP 100 BEZTU?
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Há-skóla Íslands, sagði í ræðu sinnivið útskrift stúdenta um síðast-
liðna helgi að skólinn ætti að stefna að því
að komast í hóp hundrað beztu háskóla
heims. Ísland væri nú eina norræna ríkið,
sem ekki ætti háskóla í þeim hópi.
Rektor nefndi réttilega að til þess að
Háskóli Íslands kæmist í þennan hóp
skiptu gæði kennslu og árangur í vísinda-
starfi og doktorsnámi meginmáli. Kristín
rifjaði upp að Háskólinn hefði lagt grunn
að öflugu doktorsnámi, en nú yrði að
stíga stórt og ákveðið skref í eflingu þess
og annars vísindastarfs við skólann.
Gylfi Magnússon, forseti viðskipta- og
hagfræðideildar HÍ, sagði í hádegisfrétt-
um Ríkisútvarpsins í gær að markmið
rektors væri gott, en ekki raunhæft við
núverandi aðstæður. Tekjur Háskólans
þyrftu að aukast til mikilla muna, ætti
hann að standa jafnfætis þeim skólum,
sem eru á listanum yfir 100 beztu háskóla
heims. Viðskiptadeildin og lagadeildin
hafa farið fram á heimild til að leggja á
skólagjöld í meistaranámi til að bæta upp
fyrir ónóg framlög frá ríkinu.
Innan Háskóla Íslands ríkir engin
samstaða um það hvort taka beri upp
skólagjöld við skólann umfram það, sem
nú er gert, eða ekki. Það verður þó ekki
annað séð en að þetta verði skólinn að
gera upp við sig, vilji hann stefna að því
að verða einn af 100 beztu háskólum
heims.
Háskólinn á í samkeppni bæði innan-
lands og við erlenda háskóla. Hér heima
hefur hann eignazt nýja keppinauta, sem
fá svipuð framlög til kennslu frá ríkinu og
HÍ, en leggja þar að auki á skólagjöld.
Þannig hafa þessir skólar aukið tekjur
sínar, getað ráðið góða kennara og búið
nemendum góða aðstöðu. Mikil aðsókn er
að þessum skólum og nemendur setja
skólagjöld ekki fyrir sig, enda lánar
Lánasjóður íslenzkra námsmanna þeim
fyrir þeim. Halda má því fram að í ýms-
um tilvikum sæki nemendur einmitt í
nám, þar sem greiða þarf skólagjöld,
vegna þess að þeir telja að með því að
borga fái þeir betri menntun.
Ef Háskóli Íslands ætti að fá miklu
hærri ríkisframlög til kennslu á hvern
nemanda en hinir einkareknu keppinaut-
ar hans hér innanlands, án þess að taka
upp skólagjöld, væri það auðvitað alger-
lega óviðunandi staða fyrir síðarnefndu
skólana og þá, sem þar stunda nám.
Það virðist þess vegna miklu nærtæk-
ara, vilji Háskóli Íslands auka tekjur sín-
ar í því skyni að laða að sér hæfustu
kennarana og komast í fremstu röð, að
þar verði innheimt skólagjöld með svip-
uðum hætti og í sjálfstæðu háskólunum.
Eins og Morgunblaðið hefur margoft
fært rök fyrir er ekki vegið að jafnrétti til
náms með slíkri gjaldtöku, að því gefnu
að lánað sé fyrir skólagjöldunum.
Með því að innheimta skólagjöld, sem
væru e.t.v. á bilinu 100–200 þúsund krón-
ur á nemanda, eins og Gylfi Magnússon
nefndi í fréttum Útvarps, stæði skólinn
betur að vígi gagnvart erlendum keppi-
nautum á listanum yfir 100 beztu há-
skólana, sem margir hverjir innheimta
skólagjöld – og flestir miklu hærri fjár-
hæðir.
Háskólinn þarf aukinheldur að gefa
meiri gaum öðrum fjáröflunaraðferðum;
samstarfi við fyrirtæki, sem Kristín Ing-
ólfsdóttir nefndi í ræðu sinni, og ekki síð-
ur að virkja þá auðlind, sem býr í fyrrver-
andi nemendum. Víða erlendis eru þeir
drjúg tekjulind fyrir háskóla.
Sömuleiðis þarf Háskóli Íslands að
íhuga þá spurningu, sem sett var fram í
úttekt á gæðum rannsókna við skólann í
fyrra, hvort það fari saman að ætla að
vera rannsóknaháskóli í fremstu röð ann-
ars vegar og að taka hins vegar inn alla,
sem náð hafa stúdentsprófi, án tillits til
þess hvernig þeir stóðu sig.
Þannig er markmið háskólarektors
gott og verðugt, en hún þarf að svara því
hvernig hún ætlar að ná því án þess að
gera þessar tvær meginbreytingar á ann-
ars vegar fjármögnun skólans og hins
vegar vali nemenda.
FRIÐARSÚLA YOKO ONO
Gengið hefur verið frá samkomulagium að Yoko Ono reisi friðarsúlu á
Íslandi og vill hún að súlan rísi í Viðey.
Ono segist jafnframt stefna að því að
haldin verði friðarhátíð vikuna í kring-
um afmælisdag Johns Lennons, 9. októ-
ber, og að á tveggja ára fresti verði
veittur friðarstyrkur á afmæli hans.
Þetta eru mikil áform. Yoko Ono er
einn virtasti listamaður samtímans.
Boðskapur hennar hefur ávallt verið
einfaldur. Hún hefur verið boðberi frið-
ar í heiminum. Hún lætur ekki slá sig út
af laginu þegar gengið er á hana um það
hvort sá boðskapur sé raunhæfur eða
jafnvel barnalegur, en heldur sínu
striki. Það getur þurft hörð bein til að
halda slíkum boðskap til streitu í kald-
hæðnum heimi og Ono hefur margsýnt
að hún er hörkutól með mjúkan boð-
skap. Í viðtali í Morgunblaðinu í gær
spyr Pétur Blöndal hana um hugsjón-
irnar: „Já, en sjáðu til, við erum öll að
hugsa fyrir framtíðinni. Og það sem við
hugsum, það gerist. Þess vegna verðum
við að fara varlega í slíkar hugleiðingar.
Margir friðarsinnar segja: Ekki meira
stríð, stríð, stríð, stríð og við hugsum
stríð þegar þeir segja þetta. Nú verðum
við að byrja að segja friður. Og hugsa
framtíðina út frá friði, en ekki stríði.“
Ono virðist sneiða hjá pólitískum mál-
efnum samtímans í viðtölum og tjá sig
fremur almennt en fjalla um einstök
málefni. Friðarstyrkurinn hefur hins
vegar verið notaður til að vekja athygli á
einstökum málefnum eins og sást þegar
hann var veittur síðast, annars vegar
Mordechai Vanunu, sem var settur í
fangelsi í Ísrael fyrir að segja frá því að
Ísraelar hefðu smíðað kjarnorku-
sprengju, og hins vegar Seymour
Hersh, sem skýrði frá pyntingum fanga
í Abu Ghraib í tímaritinu New Yorker.
Á friðarsúluna er ráðgert að greyptar
verði ljóðlínur úr lagi Johns Lennons,
Imagine, þar sem hann biður fólk að
ímynda sér heim þar sem allir búi í sátt
og samlyndi, og úr friðarboðskap henn-
ar um að draumur, sem fólk dreymi
saman, sé raunveruleiki. Í súluna
hyggst Ono safna friðaróskum, sem hún
ætlar að fá fólk til að senda til Íslands.
Jafnframt hyggst hún fá fólk til að koma
til Íslands í pílagrímsferð á hátíð í þágu
friðar: „Já, ástæðan er sú að við verðum
öll að gera okkar besta til að komast af.
Mannkynið er á góðri leið með að tor-
tíma sjálfu sér og öllu jarðlífi. Til þess
að komast hjá slíkum hörmungum verð-
ur að eiga sér stað hugarfarsbreyting;
við verðum að opna huga okkar 100 pró-
sent til að geta ráðið bót á þessu.“
Það yrði sannur heiður að fá listaverk
Yoko Ono hingað. Ekki aðeins vegna
þess orðspors, sem af listamanninum
fer, heldur einnig vegna þess, sem hún
boðar. Í heimi samtímans eru viðsjár
miklar og boðskapur friðarins á erindi
sem aldrei fyrr.
Engar grundvallarbreyt-ingar hafa átt sér staðfrá því í október á síð-asta ári sem kalla á
breytingar á horfum á lánshæf-
iseinkunn ríkissjóðs, að mati al-
þjóðlega matsfyrirtækisins Stand-
ard & Poor’s. Fyrirtækið hefur
enn áhyggjur af sívaxandi skuld-
um íslenska hagkerfisins og mikl-
um viðskiptahalla.
Þetta sagði Kai Stukenbrock,
sérfræðingur fyrirtækisins um Ís-
land, í samtali við Morgunblaðið í
gær. Í október sendi Standard &
Poor’s frá sér tilkynningu þar
sem lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs
voru staðfestar. Þá kom einnig
fram að það væri mat fyrirtæk-
isins að horfur væru áfram stöð-
ugar.
Síðastliðinn þriðjudag tilkynnti
matsfyrirtækið Fitch Ratings um
óbreytta lánshæfiseinkunn rík-
issjóðs, en tekið var fram að horf-
um væri breytt úr stöðugum í nei-
kvæðar.
Í Morgunblaðinu síðastliðinn
föstudag var haft eftir Kristin
Lindow, sérfræðingi hjá matsfyr-
irtækinu Moody’s, að fyrirtækið
hefði ekki séð ástæðu til að
breyta horfum á lánshæfismati
ríkissjóðs. Tæpur mánuður er síð-
an Moody’s staðfesti hæstu ein-
kunn fyrirtækisins fyrir
ríkið.
Þessi þrjú fyrirtæki; S
Standard & Poor’s
Standard & Poor’s telur að engar grundvallarbreytingar hafi á
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is