Morgunblaðið - 28.02.2006, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 41
DAGBÓK
Einbýlishús í Þingholtunum óskast
- Staðgreiðsla
Traustur kaupandi óskar eftir 250-400 fm einbýlis-
húsi í Þingholtunum. Gott einbýli á öðrum stað
kemur til greina t.d. hús með sjávarútsýni. Húsið
má kosta allt að 120 milljónir.
Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Fyrsti mars er starfsdagur grunnskóla-kennara og er þann dag haldin stórráðstefna á Hótel Nordica undir yf-irskriftinni Skóli á nýrri öld –Fræðin í
framkvæmd.
Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er Carol Ann
Tomlinson prófessor við Virgíníuháskóla: „Ég
mun fjalla um leiðir til að kenna á árangurs-
ríkan hátt hópi nemenda sem hafa ólíkar náms-
þarfir,“ segir Carol. „Óhjákvæmilega eru sumir
nemendur á undan áætlunum kennarans í námi,
á meðan aðrir dragast aftur úr hinum, og nem-
endur hafa ólík áhugamál sem laða þau að, eða
fæla frá, vissum fögum. Við bætist síðan að
nemendur læra hver á sína vegu. Við munum
ræða um hvernig skipuleggja og undirbúa má
kennslu í bekk þar sem ekki er hægt að segja
að allir passi í sama sniðið, og hvernig má
byggja námið þannig að hver einn og einasti
nemandi geti þroskast og vaxið í námi.“ Aðferð
sína kallar Carol „Differentiated instruction“
sem á íslensku mætti þýða sem sundurgreinda
kennslu.
Carol Ann Tomlinson kenndi í röska tvo ára-
tugi í almenna skólakerfinu: „Ég varð þess vör
að nemendurnir mínir stóðu sig mun betur þeg-
ar ég beitti sundurgreindri kennslu. Síðustu
fimmtán ár hef ég rannsakað aðferðir kennara
sem beita svipuðum kennsluháttum til að skilja
hvernig þeir hugsa um og starfa í kennslustof-
unni. Ég hef einnig rannsakað kennara sem eiga
erfitt með að sinna sérstökum þörfum nemenda
sinna, til að skilja betur hvað stendur þar helst í
veginum. Um leið hef ég kynnt mér hvernig
stjórnendur skóla styðja við og stuðla að aukinni
notkun sundurgreindrar kennslu,“ segir Carol.
„Víða um heim eru kennslustofurnar að verða
æ fjölbreyttari. Á sama tíma er það vilji sam-
félagsins að hver einn og einasti nemandi hafi
aðgengi að sem fjölbreyttustu og bestu námi.
Ein stærsta áskorun menntakerfis margra landa
er hvernig þróa má hágæða kennslu þar sem
allir nemendur fá að njóta bestu mögulegu
menntunar, og þar skiptir lykilmáli að sund-
urgreina kennsluna að ólíkum þörfum nem-
enda.“
Menntun | Skóli á nýrri öld – Fræðin í framkvæmd – Ráðstefna á Nordica hóteli 1. mars
Kennsla sem gagnast öllum
Carol Ann Tomlinson
starfaði í 21 ár við al-
menna skólakerfið,
bæði á leik-, grunn- og
framhaldsskólastigi.
Hún var valin kennari
ársins í Virginíu 1974
og hefur látið frá sér yf-
ir 200 greinar, rit og
bækur um kennslumál.
Bækur hennar um
sundurgreinda kennslu
hafa verið þýddar á átta tungumál.
Carol er nú kennir nú menntunarstjórnun við
Virginíuháskóla, þar sem hún fékk viðurkenn-
ingu fyrir störf sín á síðasta ári.
Líkindaspil.
Norður
♠A10
♥KD76
♦K102
♣K1064
Suður
♠D3
♥ÁG105
♦Á98
♣ÁD97
Suður spilar sex hjörtu og fær út
tromp.
Spegilskiptingin takmarkar mögu-
leika sagnhafa verulega, en ef trompið
kemur 3-2 og laufgosinn skilar sér, er
hugsanlegt að fá úrslitaslaginn með
innkasti.
Allt gengur að óskum til að byrja
með, trompin falla og laufið líka. En þá
er spurningin þessi: Á að spila tígli
þrisvar (og láta vörnina hreyfa spað-
ann), eða spaðaás og spaða (og fá íferð í
tígulinn)?
Spilið er frá sveitakeppni Bridshátíð-
ar og legan var þannig:
Norður
♠A10
♥KD76
♦K102
♣K1064
Vestur Austur
♠9754 ♠KG862
♥83 ♥942
♦7643 ♦DG5
♣853 ♣G2
Suður
♠D3
♥ÁG105
♦Á98
♣ÁD97
Það er augljóslega hægt að vinna
slemmuna, en þeir spilarar sem voru
vel að sér í líkindafræði fóru þó niður.
Og voru stoltir af!
Hér svínvirkar að spila ÁK og þriðja
tígli, en það er á móti líkum, því ef tígul-
mannspilin eru skipt þarf spaðinn að
vera „læstur“ – það er að segja, kóngur-
inn í vestur og gosinn í austur. Það er
sterkari leikur að senda vörnina inn á
spaðakóng. Í þessu tifelli lendir austur
inni og spilar annaðhvort drottningu
eða gosa í tígli. Vissulega vinnst slemm-
an ef sagnhafi drepur í borði og svínar,
en sú spilamennska er tæknilega röng.
Reglan um „takmarkað val“ kemur
hér við sögu: Ef austur á annaðhvort
drottningu eða gosa í tígli, verður hann
að spila því spili – val hans er takmark-
að. Með bæði mannspilin getur hann
valið á milli, enda spilin jafngild. Af
þessu leiðir að það er tvöfalt líklegra að
austur eigi aðeins annað mannspilið!
Þeir sem voru svo óheppnir að kunna
þessa reglu fóru niður með því að drepa
á tígulás og svína tíunni.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. cxd5 cxd5 4. Rc3 Rc6
5. Bf4 Rf6 6. e3 a6 7. Bd3 e6 8. Hc1 Bd6
9. Bxd6 Dxd6 10. f4 b5 11. Rf3 Bb7 12.
0–0 Hc8 13. Re5 0–0 14. Df3 Ra5 15. g4
Rc4 16. Hc2 De7 17. g5 Re4 18. Rxc4
Rxc3 19. Rb6 Hc6 20. Hxc3 Hxb6 21.
Hfc1 Hd6 22. De2 f6
Staðan kom upp á Meistaramóti Tafl-
félagsins Hellis sem lauk fyrir skömmu.
Sigurvegari mótsins, Egyptinn Omar
Salama (2.199), hafði hvítt gegn hinum
unga og efnilega Hjörvari Steini
Grétarssyni (2.046). 23. Bxh7+! Kh8
svartur hefði einnig orðið óverjandi mát
eftir 23. … Kxh7 24. Dh5+ Kg8 25. g6.
24. Bg6 og svartur gafst upp þar sem
ekki er hægt að forðast mát.
Lokastaða efstu manna varð þessi:
1. Omar Salama (2.199) 6½ vinning
af 7 mögulegum.
2. Hrannar Baldursson (2.174) 5½ v.
3.–6. Stefán Freyr Guðmundsson
(2.026), Sigurbjörn Björnsson
(2.337), Guðlaug Þorsteinsdóttir
(2.147) og Ingvar Ásbjörnsson
(1.996) 5 v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Flugfélagið, frábær þjónusta
FÓR með hund í Ísafjarðarflug á
föstudagsmorgun og vildi koma á
framfæri þakklæti til starfsmanna
flugfraktarinnar í Reykjavík.
Það var basl að koma búrinu inn í
vélina þar sem það var í stærra lagi
(eiginlega of stórt til að komast inn).
Í stað þess að vísa mér frá og fara
fram á að ég kæmi með heppilegri
stærð, þá tóku starfsmennirnir
þessu létt og lögðu sig alla fram við
að koma búrinu fyrir. Þó ekki hafi
litið út fyrir að þetta mundi ganga
hafðist það á endanum.
Takk kærlega fyrir góða þjón-
ustu.
Anna.
2005 ár gleði og sorgar
JÁ, manni er margt minnisstætt á
árinu sem var að líða. Sérstaklega
hörmungarnar erlendis og nú síðast
námuslysið í Bandaríkjunum,
skriðuföllin á Jövu á Indónesíu og
nú aftur hungrið í Afríku vegna
þurrka og uppskerubrests. Og
margar hörmungar bitna á börnum,
alls kyns sjúkdómar og mat-
arskortur, ásamt skorti á lyfjum.
En hér heima er margt óhugn-
anlegt að gerast, t.d. Sonja Haralds,
kona elskuleg, hvers á hún að
gjalda. Hana vantar 30 þús. kr. til
viðbótar á mánuði og engan skatt á
örorkubætur. Ég er svo sannarlega
sammála henni, enda öryrki sjálf og
veit hvað manni líður hræðilega illa
um hver mánaðamót þegar eftir eru
3 þúsund kr. Mér finnst launin okk-
ar til háborinnar skammar. Hjá
Fjármálum heimilanna var mér sagt
að til framfærslu ætti ég að hafa 30
þús. kr. Hvar eru peningarnir? Um
daginn heyrði ég í útvarpinu að
gjöld á öryrkja á landinu frá ’95–’05
næmu alls 40 milljónum og skuldin
væri 40 þúsund á hvern öryrkja.
Það hafa átt sér stað alls konar
skerðingar í gegnum árin. Ég spyr
hvað er eiginlega að gerast í þessu
þjóðfélagi? Er meiningin að svelta
okkur svona áfram? Ég get ekki
sagt að ég sé hamingjusöm og
örugg, mér finnst ég oft vera mjög
kvíðin og það eru ábyggilega fleiri
en ég.
Það væri óskandi að tekjur okkar
breyttust áður en fleiri svelta sig í
hel eða fremja sjálfsmorð. Þetta er
að mínu mati alveg hrikalegt. Við
öryrkjar erum alveg eins og hver
annar. Höfum lent í allskonar áföll-
um og lífsreynslu. Svo finnst mér
eldri borgarar hafa allt of lágar
tekjur. Það ætti sannarlega að
hækka þær. Hvernig væri að hækka
skattleysismörkin? Væri ekki bara
nóg að borga opinber gjöld? Ég
vona að fleiri öryrkjar láti frá sér
heyra.
Monika Pálsdóttir,
Torfufelli 27.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Brúðkaup | Í dag, 28. febrúar, eiga
pappírsbrúðkaup þau Eve og James
Barisic frá Bretlandi. Þau voru gefin
saman hjá sýslumanninum í Reykjavík
28. febrúar í fyrra og eru nú aftur
stödd hér á landi í tilefni dagsins. Þau
dvelja á Hótel Klöpp.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
MÁLVERK Guðrúnar Einarsdóttur
í Listasafni Reykjanesbæjar eru öll
nafnlaus og virðast í fljótu bragði
vera naumhyggjuleg, einsleit og ein-
tóna. Annað kemur í ljós við nánari
skoðun. Upphleypt þykktin í áferð
litarins stuðlar að flat-þrívíddar yf-
irbragði sem byggist á afstrakt líf-
rænu munstri með sterkri skír-
skotun í náttúruna. Aðalsteinn
Ingólfsson segir í sýningarskrá að
„okkur eftirkomendum Kjarvals“ sé
a.m.k. ljóst að ekki yrði aukið á ná-
lægðina við landið án þess að leysa
það upp í frumeiningar sínar, þ.e.
gera úr því óhlutbundið mynstur.
Guðrún hafi tekið upp þráðinn þar
sem Kjarval sleppti honum og rakið
hann áfram með rökréttum hætti og
tengi saman hinar stóru lífrænu
heildir jarðfræðinnar, smáheima líf-
fræðinnar og ofurvíddir stjörnu-
fræðinnar. Þetta kemur allt heim og
saman við verkin, en til viðbótar eru
í þeim önnur sterk sjónræn líkindi
sem láta áhorfandann ekki í friði. Þó
ég sé ekki sammála einum sýning-
argesti sem vildi líkja sýningunni við
efnisprufur úr Rúmfatalagernum þá
verður ekki komist undan hugmynd-
inni um textíl. Líkindin við vefnað er
sérstaklega að finna í þeim einlitu
verkum þar sem mynstrið er byggt
upp á samspili mattra og glansandi
flata. Þá getur t.d. ein og sama
myndin brugðið samtímis upp spegl-
un af endurvarpi náttúrumynstra
svartra sandfláka og svörtum da-
masksilkivefnaði sem minna á und-
irföt. Allar myndirnar hafa í sér
þennan tvíbenta og spennandi eig-
inleika og við gaumgæfilega skoðun
opnast möguleikar þeirra æ meira
fyrir áhorfandanum. Verkin eru
safaríkari og margræðari en fyrsta
viðmót þeirra segir til um. Undir
sýndarhógværð og kurteisi þeirra
má greina ákafa ástríðu og munúð
svo minnir á blæti. Sá sem sökkvir
sér í þessi verk verður heillaður af
því hversu listamaðurinn hlýtur að
vera heillaður af því að gera þau.
Hér er einhver tilfinning fyrir
nautnafullum leik með mörk og sam-
spil yfirborðs og kviku sem ítrekar
og upphefur greinarmun á náttúru
og menningu. Sýningin er því sann-
kölluð veisla um leið og áhorfandinn
tekur það skref að nálgast verkin
fyrir alvöru, en það er alger for-
senda þeirrrar fagurfræðilegu upp-
lifunar sem í þeim býr.
Náttúrublætis-ástríða
MYNDLIST
Listasafn Reykjanesbæjar
Sýningin stendur til 5.mars
Opið alla daga frá 13 - 17.
Guðrún Einarsdóttir
Eitt verka Guðrúnar Einarsdóttur í
Listasafni Reykjanesbæjar.
Þóra Þórisdóttir
NÝVERIÐ voru Ullarvett-
lingar Myndlistarakademíu
Íslands afhentir.
Verðugur handhafi Ull-
arvettlinganna árið 2006 er
Sigríður Björg Sigurð-
ardóttir. Hún hefur getið
sér gott orð fyrir myndlist
sína bæði á Íslandi og er-
lendis. Sigríður býr og
starfar í Glasgow í Skot-
landi, þar sem hún stund-
aði framhaldsnám eftir út-
skrift frá Listaháskóla
Íslands.
Sérstakur styrktaraðili
Ullarvettlinganna að þessu
sinni var Menningarsjóður/
styrktarsjóður SPRON.
Ullarvettlingarnir veittir
Morgunblaðið/Eggert
Verðlaunahafinn Sigríður Björg Sigurð-
ardóttir ásamt Benedikt Gestssyni, for-
manni akademíunnar.