Morgunblaðið - 08.04.2006, Side 58
58 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn er ekkert gefinn fyrir þol-
inmæði. Kannski er hægt að nefna
þessa svokölluðu dyggð eitthvað annað
og afbera þannig þá löngu bið sem blas-
ir við þér í dag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Fólk sem hugsar eins og þú, talar eins
og þú og lætur eins og þú er auðvitað
snillingar. Af hverju ættir þú ekki að
vilja eyða meiri tíma með þannig mann-
eskjum? Þú færð tækifæri til þess í dag
eða á morgun.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Samband virðist vera að þróast hratt í
rangar áttir. Tvíburinn er ekki alveg
viss um hvernig það byrjaði, en veit
þeim mun betur að hann vill nema stað-
ar hér. Finndu mest heillandi aðferðina
til þess.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn er að leita að fullkomnasta fé-
laganum, bæði í viðskiptum og afþrey-
ingu. Hafðu í huga að allir eru með sinn
sérstaka stíl. Ef þú hrapar of snemma
að ályktunum kemur það hugsanlega í
veg fyrir að þú uppgötvir hæfileika ein-
hvers.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Dagurinn í dag ber ýmislegt í skauti
sér. Sumt er freistandi, annað fyndið og
það þriðja of gott til þess að sleppa því.
Þú gætir bæði verið dómarinn og kvið-
dómendurnir, en reyndar er miklu
meira spennandi að taka að sér hlutverk
hirðfíflsins.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Nýttu þér meðfædda hæfileika þína til
þess að láta hluti vaxa og dafna. Það er
sama hversu lítilfjörleg viðleitni þín
sýnist, niðurstaðan verður óvæntur
gróði.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Himintunglin hvetja vogina til þess að
taka fjármálin alvarlega á meðan hún er
að ákveða næstu skref. Þegar það er bú-
ið og gert á hún að gefa sér tíma til þess
að slaka á. Þetta eru bara peningar,
þegar öllu er á botninn hvolft.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þó að kastljósið beinist að einhverjum
sem er nærri sporðdrekanum á hann
ekki að taka það alvarlega. Þú færð þinn
skerf með því að vera dyggur stuðnings-
maður. Ástarævintýri sem ekki kom til
greina fyrir skemmstu, er nú möguleiki.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Fólk man hlutina á misjafnan hátt og
auðvitað veldur ósamræmið dálitlum
óróleika. Þín leið er rétt, að sjálfsögðu.
Ekki reyna að sannfæra neinn um það,
það er helber tímasóun.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ábyrgðin virðist ekki svo þreytandi.
Steingeitin blómstrar ef hún nær að
bæta aðeins fleiri skyldum á sig. Umb-
unin kemur fljótt, kannski strax í kvöld.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Hugarburður vatnsberans virðist eilítið
raunverulegri en raunveruleikinn sjálf-
ur. Þannig er líf draumóramannsins.
Þín villtasta hugdetta gæti orðið að
veruleika með örlítið meiri ásetningi og
vinnu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn er óseðjandi! Framtaks-
samur! Ástríðufullur! En samt sem áður
hættir þér til þess að fara út af sporinu.
Þannig helst krafturinn. Ekki vera hissa
ef eitthvað misferst í meðförum, hafðu
varaáætlun í farteskinu til þess að bæta
það upp.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Stríðsmaðurinn Mars og
örlagavaldurinn Plútó tog-
ast á í himingeimnum.
Áhrifanna verður bæði vart á persónu-
legum og hnattrænum nótum. Vísinda-
uppgötvun tengd erfðafræði er kannski á
döfinni. Eða þá að himintunglin hjálpa
manni að sætta sig við arfleifð sína eða
arfbera.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 brekka, 4 hrúg-
ald, 7 púði, 8 ónáða, 9
þegar, 11 lengdareining,
13 borðuð, 14 baunir, 15
ávöl hæð, 17 ástundun,
20 skar, 22 bólgna, 23
guggin, 24 rekkjum, 25
þekki.
Lóðrétt | 1 kjöltra, 2
girnd, 3 straumkastið, 4
naut, 5 gæft, 6 örninn, 10
muldrar, 12 veiðarfæri,
13 bókstafur, 15 ber illan
hug til, 16 hljóðfærum,
18 æviskeiðið, 19 nes, 20
sorg, 21 fráleit.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 munntóbak, 8 lúgur, 9 étinn, 10 pot, 11 merja,
13 ildið, 15 felga, 18 eðlis, 21 rói, 22 ertni, 23 renna, 24
mannvitið.
Lóðrétt: 2 uggur, 3 norpa, 4 óféti, 5 aðild, 6 slæm, 7 snuð,
12 jag, 14 lið, 15 frek, 16 lotna, 17 arinn, 18 eirði, 19
lungi, 20 skap.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Alþjóðahúsið | One time only concert:
Toronto jazz guitarist and vocalist,
George Grosman, at Althjodahus on Sat-
urday, April 8 at 3pm. Performing with
George will be Thorir Johansson and viol-
inist Dan Cassidy. George will perform
standards from the Classic American
Songbook, as well as some original tunes.
Jassgítarleikarinn og söngvarinn George
Grosman frá Toronto heldur tónleika í Al-
þjóðahúsi 8. apríl. Þórir Jóhannsson og
Dan Cassidy fiðluleikari munu spila með
honum. George mun meðal annars spila
tónlist úr Classic American Songbook.
Breiðholtskirkja | Sálumessa Mozarts.
Kirkjukór Breiðholtskirkju, Landsvirkj-
unarkórinn, Samkór Selfoss og Samkór
Reykjavíkur halda tónleika í tilefni 250
ára fæðingarafmælis Mozarts. Tónleikarn-
ir hefjast kl. 17. Hljómsveitarstjóri Gunn-
steinn Ólafsson. Miðaverð kr. 2000.
Breiðholtskirkja | Requiem eftir Mozart
kl. 17 í flutningi Samkórs Selfoss, Sam-
kórs Reykjavíkur, Kirkjukórs Breiðholts og
Landsvirkjunarkórsins. Einsöngvarar: Ólöf
Inger Kjartansdóttir, Jóhanna Ósk Vals-
dóttir, Bjartmar Sigurðsson og Keith
Reed. Stjórnandi Gunnsteinn Ólafsson,
konsertmeistari Sif Tulinius.
Café Aroma | Snilldarhljómsveitin Menn
ársins spila í kvöld.
Fríkirkjan í Reykjavík | Sálmatónleikar
Ellenar Kristjánsdóttur og Eyþórs Gunn-
arssonar í Fríkirkjunni hinn 9. apríl nk. kl.
20 Miðasala hafin á midi.is og í versl-
unum Skífunnar og BT Háteigskirkja |
Blásarasveitir Tónlistarskólans í Reykjavík
flytja verk eftir ýmsa höfunda kl. 14.
Langholtskirkja | Vortónleikar Karlakórs
Reykjavíkur fara fram í Langholtskirkju
2.–8. apríl. Einsöngvarar eru Sigrún
Hjálmtýsdóttir sópran, Sveinn Hjörleifs-
son tenór og Hjálmar Pétursson bassi.
Undirleik annast Anna Guðný Guðmunds-
dóttir og stjórnandi er Friðrik S. Krist-
insson.
Salurinn | Píanótónleikum Ivans Klánský,
sem áttu að vera í Salnum sunnudaginn
9. apríl kl. 20, falla niður vegna meiðsla.
Þeir sem þegar eiga miða á tónleikana
eru beðnir að hafa samband við miðasölu
í síma 5700-400.
Salurinn | Kl. 17: Sænski kammerhóp-
urinn Swanholm Singers. Miðaverð:
2000/1600 í síma 5700400 og á
www.salurinn.is
Sjallinn, Akureyri | Hljómsveitirnar
Thingtak (Alþingi), Helgi og hljóðfæraleik-
ararnir, Hugsýki, Infiniti, Mistur og Grass í
kvöld. Húsið opnað kl. 21.30. Diskur fylgir
fyrstu 50 miðunum. Að tónleikunum
loknum mun DJ halda uppi stuðinu fram
á nótt.
Myndlist
101 gallery | Hulda Hákon, EBITA. Opið kl.
14–17 fim., föst. og lau. Sýningin stendur
til 15. apríl.
Café Karólína | Þorvaldur Þorsteinsson –
Íslandsmyndir. Til 5. maí.
Gallerí Dvergur | Sigríður Dóra Jóhanns-
dóttir myndlistarmaður flytur gjörninginn
Fram og til baka kl. 18–19.
Gallerí Fold | Lilja Kristjánsdóttir sýnir
málverk í Baksalnum til 9. apríl.
Gallerí Galileó | Ljósenglar. Myndlist-
arkonan Svala Sóleyg sýnir olíumálverk
sem eru að uppistöðu englamyndir og
verk með trúarlegu ívafi í tilefni
páskanna. Til 26. apríl.
Gallerí Gyllinhæð | 2. árs myndlist-
arnemar LHÍ sýna „mini me“ til 9. mars.
Opið fim.–sun. 14–18.
Gallerí Humar eða frægð! | Við krefjumst
fortíðar! sýning á vegum Leikminjasafns
Íslands um götuleikhópinn Svart og syk-
urlaust. Opið kl. 12–17 lau., 12–19 föst. og
12–18 aðra virka daga.
Gallerí Sævars Karls | Pétur Halldórsson
til 19. apríl.
Gerðuberg | Tískuhönnun Steinunnar Sig-
urðardóttur, myndbönd frá tískusýn-
ingum, ljósmyndir o.fl. til 30. apríl. Opið
kl. 13–16 um helgar.
Gerðuberg | Margræðir heimar – Alþýðu-
listamaðurinn Valur Sveinbjörnsson sýnir
málverk í Boganum. Til 30. apríl.
Hallgrímskirkja | Sýning á olíumálverkum
Sigrúnar Eldjárn stendur til 30. maí.
i8 | Tumi Magnússon sýnir ljósmyndir og
myndbandsverk út apríl.
Karólína Restaurant | Joris Rademaker
sýnir ný verk, Mjúkar línur/ Smooth lines
til 6. okt.
Listasafnið á Akureyri | Spencer Tunick
– Bersvæði, Halla Gunnarsdóttir – Svefn-
farar. Safnið er opið alla daga nema
mánudaga kl. 12–15.
Listasafn Íslands | Gunnlaugur Blöndal –
Lífsnautn og ljóðræn ásýnd og Snorri Ar-
inbjarnar – Máttur litarins og spegill tím-
ans. Ókeypis aðgangur. Kaffistofa og
Safnbúð opin á opnunartíma.
Listasafn Íslands | Leiðsögn kl. 11.30 í
fylgd Ólafs Kvaran safnstjóra um sýningu
á verkum Snorra Arinbjarnar. Leiðsögn kl.
12.15 í fylgd Hörpu Þórsdóttur, listfræð-
ings, um sýningu á verkum Gunnlaugs
Blöndal. Ókeypis aðgangur. Verið velkom-
in.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Tær-
leikar – Samsýning listamannanna Elinu
Brotherus, Rúrí og Þórs Vigfússonar. Opið
kl. 11–17 þrið.–sun. Til 23. apríl. Safnbúð
og kaffistofa. Til 23. apríl.
Listasafn Reykjanesbæjar | Sýningin
Náttúrurafl er samsýning 11 listamanna
þar sem viðfangsefnið er náttúra Íslands.
Málverk, skúlptúrar, vefnaður og graf-
íkmyndir. Verkin eru í eigu Listasafn Ís-
lands. Opið kl. 13–17.30.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Ásmundur Sveinsson – Maður og efni.
Sýning á úrvali verka úr safneign Ás-
mundarsafns, sem sýnir með hvaða hætti
listamaðurinn notaði mismunandi efni –
tré, leir, stein, brons, og aðra málma – og
hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólík-
um efnum. Til 30. apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Á
sýningunni má sjá ýmis verk Erró frá
barnsaldri þar til hann hélt sína fyrstu
einkasýningu á Íslandi í Listamannaskál-
anum árið 1957. Öll verkin á sýningunni
eru úr Errósafni Listasafns Reykjavíkur
og gefa áhugaverða mynd af hæfi-
leikaríkum og vinnusömum ungum manni.
Sýningin stendur til 23. apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Lík-
amshlutar, sjálfsmyndir – John Coplans
fæddist í Bretlandi árið 1920. Listamað-
urinn kom víða við á löngum ferli sínum
og varð meðal annars einn af stofn-
endum Art Forum listatímaritsins. Á efri
árum lagði hann stund á ljósmyndun og
tók sjálfsmyndir frá 1980. Coplans lést
árið 2003. Sýningin stendur til 17. apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | AF-
sprengi HUgsunar – Sprengiverk Guðjóns
Bjarnasonar. Guðjón er kunnur fyrir öflug
verk sín þar sem hann sprengir sundur
stálrör og stillir brotunum saman á nýjan
leik. Á sýningunni getur að líta nýja nálg-
un Guðjóns við viðfangsefni sitt sem
hann vinnur í ólíka miðla. Til 23. apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning fyrir unga listunnendur sem sett
er upp í tengslum við útgáfu nýrrar bókar
Eddu útgáfu um myndlist fyrir börn þar
sem kynnt eru verk úr safneign Lista-
safns Reykjavíkur. Til 3. des.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Ljóð
Berglindar Gunnarsdóttur og textílverk
Helgu Pálínu Brynjólfsdóttur ásamt högg-
myndum Sigurjóns Ólafssonar. Opið lau.
og sun. 14–17.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Innsetningar eftir Joseph Kosuth og Ilja
& Emiliu Kabakov sem eru fremstu kons-
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða