Morgunblaðið - 08.04.2006, Qupperneq 52
52 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Pálmi Stefáns-son fæddist í
Mjóanesi í Valla-
hreppi í Suður
Múlasýslu 18. maí
1943. Hann lést á
Landspítalanum í
Reykjavík 31. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
hjónin Stefán Eyj-
ólfsson bóndi, f.
18.2. 1901, d. 3.9.
1995, og Sveinbjörg
Pétursdóttir hús-
móðir, f. 11.5. 1912,
d. 8.5. 2001. Þau bjuggu í Mjóanesi
á Völlum í S-Múl. Systkini Pálma
eru Reynir, f. 11.3. 1939, Sigur-
laug, f. 4.11. 1940, Víðir, f. 18.5.
1943, d. 22.12. 1975, og Þuríður, f.
29.1. 1950.
Sambýliskona Pálma er Þuríður
Margrét Haraldsdóttir frá Nes-
kaupstað, f. 1.12. 1943.
Pálmi kvæntist 20.9. 1964, Sig-
ríði Flosadóttur frá Miðbæ Norð-
firði, f. 21.9. 1944, þau skildu 1988.
Börn þeirra eru: 1) Björn Mar-
inó, f. 14.10. 1962, sambýliskona
Kristín Þorvaldsdóttir, f. 4.4. 1964.
Börn þeirra eru Sigríður Inga, f.
lauk hann gagnfræðaprófi verk-
náms. Pálmi var á námssamningi
hjá Brúnás á Egilsstöðum og lærði
þar húsasmíði og tók burtfarar-
próf frá Iðnskólanum í Neskaup-
stað í þeirri iðngrein. 1967–1968
flutti Pálmi með fjölskyldu sína í
nýbyggt hús á Egilsstöðum og bjó
þar til 1974 en þá flutti hann norð-
ur á Sauðárkrók þar sem hann
hafði ráðið sig til Kaupfélags
Skagfirðinga sem deildarstjóri
trésmíðaverkstæðis K.S. Þar starf-
aði hann um 6 ára skeið og sá þar
um og kom að uppbyggingu og
viðhaldi fasteigna fyrirtækisins
fram til 1980. Þá réð hann sig til
Trésmiðjunnar Borg og vann þar
um tveggja ára skeið. 1982 flutti
fjölskyldan til Reykjavíkur en þar
starfaði hann við húsasmíði og
fasteignasölu um árabil. Auk þess
settist hann aftur á skólabekk við
Iðnskólann í Reykjavík og lauk
þar meistaranámi í húsasmíði með
hæstu einkunn. Árið1998 flutti
hann til sambýliskonu sinnar í
Danmörku en þau fluttu til
Reykjavíkur ári síðar. Árið 2000 lá
leið þeirra austur til Egilsstaða
þar sem hann vann við smíðar. Þau
komu sér upp heimili að Einbúablá
40, þar sem hann bjó til æviloka.
Útför Pálma verður gerð frá
Egilsstaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Jarðsett verður í Vallanes-
kirkjugarði.
20.9. 1984, og Þor-
valdur Ingi, f. 19.10.
1986. 2) Stefán
Sveinn, f. 29.12. 1965,
kvæntur Drífu Sig-
urðardóttur, f. 28.11.
1966. Börn þeirra
eru Sigurveig, f. 29.6.
1989, Pálmi, f. 24.5.
1996, og Heiðbjört, f.
13.9. 2003. 3) Flosi, f.
4.3. 1972, sambýlis-
kona Guðrún Svein-
björnsdóttir, f. 30.9.
1971. Börn þeirra
eru Viktor Snær, f.
23.5. 2002 og María Líf, f. 18.11.
2003. Fyrir átti Flosi soninn Alex
Þór, f. 24.6. 1996, með Heiðrúnu
Huldu Þórisdóttur. 4) Þórunn
María, f. 20.6. 1973, sambýlismað-
ur Stefán Hjörleifur Snorrason, f.
4.4. 1968. Börn þeirra eru Ástrún
Arna, f. 2.10. 1995, og Snorri Már,
f. 9.2. 1999. Fyrir átti Þórunn
María soninn Pálma Frey, f. 13.7.
1994, með Ragnari Inga Péturs-
syni.
Pálmi ólst upp í Mjóanesi og
gekk í barnaskóla að Eyjólfsstöð-
um á Völlum en eftir það lá leið
hans í Alþýðuskólann Eiðum. Þar
Elsku pabbi, nú hefur þú kvatt
okkur í síðasta sinn. Það er mjög erf-
itt að hugsa til þess að fá ekki að hitta
þig aftur.
Ég verð ánægð þegar ég hugsa til
baka að hafa haft þann tíma sem við
fengum að vera með þér síðustu vik-
ur á meðan þú bjóst hjá okkur í
Keilufellinu.
Þó svo að þér hafi liðið illa þá
reyndir þú allt til þess að vera hress
og jákvæður og gast sagt okkur
skemmtilegar sögur og brandara.
Mjög mörg kvöld sátuð þið Stebbi
og spjölluðuð og var ekki ósjaldan
hlegið mikið.
Ég gleymi nú seint því kvöldi þeg-
ar ég skrapp út smástund og Stebbi
reyndi að kveikja í kofanum, þú verð-
ur nú að pikka í hann fyrir mig næst
þegar hann er að sjóða egg og ég
ekki heima. Það var gott að vita af
þér heima hjá mér þegar börnin
komu heim úr skólanum og við að
vinna. Þeim hefur þú alltaf verið góð-
ur.
Ef ég fer ennþá lengra til baka í
huganum þá var alveg sama hvað ég
þurfti hjálp við, þú varst til í að
hjálpa. Þú komst til okkar Stefáns og
Bjössi bróðir líka og skelltuð parketi
á íbúðina fyrir okkur á einni kvöld-
stund eða svo. Seinna skiptuð þið um
glugga með okkur og þú gerðir allt
fyrir okkur. Við eigum eftir að sakna
þín um næstu jól, það verður tómlegt
að hafa þig ekki þá eins og seinustu
ár, en það máttu vita að Þura er vel-
komin þó svo að þig vanti, hún á sinn
stað í hjörtum okkar. Við kveðjum
þig nú og vonum að þér líði vel þar
sem þú ert og trúum því að við eigum
eftir að hittast aftur. Bless elsku
pabbi minn, þín dóttir
Þórunn.
Faðir minn Pálmi Stefánsson frá
Mjóanesi er látinn. Það fer margt um
huga minn á þessari stundu, minn-
ingarnar hrannast upp. Minningar
margra en þó of fárra samveru-
stunda í sinni og verkum þar sem við
tókumst í samheldni á við lífið og til-
veruna. Ævinlega var verið að vinna
og brasa við ýmsa hluti. Það þurfti að
halda vélum og tækjum gangandi,
smíða hluti úr tré og járni en á þann-
ig verkefnum kunnir þú góð skil. Í
æsku minnist ég mjólkurflutninga
um vetur í Norðfjarðarsveit með
pabba í jarðýtu með brúsasleðann í
eftirdragi. Göngu hans yfir Odds-
skarð, frá Neskaupstað til Eskifjarð-
ar á snjóþrúgum, en þar var verið að
reisa loðnuverksmiðju. Það þótti mér
snáðanum mikið afrek í öllu fann-
ferginu, en við Stefán bróðir vorum
með mömmu í Miðbæ. Margar ferðir
áttum við upp í Mjóanes í æsku
minni að heimsækja afa og ömmu og
oftar en ekki var hjálpast að við ein-
hver verk á bænum. Þú aðstoðaðir
einnig systkini þín við uppbyggingu
og viðhald heimila þeirra og oftar en
ekki leiðbeindir þú um það hvernig
hlutirnir mættu vel fara. Nú síðast
hjá Sigurlaugu og Agli. Störf þín
voru farsæl og allt handbragð til fyr-
irmyndar og þess nutu margir. Þú
vannst meðal annars að byggingu
Egilsstaðakirkju, Símstöðvarinnar á
Reyðarfirði og Kísilverksmiðjunnar
við Mývatn. Hjá Kaupfélagi Skag-
firðinga þurfti að halda við, breyta og
byggja ný hús svo sem hjá Fiskiðj-
unni, Ártorgi 1 og Ketilási í Fljótum.
Í Reykjavík var smíðað og um tíma
seldar fasteignir. Þar varst þú síð-
ustu árin með eigin atvinnurekstur
og lagðir meðal annars parket í for-
setabústaðnum á Bessastöðum af öll-
um stöðum. Tónlist átti ríkan sess í
huga þínum alla tíð. Saví-kvintett lék
stundum fyrir dansi í Ásbíói á Egils-
stöðum í gamla daga og harmonikkan
var oftar en ekki þanin heilu dans-
leikina og var þér því ævinlega hug-
leikin. Ég minnist til dæmis mann-
fagnaðar úti á Eiðum þar sem þú
leystir Óla heitinn Kerúlf af við spila-
mennsku og lékst fyrir dansi fram á
rauða kvöld. Saman lékum við með
lúðrasveit Sauðárkróks um tíma.
Söngur kom einnig við sögu þar sem
þú varst meðal annars formaður
Samkórs Trésmiðafélags Reykjavík-
ur og nú undir það síðasta félagi í
karlakórnum Drífanda á Héraði.
Harmonikkufélag Fljótsdalshéraðs
var þér mjög hugleikinn félagsskapur
sem sýndi sig best á dánardægri þínu
þegar þú fórst að tala um hversu
gaman hefði verið að taka þátt í
árshátíðinni með félögunum það
sama kvöld. Saman höfum við gert
marga hluti og oftast hefur það verið
með uppbyggingu heimila okkar og
aðstöðu fjölskyldunnar í fyrirrúmi.
Við hjálpuðumst öll við að komast inn
í Birkihlíð 10, Sauðárkróki. Þar var
smíðað, múrað að utan og innan,
glerjað og málað. Þú komst og að-
stoðaðir okkur Stínu við byggingu
heimilis okkar í Grenihlíðinni. Við
vorum saman við endurbætur í
Skipasundinu í Reykjavík og síðast
við byggingu í Einbúablá þar sem nú
stendur reisulegt hús. Sumarbústað-
urinn í Skógkinn, eins og þú kaust að
nefna staðinn, á stóran stað í hjörtum
okkar Stínu og barna okkar. Þangað
komum við oft til pabba og afa þar
sem hann bjó í tjaldvagninum í marg-
ar vikur á meðan húsið reis. Eftir að
búið var að loka því var setið á gólf-
bitum með plötubút sem gólf, þar sem
prímusinn suðaði á meðan saltkjötið
sauð. Hjá þér var mikil tilhlökkun til
framtíðar þar sem svo margt var eftir
að gera uppi í bústað af ánægjulegum
verkefnum sem kannski tækju aldrei
enda. Hinn fullkomni sælureitur. Af
þessu niðurlagi varð ekki þar sem al-
varleg veikindi gerðu vart við sig um
síðustu áramót. Við þannig þáttaskil
stöðvast tíminn en líður þó sennilega í
raun aldrei hraðar. Þú tókst því sem
að höndum bar í veikindum þínum
með alveg ótrúlegu æðruleysi, styrk
og skynsemi eins og þín var von og
vísa. Elsku pabbi, þakka þér allar
samverustundir fyrr og síðar. Minn-
ingin um góðan og traustan föður
mun lifa með mér um ókomin ár.
Kæra Þura, systkini mín og aðrir að-
standendur. Megi góður guð styrkja
okkur öll á þessum erfiða tíma. Með
þökk fyrir allt og allt.
Þinn sonur,
Björn Marinó.
Það er svo ótrúlegt að hugsa til
þess að þú sért farinn, að þú sért far-
inn og komir ekki aftur. Ég er alltaf
að bíða eftir því að þú komir og segir
okkur að þetta sé ekki satt, að þú sért
ennþá hér hjá okkur, og orðinn frísk-
ur. Ég veit ekki hvað ég á að segja,
engin orð fá lýst hvernig mér líður.
En ég held að þú vitir það…
Elsku afi minn, ég vildi óska þess
að hægt væri að snúa aftur tímanum
og breyta hlutunum, en það er víst
ekki í boði. Þess vegna verðum við
fjölskyldan að vera sterk og halda
áfram að ganga okkar veg, sem er
vonandi sá rétti. Þegar ég hugsa til
framtíðar þá er alltaf skuggi þar á…
Hvernig verður að koma austur á Eg-
ilsstaði og enginn afi þar? Hvernig
verður að koma í bústaðinn í Mjóa-
nesi, og enginn afi þar? Hvernig verð-
ur að halda jólin og senda ekki jóla-
kort eða pakka til þín? Hvernig,
hvernig, hvernig? En ég verð víst
bara að komast að því hvernig það
verður…
Ég get ekki hætt að hugsa um
skilaboðin sem þú sendir mér þegar
þú varst nýkominn austur í síðasta
sinn, mér þykir svo vænt um þau! Ég
elska þig líka alveg óendanlega mikið
og ég vildi óska að ég hefði sagt þér
það miklu oftar en ég gerði! Elsku afi
minn, ég veit að núna situr þú á skýi
og horfir niður til okkar, líklega með
hamar í annarri hendi, og gott ef þú
ert ekki að hlusta á tónlist. Ætli þú
farir svo ekki í það að byggja tónlist-
arhöll, það væri þér líkt, að flétta
saman það tvennt sem þú vildir gera,
spila tónlist og smíða. Ég veit að núna
ert þú kominn á betri stað, kominn til
mömmu þinnar og pabba, og þjáning-
in er búin. Einn daginn verðum við
svo öll komin upp til þín og þá munum
við aftur eiga góða tíma saman.
En þangað til mun minningin um
þig ylja okkur um hjartaræturnar.
Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson.)
Elsku afi minn, ég sakna þín svo
óendanlega mikið, ég mun hugsa til
þín á hverjum degi og ég skal aldrei
gleyma þér. Þín sonardóttir,
Sigríður Inga Björnsdóttir.
PÁLMI
STEFÁNSSON
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Myndir Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
er ráðlegt að senda hana á
myndamóttöku: pix@mbl.is og
láta umsjónarmenn minningar-
greina vita.
Minningargreinar
Pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.350 kr. á mann.
Perlan
ERFIDRYKKJUR
Kæru ættingjar og vinir.
Þökkum ykkur öllum auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa,
langafa, langalangafa og vinar,
GUÐMUNDAR GEIRS ÓLAFSSONAR,
Grænumörk 3,
Selfossi.
Sérstakar þakkir til Oddfellow bræðra fyrir þeirra
hjálp og stuðning.
Guð blessi ykkur öll.
Erla Guðmundsdóttir, Gunnar Guðnason,
Ólafur Þ. Guðmundsson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
Ingunn Guðmundsdóttir, Sigurður Karlsson,
Soffía Ólafsdóttir,
barnabörn og aðrir afkomendur.
Elskulegur bróðir okkar og vinur,
ARNÓR LÚÐVÍK HANSSON,
Hátúni 8,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Stóra Dalskirkju, Vestur-
Eyjafjöllum, laugardaginn 8. apríl kl. 14.00.
Árni Kr. Hansson,
Þorsteinn Hansson,
Ragnheiður Sigríður Valdimarsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
FJÓLU ELÍASDÓTTUR,
Syðra-Seli,
Hrunamannahreppi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss
Suðurlands og hjúkrunarheimilinu Ljósheimum,
Selfossi.
Elsa Sigrún Böðvarsdóttir,
Guðrún Böðvarsdóttir, Sigurður Hannesson,
Guðmundur Böðvarsson, Ragnheiður Richardsdóttir,
Margrét Böðvarsdóttir, Birgir Thorsteinson,
Kristrún Böðvarsdóttir, Sigurður Jóakimsson,
Agnes Böðvarsdóttir, Þorvaldur Jónsson
og fjölskyldur.
Móðir okkar,
DAGBJÖRT GÍSLADÓTTIR
frá Kirkjuhvoli,
Þykkvabæ,
síðast til heimilis
í Skógabæ,
verður jarðsungin frá Þykkvabæjarkirkju miðviku-
daginn 12. mars kl. 13.30.
Helga Sveinsdóttir,
Guðrún Gyða Sveinsdóttir,
Guðbjörg Sveinsdóttir.