Morgunblaðið - 08.04.2006, Page 26
26 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í APRÍL
Ég er búin að dæsa mikiðyfir þessari mynd,“ segirHrönn Bergþórsdóttirsem er á leiðinni til Afríku
um páskana ásamt vinkonu sinni
Erlu Gunnarsdóttur þar sem þær
ætla að hlaupa últra-maraþon, 56
kílómetra. Myndin sem hún bendir á
sýnir hækkunina sem þær hlaupa á
leiðinni. „Þetta eru nefnilega töluverð
hlaup upp og niður og mér skilst að
niðurhlaupið sé mjög erfitt,“ bætir
hún við. „Það tekur í.“
Hrönn og Erla hafa þekkst langa
tíð, en þær voru báðar í Mennta-
skólanum að Laugarvatni, útskrif-
aðar þaðan 1981. „Við vissum ekki
hvor af annarri þegar við skráðum
okkur í hlaupið,“ heldur Hrönn
áfram, „erum sín í hvorum hlaupa-
hópnum.“ Og Erla tekur við: „Svo
fréttum við að við værum að fara
saman í þetta, vinkonurnar.“ Alls fara
átta manns, þar af þrjár konur, frá
Íslandi í þetta hlaup, þ.e. lengstu
vegalengdina, og einn þátttakenda er
eiginmaður Erlu, Stefán Stefánsson.
Eftir því sem þær best vita hafa Ís-
lendingar ekki tekið þátt í þessu
hlaupi fyrr.
„Þetta hlaup hefur verið haldið í 37
ár og er eitt af frægari hlaupum í
Afríku,“ segir Erla. „Það sem gerir
þetta líka svolítið spennandi fyrir mig
er að ég hef áður hlaupið maraþon í
Evrópu og Bandaríkjunum og þarna
er ég að bæta einni heimsálfu við.“
Hrönn hefur hlaupið maraþon í
Kaupmannahöfn auk þess sem hún
hljóp Laugaveginn í fyrrasumar.
„Það er svipuð vegalengd þannig að
ég hef aðeins klöngrast yfir fjöll og
svona.“
Sigur að komast í mark
Hlaupið er kallað Tveggja hafa
hlaup og Erla útskýrir af hverju.
„Það er hlaupið frá Indlandshafi og
yfir að Atlantshafi.“ „Þetta þykir ein
fallegasta maraþonleið í heimi,“ bætir
Hrönn við.
Flogið er fyrst til London og þaðan
er flogið beint til Höfðaborgar. „Við
lendum á fimmtudegi og hlaupið
hefst klukkan 7 á laugardagsmorgni,“
segir Erla. „Hámarkstími í hlaupinu
er 7 klukkutímar,“ segir Hrönn og
bætir svo stóreyg við, „þá loka þeir
bara,“ og heldur svo lýsingunni
áfram. „28 kílómetrana eigum við að
HVERT ERTU AÐ FARA? | Til Afríku að hlaupa últra-maraþon
Nokkrar Hellisheiðar
og Kambar á leiðinni
Myndin sýnir leiðina sem hlaupin verður annarsvegar meðfram Indlandshafi og hinsvegar meðfram Atlantshafi.
Eftir Sigrúnu Ásmundar
sia@mbl.is
Morgunblaðið/Eyþór
Erla Gunnars-
dóttir og
Hrönn Berg-
þórsdóttir
munu standa í
stórræðum
um páskana
þegar þær
hlaupa últra-
maraþon í
Afríku.
„… ef þú
ferð ekki
rólega af
stað þá
deyrðu.“
Sterk og megn sannfæreyskmatarlykt er það fyrsta semvitin skynja þegar inn erstigið í látlaust heimili bónd-
ans á Selatröð, Rasmuss Skorheim
og konu hans, Eybjargar. Þrátt fyrir
að fyrir augu beri fallega innan-
stokksmuni, myndir, og einstakt
handverk og heimalöguð færeysk
tónlist kitli eyrun. Skerpukjöt, rúg-
brauð, harðfiskur, hvalspik og verkuð
grind liggja á borðum með tilheyr-
andi ákavítissnafsi og rjúkandi heitu
kaffi. Það er hlýtt að stíga inn fyrir
þröskuldinn úr janúarnæðingnum,
inn í húsið sem Rasmus byggði sjálf-
ur.
Rasmus og Eybjörg, sem hafa
lengi starfað sem fjárbændur, hafa
boðið gestum inn á heimili sitt undan-
farin ár til að leyfa þeim að bragða á
ekta færeyskri matargerðarlist auk
þess sem Rasmus leiðir hópa í göngu-
ferðir um hóla, hæðir og fjöll, segir
sögur og skýrir náttúrufyrirbæri fyr-
ir gestum sínum. Af hreinræktaðri
gestrisni ganga þau hjónin um beina
með hlýju þeirri og kumpánaskap
sem einkennir færeyska menningu.
Nýsköpun í kreppu
„Þegar kreppan reið yfir Færeyjar
voru hér afar erfiðir tímar. Við sáum
þúsundir Færeyinga flytja héðan til
Danmerkur og mikið vonleysi, en nú
eru þeir næstum allir komnir til
baka,“ segir Rasmus sem starfaði
einnig sem vélstjóri á skipi í tíu ár áð-
ur en hann gerðist fjárbóndi. „En á
þessum tíma vorum við konan mín að
ræða hvernig við gætum látið endana
ná saman og konan mín stakk upp á
því að við prófuðum að bjóða ferða-
mönnum í gönguferðir í náttúrunni,
segja sögur og gefa fólki að borða
heima hjá okkur eftir gönguferðirn-
ar,“ segir Rasmus. „Ég hef gengið
mikið í náttúrunni hér og þekki mörg
áhugaverð sjónarhorn á hana auk
þess sem ég get sagt fólki fjölda
skemmtilegra sagna héðan úr sveit-
inni. Það hefur nýst mjög vel í þessu
starfi og fólk er mjög forvitið og ég
held að það læri mikið á því að rölta
þetta með mér.“
Fólk frá öllum löndum kemur í
heimsókn til þeirra Rasmuss og Ey-
bjargar allt árið um kring, enda er
veturinn hvorki langur né harður í
Færeyjum. „Okkur þykir mjög vænt
um Bandaríkjamenn sem koma hing-
að. Þeir vilja prófa allt og eru spennt-
Eftir Svavar Knút Kristinsson
Svavar@mbl.is
Ljósmynd/Sigurður Jökull
FÆREYJAR | Gestrisin færeysk hjón bjóða ferðafólki heim í mat
Sögur, spjall og skerpukjöt
„Ég hef gengið mikið í
náttúrunni hér og þekki mörg
áhugaverð sjónarhorn á hana
auk þess sem ég get sagt
fólki fjölda skemmtilegra
sagna héðan úr sveitinni.“
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
Afgreiðslugjöld á flugvöllum.
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna og
minibus, 9 manna, og rútur með/án
bílstjóra.
Höfum bíla með dráttarkrók og smárútur,
allt að 14 manna. Smárútur fyrir
hjólastóla.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af öllum
stærðum - frá 2ja manna og upp í 30
manna hallir. Valið beint af heimasíðu
minni. - Þið takið húsið frá í 3 daga án
greiðslu og við staðfestum síðan og
sendum samning og greiðsluseðla. Einnig
má greiða með greiðslukorti.
LALANDIA
Útvegum sumarhús í Lalandia, einhverju
skemmtilegasta orlofshverfi Danmerkur.
Lágmarksleiga 2 dagar.
Húsbílar, hjólhýsi fyrir VM 2006
Höfum nokkra húsbíla fyrir VM 2006 í
Þýskalandi til afgreiðslu frá Kaupmanna-
höfn og Flensborg. Getum útvegað
hjólhýsi og bíla með dráttarkrók.
Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu;
www.fylkir.is
Fylkir.is ferðaskrifstofa
sími 456 3745
Eina ferðaskrifstofan á Vestfjörðum sem
ekki nýtur styrkja frá opinberum aðilum
Bílaleigubílar
Sumarhús í
Danmörku
Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
Vika á Spáni
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
15
83
03
/2
00
6 11.100 kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar.
Bíll úr flokki A
frá
50 50 600 • www.hertz.is
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
*Verð miðast við meginland Spánar
og gengi 1. mars 2006.
*
Viðar Böðvarsson
viðskiptafræðingur
og löggiltur
fasteignasali
Vorum að fá í einkasölu
þennan fallega sumar-
bústað í Úthlíðinni.
Skipulag bústaðarins:
Forstofa með flísum og
fatahengi, þrjú herbergi
með spónarparketi,
baðherbergi með
sturtu, flísar á gólfi,
stofa með spónarpark-
eti, eldhús með fallegri ljósri innréttingu, stór verönd með heitum potti og
góðum skjólveggjum. Ágætur geymsluskúr.
Í bústaðnum er rafmagn og hitaveita. Landið er 6.210 fm leigulóð.
Afh. er 1 maí 2006. Verð 13,5 millj.
OPIÐ HÚS VERÐUR LAUGARDAGINN 8. APRÍL MILLI KL. 14 OG 16.
Vegvísir: Ekið upp frá þjónustumiðstöð, fylgt merkingu að bústöðum
Actavis, síðan merki Ljósmæðrafélagsins - brúnt tré með hvítum grunni,
síðan Guðjónsgata 11.
Sumarhús í Úthlíð
OPIÐ HÚS LAUGARDAG KL 14 - 16
Innihaldið skiptir máli