Morgunblaðið - 08.04.2006, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Svona, verið þið nú snöggir að kaupa upp þessi kríusker.
Tóbaki og vöru-merkjum tóbaksskal komið þannig
fyrir á útsölustöðum að
það sé ekki sýnilegt við-
skiptavinum.“ Svo hljóðar
síðasta málsgrein sjöundu
greinar laga um tóbaks-
varnir sem voru endurút-
gefin árið 2002. Markmið
laganna er að draga úr
heilsutjóni og dauðsföllum
af völdum tóbaks með því
að minnka tóbaksneyslu
og vernda fólk fyrir áhrif-
um tóbaksreyks.
Með þessari málsgrein í
tóbaksvarnarlögunum þótti
Hæstarétti Íslands löggjafinn
fara út fyrir mörk tjáningar- og
atvinnufrelsisákvæða stjórnar-
skrárinnar, en tveir dómar féllu í
Hæstarétti á fimmtudag, sem
voru tóbakssölumönnum og
-framleiðendum í vil. Taldist tób-
aksbúðin Björk vera sérverslun
fyrir tóbaksvörur og því ekki
skyld til að fela vörur sínar fyrir
neytendum. Var það mat Hæsta-
réttar að það samrýmdist ákvæð-
um stjórnarskrár um tjáningar-
og atvinnufrelsi að setja skorður
við því að heilsuspillandi vörur á
borð við tóbak væru í augsýn ann-
arra viðskiptavina en þeirra sem
vildu kaupa þær.
Sölvi Óskarsson, eigandi Bjark-
ar, kvaðst í samtali við Morgun-
blaðið í gær sáttur við dóm
Hæstaréttar, enda hefði hann ver-
ið ósáttur við lögin frá upphafi,
þar sem erfitt væri að selja vöru
sem ekki sæist. Það væri óskilj-
anleg kvöð fyrir verslun sem seldi
ákveðna vörutegund að hún mætti
ekki hafa þá vöru sýnilega svo við-
skiptavinir gætu valið milli teg-
unda og séð hvað væri á boðstól-
um.
Hróbjartur Jónatansson, lög-
maður Japan Tobacco og Sölva
Óskarssonar, segir að í málinu
hafi verið uppi þrjár kröfur sem
allar hafi miðað að því að fá við-
urkenningu á að tiltekin bann-
ákvæði í tóbaksvarnarlögunum
væru ógild. Það fyrsta var sýni-
leikabann vörunnar í verslunum
og í öðru lagi var um að ræða bann
við vörukynningum frá framleið-
endum til smásala. Báðum þess-
um bönnum var hnekkt, en því
þriðja, banni við því að fjalla um
ákveðin vörumerki, varð ekki
hnekkt. Segir Hróbjartur orðalag
textans sem um ræddi þar hafa
skipt mestu máli. „Við töldum og
teljum að það ákvæði fari gegn
stjórnarskránni. Í því felist rit-
skoðun og það bann sé ólögmætt,“
segir Hróbjartur.
Þriðja greinin getur, að mati
Hróbjarts, fallið í öðru máli. Það
sé háð því um hvernig texta sé að
ræða. „Ég tel að það sé allt of
langt gengið og fyrirfram tálmun
á skoðanafrelsi sem jafngildir rit-
skoðun,“ segir Hróbjartur og
bætir við að gera verði greinar-
mun á söluhvetjandi tjáningu og
almennri tjáningu í fjölmiðlum.
Hróbjartur segir bannið við
birtingu vöru og miðlun upplýs-
inga hafa gert það ómögulegt að
koma að nýjum vörumerkjum.
„Samkvæmt löggjöfinni var úti-
lokað fyrir aðra aðila innan EES
sem framleiða tóbak að markaðs-
setja nýjar vörur,“ segir Hró-
bjartur. „Bannið hafði því aðeins
þau áhrif að það raskaði sam-
keppni milli tóbakstegunda. Nú
mega smásalar með málefnaleg-
um hætti sýna vöruúrvalið fyrir
reykingamenn. Vissulega er ætl-
ast til að menn gangi skynsamlega
um þennan rétt.“
Sýnileikabannið mikilvægt
Pétur Heimisson, formaður
Tóbaksvarnarráðs, segir sinn per-
sónulega skilning á dóminum
þann að megintilgangur þeirrar
greinar tóbaksvarnarlaganna sem
fjalli um sýnileikabann á tóbaki
standi óhaggaður, þrátt fyrir
dóminn. „Ég tel dóminn segja að
sérverslanir með tóbak eigi rétt á
svigrúmi til að kynna sína vöru, en
hins vegar gildi bannið gagnvart
almennum verslunum,“ segir Pét-
ur. „Sýnileikabannið er mikilvægt
fyrir tóbaksvarnir og hefur verið
virt m.a. af versluninni Björk.
Auðvitað hefði ég viljað sjá bannið
gilda óbreytt frá því sem það hef-
ur verið. Að því leyti til er þetta
ákveðið skref aftur á bak, en dóm-
ur Hæstaréttar stendur.“
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis-
ráðherra kveðst ánægð með meg-
inniðurstöðu dómsins. „Það kem-
ur fram í dóminum að löggjafa sé
heimilt að búa svo um hnútana að
varan sé ekki til sýnis fyrir þá sem
eru ekki að versla hana,“ segir
Siv. „Hin almenna niðurstaða er
að það stendur. Ég er ánægð með
það að kröfunni um viðurkenn-
ingu á að tóbaksvörur fengju al-
mennt að vera sýnilegar skyldi
vera vísað frá. Það er á grunni
þess að talið er að löggjafanum sé
heimilt að setja skorður við því að
heilsuspillandi vörur á borð við
tóbak séu í augsýn annarra við-
skiptavina en kaupenda.
Við munum skoða hvort ástæða
sé til þess að endurskoða lögin til
að skýra stöðu sérverslana svo
lagatextinn sé í samræmi við
þennan dóm. Það er spurning
hvort bæta þurfi því aftan við
lagagreinina að viðkomandi
ákvæði nái ekki til sérverslana.“
Varðandi lagaákvæðið sem
kveður á um bann við tjáningu um
einstakar tóbakstegundir segist
Siv ekki álíta sem svo að farið hafi
verið offari í lagasetningunni. Það
sé sameiginlegur vilji löggjafans
að draga úr tóbaksneyslu.
Fréttaskýring | Brýtur tóbaksvarnar-
löggjöfin í bága við stjórnarskrána?
Orðalag
endurskoðað
Ólíkar túlkanir á þýðingu dómsins
Nú má skoða úrval tóbaksvara í Björk.
Enn bannað að skrifa um
ákveðnar vörutegundir
Samkvæmt hinum nýja dómi
Hæstaréttar er nú ekki lengur
nauðsynlegt að fela tóbaksvörur
í sérverslunum með tóbak. Þá er
tóbaksframleiðendum heimilt að
kynna ákveðnar vörutegundir og
miðla upplýsingum um þær til
smásöluaðila, en það var bannað
samkvæmt sjöundu grein tóbaks-
varnarlaga. Hins vegar stendur
enn bann við því að tjá sig um
ákveðnar vörutegundir í öðru
skyni en að vara við þeim.
Eftir Svavar Knút Kristinsson
Svavar@mbl.is