Morgunblaðið - 08.04.2006, Page 18
18 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Plúsferðir · Lágmúla 4 · 105 Reykjavík · Sími 535 2100
www.plusferdir.is
Krít
39.990kr. 22 nætur.
Netverð á mann miðað við að 2 fullorðnir
ferðist saman. Brottför 30. apríl.
Innifalið: Flug, gisting í stúdíói á Antonis, flugvallarskattar
og íslensk fararstjórn.
Benidorm
40.770kr. 18 nætur.
Netverð á mann miðað við að 2 fullorðnir
ferðist saman. Brottför 29. apríl.
Innifalið: Flug, gisting á Buenavista, flugvallarskattar
og íslensk fararstjórn.
Portúgal-Albufeira
38.650kr. 18 nætur.
Netverð á mann miðað við
að 2 fullorðnir ferðist saman.
Brottför 5. maí.
Innifalið: Flug, gisting á Elimar,
flugvallarskattar og íslensk
fararstjórn.
Ódýrar
vorferðir
fyrir eldri borgara
Bókaðu strax besta
Plúsferðaverðið
5. maí
29. apríl
30. apríl
Washington. AFP. | Barnaklám er
ekki glæpur í meirihluta þeirra
landa sem eiga aðild að Interpol.
Alls eru aðildarríkin 184 og af
þeim eru 138 þar sem það telst
ekki glæpur að hafa í vörslu sinni
barnaklám. Þetta kom fram í
könnun sem gerð var á vegum Int-
erpol og Alþjóðastofnunarinnar
fyrir týnd og misnotuð börn (IC-
MEC) og var birt sl. fimmtudag í
Washington.
Að auki kom fram að í 122
aðildarríkjum væru engin viðurlög
við dreifingu barnakláms á netinu.
Aðeins fimm lönd búa yfir refsi-
ákvæðum sem teljast viðeigandi til
að berjast gegn barnaklámi: Ástr-
alía, Belgía, Frakkland, Suður-
Afríka og Bandaríkin.
Framkvæmdastjóri ICMEC,
Ernie Allen, sagði við birtingu
skýrslunnar að fólk þyrfti að skilja
að í hvert skipti sem ímynd barns,
sem hefði verið misnotað, væri
send á milli manna í pósti eða
prentuð á blað, þá væri verið að
endurtaka ferli fórnarlambsins.
Barnaklám ekki alls
staðar glæpur
AFAR litlu munar á fylgi stjórnar-
flokkanna og stjórnarandstöðunnar í
Ungverjalandi fyrir fyrri umferð
þingkosninganna sem fram fara á
morgun. Haldi stjórnin hins vegar
velli verður það í fyrsta sinn sem það
gerist í landinu frá því að lýðræðisleg-
ar kosningar fóru fyrst fram árið 1990
eftir fall kommúnismans.
Fyrr í vikunni mældist fylgi Ung-
verska sósíalistaflokksins (MSZP),
stærsta flokks landsins, um 32%, en
fylgi helsta stjórnarandstöðuflokks-
ins, íhaldsflokksins Fidesz, 31%.
Þar sem sósíalistar þurfa að reiða
sig á stuðning Bandalags frjálsra
demókrata (SZDSZ) til að vera
öruggir um að geta myndað stjórn
skiptir miklu máli að frjálslyndir
hljóti a.m.k. fimm prósent atkvæða,
en óvíst er hvort flokkurinn nái því
lágmarki, sem þarf til að fá menn
kjörna á þing. Ekki er reiknað með að
Ungverski Demókrataflokkurinn
(MDF), fjórði stærsti stjórnmála-
flokkur landsins, nái þessu lágmarki.
Ungverjar kjósa samkvæmt
tveggja umferða blönduðu kosninga-
kerfi. Í fyrri umferðinni greiðir hver
kjósandi tvö atkvæði; eitt með fram-
bjóðanda í einstöku kjördæmi og ann-
að í listakosningu.
Alls er raðað í 176 af 386 þingsæt-
um eftir úrslitum í einstökum kjör-
dæmum og þarf að efna til seinni um-
ferðar kosninga hljóti frambjóðendur
ekki hreinan meirihluta. Fer seinni
umferð kosninganna fram 23. apríl.
Mun upptöku evrunnar seinka?
Ungverjar fengu inngöngu í Evr-
ópusambandið (ESB) árið 2004 og til
að mæta kröfum þess um nauðsynleg
efnahagsskilyrði til að geta fengið að
taka upp evruna árið 2010 þurfa
stjórnvöld að helminga halla á ríkis-
sjóði í um þrjú prósent.
Núverandi útgjaldaaukning getur
hins vegar frestað þessu ferli og er
talið líklegra að Ungverjar taki upp
evruna á tímabilinu 2012 til 2013.
Má því segja að efnahagsmál hafi
verið aðalmál kosningabaráttunnar.
Ferencs Gyurcsany, leiðtogi sósíal-
ista, hefur t.a.m. lagt áherslu á um-
bætur á heilbrigðiskerfi landsins og
að ráðuneytum verði fækkað úr 15 í
12. Íhaldsmaðurinn Viktor Orban hef-
ur á hinn bóginn lagt áherslu á efna-
hagslega verndarstefnu og hækkun
lægstu launa. Á sama tíma hafa leið-
togar SZDSZ lagt fram flatan 20 pró-
senta skatt, líkt og David Ibolya, leið-
togi MDF, en hún boðar flatan 18
prósenta tekjuskatt og að þingmönn-
um verði fækkað úr 386 í 150.
Tvísýnar kosningar
í Ungverjalandi
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Jakarta. AP, AFP. | Það eru engar nektarmyndir og for-
síðan getur vart talist djörf. Engu að síður vakti það mik-
ið fjaðrafok í Indónesíu í gær þegar sala hófst á fyrsta
tölublaði indónesískrar útgáfu karlatímaritsins Playboy.
Playboy er bandarískt að uppruna og þekkt fyrir að
birta jafnan myndir af nöktum konum. Auk bandarísku
útgáfunnar eru þó gefnar út sérstakar útgáfur í 17 lönd-
um heimsins, sem sniðnar eru að venjum og áhuga fólks í
þeim löndum. Útgefendur Playboy í Indónesíu þykja
hafa lagt sig í líma við að hafa fyrsta tölublaðið hófstillt,
myndirnar í því eru ekki djarfari en þær sem birtast í
ýmsum öðrum tímaritum sem eru til sölu í þessu fjöl-
mennasta múslímaríki veraldar. Samt eru margir reiðir.
Ein samtök harðlínumanna, Verjendur íslams (FPI),
hafa meira að segja heitið því að beita hvaða brögðum
sem þarf til að fjarlægja tímaritið úr öllum verslunum.
Skýrir þetta hvers vegna 30 lögreglumenn stóðu vörð um
ritstjórnarskrifstofu Playboy í Jakarta í gær.
„Fyrsta tölublaðið kann að vera í lagi, en blaðið á eftir
að verða klúrara,“ sagði Tubagus Muhamad Sidik, tals-
maður áðurnefndra samtaka. „Jafnvel þó að engar
myndir af konum væru í því þá myndum við samt mót-
mæla útgáfunni nafnsins vegna.“
Og múslímaleiðtoginn Yusuf Hasyim sagði Indónesíu
stafa meiri hætta af Playboy heldur en þeirri hryðju-
verkastarfsemi sem aðilar tengdir al-Qaeda hafa staðið
fyrir, en a.m.k. 240 manns hafa dáið í hryðjuverkum í
Indónesíu á undanförnum árum. „Þetta er eins konar
siðferðileg hryðjuverkastarfsemi,“ sagði hann.
„Við höfum verið blekktir“
Í þessu fyrsta hefti Playboy í Indónesíu er viðtal við
Pramoedya Ananta Toer, þekktasta rithöfund og gáfu-
mann Indónesíu, auk þess sem þar er að finna langa
grein um sáttaferlið milli Indónesíu og Austur-Tímor.
Ýmsir lýstu því óánægju sinni með fyrsta hefti Playboy
líkt og íslömsku harðlínumennirnir, en af allt öðrum
ástæðum. „Það er beinlínis syndsamlegt að lesa Playboy
ef það er enga nekt þar að finna!“ sagði einn sem hringdi
í stjórnanda þáttar á útvarpsstöðinni 68H í Jakarta.
„Þetta er hneyksli! Það eru engar berar konur í blaðinu.
Við höfum verið blekktir,“ sagði annar.
Fjaðrafok
vegna
Playboy
Reuters
Liðsmaður samtakanna Verjendur íslams heldur á lofti
eintaki af Playboy en samtökin stóðu fyrir mótmælum
fyrir framan ritstjórnarskrifstofur blaðsins í gær.
NOKKUR fjöldi Palestínumanna stóð í gær fyrir mót-
mælum við hinn umdeilda öryggismúr Ísraela á Vestur-
bakkanum. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
(ESB) ákvað í gær að skrúfa fyrir allar greiðslur til pal-
estínsku heimastjórnarinnar. Nokkru síðar barst yfir-
lýsing frá Bandaríkjastjórn um að greiðslur frá henni
yrðu einnig stöðvaðar. ESB hefur verið helsti styrktar-
aðili heimastjórnarinnar á undanförnum árum og hafa
Palestínumenn verið mjög háðir aðstoðinni, sem hefur
numið um 45 milljörðum íslenskra króna á ári.
Er um að ræða öll laun til embættismanna, en
ákvörðunin snertir hins vegar ekki mannúðaraðstoð.
Reuters
Skrúfar fyrir greiðslur til Palestínu