Morgunblaðið - 28.02.2006, Side 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
STÓRI
BÓKAMARKAÐURINN
Perlunni og Akureyri
23. feb. - 5. mars
OPIÐ ALLA DAGA
FRÁ KL. 10-18
ÍSLENSKIR fjárfestar keyptu í
gær fasteignir í Danmörku með
beinum og óbeinum hætti fyrir á
bilinu 20 til 25 milljarða íslenskra
króna og bætast dönsk skatt- og toll-
yfirvöld nú í hóp þeirra fjölmörgu
sem leigja fasteignir sem Íslending-
ar eiga í Kaupmannahöfn.
Nýsir hf. keypti tvö dönsk fast-
eignafélög sem til samans eiga um 61
þúsund fermetra húsnæði miðsvæðis
í Kaupmannahöfn. Kaupverð fæst
ekki uppgefið en ætla má að það hafi
verið á bilinu 15 til 20 milljarðar.
Þá eignuðust Björgólfsfeðgar,
Straumur-Burðarás fjárfestingar-
banki og Birgir Þór Bieltvedt stóran
hlut í danska fasteigna- og þróun-
arfélaginu Sjælsø Gruppen. Félag á
þeirra vegum á helmingshlut í SG
Nord Holding sem á 25% í Sjælsø.
Gengi bréfa í Sjælsø hækkaði um
nær 15% í gær.
Fyrir á Straumur-Burðarás ásamt
Birgi og dönskum fjárfestum danska
fasteignafélagið Property Group
sem getur fjárfest fyrir allt að 50
milljarða á ári. Á dönskum fast-
eignamarkaði heyrast nú raddir um
að tvær risastórar blokkir séu að
myndast á markaðinum, önnur með
Baug í fararbroddi en Baugur á m.a.
fasteignafélagið Atlas Ejendomme,
30% í Keops og 11% hlut í Nordicom.
Í hinni blokkinni séu síðan Sjælsø og
Property Group með þá Björgólfs-
feðga sem stafnbúa.
Danski skatturinn leigir af Íslendingum
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
Nýsir | 14
VIÐGERÐ á einangrun í öllum vélasamstæð-
um Búrfellsvirkjunar, sex að tölu, lauk í síðustu
viku. Viðgerðin gekk mjög vel, en unnið hefur
verið að henni dag og nótt frá því að bilun kom í
ljós þegar skammhlaup varð í einni vélinni 12.
nóvember síðastliðinn til þess að áhrif á raf-
orkuframleiðslu virkjunarinnar yrðu sem
minnst.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar, sagði að tekin hefði verið fyrir
ein vél í einu og
einangrunin í
henni lagfærð,
en komið hefði í
ljós tæring sem
hefði verið mis-
langt á veg kom-
in við skoðun
vélanna eftir að skammhlaupið varð. Viðgerðin
hefði gengið mjög vel og ekki haft áhrif á af-
hendingu Landsvirkjunar á raforku.
Í þeim efnum hefði einnig hjálpað til að Járn-
blendiverksmiðjan á Grundartanga hefði á
sama tíma verið að endurnýja einangrun í ein-
um ofni verksmiðjunnar og því þurft minni
orku en ella. Þá hefði einnig verið svigrúm í raf-
orkukerfinu, auk þess sem vitað hefði verið að
álagið þyrfti að aukast einmitt um þetta leyti
vegna uppkeyrslu á Norðuráli.
Kostnaðurinn 90 milljónir
Þorsteinn sagði að vélakostur Búrfellsvirkj-
unar hefði verið endurnýjaður á tíunda ára-
tugnum og þessi einangrun væri frá því
snemma á þeim áratug. Þarna væri um eðlilegt
viðhald að ræða, en áætlaður kostnaður vegna
viðgerðanna væri um 90 milljónir króna.
Þorsteinn bætti því við að Búrfellsvirkjun
væri stærsta og mikilvægasta virkjunin í raf-
orkukerfinu og væri nánast alltaf keyrð með
fullum afköstum. Hún keyrði nánast stöðugt á
270–300 megavöttum og framleiddi um 2.000
gígavattstundir á ári, sem væri um fjórðungur
af árlegri rafmagnsframleiðslu á Íslandi.
Viðgerð á
Búrfells-
virkjun lokið
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
ALÞJÓÐAMATSFYRIRTÆKIÐ Standard
& Poor’s hefur ekki séð ástæðu til að breyta
lánshæfiseinkunn ríkissjóðs eða breyta horf-
um á henni.
Kai Stukenbrock, sérfræðingur hjá Stand-
ard & Poor’s, sagði í samtali við Morgunblaðið
í gær að engar grundvallarbreytingar hefðu
átt sér stað frá því í október á síðasta ári sem
kölluðu á breytingar á horfum á lánshæfisein-
kunn ríkissjóðs. Fyrirtækið hefði þó enn
áhyggjur af sívaxandi skuldum íslenska hag-
kerfisins og miklum viðskiptahalla, eins og í
mati sínu frá því í október, en þá sendi fyr-
irtækið frá sér tilkynningu þar sem lánshæf-
iseinkunnir ríkissjóðs voru staðfestar.
Ekki þörf á
breytingum á
lánshæfiseinkunn
Standard & Poor’s | 26
SAMNINGUR Tryggingastofn-
unar ríkisins og Ljósmæðrafélags
Íslands vegna þjónustu við sæng-
urkonur í heimahúsum rennur út á
miðnætti en viðræður um nýjan
samning hafa staðið yfir frá því í
október sl. Guðlaug Einarsdóttir,
formaður Ljósmæðrafélags Ís-
lands, segir um þrjú prósentustig
bera milli samningsaðila en engir
samningafundir eru fyrirhugaðir í
dag. Útlit sé fyrir að þjónustan
falli niður náist ekki samningur
fyrir miðnætti, en að um sextíu
prósent kvenna nýti sér hana.
Almennur félagsfundur verður
haldinn kl. 17 í húsakynnum
stýrði fundinum í gær. „Þær fóru
af fundi með tilboð sem var mjög í
samræmi við það sem við höfum
samið um við aðra,“ segir hann.
„Þær vildu auðvitað miklu meira
en við gátum ekki farið yfir þær
fjárheimildir sem Alþingi
skammtar okkur og viljum heldur
ekki fara langt frá því sem aðrar
stéttir hafa fengið.“
Jón segir lítið bera í milli. „Þær
nefndu tölur og við teygðum okkur
eins og við gátum. Við tókum víxil
á framtíðina og settum meira á ár-
ið 2007 og 2008 því við vorum með
allt fullt á árinu 2006 sem við gát-
um látið út. Þegar upp var staðið
bar ekki mikið í milli og því vona
ég að þær skoði þetta tilboð vand-
lega.“
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins 37.275 kr. í lok ársins
2008. „Þarna munar um ellefu
hundruð krónum. Það þýðir rúm-
lega tveggja milljóna króna kostn-
að fyrir þjóðarbúið á ársgrund-
velli,“ segir hún ennfremur, miðað
við að um fimmtíu ljósmæður sinni
þessari þjónustu víða um land.
Guðlaug segir þjónustuna mik-
ilvægan lið í fæðingarþjónustu og
að vegna hennar sé ekki lengur
gert ráð fyrir plássi fyrir allar
sængurkonur á t.d. Landspítalan-
um.
Lítið beri í milli
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
skrifstofustjóri heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins,
Bandalags háskólamanna (BHM) í
dag. Þar hyggst samninganefnd
ljósmæðra kynna stöðu mála og
óska áframhaldandi umboðs til að
halda kröfum til streitu. Um tvö
hundruð ljósmæður eru í félaginu.
Umrædd þjónusta nær til
heimafæðinga og sængurkvenna
sem fara heim innan við 36 tíma
frá fæðingu. Samkvæmt núgild-
andi samningi vitjar ljósmóðir fjöl-
skyldu að hámarki í eina viku eftir
fæðingu og fær greidd verktaka-
laun frá TR. Fyrir átta vitjanir fær
hún 33.936 kr. en inni í því er
kostnaður við akstur og fleira.
Samninganefnd ljósmæðra lagði
til að þessar greiðslur yrðu 38.400
kr. í lok samningstímans um mitt
ár 2008 en samninganefnd heil-
Óvissa í þjónustu við sængurkonur í heimahúsum
Samningur að renna út
og fundur ekki boðaður
Eftir Örnu Schram og
Hrund Þórsdóttur
♦♦♦
ÞJÓNUSTUÍBÚÐ fyrir aldraða
við Grænumörk á Selfossi er illa
farin eftir eldsvoða sem kom upp
skömmu fyrir miðnætti í nótt. Í
húsinu eru átta íbúðir og var tals-
verður viðbúnaður vegna brunaút-
kallsins.
Brunavarnir Árnessýslus komu
á vettvang og voru sjö íbúar í hús-
inu látnir rýma íbúðir sínar vegna
eldsins. Voru þeir fluttir yfir í
sameiginlegt mötuneyti í næsta
húsi á meðan slökkviliðið réð nið-
urlögum eldsins og reykræsti að
sögn Ólafs Helga Kjartanssonar
sýslumanns á Selfossi. Ekki urðu
slys á fólki.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðis-
ins var í viðbragðsstöðu með
mannafla ef á þyrfti að halda en
aðstoð var afþökkuð við nánari
skoðun.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
voru þeir sem þurftu að rýma
íbúðir sínar allir með fótaferð.
Eldsupptök eru ókunn en verða
tekin til rannsóknar hjá lögregl-
unni á Selfossi.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Reykkafarar af Selfossi voru sendir inn í þjónustuíbúðina við Grænumörk í nótt og var eldurinn slökktur fljótt.
Eldur í þjónustu-
íbúð aldraðra
Hlúð var að íbúum sem urðu að rýma íbúðir sínar vegna eldsins.