Morgunblaðið - 08.04.2006, Síða 1
STOFNAÐ 1913 97. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Sögur, spjall
og skerpukjöt
Gestrisin færeysk hjón
taka á móti ferðalöngum | 26
Lesbók | Aftaka í beinni? Páskaljóð eftir Einar Má Börn | Gaman að
spila á tónleikum! Þrautir Íþróttir | Viðureign heitustu liðanna á
Englandi Kapphlaupið hefst í Njarðvík Lifun | Íslensk hönnun í útrás
Brussel. AFP. | Evrópusambandið
opnaði í gær fyrir skráningu á vef-
síðu með endinguna .eu. Yfir 700
þús. umsóknir bárust á fyrstu fjór-
um klukkustundunum, flestar frá
Bretlandi, Þýskalandi og Hollandi.
Vinsælustu síðurnar fram að
þessu hafa haft endinguna „sex.eu,“
svo og ýmsar með efni tengt fjár-
mála- og fasteignageiranum, svo og
hótelmarkaðnum. Ekki er stefnt að
því að nýja endingin muni koma í
stað endinganna sem hvert aðild-
arríki ESB notar núna.
Hægt er að sækja um síður hjá um
1.500 fyrirtækjum og er verðið allt
frá 12 í 100 evrur (um 9.000 kr.).
„.eu“ vinsælt
„ÉG ER eiginlega mest ringlaður og varla enn
búinn að átta mig á úrslitunum, enda stend ég
enn hér á sviðinu,“ sagði Snorri Snorrason í sam-
tali við Morgunblaðið skömmu eftir að ljóst var
að hann væri Idol-stjarna Íslands 2006.
Snorri sigraði í Idol-stjörnuleitinni í beinni út-
sendingu á Stöð tvö í Vetrargarðinum í Smára-
lind í gærkvöldi, en hann söng til úrslita á móti
Ínu Valgerði Pétursdóttur. Keppnin var æsi-
spennandi og rífandi stemning í Vetrargarðinum.
Alls voru 116 þúsund atkvæði greidd í gegnum
síma eða með sms-skilaboðum og hlaut Snorri
55% greiddra atkvæða.
Aðspurður hvort hann hefði átt von á því að
sigra í keppninni svaraði Snorri því neitandi. „Ég
var eiginlega búinn að stimpla Ínu sem sigurveg-
ara, enda um geysilega harða keppni að ræða,“
sagði Snorri og viðurkenndi að hann fyndi fyrir
smásöknuði nú þegar keppninni væri lokið.
„Þetta er búið að vera rosalega gaman og ótrú-
lega lærdómsríkt.“
Sú nýbreytni var tekin upp að kjósa eftirminni-
legasta keppanda Idol-stjörnuleitarinnar og varð
Þjóðverjinn Benedikt Van Hoof fyrir valinu.
Morgunblaðið/Eyþór
Snorri Idol-stjarna Íslands 2006
„AÐ mörgu leyti er það sem er að
gerast í okkar efnahagslífi velmeg-
unarsjúkdómar; það gengur svo vel,
það hefur gert það í svo mörg ár að
menn taka kannski meiri áhættu en
þeir ættu að gera,“ sagði Geir H.
Haarde, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins og utanríkisráðherra, í ræðu
sinni á flokksráðsfundi Sjálfstæðis-
flokksins á Akureyri í gær.
Geir kallaði titringinn sem verið
hefur á hlutabréfamörkuðum og
gjaldeyrismarkaði hér heima vaxta-
verki og afleiðingar af hröðum hag-
vexti. Þess vegna væri sérstaklega
mikilvægt nú að allir sem tækju mik-
ilvægar ákvarðanir sýndu varfærni.
Það væri boðskapurinn frá ríkis-
stjórninni, sem ætlaði að nýta 20
milljarða króna afgang af fjárlögum
til að byggja uppi sjóði fyrir mögru
árin og greiða niður skuldir.
Vill lækka matarverð
Geir ræddi einnig matarverð á Ís-
landi og sagðist vonast til þess að
með breytingum á virðisaukaskatti
og vörugjöldum væri hægt að lækka
verð á matvælum hér á landi frá og
með næsta ári. Hann rifjaði upp að
nefnd á vegum ríkisstjórnarinnar
væri nú að rannsaka með hvaða
hætti væri hægt að lækka matvæla-
verð í landinu.
„Eftir því sem menn skoða þetta
mál meira kemur á daginn að þarna
er ákveðinn frumskógur af gjöldum
sem er hægt að taka til í og snertir
bæði vörugjöld og virðisaukaskatt,“
sagði Geir.
Geir Haarde segir mikilvægt að sýna varfærni í efnahagsmálum
Velmegunarsjúkdóm-
ar í efnahagslífinu
Stefnt að | 12
Djibouti. AFP. | Enn var leitað að
um 20 manns við strönd Afríku-
ríkisins Djibouti við Rauðahaf í
gærkvöldi en ljóst var að minnst
73 höfðu farist þegar flutninga-
skipi hvolfdi á fimmtudag. Forseti
landsins, Ismael Omar Guelleh,
hefur gefið skipun um rannsókn á
slysinu en ljóst þykir að skipið,
sem var úr tré, hafi verið ofhlaðið.
Embættismenn töldu ólíklegt
að fleiri fyndust á lífi. Ekki er vit-
að með vissu hve margir voru um
borð en talið að þeir hafi verið yfir
200. Heimilt var að farþegar væru
um 150. Fólkið var á leið á
trúarhátíð með skipinu sem sigldi
frá Djibouti-borg. Meðal hinna
látnu mun hafa verið mikið af öldr-
uðu fólki sem ekki kunni að synda.
Yfir 70 fórust í skipsskaða
við strönd í Djibouti
Lesbók, Börn, Íþróttir og Lifun
MIKILL skortur er á læknum,
hjúkrunarfræðingum og öðru starfs-
fólki á sviði heilbrigðisgæslu í heim-
inum og hamlar þetta mjög barátt-
unni gegn alnæmi og öðrum
hættulegum sjúkdómum, að því er
segir í árlegri skýrslu Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar, WHO, en
alþjóðadagur heilbrigðis var í gær.
Einkum kemur þetta ástand illa niður
á mörgum Afríkuþjóðum sunnan Sa-
hara þar sem al-
næmi hefur herj-
að mest en einnig
löndum í Suður-
og Austur-Asíu.
„Lífslíkur í
sumum fátæk-
ustu ríkjunum
hafa hrunið og
eru nú aðeins
hálfdrættingur á
við það sem gerist
meðal ríkra þjóða
– vegna þess usla
sem HIV og al-
næmi hafa valdið
sums staðar sunn-
an Sahara,“ segir í skýrslunni en
einnig er bent á að borgarastríð hafi
átt sinn þátt í þessari öfugþróun.
„Alls skortir um 4,3 milljónir heil-
brigðisstarfsmanna í heiminum,“ seg-
ir í skýrslunni.
Ríkar þjóðir lokka til sín
lækna frá fátækum
Bent er á að ríkustu þjóðirnar bæti
sér m.a. upp skort á innlendum lækn-
um með því að lokka til sín lækna frá
þeim fátækustu. „Fólki í heiminum
fjölgar en fjöldi heilbrigðisstarfs-
manna annaðhvort stendur í stað eða
jafnvel minnkar í mörgum löndum
þar sem þörfin á þeim er mest,“ sagði
Suður-Kóreumaðurinn Lee Jong-
wook, yfirmaður WHO.
Brýn þörf er á fleiri læknum og
hjúkrunarfræðingum í alls 57 lönd-
um, þar sem sjúkdómar eru skæðast-
ir, til að bólusetja börn og meðhöndla
sjúklinga sem eru smitaðir af HIV-
veirunni, er veldur alnæmi, og fólk
sem komið er með sjálfan sjúkdóm-
inn. Einnig þarf að veita fólki með
malaríu og berkla læknishjálp.
Lækna-
skortur
minnkar
lífslíkur
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Stúlka vigtuð í spít-
ala á Fílabeins-
ströndinni í gær.
♦♦♦
BÆNDUR í Felton í Northumber-
land-héraði í Bretlandi hafa ráðið
tvo veiðimenn með loftriffla til að
fella risastóra kanínu sem gengur
laus og veldur usla á grænmetis-
ökrum, að sögn vefsíðu BBC.
„Við erum að
berjast við
ófreskju. Hún
er hrikaleg. Ég
hef séð sporin
eftir hana og
þau eru risa-
stór, stærri en
eftir hjört. Þetta er alger bolti,“
segir einn bóndinn, Jeff Smith. Ann-
að eyrað á dýrinu er sagt vera
lengra en hitt.
Tveir ungir menn hafa reynt að
skjóta kanínuna en aldrei náð að sjá
dýrið. Annar þeirra, Brian Cadman,
segir að kanínan hámi í sig kál, gul-
rætur og rófur. „Þetta er glorsolt-
inn garmur,“ segir hann.
Ófreskja í kálinu