Morgunblaðið - 28.02.2006, Side 36

Morgunblaðið - 28.02.2006, Side 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Jón Þór Ólafssonfæddist í Reykja- vík 28. október 1968. Hann lést af skotsár- um í El Salvador 12. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans eru Guðrún Steingríms- dóttir, f. 24. mars 1940, d. 16. janúar 1982, og Ólafur Þ. Jónsson, f. 14. júní 1934. Albróðir Jóns Þórs er Steingrímur Ólafsson, f. 14. maí 1967. Kona hans er Marín Guðrún Hrafns- dóttir, f. 27. mars 1968. Systur hans sammæðra eru Gréta Björg, f. 1. nóvember 1957, og Bjarnheið- ur, f. 8. ágúst 1959, Erlendsdætur. Systkini Jóns Þórs samfeðra eru Kjartan, f. 5. október 1954, Krist- inn Magnús, f. 5. ágúst 1957, og Ingibjörg, f. 13. ágúst 1960. Börn Jóns Þórs eru Breki Þór, f. 8. nóvember 1996, og Ilmur Ösp, f. 20. september 1999. Móðir þeirra er Bryngerður Ásta Guðmundsdóttir, f. 1. janúar 1970. Þau Jón Þór slitu samvistum. Jón Þór lauk námi frá Bændaskólanum á Hvanneyri vorið 1986. Hann stundaði síðan nám í Mennta- skólanum í Hamra- hlíð. Jón Þór vann á námsárunum ýmis störf til sjávar og sveita uns hann brautskráðist sem orkutækni- fræðingur frá Tækniskóla Íslands í ársbyrjun árið 1998. Eftir það starfaði hann sem tæknifræðingur og nú síðastliðna sex mánuði hjá fyrirtækinu Enex hf. sem staðar- verkfræðingur við byggingu jarð- varmaorkuvers í El Salvador. Útför Jóns Þórs verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Síðustu dagar hafa verið undarleg- ir. Tómleiki og sorg hafa verið í huga okkar. Af hverju, af hverju? spyrjum við en auðvitað er ekkert svar. Enginn á von á svona hryllingi. Þú sem varst svo ánægður þarna í vinnunni og auð- vitað máttir þú vera það, búinn að læra til þessa starfs og hafðir traust til að hafa umsjón með þessu verki. Í síðasta samtalinu sem þú áttir við okkur pabba þinn var mikill hugur í þér því nú kæmir þú heim um 20. febr- úar í frí og þá ætlaðir þú að koma norður til Akureyrar til okkar. Og eins og þú sagðir alltaf þegar við kvödd- umst: „Vertu sæl, Dísa mín, og hugs- aðu nú vel um kallinn.“ Nú er víst að þú kemur ekki norður til okkar, vinurinn minn. En við fylgj- um þér síðasta spölinn í Fossvogs- kirkjugarð þar sem þú færð að hvíla við hlið móður þinnar sem þú misstir ungur drengur. Loks er dagsins önn á enda, úti birtan dvín. Byrgðu fyrir blökkum skugga björtu augun þín. Ég skal þerra tár þíns trega tendra falinn eld svo við getum saman, vinur syrgt og glaðst í kveld. Lífið hefur hendur kaldar hjartaljúfur minn. Allir bera sorg í sefa, sárin blæða inn. Tárin falla heit í hljóði, heimur ei þau sér. Sofna, vinur, svefnljóð meðan syng ég yfir þér. Þreyttir hvílast, þögla nóttin þaggar dagsins kvein. Felur brátt í faðmi sínum fagureygan svein. Eins og hljóður engill friðar yfir jörðu fer. Sof þú væran, vinur, ég skal vaka yfir þér. (Kristján frá Djúpalæk.) Hjartans vinurinn minn, þá kveð ég þig með þökk fyrir samveruna og vona að eitthvað sé til sem getur linað þenn- an mikla sársauka okkar ástvina þinna. Sofðu vært, elskan mín. Ég skal hugsa um karlinn. Kveðja. Svandís. Þá er víst komið að síðustu kveðju- stundinni, gamli minn. Kveðjustund sem engan óraði fyrir. Á slíkum stund- um reikar hugurinn yfir þær mörgu minningar sem varða lífsins veg – veg sem varð aldrei nema hálfkláraður. Til lítilla barna sem aldrei geta framar talið dagana þar til pabbi kemur heim með frásagnir frá ævintýrum fjar- lægra landa, kúrt sig í hálsakotið þitt eða stungið köldum og litlum lófa í stóru og hlýju hendurnar þínar. Minn- ingar frá því þegar við vorum pollar og ég var eitt sinn sendur í ísbúðina til að kaupa handa okkur ís. Ég minnist þess alltaf þegar ég missti annan ísinn og sagði að það hefði verið þinn ís sem datt. Þú varðst hinn versti en pabbi bjargaði málinu með því að kaupa ann- an ís handa þér. Allar fjöru- og skoð- unarferðirnar í Svalvogum og á Galt- arvita þar sem við hlupum undan öldunum, skoðuðum seli, æður og önn- ur undur lífsins með forvitnum augum barnsins. Hvað ég átti bágt með að viðurkenna að þú stæðir mér framar í taflmennskunni, þekktir rollur á hundrað metra færi og að þú fyndir ekki fyrir lofthræðslu á meðan ég gat orðið óvígur sökum hennar hangandi á steini í túnfætinum í Svalvogum. Þá má ekki gleyma góðu stundunum sem við áttum á okkar unglingsárum, einn- ig hvernig við studdum hvor annan þegar sorgin sló sín þungu högg eða þegar við í glaumi og gleði gerðum mörg asnastrikin eins og ungra manna oft er háttur. Þá er ótalið er við fórum saman síðasta sumar upp á Ólafsdals- fjall, horfðum yfir Gilsfjörðinn baðað- an sólskini og ræddum um lífið og til- veruna, drauma okkar og framtíðaráform, gerðum út um ýmis mál og gerðum hvor öðrum ljóst að þaðan í frá stæðum við saman sem einn maður. Nú er allt þetta eitthvað sem ég mun því miður orna mér einn við þar til að mínu sólsetri kemur. Þau voru því ansi þung sporin sem ég þurfti að taka þegar ég fór ásamt Grétu systur til að fylgja þér síðustu ferðina heim frá El Salvador. Landi sem ég get vel skilið að þú hafir tekið ástfóstri við. Sólarupprásin og sólar- lagið töfrum líkast með gróðri vöxnum eldfjöllum gnæfandi yfir borginni og umfram allt samstarfsmönnum og vin- um sem höfðu tekið ástfóstri við þitt góða hjartalag, léttu lund, útsjónar- semi og smitandi dugnað. Á stundu sem þessari er það eina sem er hugg- un harmi gegn að vita að þín verður minnst sem góðs drengs, og að stærstu ljósgeislarnir í lífi þínu, þau Breki og Ilmur, eru í góðum höndum og munu minnast þín sem besta pabba í heimi. Sá hvílustaður sem þér hefur verið valinn er heldur ekki af verri endanum –færð að kúra hjá henni mömmu sem hélt alltaf svo mikið upp á litla drenginn sinn. Nú er víst mál að linni, enda ljóst að í þetta sinn datt ísinn þinn og annar verður ekki keyptur í staðinn. Steingrímur bróðir. Engum manni hef ég kynnst sem talaði jafnhratt og Jón Þór Ólafsson og þann hæfileika notaði hann óspart í pólitískri rökræðu. Við kynntumst þegar við vorum unglingar og töldum að lífið snerist fyrst og fremst um póli- tík. Við gátum karpað tímunum saman og aldrei minnist ég þess að hafa getað sannfært Jón um neitt af mínum skoð- unum, en oft tókst honum að fá mig til að efast um mínar eigin. Í þessu, eins og öðru, var hann kappsamur og fylginn sér, ef ekki beinlínis þrjóskur. Hann var ekki einn af þeim sem hafði sig mikið í frammi á fundum en þess meira þurfti að ræða málin maður á mann og veturinn sem við leigðum saman tveir er í minningu minni ein viðstöðulaus kappræða yfir súru kaffi fram undir morgun. Kannski það hafi verið nokkur partí inni á milli. Jón var ekki draumóramaður eins og við margir vinir hans, að minnsta kosti lét hann ekki mikið uppi um fyr- irætlanir sínar á námsárum okkar. Ég held hins vegar að hann hafi haft skýr- ar áætlanir, þær voru hans eigin og hann hélt sínu striki þar til settum markmiðum var náð. Hann var sjálf- stæður maður, þurfti hvorki á ráðum né hjálp að halda, fór sína eigin leið á eigin vélarafli. Hann var hins vegar hjálpsamur, boðinn og búinn að rétta hjálparhönd og alltaf með glöðu geði, einn af þeim sem ekki vill vera byrði fyrir aðra en hefur sjálfur af nógu að gefa. Við hittumst ekki oft hin seinni ár en þegar við fundum stund saman fór- um við strax í gamla farið og þó að Jón hefði þungar áhyggjur af síversnandi kratisma mínum þá gafst hann ekki upp á að reyna að lækna mig af því. Hann var bjartsýnismaður. Jón Þór var góður maður og góður vinur og ég sakna hans. Orri Vésteinsson. Hann ólst upp fyrir vestan þar sem ólgandi öldur úthafsins mynnast við úfið landið. Jón Þór hefur notið sín í leik í flæðarmálinu með Steingrími bróður sínum en þeir bræður áttu dýr- mæt bernskuár með foreldrum sínum við Svalvoga og á Galtarvita. Svo þurfti fjölskyldan að flytja suður, drengirnir voru á unglingsaldri, þeir höfðu misst móður sína. Um þetta leyti urðu þeir bræður félagar í sér- kennilega skemmtilegu pólitísku vina- gengi sem hafði einatt aðsetur á heim- ili okkar vestur í bæ. Þeir piltar brugðu á leik með bridsspili og bíltúr- um, en annars voru þeir á alvöru- þrungnu spjalli um bætt þjóðfélags- ástand og betri heim. Á morgni ævinnar var Jón Þór líkur sínu fólki, síkvikur og snar, fljúgandi greindur, snöggur í tilsvörum og bar í fasi funa eldhugans. Skapið var mikið og áreið- anlega áraun að hemja ólgandi huga á ungum aldri. Hann þroskaðist ágæt- lega. Jón Þór fór jafnan vel með stór- brotna skaphöfn, og var í reynd hljóð- ur maður, traustur og góður. Brosið var hlýtt og glettni glampaði í augum. Sjálfur aflaði hann sér framhalds- menntunar og reynslu á því sviði sem vilji hans stóð til. Hann var frjór og skapandi og vænn til manns í flestu til- liti. En enginn má sköpum renna. Allt í einu er lífi lokið, alltof snemma. Him- inn grætur. Ástvinir sitja harmi lostnir eftir. Máttvana orðum getum við ekki annað en vottað þeim samúð og beðið mildi. Minning góðs drengs merlar í kyrrum haffletinum. Óskar og Kristín. Einn daginn leikur lífið við þig, ann- an daginn er það tekið frá þér. Á ung- um vinnustað með ungu og bjartsýnu fólki bar skugga á, okkar vinur og samstarfsmaður týndur. Það fá því engin orð lýst hvernig tilfinning það var að fá svo fregnir af andláti Jóns Þórs. Þú varst útvörður íslenskrar þekk- ingar, hugkvæmni og verkvits, orðinn virtur og vinsæll af samstarfsfólki þínu hjá bæði verkkaupa og undir- verktökum, og ekki síst á meðal okkar samstarfsmanna þinna hjá Enex. Bjartsýni þín og ákveðni, og hin mikla kímnigáfa, er það sem er efst í minni. Við fáum ekki skilið hvað leiddi til þessa, né fáum við skilið, sem breyskir menn, vegi Guðs á stundu sem þessari. Jón Þór var véltæknifræðingur að mennt frá Tækniskóla Íslands og starfaði sem slíkur frá því að hann lauk námi árið 2000. Áður hafði Jón Þór gengið í Bændaskólann á Hvann- eyri og lokið þaðan búfræðingsprófi. Hann var staðarverkfræðingur Enex við byggingu 8 MW tvívökvastöðvar við orkuverið í Berlín í El Salvador. Sem slíkur dvaldi hann ýmist á Íslandi eða á verkstað í El Salvador. Hann réð sig til starfa hjá Enex 1. september á liðnu ári en hafði þá nýlega stofnað fyrirtækið Tækniskurður ásamt fleir- um. Jón Þór var glaðlyndur maður, skemmtilegur starfsfélagi og vandað- ur einstaklingur. Hans er sárt saknað af starfsfólki Enex og vil ég nota tæki- færið og þakka fyrir okkar hönd fyrir þann tíma sem hann var með okkur. Ekkert okkar óraði fyrir því að sá tími yrði eins stuttur og raun ber vitni. Okkar hugur dvelur hjá fjölskyld- unni sem svo mikið hefur misst og þá ekki síst börnunum hans tveimur, Breka Þór og Ilmi Ösp, sem nú hafa misst föður sinn ung að árum. Þau eiga alla okkar samúð. Lárus Elíasson, fram- kvæmdastjóri Enex. Jón Þór Ólafsson var ekki venjuleg- ur maður og aldrei lognmolla þar sem hann var á ferð. Hann talaði svo hratt að oft á tíðum fóru fyrstu setningarnar út í veður og vind á meðan maður var að stilla sig inn á hann. Hann var eld- klár og hugmyndaríkur og lét sér ekki nægja að láta sig dreyma heldur fór tvíefldur í það að finna hugmyndum sínum farveg. Frumkvöðull er eitt þeirra orða sem lýsa honum vel. Hins vegar lét honum ekki vel að staldra nægilega lengi við til að sjá hugverk sín virkilega taka flugið – grasið virtist oft á tíðum vera grænna hinum megin. Þessu olli sennilega einhver óróleiki eða rótleysi, eins og það vantaði ein- hvern frið í sálina. Hann var eldheitur í öllu sem hann tók sér fyrir hendur, var sannfærður sósíalisti og hellti sér á tímabili út í pólitík með vinstri grænum. Hann sagði sig úr Þjóðkirkjunni, trúði ekki á Guð heldur á það góða í manninum. Hann var afskaplega stoltur af börnunum sínum og fyrir vini sína hefði hann vaðið eld og brennistein. Síðastliðið sumar sáum við Jón Þór í Búðardal þar sem hann stóð skarp- holda, herðabreiður, eilítið hokinn, í gallabuxum og blankskóm númer 47 með sígarettuna í annarri hendinni og svart kaffi í hinni að jafna sig eftir fjallgöngu sem þeir Steini bróðir hans höfðu í skyndingu ákveðið að fara í fyrst veðrið var svona gott. Þetta var í síðasta skiptið sem við sáum Jón. Þessi mynd af Jóni mun ylja okkur um ókomin ár. Hann var drengur góður, hefðu fornmenn sagt. Hugur okkar er hjá börnum og ást- vinum Jóns á þessum erfiðu tímum. Sveinbjörg og Kári. ,,Áríðandi“, hvíslaði þingvörðurinn þegar hann sótti mig inní þingsalinn. En eftir að Steini segir mér að Jón Þór hafi verið drepinn í San Salvador dag- inn áður er um stund eins og ekkert sé áríðandi. Nema ef til vill það sem aldr- ei verður. Ég hafði ekki séð Jón frá því hann sagði mér frá hitaveituverkefn- inu í El Salvador í haust. Við sáumst orðið sjaldan; helst þegar annar þurfti einhvers með, en gátum þá líka gengið að því vísu eins og er þegar við bind- umst sterkum böndum í æsku. Man fyrst eftir okkur að tuskast á rólónum hjá Héðni lappalausa vestur við verka- mannabústaði þar sem afi þeirra Steina bjó. Ætli Jón hafi ekki lagt mér lið gegn stóra bróður sínum og jafn- aldra mínum, enda þótti okkur hann alltaf óþarflega hraustur. Það var ekki nema ár milli bræðranna og þeir hefðu eins getað verið tvíburar. Urðu líka nánari fyrir það að þeir fóru ungir með foreldrum sínum í vitavörslu á útnesj- um og voru svo heppnir að þurfa ekki að fara í skóla, en lærðu bara saman heima. Man eftir mér í Svalvogum við ysta haf að sýna þeim hvernig Siggi Dags kastaði sér í markinu, en þá var það líka upptalið sem borgardrengur- inn gat kennt þessum duglegu strákum sem söfnuðu ullarlögðum og áttu inneign í Kaupfélaginu meðan ég var enn að lesa Andrés Önd. Sterkustum böndum tengdumst við svo trúlega þegar móðir þeirra lá banaleguna hér fyrir sunnan, en það var langt fyrir aldur fram og strák- arnir um fermingu. Sýndi mér hvað þeir voru heilsteyptir hvernig þeir lifðu það af. Á menntaskólaárunum urðum við svo gott sem ein fjölskylda með Hrannari og Orra og krökkunum heima hjá Skara og Stínu á Seljaveg- inum og síðar Öldugötunni. Við frels- uðum heiminn á daginn, tefldum á kvöldin, spiluðum bridge um nætur og skemmtum okkur um helgar. Það rifjast upp að þá einhvern tím- ann veittist að mér á Tunglinu slags- málagengi, hrifsaði gleraugun af mér og skallaði mig. Og sem þeir mynda sig nokkrir til að sparka í mig sér Jón hvað fram fer og er snar að bregða for- sprakka þeirra en kippa mér sjónlaus- um og blóðugum út um hliðardyr áður en nokkur áttar sig á hvarfi okkar og hleypur með mig heim til bróður síns heilu og höldnu, snarráður og úrræða- góður í senn. En þegar ráðist var á Jón var enginn til að bjarga honum. Það ódæðisverk er og verður okkur al- gjörlega óskiljanlegt hversu oft sem okkur er sagt það og hversu mikið sem við um það hugsum. Breki Þór og Ilmur Ösp missa nú pabba sinn barnung, eins og hann áð- ur mömmu sína. Guð gefi þeim þann styrk sem hann átti til að vaxa og þroskast og blómstra samt. Við hin þökkum fyrir bjartar og fallegar minningar um góðan félaga og vottum fjölskyldunni djúpa samúð. Helgi Hjörvar. Morðingjar heimsins og myrkraverkaher myrða okkur líka einhvern veginn Þessar línur Böðvars Guðmunds- sonar sungum við Jón Þór kvöldið sem við fyrst hittumst í glöðum hópi ung- liða Æskulýðsfylkingar Alþýðubanda- lagsins, fullir af eldmóði, staðráðnir í að leggja okkar af mörkum í barátt- unni fyrir betri heimi. Hvern hefði ór- að fyrir því að 22 árum síðar myndi einn úr þessum glaða hópi verða bor- inn til grafar, fórnarlamb myrkraafl- anna. Okkur hinum harkaleg áminn- ing um óklárað verk. Jón Þór lét hins vegar verkin tala og í hans huga var allt mögulegt. Hvort sem hann sat að tafli, spilaði bridge, valdi sér nám, bústað eða vinnu, alltaf hugsaði hann úr fyrir hinn hefð- bundna ramma. Oftast tókst honum að koma okkur hinum á óvart. Hann var sjálfs sín herra, frjáls eins og fuglinn og laus við þær viðjar sem hégóma- girndin og óttinn við álit annarra reyn- ist svo mörgum. Hjá Jóni Þór var nán- ast ekkert eftir bókinni og alltaf dáðist maður að hugrekki hans og hug- myndaflugi. Í dag kveð ég minn kæra vin. Eftir standa ótal minningar um ærslafullar samverustundir menntaskólaáranna og gefandi endurfundi eftir mislangan aðskilnað. Þakklæti fyrir fölskvalausa vináttu sem nú er öll blandast dapurri eftirsjá. Ástvinum Jóns Þórs votta ég mína dýpstu samúð. Megi minning- arnar líkna í sorginni og reynast okkur sem eftir lifum, dýrmætt leiðarljós. Hrannar Björn Arnarsson. JÓN ÞÓR ÓLAFSSON Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TEITUR KRISTJÁNSSON, Digranesheiði 13, Kópavogi, lést á heimili sínu föstudaginn 24. febrúar. Jarðarför auglýst síðar. Margrét Birna Aðalsteinsdóttir, Hilmar Teitsson, Sigrún Teitsdóttir, Ingvar Teitsson, Birgir Teitsson, Aðalsteinn Þór Teitsson, Jóhanna Kristín Teitsdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.