Morgunblaðið - 08.04.2006, Side 19

Morgunblaðið - 08.04.2006, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 19 ERLENT Hvanneyri • 311 Borgarnes • s. 433 5000 • www.lbhi.is Landbúna›arháskóli Íslands Kynntu flér námslei›ir vi› LBHÍ, vi› bjó›um grunn a› framtí›. www.lbhi.is Umhverfisskipulag (landslagsarkitektúr) Búvísindi /gar›yrkja Náttúru- og umhverfisfræ›i Skógfræ›i og landgræ›sla Nám í LBHÍ – grunnur a› framtí› Líma. AFP. | Fylgið hrynur nú af vinstri-pópúlistanum Ollanta Hum- ala sem haft hefur forystu í skoð- anakönnunum vegna forsetakosn- inganna í Perú, sem fram fara á sunnudag. Samkvæmt nýrri könnun fyrir- tækisins CPI hefur Humala nú 25,9 prósent fylgi en þingkonan Lourdes Flores 27,6 prósent. Í þriðja sæti kemur svo Alan Garcia, sem var for- seti Perú 1985-1990, með 24,9 pró- sent fylgi. Fái enginn frambjóðandi meira en 50% í kosningunum á sunnudag þarf að kjósa aftur á milli tveggja efstu manna. Skoðanakönnun, sem birt var um síðustu helgi, sýndi Humala með 31,5 prósent fylgi, Flores með 26,8 pró- sent og Garcia með 23,1 prósent. Var haft eftir Manuel Savedra, yfirmanni hjá CPI, að fylgistap Humalas nú skýrðist sennilega af því, að keppi- nautar hans hefðu með eindregnari hætti beint spjótum sínum að hon- um. Jafnframt hefðu fjölmiðlar í Perú sótt hart að honum. „Borgararnir eru farnir að taka eftir gagnrýninni, menn hafa nú meiri áhyggjur af því en áður að Humala myndi leiða þjóð- ina út í ógöngur,“ sagði Savedra. Fór mikinn í lokaræðunni Humala lauk kosningabaráttu sinni með ræðu á fimmtudag þar sem hann fór mikinn gegn „fasista- einræðisstjórn hinna efnasterku valdamanna“, sem hann segir hafa rænt Perú sönnu lýðræði. Sagðist hann ætla að leggja mun meiri skatta á erlend stórfyrirtæki, sem grætt hafi ótæpilega á námum sem tilheyri Perú-búum. Humala þykir sverja sig í ætt við menn eins og Evo Morales, sem nýverið komst til valda í Bólivíu, en víðar í Rómönsku Ameríku hafa vinstrimenn verið að komast til valda. Humala tapar fylgi í Perú  !"#$ %&    '(  ) *+ , -   .- +- , / /  - ,0 (  /-  /  ,   , ,1 * / +     --  , 2!         ,,  '  & ,    2 4" ?M A &'' ' !  %  0 %*A2 2N%   0  % O*  % .0  %  ; %" A PN. %  .A %* ,% 'M J#* A (') % &  % %"  . A ,QAN A 2$A "  J#* ;%* #"/ 2N A ,QAN#" ;    %%%. & * ?  1 ! %*"  0 <% $  ;"" ?  . 0 1  A  . %. 1 %7 :# <MGM A * + &;   %  .0 %% 1   N  J% 4. A ,'&;%*  %" . );   " "N0 . "  A  2  1 ."% !%  J" A -  &;%* ; / .0 %*A%  );  A"   0 .     * A   % %". A %N.# 6  (  % A ' 4N .  %  /. 02.0    8N%  ,    A .# '-N A  .  % " ;0 21  0   "  )A %0 NA * ,  ? " 4. = , A /% 672  %%    $  0. %*21%  0*1%* ?   " #  ""%  . */ % N* &    $% 0    +     ' = *  P ? ;  ' M 5%  ' * -  A /  &;   %  .0 %% 1   N A  1 TALSMENN Hvíta hússins neituðu í gær að svara spurningum um hvort George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hafi heimilað birt- ingu upplýsinga sem leiddu til upp- ljóstrunar á nafni leynilegs útsend- ara bandarísku leyniþjónustunnar (CIA). „Það stendur yfir dómsmál vegna málsins og stefna okkar er að tjá okkur ekki um málið á meðan því stendur,“ sagði Scott McClellan, talsmaður Hvíta hússins í gær. Tilkynningin kemur í kjölfar þess að I. Lewis „Scooter“ Libby, fyrr- verandi skrifstofustjóri Dick Chen- eys, varaforseta Bandaríkjanna, fullyrti fyrir rétti að Bush hefði heimilað að leynilegum upplýsing- um um Valerie Plame, sem starfaði þá sem njósnari hjá CIA, var lekið til fjölmiðla. Að sögn Libbys var honum sagt í júlí 2003, þegar hann var starfs- mannastjóri Cheneys, að láta Judith Miller, blaðamann hjá New York Times, í té leynilegar upplýsingar, sem bundu enda á feril Plames sem njósnara. Fullyrðir Libby jafnframt að Cheney hafi sagt að forsetinn hafi lagt blessun sína yfir að slíkt yrði gert, með það að markmiði að refsa diplómatanum Joseph Wilson, eig- inmanni Plames, sem sagði í blaða- grein í New York Times 6. júlí 2003 að stjórn Bush hefði oftúlkað upp- lýsingar, sem síðar voru notaðar til að réttlæta innrásina í Írak. Skrifin vöktu heimsathygli Komst Wilson í heimsfréttirnar vegna þessara skrifa, en hann lýsti því yfir að hann hefði í samtölum við ráðgjafa Bush í aðdraganda innrás- arinnar dregið kaup Saddams Husseins, fyrr- verandi forseta Íraks, á úrani frá Níger í efa. Sjálfur bíður Libby þess að réttarhöld hefjist yfir honum í jan- úar á næsta ári, en hann sagði af sér embætti skrifstofustjóra hjá Cheney eftir ákærur um að hann hefði sagt rannsakendum ósatt í rannsókn á lekanum á upplýsingum um Plame. Patrick Fitzgerald, sérstakur rannsóknardómari í máli Plames, sagði að uppljóstrun Libby hefði verið afleiðing „mikils vilja marga, þ.m.t. margra aðila hjá Hvíta hús- inu“, til að refsa Wilson fyrir skrifin. Demókratar hafa verið harðorðir vegna málsins og sakað forsetann um að hafa brotið lög með lekanum. „Ef forseti Bandaríkjanna heim- ilar leka á leynilegum upplýsingum til að eyðileggja feril fólks … er eitt- hvað ótrúlega rangt við starfshætti þeirra [hjá Hvíta húsinu],“ sagði John Kerry, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins árið 2004. Repúblikanar í vanda Vegna fjölmiðlaathyglinnar sem mál Libbys hefur vakið er Bush nú undir vaxandi þrýstingi um að til- kynna hvort stjórn hans hafi staðið á bak við ýmsa aðra leka. Óhætt er að segja að málið hafi komið sér illa fyrir Bush, en stuðn- ingur við forsetann mælist nú í sögulegu lágmarki, eða um 36%. Þá eru aðeins 30% kjósenda sátt við frammistöðu þingsins, sem er nú undir stjórn repúblikana, nú þegar rúmt hálft ár er til kosninga. Ásakanir setja Bush í vanda Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is I. Lewis „Scooter“ Libby Bagdad. AFP, AP. | Að minnsta kosti 79 manns biðu bana og 164 særðust þegar þrír menn sprengdu sjálfa sig í loft upp í sjíta-mosku í Bagdad í gær. Um er að ræða eitt mannskæð- asta einstaka ódæðisverkið í Írak undanfarna mánuði. Tilræðið átti sér stað fyrir utan Baratha-moskuna í norðurhluta Bagdad en aðalklerkurinn þar, Sheikh Jalaluddin al-Saghir, er fulltrúi á íraska þinginu fyrir banda- lag sjíta, stærsta flokkinn á þingi. Fullyrt var að tveir mannanna hefðu verið klæddir sem konur, í því skyni að komast framhjá öryggisvörðum. Var talið möguleiki að meiningin hefði m.a. verið að ráða al-Saghir af dögum, en hann slapp lifandi. Aðstæður á vettvangi voru hroða- legar, blóðið litaði jörðina og lík fórnarlamba voru illa leikin. Í kjölfar árásar í Najaf Þetta var annan daginn í röð sem ráðist var gegn sjítum í Írak, en á fimmtudag hafði bílsprengja sprungið í hinni helgu borg Najaf. Að minnsta kosti 10 manns týndu lífi í tilræðinu. Óttast margir að öfga- menn vilji æsa til borgarastríðs milli súnníta og sjíta í landinu; sumir segja þó raunar að borgarastríð sé fyrir margt löngu hafið í Írak. Reuters Írakar fjarlægja lík af vettvangi tilræðisins í miðborg Bagdad í gær. Um áttatíu féllu í Bagdad

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.