Morgunblaðið - 28.02.2006, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 45
MENNING
• Brúðarkjólar og nýjasta tíska
• Brúðarvendir og blómaskreytingar
• Matur í brúðkaupsveislum
• Brúðargjafir
• Hárgreiðsla brúða og brúðguma
• Giftingarhringir og morgungjafir
• Í formi fyrir brúðkaupið
• Brúðkaupsmyndin
• Snyrting fyrir brúðkaupið
• Veisludúkar
• Brúðarsængin og brúðarnærföt
Auglýsendur!
Pantið fyrir klukkan 16 föstudaginn 3. mars.
Allar nánari upplýsingar veitir Katrín
Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is
Brúðkaupsblað
Morgunblaðsins
Sérblað helgað brúðkaupssýningunni Já!
fylgir Morgunblaðinu fimmtudaginn 9. mars.
FÆREYSKI píanóleikarinn Jó-
hannes Andreasen heldur einleiks-
tónleika í TÍBRÁ í Salnum í kvöld
kl. 20. Á tónleikunum mun Jóhannes
meðal annars frumflytja nýtt verk
eftir Atla Heimi Sveinsson.
„Verkið heitir Sancus og er samið
í haust sem leið. Það er mjög fjöl-
breytt, bæði öflugt og stórt á köflum
en líka innilegt og hljóðlátt á öðrum
stöðum,“ segir Jóhannes í samtali
við Morgunblaðið, en verkið var
samið sérstaklega fyrir hann.
Tónleikana mun Jóhannes hins
vegar hefja á sónötu og fantasíu í c-
moll eftir W.A. Mozart. „Þessi tvö
verk eru iðulega flutt saman. Sú
hefð hefur verið við lýði um langt
skeið,“ segir hann um verkin. „Fant-
asían er mjög fjölbreytt, rétt eins og
verk Atla Heimis, og leitandi í
hljómum. Sónatan er hins vegar
dramatískasta píanóverk Mozarts,
held ég að megi segja.“
Virtúósastykki
Eftir hlé mun Robert Schumann
hins vegar ráða ríkjum. „Ég byrja á
því að leika litla Arabesku, sem er
stutt verk – svona lítill konfektmoli.
Síðan tekur við verk sem er talsvert
fyrirhafnarmeira,“ segir Jóhannes
og vísar þar til Sinfónísku etýðanna
eftir Schumann sem hann leikur
ennfremur, en þær eru taldar eru til
öndvegisverka rómantíska tímans í
tónlistarsögunni. „Þetta er mjög erf-
itt verk en skemmtilegt, og drama-
tískt á köflum. Þetta eru eins konar
tilbrigði við stef; stefið sjálft er ró-
legt en tilbrigðin eru mismunandi;
mjög tæknileg sum og jafnvel grand
í stílnum,“ segir hann.
Þannig að þetta er svona virtúósa-
stykki, eða hvað? „Já, það má segja
það, virkilega. En ég hef hlakkað
lengi til að spila bæði Schumann-
verkin og Mozart, þannig að ég er
bara spenntur.“
Frændþjóðir
Jóhannes Andreasen nam píanó-
leik í Þórshöfn, hélt síðan til fram-
haldsnáms við Tónlistarháskólann í
Vínarborg, en lærði einnig við Men-
uhin-tónlistarakademíuna í Sviss og
hjá Peter Feuchtwanger í London.
Hann starfar sem píanóleikari og
kennari í heimalandi sínu og hefur
haldið tónleika víða um lönd. Jó-
hannes er ekki ókunnur hér á landi
því hann starfaði sem píanókennari
við Tónlistarskóla Kópavogs um
nokkurt skeið.
„Ég þekki margt gott fólk á ís-
landi, og þegar ég bjó hér var það al-
veg frábær tími,“ segir Jóhannes.
En skyldi vera öðruvísi að leika fyrir
Íslendinga en Færeyinga? „Mér
finnst í það minnsta gott að spila
hér, enda er fólk virkilega jákvætt.
Og maður finnur alveg að þetta eru
frændþjóðir.“
Tónlist | Jóhannes Andreasen með píanótónleika í Salnum í kvöld
Frumflytur nýtt verk eftir Atla Heimi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jóhannes Andreasen segir Íslendinga og Færeyinga klárlega frændþjóðir.
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
Tónleikar Jóhannesar Andreasen
hefjast í Salnum í kvöld kl. 20.
ÁHUGI landans á sakamálasögum
hefur færst mjög í aukana á síð-
ustu árum. Yfirleitt hefur slíkum
sögum verið miðlað til okkar í
gegnum bækur eða sjónvarp en af
einhverjum ástæðum hefur leik-
húsið staðið algjörlega utan við
þetta tiltölulega nýja æði.
Samkeppni um íslenskt
sakamálaleikrit
Í kvöld verður haldið málþing í
forsal Borgarleikhússins um ís-
lensk sakamál, íslenska dæg-
urmenningu og hlutverk leikhúss-
ins í því samhengi. Málþingið er
haldið í tengslum við samkeppni
um íslenskt sakamálaleikrit sem
Borgarleikhúsið stendur fyrir um
þessar mundir.
„Það hefur eitthvað mikið verið
að gerast í skrifum á íslenskum
sakamálum. Okkur langar til að
skoða þessa nýfundnu þörf hjá Ís-
lendingum fyrir íslensk sakamál,“
segir Steinunn Knútsdóttir leik-
stjóri og einn skipuleggjenda mál-
þingsins.
Sakamálin útundan hér
Hún segir að mikið sé um að
sakamálasögur séu færðar á fjal-
irnar í erlendum leikhúsborgum
og nefnir t.d. sakamálaleikritið
Músagildruna sem er ein af vin-
sælli sýningum á West End í
London.
„Þetta hefur einhvern veginn
ekki náð að berast hingað í leik-
húsin. Það hefur allavega farið
mjög lítið fyrir þessu og okkur
langar til að spyrja af hverju og
hvort núna sé hugsanlega tíminn
fyrir leikhúsið að sinna sakamál-
unum. Við skiljum ekki alveg af
hverju þau hafa orðið útundan.“
Ætlunin með málþinginu er auk
þess að skoða ástæðuna fyrir
þessum nýja áhuga á sakamálum.
„Hvað er það í samtímanum
sem kallar á sakamálin,“ spyr
Steinunn. „Erum við undir áhrif-
um að utan? Frá sjónvarpinu?
Hefur samfélagið stækkað svona
mikið að glæpir eru einfaldlega
orðnir meiri á Íslandi sem hugs-
anlega gerir nýrri sakamálasögur
trúverðugri? Svo er spurningin
hvort sakamálin eigi heima á sviði.
Munum við njóta þess að sjá saka-
mál uppi á sviði? Rúmar leikhúsið
þetta? Er þetta kannski eitthvað
sem á bara við sjónvarp og bók-
menntir?“
Hópur sérfræðinga
Þessum spurningum ætlar vel
valinn hópur sérfræðinga um
sakamál og dægurmenningu að
svara í kvöld, þau Davíð Þór Jóns-
son, Ævar Örn Jósepsson, Katrín
Jakobsdóttir og Anna Rögnvalds-
dóttir. Öll hafa þau nálgast við-
fangsefnið á ólíka vegu. Davíð Þór
og sakamálahöfundurinn Ævar
Örn Jósepsson hafa á und-
arnförnum misserum verið að
skipuleggja helgar á Hótel Búðum
þar sem er leystar eru saka-
málagátur og farið er í hlutverka-
leiki. Katrín Jakobsdóttir hefur
skoðað mikið sérstöðu íslenskra
sakamála og nýverið var frumsýnd
í Ríkissjónvarpinu sakamálamynd-
ina Allir litir hafsins eru kaldir
sem Anna Rögnvaldsdóttir leik-
stýrði.
„Leikhúsinu er ekkert óviðkom-
andi,“ segir Steinunn að lokum og
bendir auk þess á að eitt af mark-
miðum leikhússins sé að hvetja til
skrifa og er fyrirhuguð leikrita-
samkeppni liður í því. Fundurinn
verður haldinn í kvöld klukkan
20.00 og er hann opinn öllum.
Leikhús | Málþing um íslensk sakamál og
dægurmenningu í forsal Borgarleikhússins
Íslensk sakamál á fjalirnar
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
Þórunn Lárusdóttir og Hilmir Snær í hlutverkum sínum í íslensku sakamálaþáttunum Allir litir hafsins eru kaldir.
Í DAG, þriðjudaginn 28. febrúar, á
sjálfan sprengidag, stendur Nýhil
fyrir uppákomu á Café Rosenberg
við Lækjargötu. Fram koma: Krist-
ín Eiríksdóttir, Haukur Már Helga-
son, Þórunn Valdimarsdóttir,
Didda, Ófeigur Sigurðsson, Guðrún
Eva Mínervudóttir, Ingibjörg
Magnadóttir og Kari Ósk Ege.
Dagskráin hefst klukkan 22, að-
gangseyrir er enginn og allir vel-
komnir í boði Nýhils.
Sprengidagskrá á Rosenberg