Morgunblaðið - 08.04.2006, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 29
MENNING
INNRITUN Í TÓNLISTARSKÓLA
Í REYKJAVÍK 2006-2007
Innritun í tónlistarskóla í Reykjavík er hafin
og lýkur 30. apríl 2006.
Umsóknum verður svarað á
tímabilinu 15. maí-30. júní.
Vinsamlega athugið að innritun fer
fram í gegnum Rafræna Reykjavík
á heimasíðunum:
www.reykjavik.is
www.menntasvid.is
Einnig er hægt að sækja um
hjá tónlistarskólunum.
Nánari upplýsingar um innritun
eru veittar í tónlistarskólunum
og í síma 4 11 11 11.
Heimsferðir kynna frábært tilboð í vorferð til Costa del Sol 1.-18. maí.
Bjóðum nú glæsilegt **** hótel, Hotel Luca Costa Lago með frábærum
aðbúnaði fyrir gesti. Stór og fallegur sundlaugagarður með mjög góðri
aðstöðu. Fallega innréttuð og vel útbúin herbergi. Skemmtidagskrá á
vegum hótelsins og fjölbreytt afþreying í boði. Hotel Costa Lago er í rólegu
og fallegu umhverfi aðeins 150 metra frá
ströndinni. Hálft fæði er innifalið í verði.
Frábær kostur á einstöku verði fyrir þá
sem kjósa góðan aðbúnað, fallegt
umhverfi og mikla þjónustu.
Njóttu vorsins í 18 nætur á þessum vin-
sælasta áfangastað Íslendinga í sólinni
og búðu við glæsilegan aðbúnað. Að
sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu
fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Costa del Sol
1.-18. maí
frá kr. 29.990
Munið Mastercard-
ferðaávísunina
Frá kr.29.990
Flugsæti með sköttum. Netverð á mann.
Glæsileg gisting
Frá kr.69.990 - 18 nætur
Flug, skattar og gisting í tvíbýli á Hotel Luca
Costa Lago **** með hálfu fæði í 18 nætur
og íslensk fararstjórn. Netverð á mann.
Listamannaspjall er 23. apríl, en
þá sitja þær fyrir svörum og ræða
verk sín við gesti. Listasafn ASÍ er
opið alla daga nema mánudaga frá
kl. 13 til 17. Lokað verður á föstu-
daginn langa, páskadag og annan
páskadag en opið á skírdag.
TVÆR LISTAKONUR opna sýn-
ingu í Listasafni ASÍ í dag. Í Ás-
mundarsal opnar sýning á verkum
Önnu Jóelsdóttur. Anna, sem bú-
sett hefur verið í Chicago um ára-
bil, kallar sýninguna „Heima?/
Home?“ „Ég get sagt að ég eigi
heima í tveimur löndum og hugur
minn er alltaf á einhvern hátt á
tveimur stöðum í einu; á Íslandi og
í Chicago, þar sem ég hef búið síð-
an 1992. Á sýningunni er ég að
velta þessu fyrir mér: Hvað er
heima,“ sagði Anna þegar blaða-
maður náði af henni tali, en hún
mun setja sömu sýningu upp í Zg-
galleríinu í Chicago.
„Þetta er vissulega sérkennileg
tilfinning. Ég er alin upp á Íslandi
og hef búið hér lengstan hluta æv-
innar, en í fimmtán ár úti. Það
kemur þó að þeim tímapunkti að
maður fer að velta fyrir sér hvar
maður eigi heima. Ég á djúpar
rætur á Íslandi en er jafnframt
farin að festa rætur í Chicago-borg
og þetta togast stöðugt á. Helst
myndi ég vilja búa á báðum stöð-
um í einu, en það er víst ekki
hægt,“ segir listakonan glettin.
Á sýningunni getur að líta verk
sem Anna hefur unnið á þessu ári
og því síðasta. Bæði eru sýnd
stærri verk og smærri, þau
stærstu eru hálfur annar metri á
breidd en þau minnstu aðeins 5
cm. Einnig sýnir Anna þrívítt verk
og bókverk.
Anna fluttist búferlum til
Chicago-borgar án þess að hafa
nokkurn listrænan bakgrunn en
hún hafði áður lokið framhalds-
námi í uppeldis- og mennt-
unarfræðum: „Ég var tvístígandi
um hvað ég ætlaði að gera og leist
ekki á að stunda kennslu á
menningarsvæði sem var ekki mitt
eigið. Myndlistin hafði alltaf togað
í mig og ég byrjaði að sækja nám-
skeið í listaháskóla. Síðan vatt
þetta upp á sig uns ég steig skrefið
til fulls og fór í fullt nám,“ segir
Anna sem síðan hefur sýnt verk
sín víða og hlotið töluverða umfjöll-
un. Meðal annars fjallaði tímaritið
The New Yorker um sýningu
hennar í Stuxgallery í New York í
fyrra.
Heimilisstörf á Malí
Ásamt Önnu opnar Ásta Ólafs-
dóttir sýningar í Gryfju og Arin-
stofu Listasafns ASÍ. Ásta dvaldi í
Afríkuríkinu Malí frá desember
fram í janúar á þessu ári og byggir
hún sýningu sína á þeirri reynslu.
„Í Gryfjunni er ég með sýningu
sem ég kalla Túbab, túbab, en
túbab þýðir hvítur maður í Malí.
Þetta er innsetning sem sam-
anstendur af myndbandi og hlutum
sem vefjast í kringum efni þess. Á
myndbandinu sýni ég aðallega
heimilisstörf fólksins í Malí og
tengi þau við íslenskan veruleika
án þess að ég sé að bera saman
eða fást við mismunandi efnahag.
Ég er að fjalla um furður fram-
andleikans, þróun þjóðfélagsins og
blanda dálítið saman tímanum á Ís-
landi og Malí. Ég toga heim-
ilisstörfin inn í það sem myndlist
fjallar um og finn eitthvað sameig-
inlegt með mínum veruleika og
þeirra,“ segir Ásta hugsi.
Í Arinstofunni má sjá ferðasögu
Ástu frá Malí. „Þar er ég að ganga
frá ferðalaginu og sýni ljósmyndir
sem ég tók í Malí og tuttugu mín-
útna langt myndband sem sýnir
það sem kom mér fyrir sjónir sem
ferðamaður.“
Ásta hefur starfað að myndlist
síðan hún lauk námi í Jan van
Eyck-akademíunni í Hollandi
1984. Hún vinnur verk sín oft sem
skúlptúra eða innsetningar og við-
fangsefni hennar fjalla gjarnan um
manneskjuna í tíma og hefðum
samfélagsins.
Sýningar Önnu og Ástu í Lista-
safni ASÍ standa til 30. apríl.
Myndlist | Tvær listakonur sýna í Listasafni ASÍ
Hvar er heima?
Eftir Ásgeir Ingvarsson
og Ingveldi Geirsdóttur
asgeiri@mbl.is, ingveldur@mbl.is
Morgunblaðið/Júlíus
Anna sýnir í Ásmundarsal innsetningar stórra, lítilla, örsmárra, ferhyrndra, sporöskjulaga og þrívíðra verka.
Morgunblaðið/Júlíus
Ásta Ólafsdóttir sýnir m.a. myndir frá Malí í Listasafni ASÍ.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn