Morgunblaðið - 28.02.2006, Síða 32

Morgunblaðið - 28.02.2006, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ BAUGSMÁL öryggi annarra einstaklinga og rannsókn- araðferðir rannsóknarlögreglu kunna að rétt- læta takmörkun upplýsingagjafar. Hins vegar hefur dómstóllinn gert það ljóst að „einungis þær takmarkanir á rétti varnaraðila sem eru algerlega nauðsynlegar séu heimilar skv. 1. mgr. 6. gr.“ Af því leiðir að eftir eðli þeirra rafrænu upp- lýsinga sem haldið var frá sakborningum af ríkislögreglustjóra kynni slík synjun um upp- lýsingar að varða við 6. gr. skv. jafnræðisregl- unni. Það mundi t. d. líklega eiga við ef upplýs- ingarnar sem haldið er eftir leiða í ljós annmarka á ákærunni eða aðrar aðstæður eða upplýsingar sem kynnu að breyta Baugsmál- inu sakborningum í hag. Ef upplýsingarnar sem synjað var um reyndust ekki mikilvægar mundi synjunin ekki hafa áhrif á rétt sakborn- inga til jafnræðis skv. 6. gr. Upphafleg synjun og tafir af hálfu ríkislögreglustjóra kynnu hins vegar að hafa áhrif á heildarmat skv. 6. gr. Taka ber fram að varnaraðilum er skylt að neyta allra viðeigandi úrræða til þess að tryggja afhendingu upplýsinga, því annars er ekki um brot gegn 6. gr. að ræða. Ef íslenskur réttur gerir ráð fyrir rétti sakborninga til þess að kæra hina takmörkuðu upplýsingagjöf fyrir íslenskum dómstólum ætti að grípa til þeirra úrræða svo fljótt sem auðið er. Til viðbótar við þá synjun um upplýsingagjöf sem lýst er hér að framan hafa sakborningar ekki fengið í hendur nein gögn þar sem skýrt er hvers vegna ríkislögreglustjóri flutti málið til ríkissaksóknara. Né heldur er sakborn- ingum kunnugt um á hvaða grunni rík- issaksóknari sé að endurskoða málið. Að rík- issaksóknara skuli heimilt að ráðast í endurskoðun án þess að sakborningar fái nein- ar upplýsingar veldur því að sakborningar standa verulega höllum fæti gagnvart rík- issaksóknara, þar sem það er í raun ógerlegt fyrir sakborninga að undirbúa málsvörn sína svo árangursríkt sé. Ennfremur er til þess að líta að ef nýjar ákærur eru lagðar fram munu sakborningar standa frammi fyrir því að halda uppi vörnum í tveimur málaferlum (ákærulið- um 1–32 í breyttri mynd og ákæruliðum 33– 40), sem einnig dregur úr áhrifamætti máls- varnarinnar. Líklegt er að sú staðreynd að ríkislög- reglustjóri hefur nú látið í té megnið af hinum rafrænu upplýsingum hafi bætt úr hvers kyns broti gegn 6. gr. sem kann að hafa leitt af upp- haflegri synjun um upplýsingar, nema upplýs- ingarnar hefðu ráðið úrslitum fyrir sakborn- inga á þeim tíma sem beiðni var upphaflega lögð fram og að synjunin hafi alvarlega skert möguleika sakborninga til þess að halda uppi árangursríkum vörnum. Hin upphaflega og að því er virðist tilefnislausa synjun af hálfu rík- islögreglustjóra kann að koma til skoðunar við heildarmat á málinu skv. 6. gr. Líklegt er að brot gegn jafnræðisreglunni skv. 6. gr. krefðist nýrrar málshöfðunar án þess að ríkissaksóknari bætti í raun úr ann- mörkunum á rannsókninni, þ.e.a.s. veitti varn- araðilum aðgang að öllum viðeigandi gögnum, upplýsti þá tímanlega um nýjar ákærur, o.s.frv. D. Reglan um sakleysi uns sekt er sönnuð Samkvæmt þeim gögnum sem hafa verið lát- in okkur í té hefur Björn Bjarnason dóms- málaráðherra bæði fyrir rannsóknina á sak- borningum og meðan á henni stóð, tjáð sig opinberlega um Baugsmálið. Í ummælum Björns Bjarnasonar er að finna yfirlýsingar sem mætti túlka svo að þær lýsi skoðun um sekt sakborninga. Samkvæmt þeim gögnum sem okkur voru látin í té tjáði Björn Bjarnason sig sérstaklega um álitaefni Baugsmálsins og skoðanir hans á félaginu. Nokkur dæmi eru um að ráðherra hafi tjáð sig um sakamálið: „Hvers vegna allt þetta fjaðrafok um mál, sem er nú til meðferðar í dómstólakerfinu? Er hugsanlegt að einhverjir viðskiptajöfr- anna á Íslandi telji sig hafna yfir lögin?“ „Þetta eru áleitnar spurningar eftir orra- hríðina og herferðir Baugsmiðlanna í þágu eigenda sinna. Ef svarið við síðari spurning- unni er „já“ er vá fyrir dyrum – því að í sið- menntuðum þjóðfélögum eru viðskiptajöfrar ekki hafnir yfir lögin. Þeir verða að lúta lög- um og rétti – þess vegna eiga kjörnir fulltrú- ar og dómstólar síðasta orðið; þess vegna er óhjákvæmilegt að leggja rækt við stjórnmál. Jóhannesi Jónssyni og Jóni Ásgeiri Jóhann- essyni tókst ekki að bola Styrmi Gunn- arssyni úr starfi ritstjóra …“ „Fréttablaðið og aðrir Baugsmiðlar hafa lent í hremmingum vegna ákæra á hendur eig- endum miðlanna. Fer Fréttablaðið ekki var- hluta af þessu og sömu sögu er að segja um DV, eins og ég rakti í síðast pistli mínum. Til marks um kattarþvott Fréttablaðsins vegna gagnrýni á blaðið má vísa til þess … Af hverju sneri Sigríður Dögg sér aðeins til Gunnars Steins við fréttaskýringu sína? Hún hefði til dæmis getað kallað til annan mann með mikla reynslu af almannatengslum, Hall Hallsson, sem segir meðal annars í Morg- unblaðinu 27. ágúst: „Af óskiljanlegum ástæðum kusu Baugsfeðgar að saka Davíð Oddsson um að standa á bak við innrás lög- reglu í Baug. Þannig hafa þeir skaðað ís- lenskt þjóðlíf en Baug þó mest. Ásakanir þeirra eru án vafa versta „public-relations“ í íslenskri viðskiptasögu.“ (Birt á bjorn.is 27. ágúst 2005) „Viðskiptaveldið ætlar sem sagt að nota fjár- muni sína til að hafa áhrif á efnistök Morg- unblaðsins. Að hugsa á þennan veg um rit- stjórn annarra miðla segir allt, sem segja þarf, um viðhorf sömu manna til ritstjórnar á eigin miðlum og hverjum þeir eigi að þjóna.“ (Birt í Þjóðmálum haustið 2005) „Stórfrétt dagsins er að sjálfsögðu nið- urstaða Hæstaréttar í kærumálinu vegna Baugs. Réttarkerfið hefur ekki sagt sitt síð- asta orð í málinu. Lögheimildir eru til þess, að ákæruvaldið taki mið af því, sem fram hefur komið hjá Hæstarétti við frekari ákvarðanir þess.“ (Birt á bjorn.is 10. október 2005) Þetta vekur hugsanlega spurningar varð- andi regluna um sakleysi uns sekt er sönnuð, sem felst í 2. mgr. mannréttindasáttmála Evr- ópu og 2. mgr. 14. gr. alþjóðasamningsins um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Ribemont-málið Í máli Ribemont gegn Frakklandi, þar sem dómur var upp kveðinn 1995, hafði umsækj- andi verið handtekinn og ákærður um hlut- deild í manndrápi af ásetningi. Fréttamanna- fundur var haldinn daginn sem umsækjandi var handtekinn þar sem innanríkisráðherra og háttsettur lögreglumaður tjáðu sig um málið og um þátt umsækjanda. Umsækjandi hélt því fram að yfirlýsingar innanríkisráðherrans og lögreglumannsins væru brot á rétti hans skv. 2. mgr. 6. gr. Í dómsniðurstöðunni lagði dóm- urinn áherslu á regluna um sakleysi uns sekt er sönnuð og ennfremur skýrði dómurinn að gildissvið 2. mgr. 6. næði yfir meira en dóm- stólana í viðkomandi löndum og gilti einnig um framferði annarra opinberra stjórnvalda. „35. Að hver og einn skuli talinn saklaus uns sekt er sönnuð, eins og felst í 2. mgr. 6. gr. , er einn grundvallarþáttur þeirrar réttlátu málsmeðferðar í sakamáli sem gerðar eru kröfur um í 1. mgr. Sú regla telst brotin ef dómsúrskurður sem varðar einstakling sem ákærður er fyrir refsivert brot endurspeglar það álit að hann sé sekur áður en sekt hans hefur verið sönnuð að lögum. Nægir hér, jafnvel þótt formleg niðurstaða hafi ekki fengist, að rök megi færa að því að dómurinn álíti sakborning sekan. Eins og sést á því sem hér fer á eftir er gild- issvið 2. mgr. 6. gr. fremur vítt: „Gildissvið 2. mgr. 6. gr. takmarkast ekki við þær hugsanlegu aðstæður sem stjórnvöld minnast á. Dómurinn komst að þeirri nið- urstöðu að þetta ákvæði hefði verið brotið í Minelli- og Sekanina-málunum, sem þegar hefur verið vitnað til, þó að innlendir dóm- stólar hafi fellt niður fyrra málið vegna þess að fyrningarfrestur var liðinn og hafi sýknað umsækjandann í því síðara. Dómstóllinn hef- ur jafnframt talið þetta gilda í öðrum málum þar sem innlendir dómstólar þurftu ekki að skera úr um sök.“ 36. Dómstóllinn álítur að það sé ekki aðeins dómari eða dómstóll sem geta brotið gegn reglunni um sakleysi uns sekt sannast, held- ur gildi það einnig um opinber stjórnvöld. Þegar fréttamannafundurinn var haldinn var lögreglan nýbúin að handtaka Allenet de Ribemont. Þótt hann hefði ekki enn hlotið ákæru fyrir hlutdeild í manndrápi af ásetn- ingi var handtaka og gæsluvarðhald sem hann sætti af hendi lögreglu hluti af réttar- farsrannsókn sem hafist hafði nokkrum dög- um áður á vegum rannsóknardómara í París og hann því kominn í stöðu manns „sem bor- inn er sökum um refsiverða háttsemi“ í skilningi 2. mgr. 6. gr. Þeir tveir háttsettu lögreglumenn sem voru viðstaddir stýrðu lögreglurannsókn á málinu. Athugasemdir þeirra, sem gerðar voru samhliða dómsrann- sókninni og hlutu undirtektir innanrík- isráðherrans, voru útskýrðar á grundvelli þeirrar rannsóknar og tengdust henni bein- línis. Því gildir 2. mgr. 6. gr. í þessu máli.“ Að því leyti sem Björn Bjarnason tjáði sig um Baug og sakborningana (stuttu) fyrir rann- sóknina, kunna slíkar yfirlýsingar einnig að skipta máli við ákvörðun um hvort farið var að ákvæðum 2. mgr. 6. gr. Eðli og mikilvægi Baugsmálsins hefur eðli- lega vakið almenna umræðu og þótt 2. mgr. 6. gr. komi ekki í veg fyrir slíka umræðu, þar sem það færi í bága við 10. gr. mannréttinda- sáttmálans, er stjórnvöldum skylt að gæta hófs. Í Ribemont-málinu lagði dómurinn áherslu á mikilvægi slíkrar hófsemdar, sem stjórnvöldum ber að gæta til þess að virða regl- una um sakleysi uns sekt er sönnuð. „38 … 2. mgr. 6. gr. (gr. 6. 2) getur þannig ekki komið í veg fyrir að yfirvöld upplýsi al- menning um opinberar rannsóknir sem í gangi eru, en hún krefst þess að þau standi að því með allri nauðsynlegri nærgætni og varkárni svo að virtur sé rétturinn til að telj- ast saklaus uns sekt er sönnuð.“ Sú staðreynd að dómsmálaráðherra er veitt- ur rúmur ákvörðunarréttur skv. lögreglulög- um og lögum um meðferð opinberra mála, þ.m.t. eftirlitsvald yfir ákæruvaldinu, er mik- ilvægt atriði við mat á ummælum Björns Bjarnasonar. Í þessu samhengi mun sú stað- reynd að Björn Bjarnason (eftir því sem upp- lýsingar okkar herma) skipaði persónulega hinn nýja saksóknara sem ábyrgur er fyrir endurskoðun málsins af hálfu ákæruvaldsins að öllum líkindum beina aukinni athygli að um- mælum Björns í ljósi 2. mgr. 6. gr. Dimitry L. Gridin gegn Rússlandi, úrskurð- ur mannréttindanefndar frá 18. júlí 2000. Maður var ákærður fyrir nauðgun og morð. Hann var síðan fundinn sekur um ákærurnar af sýsludómstól og dæmdur til lífláts. Fjöl- mörgum áfrýjunum áfrýjanda til hæstaréttar og til embættis saksóknara var hafnað. Í des- ember 1993 var líflátsdómnum breytt í lífstíð- arfangelsi. Meðan á réttarhöldum stóð til- kynnti lögreglustjóri í sjónvarpsútsendingu að hann væri viss um að Gridin væri morðinginn. Taldi sakborningurinn að réttur hans skv. 2. mgr. 14. gr. hefði verið brotinn með fram- angreindri yfirlýsingu. Í ákvörðun sinni sagði nefndin: „8. 3 Að því er varðar þá staðhæfingu að brotið hafi verið gegn réttinum til að teljast saklaus uns sekt er sönnuð, þ.m.t. opinberar yfirlýsingar sem fengu mikla umfjöllun í fjöl- miðlum þar sem hátt settur löggæslumenn lýstu sakborning sekan, vekur nefndin at- hygli á því að Hæstiréttur vék að þessu at- riði en lét hjá líða að taka sérstaka afstöðu til þess þegar áfrýjun sakbornings var tekin fyrir í réttinum. Nefndin vísar til almennrar athugasemdar sinar nr. 13. um 14. gr. þar sem segir: „Það er því skylda allra opinberra yfirvalda að forðast að dæma fyrirfram um niðurstöðu réttarhalds. Í þessu tilviki telur nefndin að stjórnvöld hafi vanrækt að sýna þá hófsemi sem krafist er af þeim skv. 2. mgr. 14. gr. og að þannig hafið verið brotið gegn réttindum sakborningsins.“ Eins og fram kemur í þeim útdráttum sem við fengum í hendur af hinum ýmsu ummælum sem dómsmálaráðherra hafði uppi, virðist, ólíkt því sem var í Ribemont-og Gridin- málunum, sem ekki hafi verið um að ræða nein- ar beinar yfirlýsingar af hálfu dómsmálaráð- herra varðandi sekt eða sakleysi þeirra ein- staklinga sem ákærðir voru í Baugsmálinu. Hins vegar hlýtur krafa dómstólsins um „alla nauðsynlega nærgætni og varkárni svo að virt- ur sé rétturinn til að teljast saklaus uns sekt er sönnuð“ að vekja spurningu um hvort dóms- málaráðherra hafi eða hafi ekki með fjölmörg- um neikvæðum ummælum sínum um þá ein- staklinga sem hlut eiga í Baugsmálinu, bæði fyrir og eftir rannsóknina, brotið gegn rétti sakborninga til þess að teljast saklausir uns sekt er sönnuð, sbr. 2. mgr. 6. gr. Gögnin sem látin voru í té sýna að dómsmálaráðherra hafi a.m.k. þrisvar haft uppi neikvæð ummæli um Baugsmálið, sbr. tilvitnanirnar hér að framan. Við höfum einnig fregnir af nokkrum ummæl- um og yfirlýsingum dómsmálaráðherra eftir útgáfu ákærunnar, öllum með neikvæðum eða andstæðum sjónarmiðum um Baug Group. Mikilvægt er að geta þess að í Ribemont- málinu komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að brot gegn 2. mgr. 6. gr. hefði átt sér stað á grundvelli einnar yfirlýsingar þar sem innan- ríkisráðherra ásakaði umsækjanda berum orð- um í fjölmiðlum. Sambærilega afstöðu virðist mannréttindanefndin hafa tekið í Gridin- málinu, þ. e. að það var vegna einnar yfirlýs- ingar þar sem lýst var yfir sekt sakbornings sem nefndin úrskurðaði að brotið hefði verið gegn rétti hans skv. 2. mgr. 14. gr. Eins og áð- ur er getið er ekki um að ræða neina beina Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.