Morgunblaðið - 08.04.2006, Síða 50
50 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Indriði Stefáns-son Hjaltason
fæddist á Siglufirði
13. ágúst 1930. Hann
lést á Heilbrigðis-
stofnun Blönduóss
að morgni 2. apríl
síðastliðins. Foreldr-
ar hans voru Hjalti
Gunnarsson Ed-
valdsson, vörubíl-
stjóri, bóndi á Máná
á Úlfsdölum, bóndi á
Bræðraá í Sléttu-
hlíð, síðast bóndi á
Skagaströnd, f. á
Akureyri 5. október 1901, d. 31.
mars 1985, og Hólmfríður Rögn-
valdsdóttir, húsfreyja á Siglufirði,
húsfreyja á Máná á Úlfsdölum, Eyj.,
Bræðraá í Sléttuhlíð, Skag., og síð-
ar á Skagaströnd. síðast búsett í
Kópavogi, f. á Tungu í Stíflu í
Skagafirði 9. maí 1904, d. 13. októ-
ber 2000. Systkini Indriða eru Guð-
rún, f. 27 ágúst 1935, maður hennar
Óskar Ingvason, Ragna, f. 25 ágúst
1937, maður hennar Hlöðver Ingv-
arsson, Guðlaug, f. 19 mars 1941,
maður hennar Þorkell Hólm Gunn-
arsson og bróðir samfeðra er Jón
Þorsteinsson, f. 16. maí 1929, kona
hans er Sigríður Steindórsdóttir.
Eiginkona Indriða er Guðrún
Angantýsdóttir, f. 3. febrúar 1940.
Þau gengu í hjónaband 30. maí
1958. Foreldrar hennar eru Hilmar
Angantýr Jónsson, f. í Bólstaðar-
hlíð, A-Hún. 11. maí 1910, d. 28. júlí
1983, og Jóhanna Jónasdóttir, f. á
Fjalli, A-Hún. 15. október 1917.
Börn Indriða og Guðrúnar eru 1)
fyrri sambúð með Ingibjörgu
Hauksdóttur, f. 15. júlí 1951, átti
Ingþór dæturnar Önnu Karen, f.
24. febrúar 1980, sonur hennar er
Heiðar Ares Önnuson, f. 15. desem-
ber 2001, og Heiðu Rún, f. 4. októ-
ber 1984. Móðir Ingþórs er Anna
Kristbjörg Þorsteinsdóttir, f. 25.
febrúar 1922. 6) Gunnar, f. 12. októ-
ber 1955, sambýliskona Guðrún
Svanhvít Guðjónsdóttir, f. 13. des-
ember 1960, dætur þeirra eru
Svanhvít Erla, f. 30. júní 1984, dótt-
ir hennar er Sólveig Rut Guð-
mundsdóttir, f. 26. janúar 2004, og
Berglind Björg, f. 21. september
1995. Móðir Gunnars er Soffía Guð-
laugsdóttir, f. 31. ágúst 1928.
Indriði ólst upp á Siglufirði til 12
ára aldurs en þá fluttu foreldrar
hans á jörðina Máná á Úlfsdölum
og seinna fluttu þau sig á jörðina
Bræðraá í Sléttuhlíð. Indriði stund-
aði almenn sveitastörf og sjó-
mennsku með föður sínum er hann
var ungur Hann kom til Skaga-
strandar árið 1957 og vann við síld-
arvinnslu og kynntist konunni sinni
þar. Lagði hann fyrir sig sjó-
mennsku sem hann stundaði meiri
hluta ævinnar, einnig vann hann
við múrverk í mörg ár. Hann var
með sauðfjárbúskap frá 1968–1978
eins og tíðkaðist á þeim árum. Átti
hann töluverðan bústofn og eins
mikið af hrossum en af þeim hafði
hann mikið yndi. Frá því að Indriði
kom til Skagastrandar bjó hann
þar og byggði hann húsið sem þau
hjónin bjuggu í. Hin síðari ár átti
Indriði við töluverða vanheilsu að
stríða og var af þeim sökum oft á
spítala en þess á milli var hann
heima og naut umönnunar konu
sinnar.
Útför Indriða verður gerð frá
Hólaneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Sigurbjörg Árdís
bókavörður, f. 1. jan-
úar 1959, maður
hennar er Björn Ingi
Óskarsson kerfis-
stjóri, f. 25. janúar
1963, synir þeirra eru
Þórður Indriði, f. 26.
ágúst 1992 og Þórir
Óskar, f. 26 ágúst
1992. Sonur Árdísar
frá því fyrir hjóna-
band er Davíð Bragi
Björgvinsson, f. 30.
apríl 1981, faðir hans
er Björgvin Yngvi
Hrafnsson, f. 21. mars 1961. 2)
Hjalti Hólmar sjómaður, f. 20. jan-
úar 1964, sonur hans og fyrrver-
andi eiginkonu, Cristinu Siloud
YecYec, f. 14. apríl 1971, er Indriði
Theodór Hjaltason, f 20. maí 1995.
3) Jón Hilmar vélstjóri, f. 15. ágúst
1968, kona hans er Kristín Theo-
dóra Hreinsdóttir læknir, f. 18.
ágúst 1968, börn þeirra eru Hilda
Guðrún, f. 1. nóvember 1999, og
Stefán Tumi, f. 21. nóvember 2002.
4) Jóhannes Heiðmar sjómaður, f.
18. nóvember 1977, sambýliskona
Margrét Björk Magnúsdóttir nemi,
f. 22. nóvember 1982, börn þeirra
eru Magnús Dagur, f. 16. febrúar
2000, Alexander Tristan, f. 23 júlí
2001, og Guðbjörg Eva, f. 15 janúar
2006. Synir Indriða frá því fyrir
hjónaband eru 5) Ingþór sjómaður,
f. 17. október 1952, kona hans er
Guðný Anna Ríkharðsdóttir, f. 7.
desember 1964, synir þeirra eru
Víðir Ísfeld, f. 22 . janúar 1988 og
Anton Friðrik, f. 14 júlí 1992. Frá
Pabbi minn elskulegur er farinn í
sína hinstu ferð frá okkur.
Á tímamótum sem þessum er
söknuður og eftirsjá það sem helst
kemst að í huga okkar sem eftir er-
um. Hugurinn leitar til baka til þess
tíma er pabbi var hress og frískur
og hljóp upp um fjöll að smala kind-
um eða hrossum, eða þegar við
pabbi vorum saman á grásleppu-
veiðum á vorin, í kulda og hreti eða
indælli vorblíðu og spegilsléttur sjó-
inn svo langt sem augað eygði.
Pabbi minn var fyrst og fremst
sjómaður og bóndi. Hann átti tals-
vert af kindum í nokkur ár hérna á
Skagaströnd og á vorin var sérlega
gaman að fylgjast með þegar sauð-
burðurinn stóð yfir. Hross átti hann
líka og þau æði mörg. Segja mátti
að öll þau hross sem til voru á
Skagaströnd væru eignuð honum
þó svo að þannig væri ekki. Löngu
eftir að pabbi var hættur með
hrossastóðið sitt var verið að
hringja heim og tilkynna að hrossin
hans Indriða væru laus á ráfi um
bæinn.
Að ganga á fjöll og fara á rjúpu
var nokkuð sem pabbi stundaði í
mörg ár, en rjúpur borðaði hann þó
ekki, þetta var allt upp á sportið og
svo var einhver búbót í því að selja
rjúpur á þeim árunum. Ég man öll
þau Þorláksmessukvöld er við pabbi
fórum saman í allar búðir bæjarins
en þær voru þó nokkrar þegar ég
var krakki. Best af þeim var bóka-
búðin en þar endaði yfirleitt ferð
okkar og enn man ég góðu bóka-
lyktina og gamaldags afgreiðslu-
háttinn, en það var afgreitt yfir
búðarborðið og þurfti að biðja um
að fá að skoða það sem áhuginn
stóð til. Pabbi var mikill bókamaður
og keypti alltaf bækur til jólagjafa.
Að vera með pabba í þessum ferð-
um var óskaplega spennandi, við
keyptum jólagjafir handa mömmu
og strákunum og svo fékk ég að
pakka inn þegar heim var komið og
enginn mátti fá að trufla á meðan
eða kíkja. Þessar ferðir gátu tekið
töluverðan tíma því pabbi þekkti
auðvitað alla og þurfti að spjalla og
eins var þetta á þeim tíma er tíðk-
aðist að fá sér aðeins neðan í því við
jólainnkaupin. Það var því oft góð-
glaður pabbi sem kom heim seint
og um síðir er líða tók á aðfanga-
dagsnóttina.
Aldrei man ég eftir að pabbi væri
með æsing eða læti, hann var svo
geðgóður að af bar. Það var aðeins í
undantekningartilvikum sem það
gerðist að hann umhverfðist, við
hrossarekstur. Það gekk svo langt
einu sinni að mamma sagði upp hjá
honum við hrossarekstur og lét
aldrei undan þegar hann seinna
meir margbað hana að hjálpa sér
aftur. Nei, takk, sagði hún, þú ert
búinn að reka mig úr þessu starfi
og nú er ég laus við að reka hross.
Afi og amma áttu heima á
Bræðraá þegar ég var lítil og þang-
að fór ég oft með pabba og mömmu,
sérstaklega um sauðburð, heyannir
og réttir. Mest þótti mér til um
þegar við pabbi fórum ein með rútu
að heimsækja afa og pabbi gaf mér
kaniltyggjó sem hann keypti í ein-
hverri sjoppunni. Annað eins tyggjó
hafði ég aldrei áður smakkað og ég
man enn eftir skrýtna bragðinu.
Áin Hrollleifsdalsá liggur í landi
Bræðraár og þar sem pabbi hafði
alveg óstjórnlegan áhuga á veiði-
mennsku voru hæg heimatökin er
hann var í heimsókn hjá foreldrum
sínum að bregða sér í veiði. Síðar
meir er afi og amma fluttu af jörð-
inni fékk pabbi alltaf leyfi til að
veiða í ánni meðan hún var ekki
leigð út og seinna keypti hann leyfi.
Þvílíkt sport sem það var að fara í
veiðiferðir með pabba og labba inn
allan Hrollleifsdalinn lengst inn í
botn. Það var gríðarlegt labb og
maður varð stundum að hlaupa því
pabbi var svo óhemju kloflangur og
stikaði áfram enda var hann enga
stund að fara inn í botn þegar hann
var ekki með krakka í eftirdragi,
annars held ég hann hafi alltaf haft
gaman af að hafa okkur systkinin
með í veiðiferðirnar. Inni í dalnum
var í minningunni alltaf einstök
veðurblíða, kyrrð og friður ásamt
fuglasöng og ýmsum dýrahljóðum.
Hestar, kindur og lömb á beit.
Þetta var næstum eins og maður
gæti ímyndað sér himnaríkisvist.
Berjaland er óhemjumikið á þessu
svæði og þær voru ófáar ferðirnar
sem við fórum til berja á haustin í
landi Bræðraár.
Eftir því sem ég varð eldri því
meira vildi ég ráða sjálf en pabbi
var ekki alltaf á því, fannst líklega
að hann hefði meira vit en ég enda
eldri og reyndari. Hann vildi sífellt
vera með hönd í bagga með flest
það sem ég tók mér fyrir hendur
því hann vildi vera viss um að allt
gengi mér í haginn. Á þessum tíma
fannst mér afskiptasemin stundum
ganga of langt en núna sé ég að
þetta var einfaldlega vegna þess
hve vænt pabba þótti um mig.
Fyrstu utanlandsferðina mína fór
ég með pabba og mömmu, pabbi
valdi svo sannarlega ekki það sem
algengast var á þeim tíma, nei, ekki
aldeilis. Til Grænlands skyldi farið
en þangað hafði hann mikla löngun
til að koma og satt að segja var
þetta æðisleg ferð, veðrið ekkert
síðra en á sólarströnd.
Pabbi minn á allt mitt þakklæti
skilið fyrir hve góður hann var allt-
af við mig og fjölskyldu mína og
alla þá hjálp og ráðleggingar sem
hann var óspar á. Ég veit að það
hefur verið vel tekið á móti honum
er hann kom til himna því pabbi
minn var öllum góður og vildi öllum
vel.
Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir.
Pabbi minn, ég vil minnast þín í
nokkrum orðum. Þótt þú sért farinn
þá veit ég að þú fylgist áfram með
okkur. Annað væri alveg óhugsandi
þar sem þú varst svo mikið fyrir að
ráðleggja okkur og taka þátt í lífi
okkar. Þú hættir því varla þótt þú
sért kominn til himna.
Ég man svo vel þegar ég var lítill
og þú komst heim með splunkunýtt
hjól handa mér, það var ekki ama-
legt fyrir 7 ára gutta að eignast al-
veg nýtt hjól. Ég var stundum með
þér á grásleppu þegar ég var bara
stráklingur og eins fór ég á rækju
með þér. Ég var með þér í hrossa-
stússinu og ýmsu öðru. Þótt við
værum mjög ólíkir þá vorum við af-
ar samrýndir. Sjómennskan var
okkur báðum í blóð borið og það
síðasta sem okkur fór á milli var
hve mikill afli hefði verið í túrnum
sem ég var að koma úr rétt áður en
þú fórst frá okkur. Allar veiðiferð-
irnar í ár og vötn sem við fórum í
gleymast aldrei né rjúpnaveiðiferð-
irnar.
Ég man hve stoltur þú varst þeg-
ar við Cristina giftum okkur. Þér
þótti svo spennandi að eignast
tengdadóttur frá Filippseyjum. Svo
þegar sonur okkar fæddist kom
ekki til greina annað en að skíra
hann eftir þér svo að þú fengir hér
um bil alnafna. Þú saknaðir hans
mikið þegar við Cristina slitum
samvistum og hún flutti í burtu en
Daddi litli, eins og hann er alltaf
kallaður, kom hér öll sumur og var
hjá okkur bæði jól og páska þannig
að þú sást hann á þeim tíma. Síð-
ustu jól kom svo Cristina líka og
var með okkur yfir áramótin og
gisti hjá ykkur mömmu, enda kall-
aði hún ykkur alltaf pabba og
mömmu og það var alltaf gott á
milli ykkar.
Þegar ég stóð í húsbyggingunni
varst þú bæði mín hægri og vinstri
hönd þar sem ég var svo mikið í
burtu á þeim tíma á sjó úti á
Flæmska. Þú hjálpaðir mér ósegj-
anlega mikið. Húsið sem ég lét
byggja var á þeim stað sem þú
byrjaðir með fjárbúskap þinn hér á
Skagaströnd. Það hlýtur að hafa
verið skrýtið að vera með fé inni í
miðjum bæ en svona var þetta á
þeim tíma. Þú varst alltaf að hugsa
um hag okkar allra og að við hefð-
INDRIÐI S.
HJALTASON
Vor ástkæri fjölskyldufaðir,
ÓLAFUR ÓLAFSSON,
Rauðalæk 59,
sem andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 29. mars, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju mánudaginn 10. apríl kl. 13.00.
Sigrún Eyþórsdóttir,
Ásta Björg Ólafsdóttir, Karl Jóhann Ormsson,
Guðrún Ólafsdóttir, Jón Guðmundsson
Eyþór Ólafsson, Eyvör Anna Ragnarsdóttir,
Ólafur Ólafsson, Sigrún Halla Guðnadóttir,
Grímur Eggert Ólafsson, Þorbjörg Guðlaugsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur bróðir okkar og mágur,
EINAR ELLERTSSON
frá Meðalfelli í Kjós,
Asparfelli 2,
Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
sunnudaginn 2. apríl, verður jarðsunginn frá Reyni-
vallakirkju í Kjós laugardaginn 8. apríl kl. 14.00.
Jarðsett verður í Reynivallakirkjugarði.
Elín Ellertsdóttir, Haukur Magnússon,
Sigríður Sæmundsdóttir,
Eiríkur Ellertsson, Ólafía Lárusdóttir,
Gísli Ellertsson, Steinunn Þorleifsdóttir,
Finnur Ellertsson, Sigurbjörg Ólafsdóttir,
Jóhannes Ellertsson, Sigurbjörg Bjarnadóttir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ELÍN GUÐJÓNSDÓTTIR,
Lindartúni,
lést á Kirkjuhvoli Hvolsvelli miðvikudagskvöldið
5. apríl.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og sonur,
AÐALGEIR OLGEIRSSON
(frá Húsavík),
Háholti 1,
Hafnarfirði,
lést á Landspítala, Hringbraut, fimmtudaginn
6. apríl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sigríður Sveinbjörnsdóttir,
Þóra Ragnheiður Aðalgeirsdóttir, Sigurður Bjarnason,
Olly Sveinbjörg Aðalgeirsdóttir,
Hjalti Már Aðalgeirsson, Kristín Bára Jónsdóttir,
Elvar Hrafn Aðalgeirsson Sonja Dögg Sigfúsdóttir,
Þórhalla Sigurðardóttir,
Aðalgeir Sigurðsson,
Alexander Ágúst Mar Sigurðsson,
Ragnheiður Jónasdóttir.