Morgunblaðið - 28.02.2006, Side 40

Morgunblaðið - 28.02.2006, Side 40
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÞÚ PLATAR MIG EKKI HVAÐ? ÞÚ ERT AÐ BRALLA EITTHVAÐ NEI! EN FYRST ÞÚ MINNIST Á ÞAÐ STUNDUM LIGG ÉG AND- VAKA OG HUGSA UM RAUÐHÆRÐU STELPUNA ÉG VIL EKKI GLEYMA ÞVÍ HVERNIG HÚN LÍTUR ÚT EN EF ÉG GLEYMI HENNI EKKI ÞÁ GENG ÉG AF GÖFLUNUM HVERNIG GET ÉG MUNAÐ ANDLIT SEM MÉR ER ÓMÖGULEGT AÐ GLEYMA? ALLT Í EINU ER ÉG FARINN AÐ SEMJA KÁNTRÝ TÓNLIST MUNDIRÐU EFTIR AÐ GERA VIÐ LEKANN? ÉG HÉLT AÐ ÞÚ HEFÐIR GERT ÞAÐ HVENÆR STYTTIR UPP? ÉG VEIT ÞAÐ EKKI ÞETTA ER ALLT Í LAGI KRAKKAR ÉG TÓK MEÐ REGNGALLA MAÐUR VERÐUR ALLTAF AÐ VERA VIÐBÚINN. ÞESSIR GALLAR ERU MJÖG ÞÉTTIR OG HALDA Á MANNI HITA GOTT AÐ VITA AÐ VIÐ VERÐUM EKKI RENNANDI BLAUT, PABBI!?! SÓLHLÍF, SÓLARVÖRN, STUTTBUXUR, HVAR ERU ÞESSI GALLAR VÁ, ROSALEGA ERU MARGIR MÆTTIR! ÞAÐ HLÝTUR AÐ VERA TILBOÐ Á BARNUM! HVERNIG ÞÁ, TIL DÆMIS? ÉG HEFÐI EKKI ÁTT AÐ HALDA FRAM HJÁ HONUM MEÐ BESTA VINI HANS MÉR ÞYKIR SVO LEITT AÐ HJÓNABAND OKKAR SKULI HAFA FARIÐ Í VASKINN ÉG HEFÐI ÁTT AÐ BERA MEIRI VIRÐINGU FYRIR MANNINUM MÍNUM GOTT MÁL AF HVERJU VAKNAR HANN EKKI? VÁ, ÉG ER MEÐ ÞVÍLÍKAN HAUSVERK! PE... ÉG MEINA KÓNGULÓARMAÐUR, ÞÚ ERT LIFANDI ÞAÐ ER LÍKA EINS GOTT TARANTÚLA ER BÚIN AÐ GEFA KÓNGULÓRMANNINUM MÓTEITRIÐ Dagbók Í dag er þriðjudagur 28. febrúar, 59. dagur ársins 2006 Það er ýmist í ökklaeða eyra, hugsaði Víkverji með sér um helgina þegar hann var að skoða auglýs- ingar frá kvikmynda- húsunum í Morgun- blaðinu. Þannig er nefnilega mál með vexti að Vík- verji hefur býsna gaman af því að fara í bíó og sjá góða kvik- mynd enda þótt hann geri alltof lítið af því í seinni tíð. Undan- farnar vikur hefur hann þó nokkrum sinnum sprottið upp úr sófanum í stofunni og sagt við spúsu sína. „Nú reddum við okkur pössun og skellum okkur í bíó!“ Konan hefur ekki í eitt einasta skipti hreyft andmælum. Samt hefur aldrei verið farið. Ekki í eitt skipti frá því löngu fyrir jól. Hvað veldur? Téðar auglýsingar. Allt strandar á þeim. Það er bara ekkert að sjá. Þrátt fyrir góðan vilja og dauðaleit hafa Víkverjahjónin ekki fundið eina einustu mynd við sitt hæfi. x x x Það endaði með því að Víkverji tókmeðvitaða ákvörðun um að hætta að skoða bíóauglýsingar um hríð. Því bindindi lauk nú um helgina. Og það sem hann varð hissa. Nú rak skyndilega hver stórmyndin aðra á listunum. Capote, The Constant Garden- er, Walk the Line, Brokeback Mountain, Good Night and Good Luck, Munich og Blóð- bönd. Svo margar myndir langaði Vík- verja að sjá að hann fylltist ofsakvíða – hvar ætti hann að byrja? Þetta endaði auðvitað með því að Víkverji sat heima, gat ekki gert upp á milli mynda. x x x Því verður hins vegar ekki mælt ímót að þetta er þægilegra vandamál að glíma við en hið fyrra sem Víkverji gat um og á endanum mun hann vonandi bera gæfu til að sjá allar þessar myndir. Í síðasta lagi á mynddiski. En væri það ekki dásamlegt ef frambærilegar kvikmyndir dreifðust með jafnari hætti í kvikmyndahúsin yfir árið? Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is              Tónlist | Hinn írski Bono, forsprakki hljómsveitarinnar U2, sést hér stíga eða öllu heldur stökkva á svið með hljómsveit sinni á tónleikum í Santiago í Chile um helgina. Hann er ennfremur einn hinna fjölmörgu sem tilnefndir voru nýverið til friðarverðlauna Nóbels í ár. Reuters Nóbelsverðlaun fyrir Bono? MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Ég mun biðja föðurinn, og hann mun gefa yður annan hjálpara, að hann sé hjá yður að eilífu. (Jóh. 14, 16.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.